Morgunblaðið - 21.11.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
STUTTAR FRÉTTIR
● Hagnaður breska lággjaldaflug-
félagsins EasyJet fyrstu níu mánuði
ársins var 317 milljónir punda fyrir
skatta og hefur aukist um 28%. Af þeim
sökum tilkynnti félagið í gær að það
myndi tvöfalda arðgreiðslur til hluthafa.
Vefsíða breska dagblaðsins The Guardi-
an greindi frá þessu í gær. EasyJet seg-
ist reikna með að arðgreiðslur til eig-
enda muni hækka áfram á næstu árum.
Bréf fyrirtækisins hækkuðu í gærmorg-
un um 3%.
Hagnaður hjá EasyJet
Fram kom í síðustu viku bæði í máli
seðlabankastjóra og í skriflegri yf-
irlýsingu frá peningastefnunefnd að
líkur eru á því að stýrivextir Seðla-
bankans séu hættir að hækka a.m.k.
í bili. Matið byggist á nýrri hag- og
verðbólguspá Seðlabankans og mið-
að við óbreyttar forsendur telur pen-
ingastefnunefnd að núverandi vaxta-
stig nægi til að verðbólgumarkmið
náist innan ásættanlegs tíma. Um
þetta er fjallað í Markaðspunktum
Arion banka og Morgunkorni Ís-
landsbanka í gær.
Í fyrradag birti sendinefnd Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins skýrslu um
framgang efnahagsmála hér á landi.
„Í skýrslunni kemur fram að sjóð-
urinn hafi miklar áhyggjur af víxl-
verkun launa og verðlags og telji að
aðhald peningastefnunnar sé ekki
nægjanlegt til að ná verðbólgunni
niður innan ásættanlegs tíma. Mik-
ilvægt sé fyrir Seðlabankann að ná
verðbólgunni niður í markmið til að
styrkja trúverðugleika bankans og
ná niður verðbólguvæntingum sem
eru enn háar.
AGS teiknar upp svartsýnni mynd
en Seðlabankinn af verðbólguhorf-
um á næstu árum. Þrátt fyrir að spá
lakari hagvexti á komandi árum ger-
ir sjóðurinn ráð fyrir að framleiðslu-
slakinn í hagkerfinu hverfi strax á
næsta ári en á sama tíma gerir
Seðlabankinn ráð fyrir töluverðum
slaka í hagkerfinu,“ segir orðrétt í
Markaðspunktum Arion banka.
Greiningardeild Arion banka spáir
0,3% hækkun vísitölu neysluverðs í
nóvember. Gangi spáin eftir muni
ársverðbólgan hækka og fara í 4,5% í
nóvember miðað við 4,2% í október.
Í Morgunkorni Greiningar Ís-
landsbanka í gær er bent á að AGS
telji þörf á frekari hækkun stýri-
vaxta, og gæti sú hækkun numið allt
að einu prósentustigi frá núverandi
vaxtastigi að mati sjóðsins. Það
myndi fela í sér að viku veðlánavext-
ir Seðlabankans yrðu 7% um mitt
næsta ár, en myndu síðan lækka lít-
illega að nýju samkvæmt spá sjóðs-
ins. Til samanburðar hafi peninga-
stefnunefnd Seðlabankans talið, við
vaxtaákvörðun í síðustu viku, að
vextir bankans væru nú hæfilegir til
þess að ná verðbólgumarkmiði mið-
að við núverandi horfur. AGS sé hins
vegar svartsýnni á hagvöxt á næst-
unni en Seðlabankinn, þótt báðir telji
að efnahagsbatinn muni halda
áfram. agnes@mbl.is
Spár AGS dekkri en Seðlabanka
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir meiri verðbólgu og minni hagvexti en Seðla-
bankinn gerir Telur að stýrivextir þurfi að hækka um allt að 100 punktum
Verðbólguspá AGS og Seðlabankans
M.v. árlega verðbólgu
Hagvaxtarspá AGS og Seðlabankans
M.v. raunbreytingu á VLF
6%
5%
4%
3%
2%
1%
0%
AGS
Seðlabanki Íslands
2012 2013 2014 2015 2012 2013 2014 2015
4,0%
3,5%
3,0%
2,5%
2,0%
1,5%
1,0%
0,5%
0%
AGS
Seðlabanki Íslands
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
,0+.+1
+,-.-1
,+.-23
,,.003
+2.41+
+53.,3
+.11,5
+/,.2+
+-+.41
+,-.1/
,0+.-3
+,4.0,
,+.434
,,.0-/
+2.20-
+53.-,
+.11-2
+/5.52
+-,.,
,,3.0-43
+,-.2/
,0,.+5
+,4.5/
,+.2+
,,.+53
+2.2-+
+51
+.1-+5
+/5./1
+-,.-1
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Vodafone er metið á 9,7 til 11,2 millj-
arða króna, samkvæmt útboðsgengi.
