Morgunblaðið - 21.11.2012, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 1. N Ó V E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 273. tölublað 100. árgangur
FÆ ALLTAF MJÖG
MIKLA HEIMÞRÁ
Á VORIN
LÍTIÐ VARIÐ
Í LÍF ÁN
ÁSTAR
PERUTRÉÐ
GEFUR GÓÐA
UPPSKERU
ÓLI ÁGÚSTAR 38 SIGRÍÐUR Á NÚPUM 10ELÍZA NEWMAN 41
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vaxtahækkanir Seðlabankans síðan
í ágúst í fyrra hafa hækkað
greiðslur af óverðtryggðu 10 millj-
óna króna láni á breytilegum vöxt-
um um 161.000 krónur á ári. Er þá
miðað við lán með jöfnum afborg-
unum til 25 ára en sambærilegt
jafngreiðslulán hækkar um 115.000
krónur á ári.
Gera þetta samtals 805.000 og
575.000 krónur á fimm árum miðað
við að vextirnir lækki ekki aftur, en
munurinn er meiri á hærri lánum.
Þetta kemur fram í útreikningum
Yngva Harðarsonar hagfræðings en
honum reiknast til að hækkun stýri-
vaxta um 1,75% síðan í ágúst í fyrra
kosti almenning 3 milljarða króna.
Er þá horft til óverðtryggðra lána
og yfirdráttarlána en Yngvi segir
erfiðara að áætla álagið á verð-
tryggð lán vegna vaxtahækkana.
Nálgast 300 milljarða króna
Niðurstöðurnar sýna hversu næm
óverðtryggð lán á breytilegum vöxt-
um eru fyrir vaxtahækkunum en
óverðtryggð íbúðalán námu í lok
ágúst sl. 210-220 milljörðum kr. Er
meirihlutinn á breytilegum vöxtum.
Útlánin hafa aukist eftir að Fjár-
málaeftirlitið hvatti lántakendur í
maí sl. til að hafa borð fyrir báru
þegar þeir taka lán af þessu tagi.
Var það meðal annars rökstutt
með því að ekki væri hægt að
reikna með því að laun hækki í takt
við vaxtahækkanir og því sé viðbúið
að ráðstöfunartekjur minnki sam-
fara hærri vöxtum og greiðslum.
Stýrivextir hafa þegar hækkað
um 1,75% í þessari lotu og skerða
áhrifin af því ráðstöfunartekjurnar.
MVaxtahækkanir auka »16
Greiðslubyrðin að þyngjast
Vaxtahækkanir hækka greiðslur óverðtryggðra lána Aðvörun FME rætist
Allt að 161.000 krónur
» Tekin eru fjögur dæmi af
áhrifum vaxtahækkana í
Morgunblaðinu í dag.
» Öll lánin eru tíu milljóna
króna lán og óverðtryggð á
breytilegum vöxtum.
» Greiðslur af þeim á ári
hækka um 92.212 krónur,
115.000 kr., 127.684 og um
161.000 krónur.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mokstur Snjóruðningstæki voru að störfum við Krossanesbraut á Akureyri í gær. Þar hefur snjóað mikið líkt og víðar á Norðurlandi.
Fjárveiting Vegagerðarinnar til
vetrarþjónustu kláraðist þegar í
haust og rekstrarliðurinn er kom-
inn í mínus fyrir nokkru. Björn
Ólafsson, forstöðumaður þjónustu-
deildar Vegagerðarinnar, sagði að
heildarfjárveiting til vetrarþjón-
ustu á þessu ári hefði verið 1.580
milljónir og þar af fóru 1.413 millj-
ónir til þjónustusvæðanna.
Óvenjumikið fannfergi hefur ver-
ið í Skagafirði undanfarið. „Þetta
er búið að vera þrjár helgar í röð,“
sagði Ásta Björg Pálmadóttir sveit-
arstjóri. Hún sagði kostnað af snjó-
mokstri í sveitarfélaginu vera kom-
inn vel yfir tíu milljónir.
Sveitarstjórn samþykkti í síðustu
viku að bæta við framlög til snjó-
moksturs og taldi Ásta að líklega
þyrfti að bæta meiru við.
Meðalhiti fyrstu 20 daga nóv-
ember er talsvert lægri en verið
hefur að meðaltali í nóvember síð-
asta áratuginn. »4
Snjórinn
tæmir
sjóðina
Mikið hefur snjóað fyrir norðan miðað við undanfarin ár og Vegagerðin hefur klárað fjárveitingar sínar
Hillary Clinton,
utanríkisráðherra
Bandaríkjanna,
fundaði í gær-
kvöldi með Ben-
jamin Netanyahu,
forsætisráðherra
Ísraels. Fyrir
fundinn sagði hún Bandaríkjamenn
heita Ísraelum stuðningi og að þeir
vildu tryggja öryggi landsins. Clin-
ton mun ræða við leiðtoga Palest-
ínumanna í dag og þaðan halda til
Egyptalands og hitta Morsi, forseta
landsins. Clinton gaf í skyn að sam-
komulag um vopnahlé yrði ekki
undirritað fyrr en að þeim heim-
sóknum loknum en aðrar heimildir
í gærkvöldi hermdu að sam-
komulag væri í sjónmáli. »20 og 22
Vonast til að vopna-
hlé sé í sjónmáli
Til er í dæminu að verið sé að húð-
flúra fólk í heimahúsum hér á landi,
án tilskilinna starfsleyfa sem við-
urkenndar húðflúrstofur eru með.
„Vandamálið núna og það sem
hefur verið að koma upp á er það að
þú getur keypt byrjunarsett á net-
inu, til dæmis á eBay, og allavega
húðflúrsdót sem er ekkert upp-
runavottorð á. Hver sem er getur
gert þetta og þetta er að gerast í
heimahúsum og það eru jafnvel
krakkar að panta þetta,“ segir Svan-
ur Jónsson hjá
húðflúrstofunni
Tattoo og skart í
Reykjavík. Hann
segir að reglu-
lega komi fólk á
stofuna til hans
með heimaflúr
sem það vill láta
laga.
Það er heil-
brigðiseftirlit í
hverju sveitarfélagi sem hefur eft-
irlit með starfsemi húðflúrstofa og
veitir starfsleyfi samkvæmt reglu-
gerð um hollustuhætti. Umhverf-
isstofnun sér um regluverkið og að-
stoðar við eftirlit. Ása St. Atladóttir,
verkefnastjóri sóttvarna hjá emb-
ætti landlæknis, segir að vinsældir
húðflúrs og húðgata hafi vaxið gífur-
lega undanfarin ár.
„Slík starfsemi fær opinbert leyfi
ef hún uppfyllir þau skilyrði sem
heilbrigðisnefnd hvers sveitarfélags
setur. Líklega er ekki hægt að
sporna við því að einhverjir aðilar
séu að stunda slíkt í heimahúsum og
jafnvel á stofum án leyfis nema með
því að almenningur, sem sækist eftir
þessari þjónustu, skipti einungis við
þær stofur sem eru með gilt starfs-
leyfi. Þarna ræður eftirspurnin,“
segir Ása. ingveldur@mbl.is »12
Húðflúrað í heimahúsum
Hægt að kaupa
húðflúrsett á eBay
Húðflúr er orðið
mjög vinsælt.
BRYNJAR N
í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík 24. nóvember 2012
Áræðinn
Hreinskilinn
Traustur
3. sæti
ÍELSSON