Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leiðtogar aðildarríkja Evrópusam- bandsins hófu í gær tveggja daga fund í Brussel og ræddu meðal ann- ars ágreining þeirra um aðgerðir vegna skuldavanda evruríkja. Ang- ela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði fyrir fundinn að veita þyrfti fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB í efnahagsmálum skýrt vald til að hafna fjárlagafrumvörpum evru- landa ef þau samræmdust ekki ákvæðum stöðugleikasáttmála ESB- ríkja. Önnur ríki eru andvíg þessu, þeirra á meðal Frakkland. Búist er við að viðræðurnar snú- ist einkum um tillögur Hermans Van Rompuys, forseta leiðtogaráðs ESB, um að komið verði á fót bankabanda- lagi evrulanda. Rompuy vill að eftir- litið með bönkum á evrusvæðinu verði fært frá stofnunum evruríkja til Seðlabanka Evrópu. Eftir að það verði gert fái björgunarsjóður ESB heimild til að endurfjármagna banka sem þurfa á aðstoð að halda. Aðildarríkin deila hins vegar um hversu umfangsmikið þetta bankaeftirlit eigi að vera og hvenær það eigi að hefjast. Framkvæmda- stjórn ESB, Frakkar og fleiri ríki vilja helst að Seðlabanki Evrópu hefji eftirlit með um 6.000 bönkum á evrusvæðinu í byrjun næsta árs. Þjóðverjar vilja hins vegar að farið verði hægar í sakirnar og segja að mikilvægara sé að tryggja gott bankaeftirlit en að hraða innleiðingu þess. Þjóðverjar eru einnig andvígir tillögu Rompuys um útgáfu sameiginlegra evruskuldabréfa og segja hana enga lausn á skuldavand- anum. Þeir vilja að fyrst verði komið á fót fjármálabandalagi sem feli í sér aukin völd framkvæmdastjórnarinn- ar í ríkisfjármálum. Angela Merkel sagði á þýska þinginu í gærmorgun að Evrópu- sambandið þyrfti að fá „raunveru- legan rétt til að blanda sér í fjárlög ríkja“ ef þau samræmdust ekki stöðugleikasáttmálanum. Fulltrúi framkvæmdastjórnarinnar í efna- hagsmálum ætti að fá vald til að hafna fjárlagafrumvörpum og senda þau aftur til þjóðþinga. „Ég furða mig á því að um leið og einhver kemur með framsækna tillögu … er strax hrópað að þetta gangi ekki, að Þýskaland sé einangr- að, að við getum þetta ekki,“ sagði Merkel. Andvíg valdaframsali François Hollande, forseti Frakklands, sagði að ekki kæmi til greina að samþykkja þessa tillögu Merkel á leiðtogafundinum í Bruss- el. „Umræðuefni fundarins er ekki fjármálabandalag, heldur banka- bandalag,“ hefur fréttaveitan AFP eftir franska forsetanum. Hann bætti við að Evrópusambandið mætti „engan tíma missa“ og þyrfti að koma á bankabandalagi í byrjun næsta árs, eins og samþykkt var á leiðtogafundi ESB í júní. Evruríkin sautján styðja hug- myndina um bankabandalag í meginatriðum. Bretland og fleiri ríki utan evrusvæðisins eru hins vegar andvíg frekara valdaframsali og vilja tryggingar fyrir því að bankabanda- lagið verði ekki til þess að völd seðla- banka þeirra skerðist. Embættismenn í Brussel sögðu að ekki væri að vænta tímamóta- ákvarðana á fundinum. Leiðtogarnir koma aftur saman í nóvember og desember. AFP Á öndverðum meiði Hollande (t.v.) og Merkel á fundinum í Brussel. Merkel og Hollande deila á leiðtogafundi  Frakkar hafna tillögu Þjóðverja um að auka völd framkvæmdastjórnar ESB Óskar Spánn eftir hjálp? » Fjölmiðlar voru í gær með vangaveltur um að Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spán- ar, myndi óska eftir takmark- aðri aðstoð ESB vegna skulda- vanda Spánar. » Embættismaður í efna- hagsmálaráðuneyti Spánar sagði að stjórnin myndi ákveða „innan nokkurra vikna“ hvort óskað yrði eftir aðstoð. