Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 31
Braga við undirbúning mála fyrir Hæstarétt af hálfu ákæruvalds, þ.e. hvernig áfrýjunarstefna skyldu úr garði gerð. Eru ekki efni til að tíunda nánar þau fjöl- mörgu álitaefni, sem Bragi kom að með traustri réttarfarslegri þekkingu. Féll oftlega í hlut Braga að fjalla um veigamikil mál til úrlausnar, bæði að tillögum til afgreiðslu þeirra svo að flutningi þeirra fyrir dómstólum ef efni þóttu til saksóknar af hálfu ákæruvalds. Voru tillögur hans vel rökstuddar sem og málflutn- ingur hans. Minnist ég því starfa hans á þessu vettvangi með virð- ingu og þökk. Við hjónin áttum því láni að fagna að eignast vináttu þeirra Braga og Ríkeyjar og eru okkur minnisstæð hin árlegu rausnar- legu jólaboð þeirra. Sendum við Ríkeyju og öðrum ástvinum Braga okkar innileg- ustu samúðarkveðju Erla og Hallvarður. „Ég samgleðst þeim sem fengu sýknu“ var eitt sinn haft eftir sak- sóknara ríkisvaldsins, Braga Steinarssyni. Þau ummæli eru höfundi sínum lík. Bragi sótti ekki mál fyrir dómstólum af persónu- legri ástríðu heldur skyldurækni við embætti sitt. Hann var jafnan sanngjarn og lipur en þó fastur fyrir og fylgdi lagaskilningi sín- um. Þótt stundum fengi hann dembur yfir sig í vandasömu embætti saksóknara um langan tíma fann ég aldrei sviða hjá hon- um út af því. Hann bar ekki kala til neins manns svo að ég vissi, en gat verið napur í athugasemdum um menn og málefni. Af Braga vissi ég fyrst, eins og aðrir landsmenn, sem þingfrétta- manni í útvarpi upp úr 1960 og nokkuð fram yfir 1970. Hann hafði þýða og áreynslulausa út- varpsrödd. Enn fremur varð hann þjóðþekktur fyrir saksókn í land- helgisbrotamálum, ekki síst gegn breskum og þýskum togaraskip- stjórum. Laun embættismanna voru á þessum tíma ekki há, og ómæld yfirvinna eða einingar ekki komn- ar til sögunnar. Til þess að drýgja tekjur fjölskyldunnar vann Bragi aukavinnu hjá skrifstofu Alþingis, fyrst við þingfréttir en þegar skipulagi við útgáfu Alþingistíð- inda var breytt 1972 og umræður gefnar út jafnóðum færði Bragi sig til og las eftir það prófarkir af þeim. Alls starfaði Bragi fyrir skrifstofuna í meira en tvo ára- tugi. Fyrir hönd skrifstofu Al- þingis vil ég nú þakka fyrir tryggð og trúmennsku hans allan þann tíma. Kynni okkar Braga hófust und- ir lok árs 1973 er ég fékk sem aukastarf með námi lestur á Al- þingistíðindum, og jafnframt því lestur á þingskjölum yfir þingtím- ann. Fór sá lestur fram í ríkis- prentsmiðjunni Gutenberg og gat stundum staðið fram á nótt. Bragi varð án umræðu foringi fimm manna flokks sem skipti starfinu á sig eftir skipulagi sem hann gerði. Stofnaðist upp úr þessu samstarfi persónuleg vinátta sem varði meðan Bragi lifði, með sam- fundum sem seint gleymast. Það var alltaf tilhlökkunarefni að hitta Braga. Bragi var óvenjulega gerður maður. Hægur í fasi, athugull og kímnigáfan mikil en sérstök. Hugurinn var skýr og eftirtekt- arvert var hve fljótt hann sá aðal- atriði hvers máls eða það sem skipti máli og hafði þýðingu. Hlýt- ur það allt að hafa nýst honum vel í starfi að sakamálum. Hugurinn fór hratt yfir og stundum var hann í viðræðu eins og kominn langt fram úr, eða út á hliðarspor, og því gátu athugasemdir hans eða spurningar oft verið óvæntar og vakið mikla kátínu. Svo fór að Bragi gaf út ákæru á mig, eða skrifstofu Alþingis. Handbók Alþingis 1984 var prýdd ljósmyndum eftir þekktan lista- mann sem þó hafði ekki full iðn- réttindi. Við töpuðum í undirrétti en unnum í hæstarétti. Þegar dómsorð höfðu verið lesin vék Bragi sér að ljósmyndaranum og sagðist þurfa að endurnýja pass- ann sinn, hvort hann gæti ekki fyrir sanngjarnt verð bjargað sér um mynd í hann. Þarna var Bragi lifandi kominn. Minnisstæður samtíðarmaður og kær vinur er nú kvaddur. Fyr- ir góð og gefandi kynni vil ég þakka og færi fjölskyldu Braga samúðarkveðjur á sorgarstund. Helgi Bernodusson MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012 ✝ Friðrik EldjárnKristinsson fæddist á Seyð- isfirði 13. sept- ember1935. