Morgunblaðið - 06.11.2012, Qupperneq 5
FRÉTTIR 5Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Heimir Guðjónsson
Millifærir
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
isbrot eða önnur ofbeldisbrot inn-
an hennar í framtíðinni. Á mbl.is
má nálgast sérstakt fréttaknippi
um málið en þar má m.a. finna ten-
gil á skýrsluna rannsóknarnefnd-
arinnar. Slóðin á knippið er http://
www.mbl.is/frettir/knippi/3020/.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Ég á von á því að þeim sem kvörtuðu til rann-
sóknarnefndarinnar um ofbeldi gefist færi á að
gera kröfu fyrir fagráðin, þá verður að skoða
hvert og eitt tilvik sérstaklega,“ segir Eiríkur
Elís Þorláksson, hæstaréttarlögmaður og for-
maður nýskipaðs fagráðs kaþólsku kirkjunnar á
Íslandi.
Aðspurður hvort starf ráðsins muni einungis
snúast um kvartanir þeirra sem kvörtuðu til
rannsóknarnefndarinnar eða hvort auglýst
verði eftir fleiri kvörtunum segir Eiríkur: „Það
verður ákveðið á fyrsta fundi ráðsins hvort það
verði hreinlega gefin út innköllun eða hvort
þeim sem hafa kvartað sérstaklega fyrir rann-
sóknarnefndinni gefist kostur
á þessu.“ Hann bætir við að
jafnvel þó að ekki verði gefin
út innköllun þá verði tekið á
móti öllum kvörtunum.
Að sögn Eiríks á hann von
á því að fyrsti fundur ráðsins
fari fram í þessari viku. „Til
að byrja með þarf að sinna
þessum kröfum sem verða
sendar ráðinu, það þarf að
taka afstöðu til hverrar og
einnar. Síðan er hlutverk ráðsins líka fólgið í
því að gefa einhvers konar ráðgjöf um hvernig
eigi að bregðast við almennt séð,“ segir Eirík-
ur, spurður um hlutverk ráðsins og bætir við:
„Ég hygg að svona fyrst um sinn verði allavega
reynt að hraða þessari vinnu varðandi hverja
og eina kröfu.“
Setja ekki stranga fresti
Eiríkur segist ekki vita fyrirfram umfangið á
þessu öllu saman, enda sé ekki vitað hversu
margir muni skila inn kröfum, en hann telur þó
að ráðið nái að skila af sér innan þeirra tíma-
marka sem því voru sett, þ.e. fyrir 1. júní 2013.
„Fólk verður auðvitað að fá svigrúm til að
senda okkur kröfu og einhver sjónarmið að
baki henni þannig að við viljum ekki vera að
setja einhverja stranga fresti í því,“ segir Eirík-
ur og bætir við að ekki sé búið að ákveða frest-
ina en hann reikni með því að fólk muni hafa
um það bil tvo til þrjá mánuði til að senda
ráðinu kröfur.
Ráðið mun taka á móti öllum kvörtunum
Eiríkur Elís
ÞorlákssonSkannaðu kóðann
til að sjá frétta-
knippi um skýrsl-
una.