Morgunblaðið - 06.11.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
laugardaginn 24.nóvember.
Í jólablaðinu í ár komum við víða við, heim-
sækjum fjölda fólks og verðum með fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Jólablaðið er flottasta sérblaðið
sem Mogginn gefur út og er eitt
af vinsælustu blöðum lesenda.
SÉRBLAÐ
Pöntunartími auglýsinga:
er fyrir klukkan 16 mánudaginn
19.nóvember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími 569-1105
kata@mbl.is
Uppáhalds jólauppskriftirnar.•
Uppskriftir að ýmsu góðgæti til að•
borða á aðventu og jólum.
Villibráð.•
Hefðbundnir jólaréttir og jólamatur.•
Smákökur.•
Eftirréttir.•
Jólakonfekt og sælgæti.•
Grænmetisréttir og einnig réttir fyrir•
þá sem hafa hollustuna í huga þegar
jólin ganga í garð.
Vínin með veislumatnum í ár•
Gjafapakkningar.•
Tónlistarviðburðir, söfn, kirkjur á aðventu•
og í kringum jólahátíðina.
Kerti og aðventukransar.•
Jólagjafir•
Heimagerð jólakort.•
Jólaföndur.•
Jólabækur og jólatónlist.•
Jólaundirbúningur með börnunum.•
Margar skemmtilegar greinar sem•
tengjast þessari hátíð ljóss og friðar.
MEÐAL EFNIS:
– Meira fyrir lesendur
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt jólablað
JÓLABLAÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Umhverfis- og samgöngunefnd Al-
þingis kom saman til fundar í gær þar
sem rammaáætlunina bar á góma.
Stuttur tími var tekinn til umræðu að
þessu sinni en líklegt er að samþykkt
verði sú beiðni minnihlutans að kalla
fleiri gesti fyrir nefndina á sameigin-
legum fundi með atvinnuveganefnd
þingsins.
Mörður Árnason, framsögumaður
tillögunnar fyrir hönd meirihlutans,
segist gera sér vonir um að málið kom-
ist út úr nefndinni í þessari eða næstu
viku. Í stuttri umræðu á fundinum í
gær hafi aðallega verið leitað eftir al-
mennri afstöðu nefndarmanna.
Fulltrúar minnihlutans hafi viljað fá að
ræða málið nánar.
„Mín afstaða sem framsögumanns
er sú að lokaniðurstaðan verði að mæla
með samþykkt tillögunnar óbreyttrar.
Það voru ekki allir mættir á fundinn og
við ákváðum að hafa málið á dagskrá
næsta fundar þannig að menn gætu
sagt hug sinn í þessu efni,“ segir Mörð-
ur.
Hann segir töluverða vinnu við
nefndarálitið, enda sé um stórt mál að
ræða. Þó að frestur til að kalla á gesti
fyrir nefndina hafi verið liðinn segist
Mörður hafa rætt um það við formann
nefndarinnar, Guðfríði Lilju Grétars-
dóttur, að verða við ósk minnihlutans.
„Ég veit hins vegar ekki hvaða gestir
það eru, hef ekki séð þann lista ennþá.“
Birgir Ármannsson, einn fulltrúa
minnihlutans í nefndinni, segir lítið
hafa komið út úr fundinum í gær.
Hann bindur vonir við að frekari um-
ræða náist á sameiginlegum fundi með
atvinnuveganefnd. Ljóst sé að meiri-
hlutinn sæki það stíft að málinu fari að
ljúka í nefndinni. „Ef tillagan fer
óbreytt frá nefndinni, þá er málið enn í
sama ágreiningi og áður,“ segir Birgir.
Rammaáætlun áfram í nefnd
Engin niðurstaða á nefndarfundi í gær Rætt sameiginlega með atvinnunefnd
Fleiri gestir líklega kallaðir til Framsögumaður mælir með óbreyttri tillögu
Birgir
Ármannsson
Mörður
Árnason
Útlit er fyrir að milljónatjón hafi
orðið þegar of hárri spennu var
hleypt á dreifikerfi RARIK í Suður-
Þingeyjarsýslu um helgina með
þeim afleiðingu að raftæki, bæði á
heimilum og í fyrirtækjum
skemmdust.
Að sögn Péturs Vopna Sigurðs-
sonar hjá RARIK á Norðurlandi
liggja frekari upplýsingar um tjón-
ið ekki fyrir fyrr en tjónatilkynn-
ingar byrja að berast. Fyrirtækið
taki við tilkynningunum frá við-
skiptavinum sínum en svo eigi eftir
að útkljá hver sé bótaskyldur.
