Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Síða 20
LIFRARPYLSA - INNIHALDSLÝSING Lambalifur (35%) lambamör vatn undanrennuduft rúgmjöl haframjöl salt Lamba- og nautalifur (26%) vatn kindamör rúgmjöl hveiti sojaprótín kartöflumjöl haframjöl salt Lambalifur (31,43%) lambamör mjólk rúgmjöl haframjöl vatn salt Morgunblaðið/Styrmir H in alíslenska lifrarpylsa er vinsæl fæða, ekki síst hjá börnum. Uppi- staðan í lifrarpylsu er lambalifur og mör en að auki er bætt við haframjöli, rúgmjöli, mjólk eða mjólkurdufti auk vatns og salts. Þegar bornar eru saman innihaldslýsingar soðinnar lifrarpylsu hjá þremur framleið- endum kemur þó í ljós að ekki er sama hvaðan lifrarpylsan kemur, bæði hvað varðar innihaldsefni, fitu og fjölda hitaeininga. Lifrarpylsa frá Kjarnafæði og frá Goða er svipuð að innihaldi, aðeins munar á hlutfalli lifrar í lifrarpylsunni auk þess sem vatns- magn er minna hjá Kjarnafæði. (Þumalputta- regla þegar innihaldslýsingar eru lesnar er að þau efni sem mest er af eru talin upp fyrst.) Þá notar Goði undanrennuduft en Kjarnafæði notar mjólk. Þegar innihald lifrarpylsu frá Sláturfélagi Suðurlands er skoðað sést að notast er við talsvert breytta uppskrift. Notuð er í bland lamba- og nautalifur í stað hreinnar lamba- lifrar, kindamör er notaður í staðinn fyrir lambamör auk þess sem lifrarpylsan er vatnsmeiri. Þá er bætt við sojapróteini, kart- öflumjöli og hveiti þannig að innihaldsefnin eru fleiri en hjá hinum, en lifrarpylsan frá SS er hins vegar fituminni en hinar. Næringargildi lifrarpylsu er þannig ólíkt eftir því hvaða lifrarpylsa er valin. Mest fitu- innihald er í lifrarpylsunni frá Kjarnafæði eða 27 g í hverjum 100 g en minnst fita er í lifrarpylsunni frá SS, 21 g í 100 g, en lifrar- pylsan frá Goða inniheldur 23 g af fitu í hverjum 100 g. Fæstar hitaeiningar eru í lifrarpylsunni frá Kjarnafæði eða 260 í 100 g á móti 289 hitaeiningum í Goða-lifrarpylsu og 305 hitaeiningum frá SS. RÝNT Í INNIHALDSLÝSINGAR LIFRARPYLSU Ekki sama hvaða lifrarpylsa SS BÆTIR SOJAPRÓTÍNI, KARTÖFLUMJÖLI OG HVEITI Í UPPSKRIFT AÐ LIFRARPYLSU SEM SELD ER SOÐIN Í VERSLUNUM. GOÐI OG KJARNAFÆÐI NOTAST VIÐ HEFÐBUNDNAR UPPSKRIFTIR VIÐ SÍNA LIFRARPYLSUGERÐ. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is *Heilsa og hreyfingÞríþraut nýtur vaxandi vinsælda hér á landi og fjöldi fólks leggur land undir fót til að keppa »21 Q i gong gengur meðal annars út á að bæta heilsu sína og líðan. Það eru ákveðnar æf- ingar sem þú getur gert til að virkja ákveðin líffæri. Ef það er vandamál með lifur þá getur þú hreyft þig á ákveðinn hátt og gert öndunaræfingar. Öndun er algjört grunnatriði í Qi gong. Þegar við vorum ungbörn kunnum við að anda en flest okkar hættum að anda nógu djúpt eftir að við urðum fullorðin. Þá vantar súrefni í líkam- ann. Bara það að læra að anda djúpt og rólega gerir fólki gott. Við þurfum að vera í jafnvægi og við þurfum að vera í jafnvægi við mennina og náttúruna í kringum okkur. Það er heil hugmyndafræði á bak við þetta. Rétt eins og blóðið sem flæðir um líkamann okkar er orka sem flæðir um hann. Hún er ekki jafn sýnileg og blóðið en hún er þarna. Til að við séum heilbrigð þarf þessi grunnorka að flæða vel um líkam- ann. Það tekur langan tíma að ná valdi á þessari orku, en það er hægt að ná því með iðkun Qi gong,“ segir Þóra Halldórsdóttir hjá Aflinu sem er áhugamanna- félag um Qi gong á Íslandi. Um síðustu mánaðamót kom doktor Yang, Jwing-Ming til lands- ins og hélt námskeið á vegum Afls- ins. Alls sóttu námskeiðið 40 manns en iðkendur Qi gong á Ís- landi eru hátt í 200 manns. Þau hittast þrisvar í viku og gera æf- ingar í 40 mínútur í senn. Á vet- urna eru æfingar gerðar innan dyra en á sumrin æfa þau í Grasa- garðinum. „Doktor Yang kennir líka bar- dagaíþróttir einsog kung fu og tai chi, en með okkur fór hann aðal- lega í Qi gong,“ segir Þóra. Doktor Yang, meistari í Qi gong, ásamt Þóru Halldórsdóttur. Morgunblaðið/Árni Sæberg QI GONG Á ÍSLANDI Öndun skiptir miklu HEILBRIGÐ SÁL Í HRAUSTUM LÍKAMA ER EITTHVAÐ SEM ALLIR ÞRÁ. EN TIL ÞESS ÞARF AÐ ÆFA SIG. IÐKENDUR QI GONG Á ÍSLANDI ERU YFIR 200 OG FLESTIR ÆFA ÞRISVAR Í VIKU. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Elísabet Margeirsdóttir næringarfræð- ingur segir gagnlegt fyrir neytendur að kanna innihaldslýsingar og spyrja sig hvaða efnum sé bætt í matinn. Hún segir lifrarpylsu almennt meinholla í hæfilegu magni, hver sem uppskriftin er. „Goði og Kjarnafæði halda sig við hefðbundna uppskrift, svipaða og við notum heima, en lifrarpylsan frá SS er meira unnin vara. Hjá SS hefur upp- skriftin verið þróuð meira, þar er not- ast við kartöflumjöl og sojaprótein, líklega til að drýgja eða bæta áferð vörunnar. Þetta eru skaðlaus efni, en þarna er samt verið að setja eitthvað í sem við þurfum ekkert endilega á að halda,“ segir Elísabet. Ekki skaðlegt en líklega óþarft

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.