Morgunblaðið - 06.11.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Dalvegi 10-14 ▪ 201 Kópavogur ▪ Sími: 595 0570 ▪ parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Bjóðum einnig upp á sérframleitt parket
eftir óskum hvers og eins.
Burstað, lakkað, olíuborið, handheflað,
reykt, fasað, hvíttað, eða hverning vilt þú
hafa þitt parket ?
Láttu drauminn rætast hjá okkur.
Menn muna að með „aðildar-umsókninni einni“ áttu að
verða straumhvörf til hins betra í
íslenskum efnahag, að sögn sam-
fylkingarforkólfa. Gerðist það?
Utanríkisráð-herra Kýpur
hitti Össur í eigin og
þriðju persónu í til-
efni umsóknar og
„hét Íslandi stuðn-
ingi“.
En nú engist sjálft Þýskaland yfir hjálparbeiðni þessarar
sömu Kýpur og spyr sig, að sögn
Der Spiegel (skv. Evrópuvaktinni)
hverjum sé verið að hjálpa með
væntanlegu neyðarláni ESB til
Kýpur.
Fullyrt hefur verið að lánafyrir-greiðslan til Grikklands hafi í
raun átt að forða þýskum og
frönskum bönkum frá að tapa á
glannalegum lánveitingum.
Nú hefur þýska leyniþjónustantekið saman skýrslu um hverj-
ir muni hagnast mest á 10 milljarða
evra neyðarláni til Kýpur. Þar kem-
ur fram að rússneskir ólígarkar og
mafíósar tapi mestu ef tveir bankar
á Kýpur fara á hausinn.
Evrópuvaktin minnir á að Rúss-ar hafi mikil áhrif á Kýpur
vegna ógrynni innistæðna rúss-
neskra borgara í kýpverskum
bönkum og sumir haldi því fram, að
Kýpur sé raunverulega stjórnað frá
Rússlandi.
Svo segir Evrópuvaktin: „DerSpiegel segir að Angela Merkel
sé í vanda vegna þessara upplýs-
inga. Eiga kjarnaríkin á evrusvæð-
inu að taka að sér að koma í veg
fyrir að ólígarkar og glæpamenn í
Rússlandi tapi fé? Með hvaða rök-
um ætli það verði rökstutt?“
Össur
Skarphéðinsson
Flottur félagsskapur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 5.11., kl. 18.00
Reykjavík 7 súld
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri 2 rigning
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað
Vestmannaeyjar 8 súld
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skúrir
Stokkhólmur 5 alskýjað
Helsinki 5 skúrir
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 7 skúrir
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 7 léttskýjað
London 8 léttskýjað
París 8 léttskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 6 skúrir
Moskva 7 skúrir
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg 1 alskýjað
Montreal 2 skýjað
New York 4 skýjað
Chicago 5 alskýjað
Orlando 22 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:29 16:55
ÍSAFJÖRÐUR 9:49 16:44
SIGLUFJÖRÐUR 9:33 16:27
DJÚPIVOGUR 9:02 16:20
Jóhann Einvarðsson,
fyrrverandi alþing-
ismaður og fram-
kvæmdastjóri, lést 3.
nóvember á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja í
Keflavík. Hann var 74
ára að aldri.
Jóhanns var minnst
á Alþingi í gær. Hann
fæddist í Reykjavík
10. ágúst 1938, sonur
hjónanna Einvarðs
Hallvarðssonar,
starfsmannastjóra
Landsbanka Íslands,
og Vigdísar Jóhannsdóttur, hús-
móður.
Að loknu prófi við Samvinnuskól-
ann árið 1958 hóf Jóhann störf í
fjármálaráðuneytinu og starfaði
þar til ársins 1966 þegar hann var
ráðinn bæjarstjóri á Ísafirði. Árið
1970 tók hann við starfi bæj-
arstjóra í Keflavík og
gegndi því til ársins
1980.
Jóhann var kjörinn
á Alþingi árið 1979
fyrir Framsókn-
arflokkinn í Reykja-
neskjördæmi og sat á
þingi til 1983 og síðan
aftur árin 1987-1991
og 1994-1995. Hann
sat um árabil í stjórn
Hitaveitu Suðurnesja
og var formaður
stjórnar 1975-1979.
Hann var formaður
stjórnar Sjúkrahúss Keflavík-
urlæknishéraðs 1970-1980 og síðar
framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suð-
urnesja og Heilsugæslustöðvar
Suðurnesja.
Eftirlifandi eiginkona Jóhanns er
Guðný Gunnarsdóttir. Börn þeirra
eru Gunnar, Einvarður og Vigdís.
Andlát
Jóhann Einvarðsson
Umferð á höfuðborgarsvæðinu
var 3,8 prósentum meiri nú í
október en í sama mánuði í
fyrra. Samkvæmt frétt á vef
Vegagerðarinnar er þetta meiri
aukning en búist var við eftir að
tölur fyrir september lágu fyrir
en gert hafði verið ráð fyrir 2,2
prósenta aukningu í október frá
árinu áður.
Akstur frá áramótum er nú
1,4 prósentum meiri en á sama
tímabili í fyrra. Ekki hefur orðið
aukning á því tímabili á milli ára
síðan árið 2008.
Vegagerðin gerir nú ráð fyrir
að akstur á landinu öllu aukist
um 0,5 prósent frá því í fyrra.
Það yrði í fyrsta skipti frá árinu
2009 sem akstur ykist á milli
ára. Sá fyrirvari er þó á tölum
Vegagerðarinnar fyrir þetta ár
að þær séu órýndar.
Gert ráð fyrir meiri
umferð á þessu ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg