Morgunblaðið - 19.11.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 2012
Samfylkingin hélt tvö prófkjörum helgina og var þátttaka rýr
í báðum. Einungis um 2.500 tóku
þátt í Reykjavík og um 1.500 í Suð-
urkjördæmi.
Fyrrverandi nemií fjármálaráðu-
neytinu, Oddný
Harðardóttir, sigr-
aði fyrrverandi við-
skiptaráðherra,
Björgvin Sigurðs-
son, auðveldlega í
prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Suður-
kjördæmi um
helgina.
Sigur utanríkis-ráðherra og
fyrrverandi for-
manns Samfylkingarinnar, Össurar
Skarphéðinssonar, á formanni vel-
ferðarnefndar, Sigríði Ingadóttur,
var síður sannfærandi.
Össur fékk lítið, aðeins 39% at-kvæða í fyrsta sæti, en Sigríð-
ur fékk enn minna, 36%. Þegar horft
er á 1. og 2. sæti saman, sem bæði
eru leiðtogasæti í Reykjavík, fékk
Össur innan við helming atkvæða,
48%, og Sigríður rúman helming,
53%.
Þetta þýðir með öðrum orðum aðinnan við helmingur samfylk-
ingarmanna vill að Össur leiði lista
flokksins. Engu að síður verður Öss-
ur hafður í oddvitasæti og ýmsir
álitsgjafar og fréttamenn sem eru
gagnrýnir á sum prófkjör munu
ekkert sjá að þessu.
Og Össur sjálfur sér ekkert að þvíað segjast yfir sig ánægður
með úrslitin þó að allir sjái hversu
veik niðurstaðan í prófkjörum helg-
arinnar er fyrir hann sjálfan og
Samfylkinguna.
Össur
Skarphéðinsson
Yfir sig ánægður
STAKSTEINAR
Sigríður I.
Ingadóttir
Veður víða um heim 18.11., kl. 18.00
Reykjavík -2 léttskýjað
Bolungarvík -2 alskýjað
Akureyri -1 snjókoma
Kirkjubæjarkl. 0 léttskýjað
Vestmannaeyjar -1 heiðskírt
Nuuk -5 upplýsingar bárust ek
Þórshöfn 3 léttskýjað
Ósló 1 léttskýjað
Kaupmannahöfn 7 heiðskírt
Stokkhólmur 5 alskýjað
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 6 skýjað
London 7 heiðskírt
París 8 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 skúrir
Berlín 6 þoka
Vín 5 þoka
Moskva 0 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 16 skýjað
Barcelona 17 skýjað
Mallorca 17 þrumuveður
Róm 16 skýjað
Aþena 16 skýjað
Winnipeg -8 heiðskírt
Montreal 0 skýjað
New York 7 heiðskírt
Chicago 8 léttskýjað
Orlando 20 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
19. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:11 16:16
ÍSAFJÖRÐUR 10:38 15:59
SIGLUFJÖRÐUR 10:22 15:41
DJÚPIVOGUR 9:46 15:40
Velferðarráðuneytið í samstarfi við
Jafnréttisráð og Jafnréttisstofu boð-
ar til morgunverðarfundar um sam-
ræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs á
Grand hóteli í fyrramálið, þriðju-
daginn 20. nóvember klukkan 8-
10.30. Fundurinn er skipulagður af
vinnuhópi um samræmingu fjöl-
skyldu- og atvinnulífs sem nú starfar
í velferðarráðuneytinu. Til fundar-
ins er boðið aðilum vinnumarkaðs-
ins, starfsmannastjórnum og yfir-
mönnum fyrirtækja, stofnana og
sveitarfélaga svo og öðrum sem
koma að starfsmannamálum. Skrán-
ing fer fram á www.vel.is/skraning.
Samræming fjöl-
skyldu- og atvinnulífs
Morgunblaðið/RAX
Fjölskylda Gaman er að hjóla saman.
Samtökin Íslenskt þjóðráð - IceW-
ise efna til málþings um Evrópumál
á veitingastaðnum Rúbín í Öskju-
hlíð í dag, mánudag, kl. 17.15.
Sérstakur gestur verður breska
þingkonan Kate Hoey, þingmaður
Verkamannaflokksins í Vauxhall í
Lundúnum. Fyrirlestur Kate nefn-
ist: Hættur Evrópuaðildar - The
Dangers of Joining the EU. Hallur
Hallsson, formaður Þjóðráðs, held-
ur fyrirlesturinn: Ísland á ný á evr-
ópsku áhrifasvæði og Jón Kristinn
Snæhólm, varaformaður, talar um
Ísland og sjávarútvegsstefnu ESB.
Málþing um
Evrópumál í dag
Þær voru hver annarri litskrúðugri
og girnilegri kökurnar sem voru
sendar inn í kökukeppni Disney-
klúbbsins. Keppniskökurnar voru til
sýnis í Smáralind í Kópavogi um
helgina og lögðu margir leið sína á
staðinn til að berja þær augum eins
og meðfylgjandi myndir bera með
sér.
Þemað í kökukeppninni var
teiknimyndir Disney samsteyp-
unnar. Var fólk hvatt til þess að nota
ímyndunaraflið, útbúa glæsilegar
kökur með einhverjum af sínum
uppáhalds Disney-persónum og
koma með þær í keppnina. Keppt
var í tveimur flokkum, fullorðinna og
barna.
Það voru Morgunblaðið, Smára-
lind, Hagkaup og Einar Farestveit
sem stóðu að kökukeppninni ásamt
Disney-klúbbnum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Disney-kökur Eins og sjá má var hlaðborðið glæsilegt. Fjöldinn allur af kökum barst í keppnina.
Flott Þemað í kökukeppninni var teiknimyndir Disney eins og sjá má.
Hugfangin Aðeins mátti horfa á kökurnar, ekki mátti smakka þær.
Ljúffengar
og lit-
skrúðugar
hnallþórur
Félagið Ísland-Palestína stendur
fyrir mótmælafundi í dag, mánu-
daginn 19. nóvember, klukkan
17:00 fyrir framan sendiráð Banda-
ríkjanna á Laufásvegi.
Tilefnið eru grimmilegar árásir
Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á
palestínskum borgurum á Gaza
ströndinni.
Mótmælafundur
Ísland-Palestína