Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 6
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lyfjabúðir og lyfjaútibú eru rekin á við-
skiptalegum grundvelli. Ríkið stýrir því ekki
lengur hvar apótek eru starfrækt. Það eina
sem velferðarráðuneytið getur gert, þegar
apóteki er lokað, er að opna sjálft apótek á
heilsugæslustöðinni.
Reknar eru 62 lyfjabúðir í landinu og þar
sem þær eru með 29 útibú er alls 91 lyfsala í
landinu. Útibúin eru með mismunandi þjón-
ustustig.
Lyfja er með víðtækasta netið því það
fyrirtæki rekur 12 lyfsölur undir eigin nafni
og 25 útibú víða um land, auk þess sem Lyfja
rekur Apótekið á sex stöðum. Lyf og heilsa
er með 14 lyfsölur sem eru með fjögur útibú
og að auki átta lyfsölur undir vörumerkinu
Apótekarinn.
Flest útibú Lyfju eru á Austfjörðum.
Þannig er Lyfja á Egilsstöðum með fimm
útibú; á Borgarfirði eystra, Seyðisfirði,
Stöðvarfirði, Djúpavogi og Höfn í Hornafirði.
Sjötta útibúinu, sem var á Fáskrúðsfirði, var
lokað fyrir helgi og er óánægja með það á
staðnum. Lyfja í Neskaupstað rekur útibú á
Eskifirði og Reyðarfirði.
Ef ekki kemur annað apótek verður Fá-
skrúðsfjörður með fjölmennari byggða-
kjörnum sem eru án þessarar þjónustu. Í
þessum hópi eru Sandgerði, Garður og Vogar
á Suðurnesjum, Bolungarvík, Ólafsfjörður,
Eyrarbakki og Stokkseyri. Íbúar flestra
staðanna eiga stutt í apótek á stærri stað.
Skammt sunnan við Fáskrúðsfjörð er
Stöðvarfjörður með aðeins þriðjunginn af
íbúafjölda Fáskrúðsfjarðar. Þar rekur Lyfja
lítið útibú með takmarkaða þjónustu sem
ekki stendur til að loka.
Ríkið getur opnað apótek
Áður en lyfjalögunum var breytt um miðj-
an tíunda áratuginn var það bundið í lög og
reglugerð hvar apótek skyldu vera og voru
lyfsöluleyfin verðmæt. Markaðurinn var gef-
inn frjáls með lögunum sem nú er unnið eftir.
Ríkið ræður því ekki lengur hvar rekin er
lyfsala og hvar ekki. Lyfjastofnun hefur
hvatt lyfsölurnar til að sinna þjónustu sem
víðast en um leið hvatt eindregið til þess að
lyfjafræðingar starfi í útibúunum til að gera
þjónustuna öruggari. Mörg útibú eru rekin á
ábyrgð lyfjafræðings á öðrum stað.
Velferðarráðuneytið hefur heimild til að
fela heilsugæslustöð að setja upp apótek á
stað þar sem ekki er apótek starfandi. Það
hefur hvergi verið gert. Þó eru heilbrigðis-
stofnanir með þrjár lyfsölur frá fyrri tíð; á
Hólmavík, í Vík og á Kirkjubæjarklaustri,
auk þess sem Vopnafjarðarhreppur rekur
lyfsölu.
Ríkið ræður ekki apótekum
Lyfjadreifingin er rekin á viðskiptalegum grundvelli 62 lyfjabúðir í landinu og 29 útibú
Lyfjabúðir og útibú
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Heimild: Lyfjastofnun.is
Siglufjarðar Apótek
Apótek
Ólafsvíkur
Akureyrarapótek
Apótek Vesturlands
Lyfsalan
Hólmavík
Lyfsalan Kirkjubæjarklaustri
Lyfsalan Vík
Lyfsalan Vopnafirði
Lyfja Borgarnesi
Lyfja Egilsstöðum
Lyfja Húsavík
Lyfja Ísafirði
Lyfja Selfossi
Lyfja
Neskaupstað
Lyfja Sauðárkróki Lyf & heilsa
Glerártorgi
Lyf & heilsa
Hrísalundi
Lyf & heilsa
Hveragerði
Lyf & heilsa Selfossi
Lyf & heilsa
Keflavík
Lyfja Keflavík
Lyf & heilsa
Vestmannaeyjum
Apótekið
Akureyri
Árbæjarapótek Rvk.
Garðs Apótek Rvk.
Lyfjaver Rvk.
Rima Apótek Rvk.
Urðarapótek Rvk.
Austurbæjar Apótek Kóp.
Apótek Garðabæjar Gb.
Apótek Hafnarfjarðar Hfj.
Reykjavíkur Apótek Rvk.
Lyfjaval Álftamýri Rvk.
Lyfjaval Mjódd Rvk.
Lyfjaval Hæðarsmára Kóp.
Lyfja Smáralind Kóp.
Lyfja Smáratorgi Kóp.
Lyfja Lágmúla Rvk.
Lyfja Laugavegi Rvk.
Apótekið Garðatorgi Gb.
Apótekið Hólagarði Rvk.
Apótekið Skeifunni Rvk.
Apótekið Spönginni Rvk.
Apótekið Setbergi Hfj.
Lyf & heilsa Austurveri Rvk.
Lyf & heilsa Domus Medica Rvk.
Lyf & heilsa Eiðistorgi Seltj.