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mannréttindahreyfingar í Sýrlandi segja að minnst 28.000 manns hafi horfið og ekki sé vitað um afdrif þeirra eftir að hermenn og vopnaðir stuðningsmenn einræðisstjórnar- innar hefðu tekið þá til fanga. Sýrlenska mannréttindanetið áætlar að 28.000 manns hafi horfið frá því að uppreisnin gegn einræðis- stjórninni hófst fyrir átján mán- uðum. Önnur sýrlensk mannrétt- indahreyfing, Sawasya, telur að miklu fleiri hafi horfið, eða allt að 80.000 manns. Hræða fólk til undirgefni Muhammad Khalil, mannrétt- indalögmaður í Sýrlandi, segir að þótt tölurnar séu á reiki sé ljóst að þúsundir manna hafi horfið. „Stjórn- völdin gera þetta af tveimur ástæð- um – til að losna við uppreisnarmenn og andófsmenn og til að hræða fólk- ið, þannig að það leggist ekki gegn stjórninni,“ hefur breska ríkis- útvarpið, BBC, eftir Muhammad Khalil. „Enginn er öruggur“ Alice Jay, talsmaður Avaaz, samtaka aðgerðasinna, segir að ör- yggissveitir og stuðningsmenn ein- ræðisstjórnarinnar ræni fólki á göt- unum og stingi því í „pyntingar- klefa“. „Enginn er öruggur, hvort sem þetta eru konur sem fara út í búð til að kaupa í matinn eða bænd- ur sem fara í bæina til að kaupa elds- neyti,“ hefur BBC eftir henni. Jay segir að markmiðið sé að hræða Sýrlendinga til undirgefni. „Angistin sem íbúarnir fyllast þegar þeir vita ekki hvort horfinn maki eða barn þeirra er á lífi veldur svo mikilli skelfingu að hún þaggar niður í and- ófsfólki.“ Þúsundir hafa horfið  Mannréttindahreyfingar í Sýrlandi segja að sveitir ein- ræðisstjórnarinnar hafi rænt að minnsta kosti 28.000 manns 33.000 liggja í valnum » Sýrlenska mannréttinda- stöðin áætlar að 33.000 óbreyttir borgarar hafi beðið bana í Sýrlandi frá því að upp- reisnin hófst í mars í fyrra. » Talið er að á meðal hinna látnu séu um 2.300 börn. Maður virðir fyrir sér krókódílsskúlptúr eftir lista- menn úr röðum frumbyggja á afskekktu svæði í Ástral- íu. Verkið er til sýnis ásamt rúmlega 100 öðrum lista- verkum á sýningunni Skúlptúr við sjóinn í Sydney. Þetta mun vera heimsins stærsta árlega skúlptúrsýn- ing sem haldin er utandyra og opin almenningi. AFP Meinlaus skepna í Sydney Vikublaðið Newsweek kem- ur aðeins út í raf- rænu formi frá og með næstu áramótum. Blað- ið verður prent- að í síðasta sinn í lok desember en forsvarsmenn ritsins höfðu fyrr á árinu gefið í skyn að þessi breyting stæði til. Newsweek hefur komið út í 80 ár. Þykir þessi róttæka breyting til marks um breytt umhverfi fjölmiðl- unar í heiminum. Stofnandi útgáfufélagsins The Daily Beast, Tina Brown, segir að í hverri viku heimsæki um 15 millj- ónir gesta vefsíðu Newsweek. Það sé um 70% aukning frá því í fyrra. „Að hætta prentun blaðsins er mjög erfitt augnablik í okkar huga – okkar allra sem elskum prentaða blaðið og að fá eintak í hverri viku sem þarf að klára á réttum tíma á hverjum föstudegi,“ segir í yfirlýs- ingu frá Brown. Hún segir að engu að síður sé þetta nauðsynleg breyting og í takt við tímann. Blaðamennskan sem einkenni Newsweek eigi að vera í fyrirrúmi og verði það áfram. Newsweek er annað vinsælasta vikublað Bandaríkjanna á eftir Time. Newsweek aðeins gefið út á netinu Forsíða Newsweek. Lopi 32 Sjá sölustaði á www.istex.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.