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- urlands á Akranesi 29. október 2012. Foreldrar hans voru Ágústa Gúst- afsdóttir og Krist- inn Friðriksson sem bæði eru látin. Friðrik Kristinsson var elstur systkina sinna. Síðan kom Hlín, Hrefna, Þórarinn, Hjördís, Gústaf og Guðmundur. Hrefna og Guð- mundur eru látin. Friðrik var sjómaður meiri hluta starfsævi sinnar. Eftirlifandi maki er Þórný Elísdóttir, fædd 8. júní 1942. Börn þeirra eru. 1) Krist- inn Eldjárn, fæddur 3.3. 1963. Maki hans er Þóra Jónína Björgvinsdóttir og eiga þau dæturnar Sylvíu Rún og Elísu Björgu. Fyrir átti Kristinn synina Friðþór Örn og Bjarka Frey. 2) Elís Þorgeir fæddur 4.3. 1964. Maki hans er Auður Gudjohnsen og eiga þau börnin Aðalstein Gudjo- hnsen og Helenu Guðjohnsen. Fyrir átti Elís soninn Ara. 3) Ágústa Hjördís, fædd 27.4. 1966. Maki hennar er Hrafn Elvar Elíasson. Eiga þau dæt- urnar Karitas Hrafns, Rut Hrafns og Sölku Hrafns. Fyrir átti Elvar börnin Brynhildi og Elías Frímann. Útför Friðriks fer fram í Akraneskirkju í dag, 6. nóv- ember 2012, kl. 14. Haustvindur napur næðir, og nístir mína kinn. Ég kveð þig, kæri vinur, kveðju í hinsta sinn. Ég man brosið bjarta, og blíðan svipinn þinn. Það er sárt að sakna, sorgmæddur hugurinn. (Sæbjörg María Vilmundsdóttir.) Elsku Friðrik, með þessu ljóði sem segir allt sem segja þarf, langar mig að þakka þér sam- fylgdina undanfarin 20 ár. Þín tengdadóttir, Þóra Jónína Björgvinsdóttir. Fólk kemur og fer, líkt og túristar í flugvél. Áfangastaðir eru ýmist góðir eða slæmir, ég vona að þinn sé betri en þessi. Ég vona og bið að þú sért á betri stað, betri en til er á þessu jarðríki. Enginn á það skilið meira en þú, eftir alla þessa þjáningu. Þú varst öryggisnetið mitt, staður öryggis og þæginda. Þú varst sá besti, það verður enginn betri en þú. Ég elska þig. Elsku afi minn, þín verður sárt saknað. Mér þótti vænt um þær stundir sem við áttum saman og að geta talað við þig um bók- menntir og margt fleira. Ég trúi varla ennþá að þú hafir verið kvaddur í burtu, en áfram mun minning þín lifa. Sylvía Rún Kristinsdóttir. Fallinn er nú frá, ástkær bróðir minn eftir erfið veikindi. Ein fyrsta minning mín um Friðrik var er hann var að koma austur á Djúpavog með strand- ferðaskipi af vetrarvertíð í Vest- mannaeyjum eins og þá tíðkaðist að Austfirðingar stunduðu. Ég var 5-6 ára gamall og beið þess með mikilli óþreyju að þessi stóri bróðir minn kæmi heim, með einhverjar gjafir eins og hann var vanur handa okkur sem heima vorum. Það dróst fram á nótt að skipið kæmi en ég neitaði að fara að sofa og mikil var gleðin hjá okkur bræðrum er við hittumst upp úr miðnætti. Friðrik lauk skipstjórnarnámi í Neskaupstað, var drýgstan hluta ævinnar skipstjóri og stýrimaður á fiskiskipum, og var hann mjög farsæll í starfi. Ég hef heyrt það frá mönnum sem voru að byrja að stunda sjó hve gott hafi verið að hlíta leiðsögn hans og forsjá er þeir komu sem viðvaningar á þennan hættulega starfsvettvang. Hann hætti sjómennsku um sextugt og stundaði eftir það ýmis störf í landi til sjötugs er hann fór á eftirlaun. Friðrik var lánsamur í einkalíf- inu og eitt hans mesta happ var að kynnast og kvænast eftirlifandi eiginkonu sinni Þórnýju Elísdótt- ur fyrir rúmum fimmtíu árum og tel ég það eitt hans mesta lán í líf- inu að hafa eignast þann góða lífs- förunaut. