Morgunblaðið - 19.10.2012, Side 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
www.volkswagen.is
Volkswagen Touareg
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Touareg
Það sem er auka-
búnaður hjá öðrum
er staðalbúnaður
hjá okkur
Touareg V6 3.0TDI Blue Motion,
245 hestöfl, sjálfskiptur kostar
11.790.000 kr.
Það sem maður getur étið! Égmá ekki komast í snittur ogsmárétti. Þá ræðst ég á
borðið og fæ mig eigi hamið. „Hún
hefði nú átt að kunna sér maga-
mál,“ ímynda ég mér að hinir gest-
irnir myndu segja og hrista höf-
uðið í þann mund sem ég væri
borin út úr fínni veislu í sjúkrabör-
um. „Ekkert hægt að gera við kon-
una nema pumpa upp úr henni,“
myndi sjúkraflutningamaðurinn
segja á meðan hann drægi varlega
yfir mig teppi. Svona til að lafandi
bumban sem ylti yfir aðra hlið
sjúkrabaranna myndi ekki sjást al-
veg jafn mikið. (Ég myndi þakka
honum fyrir það síðar með kon-
fektkassa þar sem
þetta hefði látið mig
líta aðeins betur út á
myndinni í Séð og
heyrt).
Ég gæti séð fyrir
mér fyrisögnina á
þeirri grein; „Ung
kona (30) tapar sér á
hlaðborði og springur
fyrir framan gesti.“ Með myndi
fylgja mynd af mér spariklæddri,
nema þar sem bumban slapp út,
með bros á vör þó að örlitla þján-
ingu mætti sjá í augum mér vegna
ofáts. Skömmu síðar myndi önnur
grein fylgja á eftir og fullvissa les-
endur um að ég hefði náð fullri
heilsu. Væri aftur tekin til við að
hesthúsa heilu bakkana af skinku-
rúllum og ostum og kexi. Slafrandi
í mig sem aldrei fyrr. Upp úr
þessu myndi ég skrifa undir
samning að mínum fyrsta sjón-
varpsþætti. Hann yrði tískutengd-
ur og myndi fjalla um það hvar ég
gæti keypt sem stærstar buxur til
að troða veislubelgn-
um ofan í. Ég vissi
jafnvel hvar ég gæti
fundið mér bikiní-
buxur sem mæti
troða ofan í öllum
heila búðingnum.
Ég er svitastorkin
og með súkku-
laðiklessu á enninu
þegar ég ranka við mér á sóf-
anum. Í draumnum er ég komin
með halarófu heilbrigðisstarfs-
manna og heilsugúrúa á eftir mér
sem vilja lögsækja mig. Mikið er
nú gott að þetta var bara draumur
þó að blessuð bumban sé vissulega
til staðar.
Mæja masar
Varúð Það er hætta á því að
þessi springi, færið ykkur fjær.
Ung kona (30)
tapar sér á
hlaðborði og
springur fyrir
framan gesti.
Mæja
masar
maria@mbl.is
Magnús Eiríksson og Pálmi Gunn-
arsson hafa starfað óslitið saman
undir merkjum Mannakorna frá
árinu 1975 þegar þeir félagar stofn-
uðu hljómsveitina. Á morgun verða
þeir með tónleika í Háskólabíói þar
sem þeir flytja klassískar Manna-
korna-perlur í bland við efni af nýja
disknum ásamt Ellen Kristjánsdótt-
ur, Stefáni Má Magnússyni, Bene-
dikt Brynleifssyni, Þór Úlfarssyni og
Kjartani Valdemarssyni.
Spilað saman frá 1975
Mannakorn í
Háskólabíói
Morgunblaðið/Eggert
Tónlist Magnús Eiríksson og Pálmi
Gunnarsson spila saman.
mannsnafn þar í landi. Mér fannst
þetta mjög áhugavert því ég hef oft
velt fyrir mér kynjahlutverkunum og
hvernig maður myndi sjá sjálfan sér
fyrir sig sem karlmann. Úr varð að ég
ákvað að finna nafna mína í Lettlandi,
kynnast því hvernig kynímyndin
brýst fram í gegnum nafnið og finna
sjálfa mig upp á nýtt í leiðinni. Flestir
Lettarnir sem ég hafði unnið með í
verkefniu þekktu einhvern sem hét
Valdis og leitin varð því auðveldari en
ég hélt. Um leið komst ég að því að
nafnið Valdís er alls ekki algengt á Ís-
landi en ég fann bara eina Valdísi í
sex stærstu grunnskólum höfuðborg-
arinnar. Í Lettlandi ber hins rétt inn-
an við 1% karlmanna nafnið Valdis,
það eru um 7500 lettneskir karlmenn
á móti 350 íslenskum Valdísum. Því
varð úr að ég notaði ekki myndir af
íslenskum Valdísum með eins og ég
ætlaði mér í fyrstu,“ segir Valdís.
Kölluð Valdi
Í Lettlandi þýðir nafnið Valdis
sá sem ræður og kemur líklegast af
þýska orðinu „wald“. Valdís grúskaði
nokkuð í sögu nafnsins og komst að
því að nafnið ætti sér lengri sögu hér-
lendis. Til eru íslensk skjöl frá 14. öld
þar sem kvenmannsnafnið Valdís
kemur fyrir en í Lettlandi verður
nafnið vinsælla um 1900 eftir stríðið
þegar foreldrar vildu síður gefa börn-
um sínum rússnesk nöfn og sóttu
frekar í þýskan nafnasjóð.
Valdís tók myndir af nöfnum sín-
um á öllum aldri og tókst síðasta dag-
inn að fá 20 mínútna fund með Valdis
Dambrovsksis. Náði hún því öðrum
frægasta Valdis samtímans í Lett-
landi á mynd. Valdís segir að flestir
nafnar sínir hafi ekki vitað að nafnið
þeirra væri kvenmannsnafn í öðru
landi en þótt það forvitnilegt.
„Elsti maðurinn sem ég myndaði
var rúmlega sjötugur og sagði við
mig að ég gæti ekki heitið Valdis á
meðan ég dveldi þar í landi því það
væri karlmannsnafn. Héðan í frá ætl-
aði hann því að kalla mig Valda, sem
er kvenkyns útgáfan, og ég ákvað að
vera ekkert að móðga hann með því
að segja honum að Valdi væri karl-
mannsnafn á Íslandi. Þegar verkefnið
spurðist út vildu allir fá að vita hvort
ég hefði hitt Zatlers eða Dam-
brovskis,“ segir Valdís.
Sambland af Valdi(í)sum
Valdís tók andlitsmynd af nöfn-
um sínum og myndaði síðan sjálfa sig
í sama stíl. Hún klippti myndirnar
saman og skeytti saman þannig að
þær eru portrettmyndir í úrklippustíl
eða „collage“ líkt og aðferðin kallast á
ensku.
„Útkoman var öðruvísi og furðu-
leg en ég var ánægð með hana og
finnst að ég hafi myndaði sterkari
tengsl við nafnið mitt eftir þetta
grúsk. Ég vonast líka til að þetta
verði til þess að upphefja nafnið aftur
á Íslandi til að það falli ekki í
gleymskunnar dá,“ segir Valdís.
Ljósmyndir hópsins hafa þegar verið
sýndar á ljósmyndahátíðinni Encont-
ros da Imagem í Braga, Portúgal og
BursaFotoFest í Tyrklandi. Sýningin
verður sýnd hérlendis í Norræna
húsinu í samstarfi við FÍSL í janúar á
næsta ári.
Klippimyndir Valdís Thor og Valdis Karulis renna hér saman í eitt.
Valdís Thor hefur m.a. tekið
ljósmyndir fyrir tímaritið Grape-
vine og franska dagblaðið Liber-
ation. Hún hefur haldið tvær
sýningar. Sú fyrsta hét 101 og
gaf Valdís sjálf út bók tengda
sýningunni í 101 eintaki. Þá hélt
hún sýningu í Skotinu í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur. Myndir
af lettneskum nöfnum Valdísar
verða til sýnis í Norræna húsinu
í janúar næstkomandi en mynd-
ir Valdísar má skoða á:
www.valdisthor.com.
Bókaútgáfa
og ljósmyndir
VALDÍS THOR
www.valdisthor.com