Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Litríkar, hagnýtar,
fíngerðar, óbrjótandi,
fallegar, spennandi,
endingargóðar,
mjúkar, skemmtilegar...
Alls konar jólagjafir fyrir þá
sem þú þekkir.
DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mohammed Morsi, forseti Egypta-
lands, sagði í gær að samkomulag
um vopnahlé væri í sjónmáli milli
Ísraela og Hamas-samtakanna sem
eru við völd á Gaza-svæðinu. Egypt-
ar höfðu milligöngu um vopna-
hlésviðræður með hjálp Tyrkja og
Katara.
„Skrípaleik árásarstríðs Ísraela
lýkur í dag, þriðjudag, og tilraun-
irnar til að ná vopnahléssam-
komulagi bera árangur innan fárra
klukkustunda,“ hafði egypska frétta-
stofan MENA eftir Morsi.
Einn embættismanna Hamas
sagði að leiðtogi samtakanna, Khal-
ed Meshal, og samningamenn hans
væru á fundi með yfirmanni egypsku
leyniþjónustunnar sem annaðist
milligöngu í viðræðunum. „Það er
ekkert leyndarmál að samkomulag
er í sjónmáli,“ hafði fréttaveitan
AFP eftir honum.
Viðræðurnar voru þó á mjög
viðkvæmu stigi og talið var að ekki
þyrfti nema eina mannskæða árás til
að þær gætu farið út um þúfur.
Setja skilyrði fyrir vopnahléi
Á sama tíma og viðræðurnar
fóru fram skutu Palestínumenn tug-
um flugskeyta á Ísrael. Eitt þeirra
lenti á ólífulundi nálægt Jerúsalem
og olli ekki manntjóni.
Ísraelar héldu einnig áfram loft-
árásum sínum í gær og urðu 26 Pal-
estínumönnum að bana, þeirra á
meðal tveimur ungum börnum, að
sögn sjúkraflutningamanna á Gaza.
Ísraelskar flugvélar vörpuðu
niður dreifibréfum yfir Gazaborg þar
sem borgarbúum var sagt að fara frá
nokkrum hverfum í grennd við mið-
borgina.
Fréttaritari BBC sagði að
fréttamenn á Gaza hefðu séð Ham-
as-menn taka sex menn af lífi vegna
gruns um að þeir hefðu veitt Ísr-
aelsher upplýsingar.
Stjórn Ísraels hafði sagt að til
greina kæmi að hefja landhernað á
Gaza-svæðinu ef nauðsyn krefði til
að stöðva flugskeytaárásir Palest-
ínumanna á Ísrael. Stjórnin ákvað þó
á fundi í fyrrinótt að láta reyna á það
hvort vopnahlésumleitanirnar bæru
árangur.
Samningamenn Ísraela og
Hamas hafa sett skilyrði fyrir
vopnahléi. Ísraelar krefjast þess að
Hamas bindi enda á hvers konar
árásir á Ísrael frá Gaza og að al-
þjóðasamtök hefji aðgerðir til að
tryggja að Hamas-menn fái ekki ný
vopn. Hamas-samtökin krefjast þess
að Ísraelar aflétti herkví Gaza-
svæðisins og hætti hvers konar árás-
um á leiðtoga samtakanna til að ráða
þá af dögum.
AFP
Eyðilegging Palestínumenn kanna skemmdir á byggingu í bænum Rafah á
Gaza-svæðinu eftir loftárásir Ísraela í fyrrinótt.
Egyptar reyna að
koma á vopnahléi
Vona að hægt verði að binda enda á blóðsúthellingarnar
10 km5 km
Árásir Ísraela og Palestínumanna
Beit Lahiya
M
IÐ
JA
RÐ
AR
HA
F
MIÐJARÐARHAF
Khan
Yunis
Tel Avív
Rafah
GAZABORG
GAZA
Al Bureij
Nuseirat
Al Maghazi
Deir al-Balah
E
G
Y
P
TA
L
A
N
D
E
G
Y
P
TA
L
A
N
D
E
G
Y
P
TA
L
A
N
D Sderot
Beersheva
Ofakim
Eshkol
Gan Yavne
Ashkelon
Ashdod
Zeitoun
Flugvöllur
ÍSRAEL
Þéttbýl svæði
Palestínumanna
Flóttamannabúðir
Palestínumanna
Beit Hanoun
S
Ý
R
L.
