Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 28
*Matur og drykkir Mexíkósk kjúklingasúpa með nachos , rifnum osti og sýrðum rjóma í matarboði á Skaganum »29
D
avid Wolfe og Sólveig Eiríks-
dóttir hittust í fyrsta skipti í
brúðkaupi í Kaliforníu. Solla
hafði tekið að sér að kokka fyr-
ir veislugesti en Wolfe sá um að pússa par-
ið saman. Þau urðu fljótt miklir vinir enda
deila þau óþrjótandi heilsu- og mataráhuga.
Þegar Solla er spurð af hverju hún ákvað
að snúa við blaðinu og prófa hráfæði hlær
hún við og segir: „Það er dálítið skemmti-
legt að segja frá því að við Wolfe eigum
mjög svipaða sögu.“ Hún útskýrir að bæði
hafi þau verið miklir ofnæmissjúklingar,
fyrir mat og umhverfi, en fundið lausn í því
að breyta um mataræði. „Ég var kynnt fyr-
ir leið til þess að læknast af ofnæmi en það
hafði gert mér mjög erfitt fyrir. Ég byrjaði
á því að fara í hálfs árs strangan matarkúr
þar sem ég tók margt út úr fæðinu. Ég
fórnaði mér tímabundið og fann fyrir bata
og betri líðan. Ég hætti því alfarið að borða
margt, t.d. unnar matvörur, hveiti, sykur og
mjólkurvörur.“ Hún segir að lykillinn að
bata sé að fara alla leið en það sé eina leið-
in til að læknast fullkomlega.
Heldur tvo fyrirlestra hér á landi
Foreldrar Davids Wolfes eru bæði læknar
en sjálfur skartar hann gráðum í umhverfis
- og vélaverkfræði, stjórnmálafræði, lög-
fræði og næringarfræði. Eftir að hann fann
lausn á ofnæminu hefur Wolfe verið einn
virkasti liðsmaður súperfæðuhersins. Hann
hefur verið á ferðalagi í tæp tuttugu ár og
aldrei staldrað lengur við en fjórar vikur í
senn á hverjum stað. Á ferðalögum sínum
sankar hann að sér fróðleik sem hann svo
miðlar á milli samfélaga. Sjálfur vinnur
hann ekki að rannsóknum en hann vinnur
náið með virtum rannsóknarstofum og
bendir þeim á hráefni sem verðugt er að
rannsaka.
Nú er Wolfe að leggja í sína fjórðu heim-
sókn til Íslands en hann mun flytja tvo fyr-
irlestra, hinn 29. og 30. október, á veit-
ingastaðnum Gló. Fyrri fyrirlestrar hafa
vakið mikla lukku enda er nú þegar uppselt
á fyrri fyrirlesturinn, á þann seinni má enn
fá sæti. Fyrirlesturinn verður þó frábrugð-
inn fyrri fyrirlestrum að því leyti að nú
hyggst Wolfe ekki aðeins kynna landanum
hráfæði heldur útskýra hvernig má nálgast
hráefni á Íslandi og búa til heilsudrykki.
„Það er ómögulegt að hlusta á fyrirlestur
þar sem talin eru upp hráefni sem ómögu-
legt er að nálgast nema í gegnum nokkrar
nörda-netverslanir. Að því leyti verður þessi
fyrirlestur einstakur. Wolfe hefur tekist að
laga sig að íslensku umhverfi og veit nú
hvað fæst hér.“ Hún bætir því við að hann
hafi verið mikill innblástur í heilsulínu
hennar og hvatning til þess að víkka út lín-
una og gera hana aðgengilegri.
„Þrátt fyrir að fólk skilji ekki hvað hann
er að segja kemst enginn ósnortinn frá
David Wolfe. Hann er með einstaka útgeisl-
un og hefur mjög sérstök áhrif á fólk.“
Fræðir um hráfæði og heilsudrykki
HEILSUGÚRÚINN DAVID WOLFE HEFUR TEKIÐ ÁSTFÓSTRI
VIÐ ÍSLAND EN HANN LEGGUR Í SÍNA FJÓRÐU HEIMSÓKN TIL
SOLLU EIRÍKS Á VEITINGASTAÐNUM GLÓ SEINNA Í MÁNUÐINUM.
Ingibjörg Friðriksdóttir if@mbl.is
Sólveig Eiríksdóttir og David Wolfe.
½ l þitt uppáhaldste
10 möndlur, best að leggja þær í bleyti í um 2 klst
3 msk kakónibbur
2 msk kókosolía
1 msk kakósmjör
1 msk lucuma-duft
3 chlorella-töflur
1 msk kakóduft
1 msk hunang
1 tsk reishi-duft (fæst í jurtaapótekinu)
1 tsk maca
smá sjávarsalt
Byrjið á að mala möndlurnar smátt í blandaranum, bætið rest-
inni af uppskriftinni út í (ef teið er heitt þá bráðnar bæði kókos-
olían og kakósmjörið sjálfkrafa). Ef þið viljið hafa þetta sætara
getið þið bætt smávegis hunangi út í eða 1-2 dropum af stevíu.
Þessi drykkur er bestur heitur.
Ljúffengur og hollur
ofurfæðisdrykkur
HEILSUGÚRÚINN DAVID WOLFE KEMUR TIL LANDSINS