Morgunblaðið - 06.11.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Októbermánuður var næstmesti út-
flutningsmánuður frá upphafi, sé lit-
ið fram hjá óreglulegum liðum á
borð við skip og flugvélar, en út-
flutningur var 16,1% meiri en hann
var í október í fyrra, reiknað á sama
gengi.
Vöruskiptaafgangur mánaðarins
var 15,7 milljarðar, en það er tæp-
lega tvöfalt meira en í október í
fyrra. Samtals hefur vöruútflutning-
ur aukist um 0,6% fyrstu tíu mánuði
ársins á föstu gengi, en vöruskiptin í
þessum mánuðum eru jákvæð um
85 milljarða, ef horft er framhjá
óreglulegum liðum. Það er 10% lak-
ari útkoma en á sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka.
Myndarlegur vöruskiptaafgangur
nú í október skrifast alfarið á út-
flutning, sem var 16,1% meiri en
hann var í október í fyrra, reiknað á
sama gengi. Er þetta mun meiri
vöxtur en verið hefur undanfarið, en
sé tekið mið af fyrstu tíu mánuðum
ársins þá hefur vöruútflutningur
aukist um 0,6% frá sama tímabili í
fyrra. Vöruinnflutningur jókst hins
vegar umtalsvert meira í október
frá sama mánuði í fyrra, eða sem
nemur um 3,1% á föstu gengi.
Útflutningur sjávarafurða nam
29,1 milljarði í október, sem er
11,5% aukning frá því í fyrra. Út-
flutningur iðnaðarvara nam alls 31,7
milljörðum króna í mánuðinum sem
aukning upp á 24,1% milli ára.
15,7 milljarða
afgangur
Næstmesti útflutningsmánuðurinn
Morgunblaðið/RAX
Verðmæti Útflutningur sjávarafurða nam 29,1 milljarði króna í október.
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
Konukvöld í kvöld kl. 20-22
Stílistar frá stílista-
skólanum Önnu og útlitið
verða á staðnum og
veita ráðgjöf
20% afsláttur
af öllum vörum
KORTIÐ GILDIRTIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
MOGGAKLÚBBURINN
OKTÓBERUPPFÆRSLA
ÍSLENSKA DANSFLOKKSINS
Á VERKUNUM
„IT IS NOT A METAPHOR“
EFTIR CAMERON CORBETT
OG „HEL HALDI SÍNU“
EFTIR JÉRÔME DELBEY
Í BORGARLEIKHÚSINU
„Nýjasta sýning Íslenska dansflokksins
er fjölbreytt og tilfinningarík
skemmtun sem öll fjölskyldan
ætti að geta notið saman“
- Víðsjá
Gildir á sýningar 18. og 25. nóvember gegn framvísun
Moggaklúbbskortsins í miðasölu Borgarleikhússins.
Miðasala í síma 568 8000 fyrir áskrifendur.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
www.id.is
FRÉTTABLAÐIÐ
OOOO
Almennt verð: 3.900 kr.
Moggaklúbbsverð: 2.900 kr.
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á mbl.is/postlisti.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Hægt er að greina merki efnahags-
bata á Íslandi sé litið til þess að mjög
hefur dregið úr notkun orðsins
„kreppa“ í prent- og ljósvakamiðlum
hérlendis á síðustu misserum. Þetta
kemur fram í markaðspunktum
greiningardeildar Arion banka, en
þar segir að hægt sé að greina sam-
hengi í notkun orðsins „kreppa“ og
því að það sé raunverulega sam-
dráttarskeið í hagkerfinu.
Þetta sýnir staðfærsla greiningar-
deildar Arion banka á svokallaðri K-
orðs vísitölu sem breska vikublaðið
The Economist hafði áður gert. Þar
er talið hversu margar fréttir eða
greinar innihalda orðið „kreppa“ á
gefnu tímabili. Þrátt fyrir nokkuð
ófullkomna rannsóknaraðferð bend-
ir greiningardeildin á að aðferð The
Economist hafi iðulega spáð fyrir um
meiriháttar samdráttarskeið vestan-
hafs.
Greiningardeild Arion banka not-
aðist við upplýsingar frá öllum ís-
lenskum prent- og ljósavakamiðlum.
Eftir að vísitalan hafði legið mjög
lágt í uppganginum í aðdraganda
bankahrunsins tók hún að hækka
áberandi mikið frá ársbyrjun 2008,
og gaf þar með fyrirheit um atburði
haustsins. Þegar bankarnir féllu tók
vísitalan svo stökk þegar meira en
700 kreppufréttir birtust í einum
mánuði
Litlar breytingar frá 2011
Á meðan samdrátturinn varði var
vísitalan mun hærri en þegar allt lék
í lyndi, en fljótlega eftir að sam-
drættinum lauk tók hún að lækka og
hefur verið um eða undir 100 stigum
frá ársbyrjun 2011. Segir greining-
ardeildin að K-orðs vísitalan bendi
því ótvírætt til þess að efnahagsbat-
inn sé á réttri leið.
K-orðs vísitala greiningardeildar Arion
fjöldi frétta í prent- og ljósvakamiðlum sem innihalda orðið kreppa
800
700
600
500
400
300
200
100
0
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012
Hagkerfið í samdrætti
Færri „kreppur“
benda til bata
Dregur úr notkun orðsins „kreppa“
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga