Morgunblaðið - 06.11.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
!"!
# $
%
&
bíllykla. Komdu við í verslun
okkar í Skútuvogi 11 og
kynntu þér hvað við höfum
að bjóða.
! " !
!"!
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Niðurstöður nýrrar launakönnunar
Capacent Gallup fyrir Flóafélögin
sem Morgunblaðið hefur greint frá á
seinustu dögum, eru um margt slá-
andi að mati forystumanna stéttar-
félaganna. Launamunur kynja
eykst, yfirvinna karla færist í
aukana og margir eiga í fjárhagserf-
iðleikum. Þá eru vísbendingar um að
fólki á lágmarkstöxtum fari fjölg-
andi.
Stjórnendur félaganna þriggja,
Eflingar stéttarfélags, Hlífar í Hafn-
arfirði og Verkalýðs- og sjómanna-
félags Keflavíkur og nágrennis
(VSFK) eru að fara yfir niðurstöð-
urnar þessa dagana.
Kolbeinn Gunnarsson, formaður
Hlífar, segir greinilegt af könnun-
inni að mun erfiðara sé fyrir fólk að
lifa í samfélaginu af laununum.
Svo virðist líka sem ekki sé verið
að ráða fólk til starfa heldur séu
starfsmenn að taka á sig lengri
vinnutíma. Það á ekki síst við um
karla. Í sambærilegri könnun fyrir
ári kom í ljós að karlar unnu að með-
altali 7 klst. yfirvinnu í viku en yf-
irvinnan er núna komin í 8,9 stundir.
Þessu er öfugt farið hjá konum, sem
sögðust núna að meðaltali hafa unnið
3,9 tíma í yfirvinnu í liðinni viku þeg-
ar könnunin var gerð.
Kolbeinn bendir á að á sama tíma
séu launin að þróast með þeim hætti
að þau hafi hækkað töluvert meira
meðal karla en kvenna. Þetta veki
spurningar um hvað þarna er á ferð-
inni, hvort karlar njóti frekar yfir-
borgana en konur sem hafi setið eft-
ir. Þá sé það mikið áhyggjuefni að
launamunur er að aukast á milli
kynjanna. Kolbeinn segir að vinnuá-
lagið virðist aukast og sums staðar
hafi starfshlutfallið verið minnkað og
almennt megi líkja þessu við að
starfsfólk sé bara látið hlaupa hrað-
ar. ,,Hvað fjárhagsstöðu fólks varðar
má sjá að það er gífurlega stór hópur
okkar fólks sem á í erfiðleikum með
greiðslur. Það verður að gera eitt-
hvað vegna skuldavanda heimil-
anna,“ segir hann.
Í sumum tilvikum er verulegur
munur á niðurstöðunum eftir starfs-
greinum en einnig á milli verkalýðs-
félaganna. Sögðust 16,1% í Eflingu
hafa verið án atvinnu í einn mánuð
eða lengur á sl. tveimur árum. Hlut-
fallið er 20,8% hjá VSFK en 6,5%
meðal félagsmanna í Hlíf.
Félögin hafa látið gera sambæri-
legar launakannanir í mörg ár og
segir Kolbeinn niðurstöðurnar vera
mjög gott veganesti fyrir félögin,
ekki síst við undirbúning kjarasamn-
inga.
Miklir greiðsluerfiðleikar
,,Við erum rétt að byrja að skoða
niðurstöður könnunarinnar. Hún er
fyrir margra hluta sakir mjög merki-
leg,“ segir Kristján Gunnarsson, for-
maður VSFK.
,,Hér eru greiðsluerfiðleikarnir
eðlilega meiri,“ segir hann og vísar
til þess mikla atvinnuleysis sem er á
félagssvæði VSFK. ,,Atvinnuleysið
er að sverfa að okkur og tekur í á öll-
um sviðum, í laununum og einkahög-
um fólks, þetta bítur okkur svo sann-
arlega. Atvinnuleysið er hin lamandi
hönd í þessu öllu,“ segir Kristján.
Eitt af því sem vekur athygli hans í
samanburði milli félaganna þriggja
er að meðallaun félagsmanna í
VSKF, bæði dagvinnutekjur og
heildarlaunin, mælast nú lægri en
laun félagsmanna í Eflingu. Þessu
hefur alltaf verið öfugt farið í eldri
könnunum.
Vinnuálagið fer vaxandi
Starfsmenn taka á sig lengri vinnutíma „Atvinnuleysið er hin lamandi hönd“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leikskóli Samkvæmt nýrri launakönnun Capacent Gallup segjast 74% leiðbeinenda á leikskólum vera ósátt við launin sín.
