Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrír verktakar eða verktaka-
samsteypur óska eftir að fá að gera
tilboð í gerð Norðfjarðarganga sem
fyrirhugað er að bjóða út í byrjun
næsta árs. Öll fyrirtækin hafa
reynslu af jarðgangagerð fyrir
Vegagerðina.
Vegagerðin auglýsti á Evrópska
efnahagssvæðinu eftir þátttöku í
forvali. Þeir sem óskað hafa eftir að
fá að bjóða eru Ístak hf., tékkneska
fyrirtækið Metrostav as. og Suður-
verk hf. og loks ÍAV hf. og sviss-
neska fyrirtækið Marti Contractors
ltd. Að öllum tilboðunum standa fyr-
irtæki sem hafa reynslu af jarð-
gangagerð fyrir Vegagerðina. Ístak
boraði meðal annars Fáskrúðsfjarð-
argöng, Metrostav sprengdi Héð-
insfjarðargöng í samstarfi við Háfell
og ÍAV og Marti gerðu Bolung-
arvíkurgöngin og eru í samningum
um gerð Vaðlaheiðarganga.
Unnið að útboðsgögnum
Norðfjarðargöngin munu tengja
saman Eskifjörð og Norðfjörð og
koma í stað erfiðs fjallvegar með
gömlum jarðgöngum um Odds-
skarð.
Hreinn Haraldsson vegamála-
stjóri segir að nú sé unnið að loka-
hönnun og gerð útboðsgagna og
öðrum undirbúningi. Á næstunni
verði einnig farið yfir gögn verktak-
anna. Að loknum undirbúningi verð-
ur þessum þremur verktaka-
samsteypum eða þeim sem fá
blessun Vegagerðarinnar gefinn
kostur á að bjóða í verkið. Býst
Hreinn við að það geti orðið síðari
hluta janúarmánaðar. Gera megi
ráð fyrir að tilboð verði opnuð
tveimur mánuðum síðar og fram-
kvæmdir geti hafist síðari hluta
sumars eða á haustmánuðum.
Áætlað er að jarðgangagerðin
kosti í heild rúma 10 milljarða
króna. Gert er ráð fyrir að ganga-
gerðin taki þrjú og hálft til fjögur
ár.
„Ég er afskaplega ánægður, mál-
ið er í fullum gangi. Við erum fullir
bjartsýni um að framkvæmdir hefj-
ist hér á næsta ári, eins og áætlað
hefur verið,“ segir Jón Björn Há-
konarson, forseti bæjarstjórnar
Fjarðabyggðar.
„Þetta mun breyta gríðarlega
miklu fyrir Fjarðabyggð sem er að
hluta til skipt með fjallvegi í 630
metra hæð. Göngin munu auðvelda
aðgengi íbúanna að opinberri þjón-
ustu og stækka atvinnusvæðið, ekki
aðeins í Fjarðabyggð heldur á öllu
Austurlandi, og auka hagkvæmni í
samfélaginu,“ segir Jón Björn.
Vanir menn vilja bjóða í göngin
Þrír verktakar óska eftir þátttöku í forvali vegna gerðar Norðfjarðaganga Reiknað með útboði í
lok janúar og að framkvæmdir hefjist á haustmánuðum Forseti bæjarstjórnar ánægður með stöðuna
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Jarðgöng Hönnun Norðfjarðarganga tekur mið af Héðinsfjarðargöngum og Bolungarvíkurgöngum.
Norðfjarðargöng
Fyrirhugað fram-
kvæmdasvæði
Eskifjörður
Neskaupstaður
Útboðiðmiðast við jarðgöng
7,5 km löng, 8metra breið
366m steinsteyptir vegskálar
5 km langir vegir Loftmyndir ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Greiðslubyrði af tíu milljóna króna
óverðtryggðu láni á breytilegum
vöxtum hefur hækkað um rúmlega
92.000 krónur á ári síðan í mars
vegna vaxtahækkana Seðlabankans.
Er þá miðað við að lánið sé jafn-
greiðslulán til 25 ára en alls hækka
greiðslur af því um ríflega 461.000
krónur á fimm árum.
Þetta má lesa út úr útreikningum
Yngva Harðarsonar, framkvæmda-
stjóra ráðgjafafyrirtækisins Ana-
lytica, sem gerðir voru að beiðni
Morgunblaðsins.
Vaxtahækkunarlota Seðlabank-
ans hófst í ágúst í fyrra og hafa stýri-
vextir síðan hækkað úr 4,25% í 6%.
Bætir Yngvi hér við dæmigerðu
vaxtaálagi ofan á stýrivextina.
