Morgunblaðið - 21.11.2012, Síða 12
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hver sem er getur pantað sér húð-
flúrstæki á netinu og byrjað að
húðflúra fólk heima hjá sér, fjarri
öllu eftirliti. Svanur Jónsson hjá
húðflúrstofunni Tattoo og skart í
Reykjavík segist vita til þess að hér
á landi sé víða verið að húðflúra í
heimahúsum. „Vandamálið núna og
það sem hefur verið að koma upp á
er það að þú getur keypt byrj-
unarsett á netinu, til dæmis á eBay,
og allavega húðflúrsdót sem er ekk-
ert upprunavottorð á. Hver sem er
getur gert þetta og þetta er að ger-
ast í heimahúsum og það eru jafn-
vel krakkar að panta þetta,“ segir
Svanur. „Það kemur upp á reglu-
lega að við fáum heimaflúr í fangið
sem við þurfum að lagfæra.“
Litir frá viðurkenndum aðilum
Hann segir að það sé gott eftirlit
með viðurkenndum húðflúrstofum í
Reykjavík. Húðflúrstofur flytja
sjálfar inn litina sem þær nota og
segist Svanur ekki vita betur en
þær panti allar liti frá Evrópu. „Við
förum eftir öllum reglugerðum og
kaupum liti aðeins frá við-
urkenndum aðilum. Ef það kemur
upp á að litur innihaldi eitthvað er
haft samband við okkur og liturinn
tekinn úr umferð auk þess sem við
fylgjumst vel með því sem er að
gerast úti í heimi,“ segir Svanur.
Hann hefur stundað húðflúrun í
átján ár og segir aldrei neitt hafa
komið upp á. „Ef eitthvað kemur
upp á er yfirleitt verið að húðflúra
við óheilbrigðar aðstæður. Það er
mjög mikilvægt fyrir okkur að allt
sé lagi og ég veit að yfirvöld fylgj-
ast vel með því. En það eru heima-
húsin sem við höfum áhyggjur af.“
Níu húðflúrstofur með gild
starfsleyfi voru á skrá í Reykjavík í
september á þessu ári. Það er heil-
brigðiseftirlit í hverju sveitarfélagi
sem hefur eftirlit með starfsemi
húðflúrstofa og veitir starfsleyfi
samkvæmt reglugerð um holl-
ustuhætti. Umhverfisstofnun sér
um regluverkið og aðstoðar við eft-
irlit.
Í samræmi við lög og reglur
Rósa Magnúsdóttir hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur segir að
þau fari að minnsta kosti einu sinni
á ári á allar húðflúrstofur í Reykja-
vík í reglubundið eftirlit. Yfirleitt sé
undan litlu að kvarta og lítið af
kvörtunum eða ábendingum vegna
starfseminnar komi inn á þeirra
borð. „Rekstraraðilinn ber ábyrgð á
sínum rekstri. Þeir sem reka húð-
flúrstofur hér hafa yfirleitt gert það
á metnaðarfullan hátt og í samræmi
við lög og reglur,“ segir Rósa.
Í viðtali við Morgunblaðið nýver-
ið sagði Vilhjálmur Ari Arason
heimilislæknir að oft væri lítið vitað
um þau litarefni sem væru notuð í
húðflúr og þau þyrftu ekki að
standast strangar heilbrigðiskröfur.
Reglur verið hertar
Húðflúrslitir falla undir reglu-
gerð Evrópusambandsins um
snyrtivörur. Níels Br. Jónsson hjá
Umhverfisstofnun segir að ef húð-
flúrstofur flytji litina inn frá evr-
ópskum söluaðilum falli þeir undir
þá reglugerð og allar líkur á því að
liturinn sé í lagi. „Það er búið að
vera að herða mjög allar reglur um
liti í Evrópusambandinu undanfarin
ár. Reglugerð um snyrtivörur í
Bandaríkjunum eru ekki eins
strangar og það er talsvert um það
að það séu á markaði hér á landi
amerískar snyrtivörur sem ekki
uppfylla reglur og gætu innhaldað
eitthvað sem ekki má nota hér sam-
kvæmt ESB-reglugerðum,“ segir
Níels.
Aðspurður segir hann að íslensk-
ar húðflúrstofur gætu keypt liti
beint frá Bandaríkjunum án þess
að hann viti til þess að þær geri
það.
Allir geta húðflúrað
Hægt að kaupa byrjunarsett á netinu án allra vottorða Áhætta að starfa
eftirlitslaust Níu húðflúrstofur með gild starfsleyfi eru á skrá í Reykjavík
AFP
Skreytt Það er orðið algengara að íþróttamenn beri húðflúr. Þessi tígur
var á mjóbaki þýskrar íþróttakonu á Ólympíuleikunum í London.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
ar
t&
co
nc
ep
t
>
z-
on
e
cr
ea
tiv
e
te
am
ph
ot
o
>
K
am
il
S
tru
dz
iń
sk
i
ISON Sìmi 588 2272
Fæst aðeins á hársnyrtistofum
fyrir hárið
Mjúkt, glansandi...
slétt eða krullað, aldrei aftur úfið.
> Inniheldur lífræna Argan olíu
frá Marocco
> Inniheldur hvorki
paraben né súlfat
> þyngir ekki hárið
Prófaðu þú finnur muninn.