Lyf & heilsa Firði Hfj.
Lyf & heilsa Glæsibæ Rvk.
Lyf & heilsa Hamraborg Kóp.
Lyf & heilsa Hringbraut Rvk.
Lyf & heilsa Kringlunni Rvk.
Skipholts Apótek Rvk.
Apótekarinn Höfða Rvk.
Apótekarinn Mjódd Rvk.
ApótekarinnVesturb.apótekRvk.
Apótekarinn Salavegi Kóp.
Apótekarinn Smiðjuvegi Kóp.
Apótekarinn FjarðarkaupumHfj.
Apótekarinn MosfellsbæMos.
Apótekarinn Hafnarstræti
Patreksfjörður
Þingeyri
Hvammstangi
Blönduós
Skagaströnd
Hofsós
Dalvík
Laugar
Reykjahlíð
Raufarhöfn
Kópasker
Þórshöfn
Lyfja - apótek
Lyfja - útibú
Apótekið (hluti af Lyfju)
Lyfsala, rekin af heilbrigðis-
stofnun eða sveitarfélagi
Lyf og heilsa - apót.
Lyf og heilsa - útibú
Apótekarinn (hluti af
Lyf og heilsa)
Lyfjaval
Apótek Garðabæjar og
Apótek Hafnarfjarðar
ApótekVesturlandsog
Reykjavíkur Apótek
Sjálfstætt rekin apótek
Borgarfjörður Eystri
Seyðisfjörður
Reyðarfjörður
Eskifj.
Höfn
Djúpivogur
Stöðvarfjörður
Hvolsvöllur
Hella
Flúðir
Laugarás
ÞorlákshöfnGrindavík
Keflavíkur-
flugvöllur
Grundarfjörður
Stykkishólmur Búðardalur
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
„Við höldum uppi öflugum rekstri
á landsbyggðinni og ekki stendur
til að breyta því,“ segir Sigurbjörn
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Lyfju, spurður hvort til standi að
fækka útibúum víðar en á Fá-
skrúðsfirði. Bæjarráð Fjarða-
byggðar mótmælti áformum Lyfju
um að loka útibúinu á Fáskrúðs-
firði þegar málið var kynnt og
benti á að það hefði í för með sér
skerðingu á þjónustu við íbúana.
Sigurbjörn tekur fram að líta
þurfi til aðstæðna á hverjum stað.
Velta hefur minnkað mikið í lyfja-
útibúi Lyfju á Fáskrúðsfirði síð-
ustu árin. „Fólk sækir verslun
meira á Reyðarfjörð og jafnvel
upp á Hérað. Það hefur til dæmis
myndast verslunarkjarni á Reyð-
arfirði og eðlilegt að fólk sæki
þjónustuna þangað sem hana er að
hafa,“ segir Sigurbjörn um ástæð-
ur lokunar útibúsins á Fáskrúðs-
firði. Samgöngur hafa batnað
þarna á milli, sérstaklega eftir að
Fáskrúðsfjarðargöngin til Reyð-
arfjarðar voru opnuð. Þá nefnir
Sigurbjörn að samdráttur hjá
Heilbrigðisstofnun Austurlands
hafi einnig áhrif því heilsugæslan
á Fáskrúðsfirði sé aðeins opin
þrisvar í viku.
Jón Björn Hákonarson, forseti
bæjarstjórnar, bendir á að lokun
apóteksins komi í kjölfar lokunar
bankaútibús og skerðingar á þjón-
ustu Póstsins. Þetta komi sér illa
fyrir þá íbúa sem erfitt eigi með
að fara í önnur byggðarlög til að
sækja lyf. „Við viljum varðveita þá
þjónustu sem er í þessum byggða-
kjörnum og það þarf að vera sam-
eiginlegt verkefni sveitarfélagsins
og íbúanna,“ segir Jón Björn.
Ekki stendur til að loka þeim
fjölmörgu lyfjabúðum og lyfja-
útibúum sem Lyfja er með á Aust-
urlandi og Norðausturlandi. Útibú
eru á mun minni stöðum en Fá-
skrúðsfirði en afskekktari. Nýlega
var útibúið á Seyðisfirði flutt í
nýtt og betra húsnæði.
„Það sýnir að við erum ekkert
að gefa eftir. Þetta eru svipað
stórir staðir en veltan í útibúinu á
Seyðisfirði er þrefalt meiri,“ segir
Sigurbjörn og bendir á þá skýr-
ingu að Seyðfirðingar séu land-
fræðilega einangraðri en
Fáskrúðsfirðingar vegna Fjarðar-
heiðarinnar.
Ekki áform um lokun víðar
Bæjarfulltrúar og íbúar óánægðir með lokun útibús
Lyfju á Fáskrúðsfirði Þrefalt meiri velta á Seyðisfirði
Sigurbjörn
Gunnarsson
Jón Björn
Hákonarson
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Jólamálningin!
Deka Meistaralakk 70
Akrýllakk. hvítt. 1 líter
1.595
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
5.490
Mako pensill 50mm
195
Deka Gólfmálning grá
3 lítrar
3.890
Hágæða sænsk málning
10% gljástig, verð 10L
5.290
allir ljósir litir
Aqua 25 innimálning á
böð 4 lítrar
3.990
Deka Spartl LH. 3lítrar
1.745
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Vestmannaeyjum
Mako málningar-
rúlla og bakki 25cm
895