Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Einar K. Guðfinnsson spurði Ög-mund Jónasson að því í fyrir- spurnartíma á Alþingi í gær hvort fram hefði farið endurmat á aðildarumsókn Íslands að ESB inn- an stjórnarflokk- anna.    Tilefnið var að núeru rúmir tveir mánuðir liðnir frá því að meirihluti þingmanna VG lýsti þeirri skoðun sinni að slíkt endurmat þyrfti að fara fram.    Svandís Svavars-dóttir og Katrín Jakobsdóttir sögðu að endurmeta bæri aðildarviðræðurnar vegna „breyttra aðstæðna“. Álf- heiður Ingadóttir sagðist „fyllilega sammála“ þeim tveimur og sömu sögu er að segja um Þuríði Back- man og Lilju Rafneyju Magnús- dóttur sem einnig sagðist telja til- efni til endurmats.    Jón Bjarnason hefur ekki fariðleynt með að hann vill hætta við umsóknina og Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir hefur einnig viljað endur- mat.    Sömu sögu er að segja um Ög-mund Jónasson sem ítrekaði í gær þá skoðun sína að slíkt endur- mat þyrfti að fara fram og að ekki væri hægt að fara inn í næsta kjör- tímabil með málið opið.    En Ögmundur upplýsti um leiðað það endurmat sem þing- menn VG hefðu viljað hefði ekki átt sér stað.    Hvað veldur því, nú þegar rúmirtveir mánuðir eru liðnir? Hvort er VG svona máttvana í stjórnarsamstarfinu eða orð þing- manna VG svona merkingarlaus? Einar K. Guðfinnsson Orð án merkingar? STAKSTEINAR Ögmundur Jónasson Grandagarði 8 | Sími: 862 9010 | kokkurinn@kokkurinn.is veisluþjónusta hinna vandlátu Kokkurinn hjálpar þér að halda hina fullkomnu veislu Árshátíðir Brúðkaup Erfidrykkjur Fermingar Fundir Kynningar Þema kokkurinn.is Ferskur fiskur öll hádegi í Víkinni Veður víða um heim 18.10., kl. 18.00 Reykjavík 2 heiðskírt Bolungarvík 1 léttskýjað Akureyri 0 alskýjað Kirkjubæjarkl. 0 skýjað Vestmannaeyjar 3 léttskýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 7 léttskýjað Ósló 8 skúrir Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Stokkhólmur 11 súld Helsinki 11 þoka Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 17 heiðskírt Dublin 12 skýjað Glasgow 11 skýjað London 16 léttskýjað París 20 skýjað Amsterdam 15 skýjað Hamborg 18 heiðskírt Berlín 17 heiðskírt Vín 17 skýjað Moskva 12 alskýjað Algarve 16 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 22 heiðskírt Aþena 22 heiðskírt Winnipeg 7 skúrir Montreal 16 léttskýjað New York 17 léttskýjað Chicago 11 alskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:32 17:54 ÍSAFJÖRÐUR 8:45 17:51 SIGLUFJÖRÐUR 8:28 17:34 DJÚPIVOGUR 8:04 17:22 Stjórn Ökukennarafélags Íslands er ekki ánægð með tvær greinar frum- varps til nýrra umferðarlaga og ger- ir breytingartillögur við þær. Ökukennararnir eru ósáttir við þá grundvallarbreytingu í frumvarpinu að ökukennsla eigi að fara fram í ökuskólum og ökugerðum sem feng- ið hafa starfsleyfi Umferðarstofu. Þeir segja að með því sé horfið frá þeirri meginstefnu „að ökukennsla verði á forræði og ábyrgð hvers ein- staks ökukennara fyrir sig og það verði verkefni ökuskóla að annast allt ökunám, bæði hinn bóklega og verklega hluta“. Ökukennarar lýsa sig fylgjandi því að auka bóklegan þátt ökunáms en þeir segja að gæði námsins felist ekki eingöngu í því að kunna skil á bóklega hlutanum. Þungamiðja námsins eigi að vera að ökunemar öðlist færni undir handleiðslu fag- lærðra ökukennara. Þeir gagnrýna að sjálfstæði og ábyrgð ökukennara verði vikið til hliðar og þeir gerðir að starfsmönnum ökuskóla. Þeir telja þetta m.a. bjóða þeirri hættu heim „að meira verði lagt upp úr fjárhags- legum ábata en faglegri og árang- ursríkri kennslu“. Þá eru ökukennarar ósáttir við að löggilding ökukennara verði felld niður og í staðinn fái ökukennarar starfsleyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir vilja áfram njóta löggildingar. gudni@mbl.is Ökukennarar vilja bera ábyrgð á kennslu  Ökukennarar gera breytingartillög- ur við frumvarp til umferðarlaga Morgunblaðið/Júlíus Ökunám Auka á vægi ökuskóla. Ummælin voru Sturlu Forseti Alþingis hefur sent eft- irfarandi leiðréttingu vegna fréttar á bls. 2 í blaðinu í fyrra- dag um fundargerð forsæt- isnefndar Alþingis þar sem fjallað er um mótmæli við Alþingishúsið: „Ummælin sem höfð eru eftir mér, Ástu R. Jóhannesdóttur, sem þingforseta í frétt blaðsins úr fundargerð forsætisnefndar frá 21. jan. 2009 eru ekki mín, heldur ummæli þáverandi þing- forseta Sturlu Böðvarssonar á fundinum. Undirrituð varð ekki forseti Alþingis fyrr en í maí sama ár. Þetta leiðréttist hér með.“ Aths. ritstj. Vegna leiðréttingar Ástu Ragn- heiðar hér að ofan skal áréttað að í umræddri fundargerð forsæt- isnefndar stendur eftirfarandi: „Þá greindi KÓ [Kjartan Ólafs- son] frá því að hann hefði orðið vitni að því að Álfheiður Inga- dóttir alþingismaður hefði verið í sambandi við fólk utan hússins og virst vera að veita þeim upplýs- ingar um viðbúnað lögreglu. ÁRJ [Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir] sagði að margir hefðu nefnt svipað í sín eyru. Forseti [Sturla Böðvarsson] sagðist hafa átt fund með ÁI [Álfheiði Inga- dóttur] og formanni þingflokks Vinstri grænna um málið og hefði hún neitað ásökunum.“ LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.