Stefnt er að því að skrá félagið í kaup-
höll í næsta mánuði en fyrir dyrum er
hlutafjárútboð. Fjarskiptafyrirtækið
er töluvert verðminna en Eimskip
sem sigldi á markað á föstudaginn.
Markaðsvirði þess var 44 milljarðar í
gær. Markaðsvirði fasteignafélagsins
Regins sem fór á markað í júlí er 14
milljarðar.
Framtakssjóður Íslands, sem er í
eigu lífeyrissjóða og Landsbankans,
er stærsti hluthafi Vodafone með um
80% hlut, og stefnir sjóðurinn á að
selja um 50-60% hlut í útboðinu, en
það mun ráðast af eftirspurn. Aðrir
hluthafar eru 52 og er næststærsti
hluthafinn með 2% hlut.
Stjórn Vodafone hefur ekki mark-
að sér arðgreiðslustefnu, samkvæmt
upplýsingum í útboðslýsingu. En nú
líta margir fjárfestar til arðgreiðslna.
Segja má að Hagar hafi sett tóninn
fyrir myndarlega arðgreiðslustefnu.
Viðmælendur Morgunblaðsins benda
á, að það hefði verið ágætt ef fjár-
festar fengju skýr skilaboð: Af eða á.
Eiginfjárhlutfallið er 42%.
Það er mikil samkeppni á fjar-
skiptamarkaðnum, eins og sjá má á
meðfylgjandi línuritum. Í útboðslýs-
ingunni er bent á að hún geti leitt til
verðlækkana, hærri kostnaðar, svo
sem í tengslum við markaðssetningu,
aukinna fjárfestinga og minni mark-
aðshlutdeildar. Í þessu samhengi er
ágætt að minnast þess að innleiðing
4g-farsímakerfa er á næsta leiti.
Stjórnendur Vodafone eru ekki
með kauprétti, en forstjóri og fram-
kvæmdastjórar geta fengið kaup-
aukagreiðslu ef vel tekst að halda
áætlun um EBITDA-hagnað. Kaup-
aukinn verður ekki hærri en 25% af
árslaunum starfsmanns.
Vodafone metið á 10-11
milljarða á leið á markað
Framtakssjóður
stefnir á að selja
50-60% hlut
Markaðshlutdeild á fjarskiptamörkuðum
Farsími
Síminn
Vodafone
Tal
Nova
Aðrir
50%
45%
40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
2009 2010 2011 30. júní
2012 Heimild:Útgáfulýsing Vodafone
45,3% 39,0%
30,6% 28,8%
6,0% 4,6%
0,8% 0,4%
27,2%
18,1%
Markaðshlutdeild á fjarskiptamörkuðum
Internetþjónusta
Síminn
Vodafone
Tal
Hringdu
Aðrir
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2009 2010 2011 30. júní
2012 Heimild:Útgáfulýsing Vodafone
51,8%
50,7%
29,2%
32,1%
13,7%
9,1%
5,3% 4,7%
0,4%
Markaðshlutdeild á fjarskiptamörkuðum
Fastlína
Síminn
Vodafone
Tal
Aðrir
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2009 2010 2011 30. júní
2012 Heimild:Útgáfulýsing Vodafone
73,7% 74,6%
17,5% 16,5%
8,8% 7,2%
0,0% 0,4%þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi
veitingastaðurinn
caruso kynnir
kósýkvöld með eyfa
4. árið í röð bjóðum við nú upp á hin geysivin-
sælu „Kósýkvöld með Eyfa“, þar sem hinn ástsæli
tónlistarmaður Eyjólfur Kristjánsson leikur og
syngur íslenskar og erlendar dægurperlur, meðan
matargestir njóta þriggja rétta ljúffengrar máltíðar
á hinni rómantísku og notalegu 3. hæð okkar.
Fimmtudagskvöldin 8., 15., 22. og 29. nóvember
Fimmtudagskvöldin 6., 13. og 20. desember