Ása St. Atladóttir, verkefnastjóri sóttvarna hjá embætti landlæknis, sér
um fræðslu fyrir þá sem sækja um að fá að opna húðflúrstofu. „Við vilj-
um reyna að vekja athygli á sýkingarhættunni og þetta er erindi sem ég
fer í gegnum með hverjum einasta manni sem sækir um húðflúrunarleyfi,
eitt af því sem heilbrigðiseftirlitið setti inn í starfsleyfisskilyrði,“ segir
Ása. Aðsókn á fyrirlestrana hefur aukist undanfarið í samræmi við aukn-
ar vinsældir húðflúrsins.
Ása segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hefur noti ís-
lenskir húðflúrarar og gatarar eingöngu einnota nálar og liti sem sam-
þykktir og viðurkenndir eru í Evrópu og aðstaða þeirra uppfyllir sett skil-
yrði. „Í þeim tilfellum sem svo hefur ekki verið og ég hef haft spurnir af,
einnig ef verið er að húðflúra eða gata húð á einstaklingum undir 18 ára
aldri gegn vilja forráðamanna, hef ég umsvifalaust gert viðvart. Í a.m.k.
tveimur slíkum tilvikum brást sýslumaður og lögregla við með því að loka
aðstöðu og gera áhöld upptæk.“
Aukin aðsókn á fyrirlestra
EMBÆTTI LANDLÆKNIS UPPFRÆÐIR UM SÝKINGARHÆTTUNA
Andrés Ingi Jóns-
son gefur kost á
sér í 3. sæti á lista
VG í öðru hvoru
Reykjavíkur-
kjördæminu í for-
vali 24. nóvember
nk.
„Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð hefur sýnt hvernig hægt er að
takast á við afleiðingar efnahags-
hruns án þess að leggjast í djúpan
niðurskurð og einkavæðingu á al-
mannaþjónustu. Á næsta kjör-
tímabili þarf að tryggja að sömu
sjónarmið stýri þeirri uppbyggingu
sem framundan er,“ segir m.a. í til-
kynningu.
Andrés er með meistarapróf í al-
þjóðastjórnmálum frá University of
Sussex. Hann er aðstoðarmaður
umhverfis- og auðlindaráðherra.
Hann er giftur Rúnu Vigdísi Guð-
marsdóttur og á með henni tveggja
ára drenginn Halldór.
Framboð í 3. sæti
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
„Þetta er alvarlegt mál. Við erum
búnir að benda á þetta ófremdar-
ástand sem hefur skapast en lítið
hefur verið á það hlustað. Í sumum
tilfellum höfum við verið vændir um
hræðsluáróður en skýrslan staðfest-
ir það sem við höfum haldið fram,“
segir Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
um nýja skýrslu innanríkisráðu-
neytisins um stöðu lögreglunnar.
Í henni kemur m.a. fram að lög-
reglan sé ekki í stakk búin til þess
að takast á við viðamikil verkefni á
borð við aðgerðir gegn skipulagðri
glæpastarfsemi, viðbrögð við
hryðjuverkaógn og aukinn þunga í
landamæravörslu. Þá sé búnaður
lögreglunnar til sérstakra aðgerða í
vopnamálum, hryðjuverkum og
stórfelldum ofbeldismálum afar tak-
markaður.
Snorri segir að vandamálið felist
bæði í skorti á mannskap og búnaði.
„Landssambandið hefur haldið því
fram að um 60 stöðugildi hafi tapast
en skýrslan sýnir að þar var var-
lega farið með, því hún talar um 81
stöðugildi. Það er alveg sama hvar
gripið er niður, það er sama sagan
alls staðar,“ segir hann.
Þessi vanbún-
aður getur ógnað
öryggi lögreglu-
manna þegar
þeir þurfa að
sinna alvarlegum
útköllum.
„Það getur
skapast sú staða
að af tveimur
lögreglumönnum
í sama útkalli sé
annar með viðunandi búnað en hinn
engan,“ segir Snorri og nefnir til
dæmis varnarbúnað eins og hnífa-
vesti og skotskýlingarbúnað.
Þarf að vera til staðar
Löggæslan kostar mikla fjármuni
og segir Snorri að spurningin sé um
forgangsröðun. Landssamband lög-
reglumanna hafi talað fyrir því að
farið verði í grundvallarskilgrein-
ingu á eðli og hlutverki löggæslu á
Íslandi til þess að þingið átti sig á
umfangi hennar við fjárveitingar.
„Við erum blessunarlega laus að
mestu leyti við vopnamál þar sem
skotvopnum er beitt en þau hafa
verið að ágerast. Vonin er að ekki
þurfi að nota hann en þetta er bún-
aður sem þarf að vera fyrir hendi
þegar á þarf að halda,“ segir
Snorri.
Staðfestir áhyggj-
ur lögreglunnar
Vanbúin gegn alvarlegum málum
Snorri
Magnússon
Vilborg Arna Gissurardóttir hóf á
mánudag göngu sína á suðurpólinn
en áætlað er að ferð hennar á
syðsta punkt jarðar taki um 50
daga.
„Sólóleikar suðurskautsins hóf-
ust í dag,“ skrifaði Vilborg á heima-
síðu sína. Hún gekk 6,3 km vega-
lengd á mánudag en gerir síðan ráð
fyrir að ganga 22 kílómetra að jafn-
aði á hverjum degi. Gönguleiðin er
um 1.140 kílómetra löng.
Vilborg Arna fer þessa göngu í
þágu Lífs, styrktarfélags kvenna-
deildar Landspítalans.
Gangan á
suðurpólinn
er hafin
Dagbókarskrif Vilborg Arna situr
við skriftir í tjaldi sínu.