Þróun heildarlauna
Heimild: Capacent Gallup
380
370
360
350
340
330
320
310
300
290
sept.-okt. 2009 ág.-sept. 2010 sept.-okt. 2011 sept.-okt. 2012
Efling Hlíf Vfsk
Heildarlaun starfsfólks í 70- 100% starfshlutfalli í þúsundum kr. á mánuði
Fjölgað hefur í
hópi þeirra sem
segjast vera
ósáttir við laun
sín skv. launa-
könnuninni sem
gerð var fyrir
Flóafélögin í
haust. 51,4%
segjast núna vera
frekar eða mjög ósátt við laun sín en
hlutfallið var tæplega 50% í sam-
bærilegri könnun fyrir ári.
Mikill munur er á svörum
kynjanna við þessari spurningu.
Þannig sögðust 59% kvenna vera
ósátt við launin en 43% karla eru
ósátt. Þegar svörin eru greind eftir
störfum kemur í ljós að mest er
óánægjan meðal leiðbeinenda á
leikskólum þar sem 74% segjast
vera ósátt við laun sín og meðal
starfsmanna við umönnun en 67%
þeirra segjast vera ósátt við laun
sín.
Könnunin leiðir einnig í ljós að
49,6% félagsmanna í verkalýðs-
félögunum þremur segja að vinnuá-
lag á þau sé of mikið.
Svarendur voru spurðir í könn-
uninni hvort þeir hefðu orðið fyrir
einelti af hendi samstarfsfólks og/
eða yfirmanns á seinustu 12 mánuði.
15,3% sögðust hafa orðið fyrir ein-
elti á vinnustað á umliðnu ári. 8,5%
þeirra sögðust hafa orðið fyrir ein-
elti af hálfu samstarfsfólks en 6,8%
af hálfu yfirmanns eða yfirmanna.
Nánast enginn munur er á kynj-
unum hvað þetta varðar. 24% þeirra
sem segjast hafa orðið fyrir einelti
hafa leitað sér aðstoðar vegna þess.
Í könnuninni kemur fram að þeim
hefur fjölgað sem segjast hafa verið
frá vinnu vegna eigin veikinda á sl.
3 mánuðum. 40,8% svöruðu spurn-
ingu um þetta játandi og hefur þeim
fjölgað umtalsvert eða úr 38,3% fyr-
ir ári. Haustið 2010 sögðust hins
vegar aðeins 26% hafa verið frá
vinnu vegna veikinda á umliðnum 3
mánuðum.
51,4% eru
ósátt við
laun sín
15,3% segjast hafa
mátt þola einelti
Stuðningsmiðstöð fyrir börn með
alvarlega og sjaldgæfa sjúkdóma
og fjölskyldur þeirra verður opnuð
í Austurströnd 3 á Seltjarnarnesi í
dag.
Stuðningsmiðstöðin er á vegum
sjálfseignarstofnunarinnar Nætur
og Dags en safnað var fyrir mið-
stöðinni í haust í átakinu Á allra
vörum.
Guðbjartur Hannesson velferð-
arráðherra mun í dag skrifa undir
viljayfirlýsingu um aðkomu ríkisins
að verkefninu en síðdegis, milli
klukkan 16 og 18, verður opið hús í
miðstöðinni.
Stuðningsmiðstöðin á ekki að
vera nýr meðferðaraðili heldur
hjálpa fólki að samhæfa allar að-
gerðir og verkefni sem fylgja veik-
indum barnanna.
Söfnun Yfir 100 milljónir króna söfnuðust
í átakinu Á allra vörum í september.
Stuðningsmiðstöð
opnuð í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Bárðarson
hefur verið ráð-
inn for-
stöðumaður Höf-
uðborgarstofu,
sem ber ábyrgð á
heildarkynningu
Reykjavíkur á
sviði ferðamála.
Staðan var
auglýst í lok
september og
voru umsækjendur 27.
Einar er 40 ára gamall en hann
er vel þekktur fyrir frumkvöðla-
starf sitt á sviði tónlistar og tón-
leikahalds. Einar lagði stund á nám
í markaðsfræðum við Háskólann í
Arizona og útskrifaðist með MBA-
gráðu frá Háskólanum í Reykjavík
sl. vor.
Einar stýrir
Höfuðborgarstofu
Einar Bárðarson
Skipulagsfræðingafélag Íslands og
skipulagsfræðideild Landbún-
aðarháskóla Íslands efna til mál-
þings á morgun, miðvikudag, í Nor-
ræna húsinu um skipulag
landnotkunar og landnýtingar á Ís-
landi. Á málþinginu verður fjallað
um notkun og nýtingu lands út frá
ýmsum sjónarhornum með tilliti til
nýrrar landsskipulagsstefnu.
Málþingið hefst klukkan 13 og
stendur til 16.30.
Málþing um land-
notkun og nýtingu
STUTT