Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Page 49
21.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49
óþægilegt að þekkja ekkert til meðspilarans.
Þar til hann sagði mér að það yrði gítarleik-
arinn úr Svörtum fötum. Ég hélt auðvitað að
það væri Hrafnkell Pálmarsson, sem ég
þekkti vel og hafði því engar áhyggjur af
þessu. Nema að Keli var þá nýhættur og
Davíð tekinn við sem nýi gítarleikarinn. Við
hittumst þarna í veislunni í fyrsta sinn og
mér fannst eins og við hefðum alltaf þekkst,
þetta var mjög spes.“
Jóhanna segir þau afar náin. „Davíð skilur
mig eiginlega betur en ég næ að útskýra
með orðum. Hann veit hvað ég vil varðandi
tónlistina, semur með mér og útsetur og ég
er mjög heppin að eiga hann að. Jú, það er
kannski skrýtið að við höfum ekki hist fyrr,
verandi bæði tónlistarfólk. Hann hafði samt
verið á allt öðrum enda, mikið á böllum og
að vinna í upptökum og okkar leiðir aldrei
náð að skarast þrátt fyrir að hann hafi –
eins og ég – spilað frá því að hann var ung-
lingur. Reyndar er gaman að segja frá því
að ég hef líka spilað með pabba hans, Sigur-
geiri Sigmundssyni gítarleikara, eftir að við
kynntumst, til að mynda þegar ég syng með
Björgvini Halldórs.“
Jóhanna segir að allar pælingar um að
stofna fjölskyldu séu svolítið fjarlægar eins
og málin standi í dag. Þau eigi þó hundana
sem fylgja þeim hvert fótmál, þeir séu eigin-
lega börnin þeirra. „Ef ég verð einhvern
tímann fullorðin þá fer ég kannski að spá í
þessa hluti, að stofna fjölskyldu. Það er bara
svo margt sem mig langar að gera núna sem
er ekki barnvænt – flakk og engin rútína.“
Þegar talið berst hins vegar að hversdags-
legu hlutunum viðurkennir að Jóhanna að
það sé Davíð sem sjái oftast um elda-
mennskuna, hún þrífi aftur á móti og þykir
síðan nokkuð lunkin við að baka brauð og
kökur. „Við erum 22 og 25 ára og flestir vin-
ir okkar hér, sem eru reyndar tónlistarfólk
upp til hópa, eru miklu eldri en við. Enda
erum við talin vera mjög ung miðað við það
sem við erum að gera.“
Þrátt fyrir fjarlægðir við fjölskyldur og
miklar annir gengur allt vel. Fyrir utan
kannski eitt. „Ég sakna mömmu minnar al-
veg ægilega mikið, ég er algjör mömmu-
stelpa og elska að vera með fjölskyldunni
minni. En að vera komin á meginlandið
skiptir öllu fyrir mig sem tónlistarmann. Það
er erfitt að ætla að vera heima þegar þessi
verkefni bjóðast úti. Ég reyndi það því mig
langaði svo að vera heima en á einum eða
öðrum tímapunkti kemur að því að annað
hvort sættirðu þig við að vera bara á Íslandi
eða ferð út. Ég hef alltaf átt þessa stóru
drauma og ef maður eltir þá ekki þá gerist
ekkert.“
Ekki er laus dagur í desembermánuði til að
bæta við tónleikum hjá Jóhönnu Guðrúnu.
Ljósmyndir/Helene Ness
Ég hef alltaf átt
þessa stóru
drauma og ef
maður eltir þá
ekki þá gerist
ekkert.
Jóhanna og Davíð
eru alsæl í Noregi.
YRIR VETURINN
Vinur við veginn
... og alltaf heitt á könnunni. Velkomin!