„Það sem virðist hafa gerst er að
það verður skammhlaup í aðveitu-
stöðunni í Laxá, trúlega vegna
seltu, á laugardag. Þá leysir út
Kópaskerslína 1 og vélar í Laxá.
Þegar vélarnar voru ræstar og
straumi komið til notenda á svæð-
inu hefur orðið skammvinn spennu-
hækkun í kerfinu,“ segir Íris Bald-
ursdóttir, deildarstjóri
kerfisstjórnar og markaðar hjá
Landsneti.
Hún segist ekki hafa upplýsingar
um hversu mikilli spennu hafi verið
hleypt á kerfið en verið sé að
greina atburðarásina. Farið verði
yfir málið með RARIK og Lands-
virkjun á næstunni. kjartan@mbl.is
Of há spenna
fór á kerfið
Sóttvarnalæknir hefur hingað til ekki
mælt sérstaklega með því að fullorðn-
ir verði bólusettir gegn kíghósta, jafn-
vel þótt kíghósti hafi greinst í sam-
félaginu. Hins vegar er sjálfsagt að
bólusetja þá sem fara fram á slíkt,
stendur í tilkynningu frá landlæknis-
embættinu.
Kíghósti hefur greinst í níu ung-
börnum í ár. Til samanburðar greind-
ist ekkert ungbarn með kíghósta í
fyrra. „Núna er greinileg sveifla í
gangi í kíghóstatilvikum en ekki hægt
að segja að stór faraldur sé í gangi.
Það eru alltaf sveiflur frá ári til árs.
Kíghóstinn er þannig að hann fór
aldrei alveg, þrátt fyrir bólusetningu.
Sem betur fer eru stóru kíghóstafar-
aldrarnir sem gengu hér yfir horfnir,“
segir Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir.
Ekkert ungbarn hefur látist hér á
landi vegna kíghósta frá 1958, þá lét-
ust tvö börn. „Eftir það tóku Íslend-
ingar almennilega við sér og létu
bólusetja sig,“ segir Haraldur.
„Í tilvikum þar sem kíghóstinn
greinist, eru það ekki þeir sem ekki
láta bólusetja börnin sem eru að
dreifa kíghósta. Verndin af bóluefn-
inu endist einungis í 4 til 10 ár. Eftir
það getur fólk fengið kíghósta og það
eru þeir sem dreifa honum til ungra
barna. Ef upp myndu koma misling-
ar, þá gætum við sagt að það væri
vegna þess að þeir sem ekki láta bólu-
setja börnin dreifa þessu,“ segir Þór-
ólfur Guðnason, yfirlæknir á sótt-
varnasviði hjá landlæknisembættinu.
thorunn@mbl.is
Fullorðnir geta fengið
bólusetningu við kíghósta
Níu ungbörn
hafa greinst með
kíghósta í ár
Morgunblaðið/Ómar
Bólusetning Sóttvarnalæknir mælir ekki sérstaklega með að fullorðnir láti
bólusetja sig. Sé þess óskað þurfa þeir að greiða fyrir það að fullu.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Töluverðar rafmagnstruflanir urðu í
Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ
og Kjalarnesi í fyrrinótt. Truflanirnar
má rekja til seltu sem sest hafði á
loftlínur og tengivirki Landsnets og
Orkuveitunnar við Korpu. Trufl-
anirnar hófust um 22 á sunnudags-
kvöldið og stóðu allt þangað til 8
næsta morgun. Rafmagn kom og fór
af svæðinu nokkrum sinnum um nótt-
ina að hluta eða í heild. Á milli kl. 3.30
og 4.30 fór rafmagn af öllu áð-
urnefndu svæði í klukkustund.
Erfitt að meta hættuna
Tengivirkið í Korpu er bæði í eigu
Landsnets og Orkuveitu Reykjavíkur
en þar afhendir Landsnet OR orku
sem síðarnefndi aðilinn tekur við og
setur inn á dreifikerfi sitt. Vegna veð-
urskilyrða að undanförnu hafði selta
sest á tengivirkið og unnu starfsmenn
Landsnets og Orkuveitunnar að
hreinsun aðfaranótt mánudags og
fengu m.a. aðstoð Slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu sem sprautaði
vatni á tengivirkið. „Selta hafði sest á
einangrunina. Það sem tímafrekast
var í viðgerðunum um nóttina var að
ganga frá jarðbindingum og þvíum-
líku þannig að vinna með vatn væri
örugg. Farið var yfir allar jarðbind-
ingar og tengingar. Auk þess þarf að
ganga úr skugga um að allt sé út-
slegið,“ segir Eiríkur Hjálmarsson
upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar.
