Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
Þ
að eru rúmlega tólf ár
síðan ég fékk þetta
perutré, en það gaf ekki
uppskeru fyrstu árin. Í
haust voru 170 perur á
trénu og ég setti þær í krukkur og
sauð niður eins og ég hef gert und-
anfarin ár.“ Þetta segir Sigríður Sig-
urðardóttir á Núpum í Aðaldal en
hún hefur lagt mikla rækt við peru-
tréð sitt sem hefur gefið mikinn
ávöxt af sér auk þess sem hún rækt-
ar mikið af rósum og öðrum blóm-
jurtum í 32 fermetra gróðurhúsi sem
er sunnan undir íbúðarhúsinu á
Núpum.
Perutréð þrífst vel
„Ég byrjaði ekki með gróður-
hús fyrr en um 1990 þegar okkur
hjónunum buðust gluggar úr húsi á
Akureyri sem verið var að breyta.
Maðurinn minn Sigurður Karlsson,
sem nú er látinn, hafði mikinn áhuga
á þessu og þáði gluggana og úr varð
gróðurhús með plexigleri í þakinu.“
Að sögn Sigríðar er engin upp-
hitun í gróðurhúsinu, en þar verður
oft mjög heitt á sumrin og perutréð
hefur þrifist mjög vel. Hún notar
húsdýraáburð á tréð eins og rós-
irnar, en einnig blákorn og túrbó-
kalk. Á vorin er það mjög fallegt
þegar það blómgast enda eru peru-
tré víða um lönd notuð í skrautgörð-
um vegna þess að þau þykja mikið
augnayndi.
Af perutrjám eru til mjög mörg
Perutréð gefur
góða uppskeru
Á Núpum í Aðaldal blómstrar perutré á hverju vori en í haust voru 170 perur á
trénu sem Sigríður Sigurðardóttir á Núpum leggur mikla rækt við. Þegar per-
urnar eru mátulega þroskaðar flysjar hún þær og hreinsar og sýður niður.
Framleiðsla Þegar perurnar eru mátulega þroskaðar eru þær soðnar niður.
Uppskera Í haust voru 170 perur á perutrénu á Núpum í Aðaldal en það gaf enga uppskeru fyrstu árin.
Konurnar í suðurríkjum Bandaríkj-
anna eru ekki þekktar fyrir annað en
að elda góðan heimilismat og nóg af
honum. Til er bók sem heitir Being
Dead Is No Excuse: The Official
Southern Ladies Guide To Hosting
the Perfect Funeral. Segir bókartitill-
inn allt sem segja þarf um þá ástríðu
sem lögð er í matargerðina og því er
ekki úr vegi að kíkja á vefsíðuna
southernliving.com til að finna hug-
myndir að alvöru þakkargjörðar-
máltíð. Þakkargjörðarhátíðin er hald-
in hátíðleg fjórða fimmtudag
nóvembermánaðar og ber því upp á
22. nóvember í ár sem er jú einmitt á
morgun. Ef þig langar að eiga gæða-
stund með fjölskyldunni og elda kal-
kún með tilheyrandi meðlæti skaltu
kíkja á þessa vefsíðu. Þar má finna
uppskriftir að sætum kartöflum með
sykurpúðum, trönuberjasósu og alls
konar grænmetismeðlæti.
Vefsíðan www.southernliving.com
Þakkargjörðarhátíð Sætar kartöflur með sykurpúðum sem meðlæti.
Ástríða í suðurríkjamatargerð
Gunnar Hersveinn heimspekingur og
rithöfundur mun veita innsýn í við-
horf til tíma og frelsis og hvernig
áhrif það hefur á lífsgleði og heilsu
sérhvers manns, á heimspekikaffi í
Gerðubergi í kvöld klukkan 20.
Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur
verður gestur kvöldsins og mun hún
leggja út af bók sinni Vígroði um tím-
ann og frelsið til forna og í heiðni.
Einnig mun hún segja frá listinni að
lifa einn dag í senn. Heimspekikaffið
hefur verið á dagskrá Gerðubergs frá
því haustið 2011 og hefur notið mik-
illa vinsælda. Þar er viska kaffihúsa-
gesta lokkuð fram með lifandi um-
ræðu. Eftir inngang frummælenda
hefjast skemmtilegar umræður við
hvert borð út frá efni kvöldsins og
síðan er leitað eftir innleggi gesta.
Margir hafa fengið gott veganesti
eftir kvöldin eða a.m.k. eitthvað til að
íhuga nánar og ræða heima eða á
vinnustað sínum.
Endilega …
… sækið
heimspekikaffi
Tímabundin Erum við þrælar tímans?
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
SIMPLY CLEVER
Umboðsmenn
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · Hekla Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
ŠKODA Citigo er frábær smábíll sem býr yfir öllum þeim kostum
sem einkenna Škoda bifreiðar sem eru þekktar fyrir sparneytni
og lága bilanatíðni. Komdu við hjá HEKLU eða söluumboðum um
land allt og kynntu þér hinn frábæra ŠKODA Citigo.
ŠKODA Citigo kostar
aðeins kr. 1.890.000,-