Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
Reykjanesbær og Carbon Recycl-
ing International (CRI) hafa und-
irritað samstarfssamning um þróun
og uppbyggingu umhverfisvæns
græns efnavinnslugarðs í Helguvík.
Grænn efnavinnslugarður er svæði
þar sem fyrirtæki í efnavinnslu eru
tengd saman þannig að þau nýta
aukaafurðir og losun hvert annars
til að draga úr orkunotkun, minnka
úrgang og útblástur og samnýta að-
stöðu.
Stefna Reykjanesbæjar í atvinnu-
málum er að styðja við uppbygg-
ingu umhverfisvænnar atvinnu-
starfsemi og fjölgun hátæknistarfa í
sveitarfélaginu. Búið er í haginn
fyrir fyrirtæki með öflugri stoð-
þjónustu, góðu vegakerfi, hafnar-
þjónustu, stuðningi við verkefni,
sem og bjóða landrými fyrir slíka
starfsemi, segir í fréttatilkynningu.
CRI framleiðir vistvænt endur-
nýjanlegt eldsneyti úr innlendum
auðlindum sem dregur úr losun
koltvísýrings út í andrúmsloftið.
CRI hefur þróað framleiðsluaðferð
til að vinna endurnýjanlegt metanól
úr koltvísýringi sem losaður er frá
jarðvarmavirkjunum og vetni sem
unnið er úr vatni með rafgreiningu.
Metanól er íblöndunarefni fyrir
bensín sem hentar öllum bílum.
Metanólblandað bensín krefst ekki
breytinga á dreifikerfi eða sölustöð-
um bensíns á Íslandi.
Samningurinn felur m.a. í sér að
Reykjanesbær, í samvinnu við
CRI og önnur vistvæn efnavinnslu-
fyrirtæki, mun tryggja nægjanlegt
landrými fyrir starfsemina og
stefnt er að því að skapa tugi eða
hundruð beinna og afleiddra starfa
við byggingu verksmiðjanna, við
framleiðslu þeirra og í tengdri
starfsemi.
Samvinna Árni Sigfússon og KC Tran undirrita samstarfssamninginn.
Gera samning
um efnavinnslu
Vilja skapa tugi eða hundruð starfa
Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is
Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi
á búslóðum til flutnings milli landa,
landshluta eða innanbæjar
Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir
einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir
eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með
fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi.
Stofnað árið 1981