Guðlaugur Sigurgeirsson, yfirmað-
ur netrekstrar hjá Landsneti, segir
að aldrei hafi komið til truflana áður í
tengivirkinu í Korpu vegna seltu.
„Það er mjög erfitt að greina hvenær
yfirvofandi hætta er á truflunum
vegna seltu. Við getum ekki stuðst við
neinar mælingar eða vísindi til að
segja af eða á. Við getum bara mælt
seltuáhrifin í rauntíma. Í ísingarveðri
þegar mikil selta er í loftinu höfum
við varann á. Eins eftir veðrið núna á
föstudag og laugardag, þá gátum við
hugsanlega reiknað með möguleika á
einhverskonar vandræðum,“ segir
Guðlaugur og segir erfitt að grípa til
fyrirbyggjandi aðgerða vegna seltu.
Guðlaugur segir að það sé stefna
Landsnets að hafa ný virki undir þaki
ef nokkur kostur er. Hinsvegar sé
það mjög kostnaðarsamt. „En við bú-
um við þær aðstæður að eldri virki
voru byggð með þessum hætti. Þetta
eru risastór mannvirki sem eru hönn-
uð til að þola flestar veðurfarslegar
aðstæður sem reiknað er með. En
það er aldrei hægt að leysa öll vanda-
mál við byggingu svona flókinna
mannvirkja,“ segir Guðlaugur.
Rafmagni sló út vegna seltu
Rafmagnslaust um tíma í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ og Kjalarnesi
Slökkvilið aðstoðaði við að spúla seltu af tengivirki og háspennulínum
Rafmagnstruflanir Loftmyndir ehf.
Grafarvogur
Mosfellsbær
Kjalarnes
Grafarholt
23:00
Rafmagn kemst aftur á
í Staðarhverfi í Grafarvogi og
í Hlíða- og Höfðahverfi í Mos-
fellsbæ
22:00
Rafmagnslaust
í Staðarhverfi í
Grafarvogi og í Hlíða- og
Höfðahverfi í Mosfellsbæ
01:30
Rafmagnslaust
í Engjahverfi, Víkurhverfi
og Borgarhverfi í
Grafarvogi
02:47
Rafmagn kemst aftur á
í Engjahverfi, Víkurhverfi og
Borgarhverfi í Grafarvogi.
07:00
Rafmagn komið á
hjá flest öllum nema hluta Mos-
fellsbæjar (Teigahverfi, Krikahverfi
og vestari hluti Mosfellsbæjar)
07:53
Rafmagn kemst á að fullu
Teigahverfi, Krikahverfi og
vestari hluti Mosfellsbæjar
03:30
Rafmagnslaust
í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ og Kjalarnesi
04:30
Rafmagn kemst aftur á
í Grafarholti (í heild) og stórum
hluta Grafarvogs (Hamrah-
verfi, Foldahverfi, Húsahverfi og
Rimahverfi.)
Kíghósti er alvarleg öndunarfærasýking hjá börnum, einkum á fyrstu
mánuðum ævinnar, en hjá unglingum og fullorðnum birtist sjúkdómurinn
sem langvarandi og þrálátur hósti. Sýkingin stafar af bakteríu sem fram-
leiðir eiturefni sem veldur slæmum hóstaköstum.
Hér á landi er bólusett gegn kíghósta við 3, 5 og 12 mánaða aldur og
endurbólusett við 4 og 14 ára aldur. Hingað til hefur Sóttvarnalæknir
ekki mælt sérstaklega með því að fullorðnir láti endurbólusetja sig.
Kíghósti alvarlegur hjá börnum
HVAÐ ER KÍGHÓSTI?
„Við stefnum að því að ljúka
umfjöllun umhverfis- og sam-
göngunefndar í þessum mán-
uði, að sjálfsögðu, og þar með
hlýtur umsögn frá atvinnuvega-
nefnd að vera hluti af því,“
sagði Álfheiður Ingadóttir, ann-
ar tveggja fulltrúa VG í nefnd-
inni, spurð um framhaldið.
Ólína Þorvarðardóttir, annar
tveggja fulltrúa Samfylkingar í
nefndinni, sagði nefndarálit í
smíðum og umræðuna á loka-
spretti í nefndinni. Málið færi
hvað úr hverju í þingið.
Fari í þingið
í nóvember
MARKMIÐ NEFNDAR