Morgunblaðið - 06.11.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Maðurinn sem slasaðist alvarlega
þegar bifreið valt í Rangárvalla-
sýslu aðfaranótt sunnudags hefur
verið útskrifaður af gjörgæsludeild
Landspítalans.
Alls sex farþegar voru í bílnum
sem valt á Akureyjarvegi í Land-
eyjum um klukkan þrjú um nóttina
og voru þeir allir fluttir á sjúkra-
húsið á Selfossi. Einn farþeginn,
maður á þrítugsaldri, reyndist al-
varlega slasaður og var fluttur til
Reykjavíkur með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar, sem kölluð var út á
fjórða tímanum.
Fólkið var á leið heim af dansleik
í Njálsbúð þegar slysið bar að en
lögregla sagði engan grun liggja
fyrir um ölvun. Engin hálka var á
veginum en nokkur lausamöl.
Útskrifaður af gjörgæsludeild
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er framkvæmd upp á 350 til
400 milljónir króna í liðlega 600
manna þorpi og er því tvöfalt meiri
framkvæmd er Harpa var í Reykja-
vík, miðað við höfðatölu. Munurinn
er sá að hér framkvæmum við fyrir
hlutafé, íbúar verða ekki krafðir um
greiðslu kostnaðarins,“ segir Ólafur
Sæmundsson, eigandi verktakafyr-
irtækisins TVT ehf. og bygging-
arstjóri hótelbyggingarinnar á Pat-
reksfirði.
Framkvæmdir við að breyta hús-
næði gamla frysti- og sláturhússins á
Patreksfirði í hótel gengur sam-
kvæmt áætlun og er áætlað að opna
hótelið í maí eða júní. Við verkið
vinna 12-15 menn í vetur og skapar
það umtalsverð umsvif í þorpinu. Það
mun rekstur Fosshótelsins einnig
gera þegar hann hefst.
„Það hefur vantað hótel hér sem
getur tekið við gestum úr heilli rútu.
Vel gengur að bóka fyrir sumarið.
Fólk hefur þegar ráðið sig til starfa í
vor og er að leita að húsnæði til að
búa í,“ segir Ólafur.
Þá eru framkvæmdirnar töluverð
andlitslyfting fyrir þorpið því slát-
urhúsið hefur staðið hlutverkalaust í
fimmtán ár og ekki verið til prýði.
„Núna er verið að gera því til góða,
samfélaginu og þorpinu okkar.“
Þorpið mitt
Ólafur er Patreksfirðingur en hef-
ur búið á höfuðborgarsvæðinu í rúm
tuttugu ár. Hann hefur þó tekið að
sér verk á Patreksfirði og víðar um
land. „Ég ólst upp við frystihúsið,
það var minn leikskóli og vinnuskóli.
Maður fylgdist með þegar karlarnir
lönduðu fiski og gerðu að aflanum,
fór að vinna í frystihúsinu sem ung-
lingur og seinna að læra iðnina þegar
frystihúsinu var breytt í sláturhús,“
segir Ólafur sem er nú að vinna að
þriðju breytingunni á húsinu. Hann
vann við að breyta því í sláturhús á
sínum tíma og síðar þegar þar var
komið upp rækjuvinnslu um tíma.
Hann flutti suður 1989 þegar lang-
varandi hnignunarskeið hófst með
því að togarinn fór og stór hluti kvót-
ans. „Það var lítið fyrir smiði að
gera,“ segir Ólafur.
Nú horfir allt til betri vegar. Nýtt
laxeldisfyrirtæki skapar störf á
staðnum, útgerðarfélögin virðast
ganga vel og almenn bjartsýni ríkir í
samfélaginu. Fasteignaverð hefur
heldur hækkað með aukinni eft-
irspurn. „Patreksfjörður er þorpið
mitt og mér þykir vænt um að fá að
taka þátt í umskiptunum,“ segir
Ólafur Sæmundsson.
Byggingarstjóri Ólafur Sæmundsson er ánægður með að fá að taka þátt í
endurreisn gamla þorpsins síns, Patreksfjarðar.
Gaman að taka þátt
Byggingarstjóri segir að framkvæmdir við hótel hafi tvöfalt
meiri áhrif á Patreksfirði en bygging Hörpu hafði í Reykjavík
Lagfæring Patreksfjörður fær andlitslyftingu með lagfæringum á gamla
sláturhúsinu. Þar verður opnað Fosshótel Patreksfjörður á komandi vori.
Rauðagerði 25 108 Reykjavík Sími 440 1800 kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þéri i
Verð kr. 99.900
Vita Mix kanna fylgir með
meðan birgðir endast
Blandarinn sem
allir vilja!
Árin segja sitt1979-2012
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði
för tveggja ökumanna í gær sem
voru grunaðir um akstur undir
áhrifum fíkniefna. Annar þeirra
var stöðvaður í Grindavík en hinn
í Reykjanesbæ.
Þá lentu tveir bílar í árekstri á
Hringbraut í Reykjanesbæ í gær
og skemmdust bílarnir töluvert.
Enginn slasaðist hins vegar í
árekstrinum, að sögn lögreglu.
Hjólbörðum var stolið undan
bifreið sem stóð í Gilsbúð í Garða-
bæ í hádeginu í gær, samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Búið var að
taka tvo hjólbarða undan bifreið-
inni þegar lögregla kom á vett-
vang.
Upp úr klukkan eitt í gær var
tilkynnt innbrot í bifreið sem stóð
við Gnoðarvog.
Fíkniefnaakstur,
hjólbarðastuldur,
árekstur og innbrot
Ekið var á barn á mótum Langholts-
vegar og Laugarásvegar skömmu
fyrir klukkan tvö í gær. Samkvæmt
upplýsingum frá slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins var barnið ekki
alvarlega slasað. Barnið lenti undir
bifreiðinni og var það flutt með
sjúkrabíl á Landspítalann.
Mjög mikill erill var í sjúkraflutn-
ingum hjá slökkviliðinu eftir hádegi
í gær en undanfarna daga hefur
slökkviliðið farið í mörg hundruð
sjúkraflutninga.
Mikill erill í
sjúkraflutningum
Morgunblaðið/Júlíus
Slys Nóg hefur verið að gera hjá sjúkra-
flutningamönnum síðustu daga.