Morgunblaðið - 06.11.2012, Side 12

Morgunblaðið - 06.11.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Ég nýt þess að stunda skvass því þetta er besta alhliða sportið sem ég hef kynnst. Þar brennir maður flestum kalorium, eykur vöðvastyrk og vöðvaúthald og meiðsl eru fátíð í skvassi (skv könnun Forbes) Erling Adolf Ágústsson Skvass gæti verið fyrir þig Frír prufurtími Skvass er skemmtileg íþrótt fyrir fólk á öllum aldri. Um er að ræða fjölbreytta hreyfingu og mikla brennslu. Bóka þarf tíma með fyrirvara. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Samkomulag hefur náðst um tillögur til ráðherra í viðræðunefndum sem fjallað hafa um fiskvinnsluákvæðið svokallaða. Viðræðurnar fóru fram í framhaldi af harðri gagnrýni hags- munaaðila á áform í fjárlagafrum- varpinu, þar sem lagt er til að hætt verði að greiða úr Atvinnuleysis- tryggingasjóði til fiskvinnslunnar þegar um vinnslustöðvun er að ræða af völdum hráefnisskorts en sjóður- inn hefur greitt sem svarar 60% af útlögðum launakostnaði þegar svo háttar til. Fiskvinnsluákvæðið fjallar um heimild til að halda starfsfólki í fiskvinnslu á launaskrá þó hráefnis- skortur verði. Viðræðunefndirnar voru skipaðar fulltrúum frá velferðarráðuneytinu, Atvinnuleysistryggingasjóði, Starfs- greinasambandinu og Samtökum fiskvinnslustöðva. Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að endanleg niðurstaða liggi ekki form- lega fyrir en staðfestir að samkomu- lag hafi náðst í viðræðunefndunum um tillögur að breytingum. ,,Þær ganga út á að núverandi reglur verði þrengdar töluvert mikið frá því sem nú er og að það muni leiða til þess að þessar útgreiðslur muni lækka um rúmlega einn þriðja. Gangi þetta eft- ir og komi þetta til framkvæmda um næstu áramót, þá munu yfir 60% falla á fiskvinnslufyrirtækin og tæp 40% á Atvinnuleysistryggingasjóð. En í staðinn kemur að þá er starfs- fólkið eins og nú á launaskrá í fisk- vinnslufyrirtækjunum þegar hráefn- isskortur verður. Formlega er eftir að ganga frá þessu við ráðuneytið.“ Arnar segir að með þessu sé kom- ið verulega til móts við sjónarmið ráðuneytisins. „Við vonum að þetta verði ekki til þess að raska atvinnu- öryggi fiskvinnslufólks en lengra verður held ég ekki gengið en þarna er lagt til.“ Samkomulag um fiskvinnsluákvæði  60% á fiskvinnsluna og 40% á Atvinnuleysistryggingasjóð Morgunblaðið/RAX Samkomulag Vonast er til að breytingarnar raski ekki atvinnuöryggi fiskvinnslufólks. Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Umboðsmaður Alþingis telur að Persónuvernd hafi átt að láta aðila sem var til skoðunar hjá stofnuninni vita þegar hún sinnti eftirliti í bíla- kjallara fjölbýlishúss. Stofnunin hafi þó haft heimild til að sinna eftirliti með þessum hætti. Upphaf málsins má rekja til þess þegar íbúar í fjölbýlishúsi kvörtuðu til Persónuverndar vegna nágranna sem þeir töldu hafa komið upp ör- yggismyndavél í bíl í bílakjallara hússins. Samkvæmt 2. mgr. 38. greinar laga um Persónuvernd, hef- ur stofnunin „aðgang að húsnæði þar sem vinnsla persónuupplýsinga fer fram eða gögn varðveitt“. Fengu eft- irlitsaðilar leyfi frá íbúum fjölbýlis- hússins til þess að fara inn í bílakjall- arann og skoða hvort öryggismynda- vélin væri í bílnum. Bíllinn var ekki á svæðinu og hvergi bólaði á mynda- vélinni. Ákvað Persónuvernd að láta málið niður falla. Áttu að láta manninn vita Stofnuninni láðist að láta mann- inn, sem kvartað var undan, vita af komu sinni