Morgunblaðið - 06.11.2012, Qupperneq 20
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Barack Obama Bandaríkjaforseti og
Mitt Romney, forsetaefni repúblik-
ana, reyndu fram á síðustu stundu í
gær að vinna óákveðna kjósendur á
sitt band og hvetja stuðningsmenn
sína til að neyta atkvæðisréttar síns í
forsetakosningunum í dag sem talið
er að verði á meðal þeirra tvísýnustu í
sögu Bandaríkjanna. Kjörsóknin gæti
ráðið úrslitum í kosningunum og
frambjóðendurnir hafa því kappkost-
að að tryggja sem mesta kjörsókn í
kjósendahópum þar sem fylgi þeirra
er mest.
Síðustu skoðanakannanir, sem ná
til alls landsins, benda flestar til þess
að fylgi frambjóðendanna sé hnífjafnt
eða innan skekkjumarka. Demókrat-
ar sögðust þó enn vera vongóðir um
að Obama færi með sigur af hólmi í
nokkrum lykilríkjum, sem gætu ráðið
úrslitum í kosningunum, en viður-
kenndu að það færi að miklu leyti eftir
kjörsókninni meðal þeirra sem hafa
stutt forsetann. Kannanir í mörgum
ríkjanna, þeirra á meðal Virginíu og
Pennsylvaníu, benda þó til þess að
forskot Baracks Obama hafi minnkað
á lokasprettinum, að sögn Wall Street
Journal. Kannanir hafa einnig bent til
þess að repúblikanar séu líklegri til að
kjósa en demókratar og það gæti veg-
ið þungt þegar munurinn er svo lítill.
Biðlað til kvenna og ungs fólks
Sigur Baracks Obama árið 2008 var
meðal annars rakinn til mikils fylgis
hans meðal ungs fólks og kvenna. Um
66% kjósenda á aldrinum 18 til 29 ára
kusu þá Obama en 32% John McCain,
forsetaefni repúblikana fyrir fjórum
árum, eins og sjá má á skýringar-
myndinni hér til hægri. Síðustu kann-
anir benda til þess að um 58% unga
fólksins ætli að kjósa Obama en 36%
Mitt Romney.
Um 56% kvenna kusu Obama fyrir
fjórum árum og 43% Mitt Romney.
Nýjustu kannanir benda þó til þess að
fylgi forsetans hafi minnkað í 52%
meðal kvenna, en 42% þeirra styðji
Romney.
Mikil kjörsókn meðal kvenna og
ungs fólks gæti því skipt sköpum fyrir
Obama, einkum í ríkjum á borð við
Ohio þar sem mjög mjótt er á munum
og úrslitin gætu ráðist. Romney hefur
reynt að saxa á forskot forsetans
meðal kvenna á lokaspretti kosninga-
baráttunnar með því m.a. að skír-
skota oft til fjárhagserfiðleika ein-
stæðra mæðra í ræðum sínum.
Obama og Romney sóttu fjórtán
kosningafundi í alls átta ríkjum í gær
eftir nær átján mánaða kosningabar-
áttu sem áætlað er að hafi kostað
tæpa þrjá milljarða Bandaríkjadala,
andvirði 380 milljarða króna.
Af fundunum fjórtán voru sex
þeirra haldnir í Ohio sem hefur verið
miðdepill baráttunnar um Hvíta hús-
ið, enda hefur enginn repúblikani ver-
ið kjörinn forseti án þess að sigra þar.
Romney heimsótti því Ohio á loka-
deginum – í 44. skipti í kosningabar-
áttunni. Obama hefur verið með for-
skot í ríkinu en munurinn er innan
skekkjumarka.
Kjörsóknin gæti skipt sköpum
Obama og Romney lögðu kapp á að tryggja mikla kjörsókn í kjósendahópum þar sem fylgi þeirra
hefur verið mest Munurinn á fylgi þeirra hefur minnkað á lokasprettinum í nokkrum lykilríkjum
AFP
Á endasprettinum Barack Obama forseti heilsar stuðningsmönnum sínum í borginni Cincinnati í Ohio.
Heimild:
RealClearPolitics
Lykilríki í kosningunum
Lítill munur var enn á fylgi Baracks Obama og
Mitts Romney daginn fyrir kosningarnar
Úrslit forsetakosninganna
gætu ráðistí 11ríkjum.
Þau eru með alls
146kjörmenn sem
kjósa forseta
Bandaríkjanna
endanlega eftir
kosningarnar
B A N DA R Í K I N
Fylgi Obamas
Fylgi Romneys
Virginía
Fjöldi kjörmanna
47,6
49,3
47,7
49,0
50,4 49,4
45,4 45,3
49,4
47,8
45,3
48,2
47,6
50,2
47,4
xx%
xx%
46,2
47,5
49,147,9
46,5
29
4
10
20
xx
6
Ohio
Flórída
New
Hampshiree
49,8
46,0
Norður-
Karólína
Wisconsin Michigan Pennsylvanía
IowaColoradoNevada
Atkvæði 270 kjörmanna þarf til að ná kjöri
Barack
Obama
Mitt
Romney
146
óráðnir
201 191
538
kjörmenn
alls
16
18
15
139
6
AFP
Í lykilríki Mitt Romney heilsar stuðningsmönnum á flugvelli í Flórída, einu ríkjanna sem gætu ráðið úrslitum.
Hnífjöfn barátta
» Nýjasta könnun CNN bendir
til þess að Obama og Romney
standi jafnir að vígi meðal lík-
legra kjósenda í öllu landinu,
með 49% fylgi hvor.
» Barack Obama er með 48%
fylgi og Romney 47%, ef
marka má könnun Wall Street
Journal.
» Munurinn er mestur í nýj-
ustu könnun Pew-rann-
sóknastofnunarinnar. 48% að-
spurðra sögðust ætla að kjósa
Obama en 45% Romney.
» Obama er með naumt for-
skot í sjö af 11 lykilríkjum sem
gætu ráðið úrslitum en mun-
urinn er innan skekkjumarka í
mörgum þeirra.
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012