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið, barnabörnin eru orð- in tíu og eitt langafabarn. Friðrik var sérstaklega barn- góður og hændust börn að honum og tala börnin mín um hvað hann hafi haft létta lund og hlýjan faðm. Er hugurinn reikar til liðinna samverustunda koma margar skemmtilegar minningar upp í hugann um stundir er við Gyða Maja áttum með þeim hjónum á heimilum okkar. Kæri bróðir, við Gyða Maja kveðjum þig að sinni með sorg- ardögg á kinn en vitum jafnframt að við munum hittast aftur þar sem sjúkir hafa fengið bata og fegurð ríkir hjá hinum hæsta höf- uðsmið himins og jarðar. Fegurst lætur hann ljósin sín frá lágri sólu streyma, og byggir oss, þegar birtan dvín, brú til fegri heima. (Theodóra Thoroddsen.) Elsku Þórný, börn og fjölskyld- ur við Gyða Maja, ásamt börnum okkar og fjölskyldum þeirra send- um ykkur okkar innilegustu sam- úðarkveðjur, megi góður Guð veita ykkur styrk í sorginni. Minning um góðan bróður og vin mun lifa í hjarta mínu. Gústaf Kristinsson. Friðrik Eldjárn Kristinsson um mánuði. Þá var hún glöð og sátt við allt og alla, þó heilsan væri farin. Ásamt foreldrum okkar þökk- um við systurnar Gunnu langa samleið og höfðingsskap allan. Hugur okkar er hjá Nonna, Kristjáni, Jóni Gunnari, Soffíu og Rósu Gunnu og þeirra fjölskyld- um sem nú kveðja góða og skemmtilega konu. Helga, Sólveig og Sigrún. Guðrún frá Fellshlíð er látin eftir slaka heilsu seinustu árin, vafalaust hvíldinni fegin. Mín fyrstu æviár bjuggu for- eldrar mínir í Fellshlíð ásamt Guðrúnu og Jóni föðurbróður mínum. Þótt við flyttum nokkrar bæjarleiðir voru tengslin alltaf mikil og góð. Meðal annars var á fyrrihluta sjöunda áratugarins sameign á bíl sem var í viku í senn á hvorum bæ. Gunna var glaðleg og hlátur- mild, en samt ákveðin kona sem sagði sína meiningu oft umbúða- laust. Alltaf var hún í kjól og vel tilhöfð. Hún var mikil húsmóðir sem átti fáa jafningja í köku- bakstri og hafði gaman af smátil- standi til að gera dagamun. Sunnudagskaffið í Fellshlíð var oft líkara fermingarveislu og í stórveislum var útilokað að ná að smakka allar þær sortir sem í boði voru. Ég man eftir jarðýtustjóra sem spurður var hvar hann hefði fengið bestan viðurgjörning. Og svarið var að hjá Gunnu í Fells- hlíð hefði hann fengið svo stórt ílát með brauði og kökum að þótt hann hefði borðað sem mest hann mátti hefði aðeins komið hola í eitt hornið á nestisboxinu. Guðrún var frá Akureyri og al- in þar upp á upphafsárum bíó- menningarinnar og hafði alltaf áhuga á góðum kvikmyndum. Það var henni mikil ánægja þeg- ar sjónvarpsútsendingar komu til. Það er eftirminnilegt að þegar komið var í Fellshlíð að kvöldi í skammdeginu á áttunda áratugn- um sat fjölskyldan inni í stofu og horfði á sjónvarpið, nema Gunna sem sat frammi á gangi í sínum stól og prjónaði, hlustaði á kvöld- söguna í útvarpinu, og horfði vit- anlega líka á sjónvarpið í gegn um dyrnar inn í stofuna, og missti aldrei af neinu. Fellshlíðarhjón höfðu unun af ferðalögum og fóru nokkrar ferð- ir til útlanda, þegar var frekar sjaldgæft að bændafólk legði í slíkar langferðir. Sennilega hefur Gunna átt frumkvæðið að þeim ferðum, sem væntanlega hefur verið auðsótt mál því hún var ein- staklega heppin með lífsförunaut sem hlaut þá umsögn hjá Jóni landpósti að nafni hans í Fellshlíð væri besti eiginmaður í heimi. Um þetta efast enginn sem til þekkir því landpósturinn og fyrr- verandi mjólkurbílstjóri var all- vel kunnugur um alla Eyjafjarð- arsveit. Þótt þeir sem eru saddir líf- daga eigi skilið hvíld verða við- brigðin og söknuður fjölskyld- unnar mikill. Minningarnar eru margar og þakklæti fyrir vinskap í áratugi eru okkur á og frá Hrís- hóli efst í huga þegar við kveðjum Guðrúnu. Við sendum Jóni og öll- um afkomendum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigurgeir B. Hreinsson. Lítill drengur lófa strýkur létt um vota móðurkinn, – augun spyrja eins og myrkvuð ótta og grun í fyrsta sinn: Hvar er amma, hvar er amma, hún sem gaf mér brosið sitt yndislega og alltaf skildi ófullkomna hjalið mitt? Lítill sveinn á leyndardómum lífs og dauða kann ei skil: hann vill bara eins og áður ömmu sinnar komast til, hann vill fá að hjúfra sig að hennar brjósti sætt og rótt. Amma er dáin – amma finnur augasteininn sinn í nótt. Lítill drengur leggst á koddann – lokar sinni þreyttu brá uns í draumi er hann staddur ömmu sinni góðu hjá. Amma brosir – amma kyssir undurblítt á kollinn hans. breiðist ást af öðrum heimi yfir beð hins litla manns. (Jóhannes úr Kötlum.) Elsku amma. Mamma, pabbi, Hera og afi munu hjálpa mér að halda utan um minningar um þig. Þinn, Alfreð Snær. Elsku Steina. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum Steinunn H. Sigurðardóttir ✝ Steinunn H.Sigurðardóttir fæddist í Reykjavík 27. október 1950. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut á 62 ára afmælisdegi sínum hinn 27. október 2012. Steinunn var jarðsungin frá Fella- og Hóla- kirkju 5. nóvember 2012. þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Það var yndislegt að fá að kynnast þér. Hafdís og Örn. Steinunn Sigurðardóttir, eða Steina eins og allir í Leikni þekkja hana, flýgur nú á vit nýrra æv- intýra. Á sama tíma og íþrótta- félagið Leiknir og þeir fjölda- mörgu sem hún tengdist í félaginu kveðja góða konu, sitja eftir margar góðar minningar um Steinu okkar. Steina er samofin sögu Leiknis en Alfreð maðurinn hennar er sjálft Leiknisljónið og við hlið hans í gegnum árin hefur Steina verið sem klettur í starfi og leik. Steina bjó um árabil í Gyðufell- inu og með útsýni yfir Leiknis- völlinn. Þau hjónin voru vön að vaka yfir svæðinu okkar og nú vit- um við að Steina er mætt enn og aftur til að vaka yfir manni sínum, félaginu og svæðinu okkar. Það er erfitt að koma að því orðum, því mikla þakklæti sem situr eftir í hugum okkar Leikn- ismanna nú þegar Steina kveður okkur en um leið ljúft og skylt. Það eru kjarnakonur eins og hún sem láta lítið félag með stórt hjarta rúlla áfram dag frá degi. Minning Steinu mun lifa og vaka yfir Leiknisfólki öllu um ókomna tíð. Vertu blessuð, Steina okkar. Arnar Einarsson, formaður Leiknis. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Alúð - virðing - traust Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, GUNNAR PÉTUR SIGURÐSSON vélstjóri, lést á heimili sínu Norðurbrún 1 í Reykjavík fimmtudaginn 25. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 7. nóvember kl. 13.00. Herdís Gunnarsdóttir, Guðmundur Örn Guðjónsson, Matthías Guðmundsson, Davíð Guðmundsson, Markús Guðmundsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN F. JÓHANNESDÓTTIR, áður til heimilis að Aflagranda 40, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 7. nóvember kl. 15:00. Jóhannes Jónsson, Guðrún Þórsdóttir, Ester Jónsdóttir, Einar Vilhjálmsson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.