Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.10. 2012 Matur og drykkir Agla Harðardóttir, Fríða Ásgeirsdóttir, Eva Eiríksdóttir, Edit Ómarsdóttir, allar af Akranesi. Einföld og frekar létt súkkulaðimús, hentar vel sem desert. Hægt er að nota bæði ljóst og dökkt súkkulaði. 25 g smjör 200 g 70% súkkulaði 250 ml rjómi 3 stk. egg 2 msk. sykur Bræðið smjör og súkkulaði saman við vægan hita í potti. Hellið súkkulaðinu síðan í skál og blandið þremur eggjarauðum saman við, blandað eggjarauðunum vel saman við súkkulaðið. Leggið súkku- laðiblönduna til hliðar. Þeytið rjóma og að því loknu bætið súkku- laðiblöndunni saman við, í þremur pörtum. Leggið blönduna til hliðar. Stífþeytið eggjahvíturnar og bætið sykrinum smátt og smátt saman við. Hrærið eggjahvítublöndunni mjög varlega saman við súkkulaðiblönduna með sleikju, setjið í glös eða skál. Kælið í lág- mark 3 klst. Skreytið súkkulaðimúsina með ferskum berjum. Súkkulaðimús með jarðarberjum Súkkulaðimúsina er smart að bera fram í litlum, fallegum glösum. UPPSKRIFT FYRIR UM ÞAÐ BIL 5-6 MANNS 4 kjúklingabringur, smátt skornar (eða heill kjúkling- ur, skorinn í litla bita) 1 rauð paprika, smátt skorin 1 græn paprika, smátt skorin 1 gul paprika, smátt skorin 2 gulrætur, smátt skornar ½ blaðlaukur, smátt skorinn 2 hvítlauksgeirar 1 laukur , smátt skorinn ½ rautt chili, fræhreinsað og smátt skorið 2 msk. olía 2 dós saxaðir tómatar 2 teningar af kjúklingakrafti 2-3 msk. karrí smá kjúklingakrydd 3 lítrar vatn 1 peli rjómi 1 dós tómatpúrra 200 g philadelphia-rjómaostur með sweet chili salt og nýmalaður pipar Aðferð: Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmet- ið smátt og steikið í smástund á pönnunni, bara rétt til að fá smá gljáa. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu, tómatpúrrunni, karríinu, kjúklingaten- ingum og söxuðum tómötum saman við, leyfið þessu að malla á meðan þið steikið kjúklinginn. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu upp úr olíu í smástund, kryddið til með kjúklinga- kryddi, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna. Látið hana sjóða við vægan hita í 10-15 mín. Að lokum fer rjóminn og rjómaosturinn saman við súpuna. Takið ykkur góðan tíma til að laga súpuna, ég leyfði henni að malla við vægan hita í um það bil klukkustund en þess þarf auðvitað ekki. Látið hana þó malla í lágmark 30 mín. Bragðbætið súpuna að vild, gæti verið að þið vilduð meira karrí eða meiri pipar. Mikilvægt að smakka hana til! Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos-flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk. Þessi súpa gleður mig mjög mikið og mér finnst ótrúlega huggulegt að standa við eldavélina og dúlla mér við súpugerð. Ilmurinn um heimilið er líka dásamlegur á meðan. Hún er svolítið sterk svo ég mæli með að þið smakkið hana til. Mexíkósk kjúklingasúpa Best er að gefa sér góðan tíma í að laga súpuna og leyfa henni að malla við vægan hita, hún verður þá enn betri. FYRIR 3-4 1 poki af blönduðu salati, pokinn var 200 g 100 g tagliatelle ½ agúrka 1 græn paprika 1 rauð paprika ½ rauðlaukur 10 kirsuberjatómatar ½ krukka fetaostur, gott að setja smá af olíunni líka rifinn parmesanostur, magn eftir smekk 5-6 jarðarber mulið nachos með saltbragði, magn eftir smekk 1½ msk. balsamedik salt og pipar 1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Ég læt alltaf salt og smá ólífuolíu í pottinn. Þegar það er tilbúið, losið þá allt vatn frá og setjið pastað inn í ísskáp í örfáar mínútur. 2. Skerið grænmetið smátt niður, ég reif gúrkuna niður með rifjárni. Skolið allt saman vel og blandið þessu saman í skál. 3. Bætið balsamediki, fetaosti og jarðarberjum saman við. Blandið vel saman og kryddið með smá salti og pipar. 4. Stráið salatinu á fat, myljið nachos yfir og rífið duglega af ferskum parmesanosti og stráið yfir. Berið salatið gjarnan með fram með brauði, pestó og ef til vill salatdressingu. Að vísu reyni ég að sleppa því að nota dressingu því þær eiga það til að vera svo sterkar og stela bragðinu af ynd- islega grænmetinu. Það er líka ansi gott að bæta kjúklingi eða hráskinku saman við salatið. Endalausir möguleikar. Pastasalat Eva Laufey segir synd að nota sterka salatdressingu til að stela bragðinu af grænmetinu. Þá megi bæta ýmiss konar ólíku hráefni við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.