þegar eftirlitsaðilar komu á vettvang. Ákvað maðurinn í kjölfarið að fara með málið til Um- boðsmanns Alþingis þar sem hann taldi Persónuvernd vera komna út fyrir valdsvið sitt og ekki hafa heim- ildir til þess að fara fram með þess- um hætti við eftirlit sitt. Í bréfi Umboðsmanns kemur fram að hann taki skýringar Persónu- verndar á nauðsyn þess að sinna eft- irlitshlutverki sínu með þessum hætti trúanlegar. Hins vegar vekur hann athygli á því að í skýringum Persónuverndar komi hvergi fram hvers vegna manninum, sem eftirlit- ið beindist að, var ekki gert viðvart þegar á vettvang var komið. Kemur hann þeirri ábendingu á framfæri að betur verði hugað að þessum sjón- armiðum við meðferð sambærilegra mála hjá Persónuvernd. Taka tillit til ábendingarinnar Þórður Sveinsson, lögfræðingur Persónuverndar, segir að stofnunin hafi ekki látið hluteigandi aðila vita til að tryggja að sönnunargögnum yrði ekki spillt í málinu. „Til að tryggja sönnun töldum við nauðsynlegt að fara í vettvangsat- hugun án þess að greint væri frá því fyrirfram. Umboðsmaður gerði ekki athugasemd við það, heldur kom með ábendingu um það hvernig við hefðum átt að haga okkur þegar við komum á staðinn. Við munum taka tillit til þessara athugasemda fram- vegis,“ segir Þórður. Hvatti Persónu- vernd til bættra vinnubragða  Létu ekki vita af komu sinni við eftirlit Morgunblaðið/RAX Engin myndavél Engin öryggis- myndavél fannst við eftirlit. Skv. heimildum Morgunblaðs- ins ætti útfærslan sem náðst hefur samkomulag um í við- ræðuhópi vegna fiskvinnslu- ákvæðisins, að geta sparað ríkinu nokkuð á annað hundr- að milljónir króna í útgjöld á ári. Fiskvinnsluákvæðið hefur um árabil varðað ráðning- aröryggi fiskvinnslufólks. Í frumvarpinu var þetta rök- stutt þannig að ekki væru ástæður til að ríkið veitti slíkan stuðning í einni at- vinnugrein. Spari ríkinu á hundrað millj. ÚTFÆRSLA BREYTINGANNA Andri Karl andri@mbl.is Aðalmeðferð í máli fimm ein- staklinga sem meðal annars eru sak- aðir um þrjár tilraunir til að flytja inn fíkniefni hófst í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Móðir 25 ára gamallar stúlku sem er ein hinna ákærðu gaf skýrslu fyr- ir dómnum en hún var handtekin í Leifsstöð þegar í ljós kom að fíkni- efni voru í ferðatösku sem dóttirin hafði beðið hana um að hafa með sér frá Danmörku. Hægt hefði verið að framleiða tvö kíló af kókaíni úr efn- inu sem var í töskunni. „Ég man að ég hugsaði að mamma er sextug og kærasti hennar er að fara með í ferðinni. Þau gætu því komist í gegn með hvað sem er. Ég man að ég hugsaði þá, í mínum brenglaða haus, að þetta væri góð hugmynd,“ bar stúlkan fyrir dómn- um þegar hún var spurð um þetta at- vik. Óttast hefndaraðgerðir Annar ákæruliður málsins snýr að innflutningi á 350 grömmum af kók- aíni frá Spáni í desember 2011. Þar eru fjórir einstaklingar ákærðir; tveir fyrir skipulagningu og par fyr- ir sjálfan innflutninginn. Burðardýrin játuðu sinn þátt en hafa hins vegar ekki viljað uppljósta hver skipulagði innflutninginn af ótta við hefndaraðgerðir. Maðurinn viðurkenndi þó að skulda meintum skipuleggjendum pening vegna fíkniefnakaupa. Parið hefði átt að fá niðurfellingu á skuld og 900.000 krónur fyrir að flytja inn efnið. Morgunblaðið/Ómar Fíkniefni Mál fólksins var tekið fyr- ir í Héraðsdómi Reykjaness í gær. „Hugmyndin góð í brengluðum haus“  Stórt fíkniefnamál tekið fyrir í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.