Á grafinu hér fyrir ofan eru tekin
dæmi um áhrif vaxtahækkana á tvö
óverðtryggð lán með breytilegum
vöxtum, annars vegar jafngreiðslu-
lán og hins vegar lán með jöfnum af-
borgunum. Hækkunin nemur allt að
805.000 kr. á fimm árum en vaxta-
stigið miðast við
stöðuna í ágúst í
fyrra áður en
hækkanirnar
byrjuðu og við
stöðuna eins og
hún var í mars.
Munurinn á
lánagerðunum
liggur í því að í
jafngreiðslulán-
inu fer meirihluti
greiðslu í vexti fyrri hluta lánstím-
ans og hækkar hlutfallið sem fer til
afborgunar höfuðstóls eftir því sem
líður á lánstímann.
Í lánum með jöfnum afborgunum
eru greiðslur hæstar til að byrja með
en fara svo lækkandi eftir því sem
höfuðstóll greiðist niður og vaxta-
hluti greiðslunnar minnkar.
Flókið að meta áhrifin
Yngvi segir snúið að meta áhrifin.
„Það er flókið að svara þessu með
verðtryggð lán. Þar togast á bein
áhrif vaxta til hækkunar vísitölu
neysluverðs annars vegar og hins
vegar framtíðaráhrif vaxtahækkun-
ar til minnkunar verðbólgu. Það er
talið að það taki 18-24 mánuði fyrir
vaxtahækkun að hafa áhrif til minnk-
unar verðbólgu.
Varðandi óverðtryggð lán þá er
nærtækast að líta til íbúðalána ann-
ars vegar þar sem verið hefur um-
talsverð útlánaaukning hjá bönkun-
um og yfirdráttarlána hins vegar.
Samkvæmt upplýsingum Seðlabank-
ans voru 85% óverðtryggðra íbúða-
lána á breytilegum vöxtum í árslok
2011. Jafnvel þótt öll útlánaaukning
þessa árs hefði verið á föstum vöxt-
um þá væri þetta hlutfall 75%. Það er
ekki ósennilegt að yfir 80% af óverð-
tryggðum útlánum séu enn á breyti-
legum vöxtum.
Óverðtryggð íbúðalán námu í lok
ágúst 210-220 milljörðum og yfir-
dráttarlán um það bil 90 milljörðum.
Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa
numið samtals 1,25% á árinu.
Af þessu má leiða að kostnaðar-
auki heimilanna nemi um það bil 2,2
milljörðum króna vegna óverð-
tryggðra íbúðalána og um 900 millj-
ónum króna vegna yfirdráttarlána.
Samtals losar þetta um 3 milljarða.“
3.
44
1.
71
0
kr
.
3.
61
9.
0
68
kr
.
4.
0
80
.1
31
kr
.1 2
4.
16
2.
0
0
0
kr
.
4.
39
2.
0
0
0
kr
.
4.
96
7.0
0
0
kr
.1 2
Áhrif vaxtahækkana á óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum
Upphafleg lánsfjárhæð: 10 milljónir króna. Lánstími: 25 ár.Stýrivextir voru 4,25% áður en vaxtahækkunarlota SÍ hófst.
Ef jafngreiðslulán
Samtals greiðslur (vextir og afborganir) eftir 5 ár
*Miðað við greiðslur árið 2014. Hér er miðað við dæmigert vaxtaálag ofan á stýrivexti. Útreikningar: Yngvi Harðarson/Analytica
Ef með jöfnum afborgunum
Samtals greiðslur (vextir og afborganir) eftir 5 ár
Ágúst 2011
4,7%
Mars 2012
5,2%
Nóv. 2012
6,5%
Ágúst 2011
4,7%
Mars 2012
5,2%
Nóv. 2012
6,5%
A B C A B C
Vaxtaprósenta: Vaxtaprósenta:
2:Mismunur B-C:
461.062 kr.
Mismunur á ári B-C:
92.212 kr.*
1: Mismunur A-C:
638.421 kr.
Mismunur á ári A-C:
127.684 kr.*
2:Mismunur B-C:
575.000 kr.
Mismunur á ári B-C:
115.000 kr.*
1: Mismunur A-C:
805.000 kr.
Mismunur á ári A-C:
161.000 kr.*
Vaxtahækkanir auka
greiðslubyrði mikið
Hækkanir Seðlabankans kosta almenning um 3 milljarða
Yngvi
Harðarson
GLUGGAR OG GLERLAUSNIR
idex.is - sími: 412 1700
- merkt framleiðsla
• tré- eða ál/trégluggar
og hurðir
• hámarks gæði og ending
• límtré úr kjarnaviði af norður
skandinavískri furu
• betri ending
— minna viðhald
• lægri kostnaður þegar fram
líða stundir
• Idex álgluggar eru íslensk
framleiðsla
• hágæða álprófílakerfi
frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir
og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga
Byggðu til framtíðar
með gluggum frá Idex