JERÚSALEM
JÓ
R
D
A
N
ÍA
E
G
Y
P
TA
L.
ÍSRAEL Árásir Ísraela
Flugskeytaárásir
Palestínumanna
Qarara
Yfir 130 Palestínumenn hafa beðið bana í loftárásum
Ísraela frá því þær hófust á miðvikudaginn var þegar
yfirmaður hernaðararms Hamas var drepinn. Að
minnsta kosti 23 börn eru á meðal þeirra sem liggja í
valnum og hundruð barna til viðbótar hafa særst, að
sögn Palestínsku mannréttindamiðstöðvarinnar.
Árásirnar hafa einnig orðið til þess að mörg börn á
Gaza-svæðinu hafa orðið fyrir áfalli eða losti sem er
líklegt til að valda varanlegu sálrænu tjóni, að sögn
mannréttindasamtakanna.
Ófriðurinn hefur einnig bitnað á saklausu fólki í Ísrael, meðal annars
börnum. Palestínskir hryðjuverkamenn hafa skotið yfir þúsund flug-
skeytum á Ísrael síðustu daga og orðið þremur óbreyttum borgurum að
bana.
Minnst 23 börn hafa látið lífið
MÖRG BÖRN Í LOSTI VEGNA ÁRÁSANNA
Sært barn á Gaza.
Simpansar og órangútanapar þurfa að ganga í
gegnum „miðaldurskrísu“ líkt og mennirnir, ef
marka má nýja rannsókn. Alþjóðlegur hópur
rannsóknarmanna mat líðan og ánægju
mannapa og komst að þeirri niðurstöðu að
hamingja þeirra er mest þegar þeir eru ungir,
minnkar um miðjan aldur og eykst síðan aftur í
ellinni. Svipuð þróun mun vera algeng meðal
manna. Sérfræðingar á ýmsum sviðum, svo
sem sálfræði, fremdardýrafræði og hagfræði,
tóku þátt í rannsókninni. Skýrt er frá niður-
stöðum þeirra í tímaritinu Proceedings of the
National Academy of Sciences.
RANNSÓKN Á SIMPÖNSUM OG ÓRANGÚTANÖPUM
Mannapar lenda líka í miðaldurskrísu
Dómstóll í Pak-
istan hefur vísað
frá ákæru á
hendur fatlaðri
stúlku, Rimsha
Masih, sem hafði
verið ákærð fyr-
ir guðlast. Stúlk-
an er fjórtán ára
og sat í fangelsi í
þrjár vikur fyrr á árinu en var látin
laus gegn tryggingu eftir að hand-
takan var gagnrýnd harðlega víða
um heim.
Rimsha var sökuð um að hafa
kveikt í blaðsíðum úr Kóraninum
og taldist það vera móðgun við Mú-
hameð spámann og þar með lög-
brot í Pakistan. Við slíku broti ligg-
ur dauðarefsing.
PAKISTAN
Ákæru gegn stúlku
um guðlast vísað frá
Sjötugur leigubílstjóri í Singapúr
er nú álitinn hetja eftir að hann
skilaði 900.000 dollurum, jafnvirði
114 milljóna króna, sem taílenskt
par skildi eftir í bílnum hjá honum.
Bílstjóranum brá þegar hann
fann seðlana í svörtum bréfpoka í
aftursæti leigubíls síns eftir að
hann hafði ekið parinu að versl-
unarmiðstöð. Þegar hann kom með
peningana í óskilamunadeild
leigubílafyrirtækisins brá honum
aftur þegar í ljós kom hversu há
upphæðin var. „Peningarnir skipta
mig engu máli. Þeir eru ekki mínir,
svo hvernig hefði ég getað notað
þá?“ sagði sá gamli. Parið gaf bíl-
stjóranum fundarlaun og fyrirtæki
hans hyggst veita honum viður-
kenningu fyrir vel unnin störf.
SINGAPÚR
Leigubílstjóri skilaði
114 milljónum