Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Uppreisnarmenn réðust inn í borg-
ina Goma í Austur-Kongó í gær eftir
að hafa náð flugvelli hennar á sitt
vald. Þeir mættu lítilli mótspyrnu frá
stjórnarhernum og friðargæslulið
Sameinuðu þjóðanna reyndi ekki að
stöðva þá.
Þetta er í fyrsta skipti sem upp-
reisnarmenn ráðast inn í Goma frá
árinu 2003 þegar friðarsamkomulag
var undirritað eftir styrjaldir sem
talið er að hafi kostað yfir þrjár millj-
ónir manna lífið, auk þess sem 1,6
milljónir manna þurftu að flýja
heimkynni sín. Grannríki Austur-
Kongó drógust inn í styrjaldirnar,
þeirra á meðal Rúanda, Úganda,
Simbabve, Namibía og Angóla.
Eftir miklu að slægjast
Tvær styrjaldir geisuðu í öllu
Austur-Kongó á árunum 1996-1997
og 1998-2002 og þær hófust báðar í
austanverðu landinu, enda eftir
miklu að slægjast þar. Miklar nátt-
úruauðlindir eru í þessum landshluta
og nokkrar uppreisnarhreyfingar
hafa látið til sín taka þar í von um að
ná þeim á sitt vald. Síðustu átökin
hófust eftir uppreisn í hernum í apríl
þegar hópur fyrrverandi upp-
reisnarmanna stofnaði hreyfinguna
M23, sem nefnist einnig Byltingar-
her Kongó.
Uppreisnarmenn M23 koma eink-
um úr röðum tútsa, sama þjóðar-
brots og er við völd í Rúanda. Stjórn
Austur-Kongó hefur sakað stjórn-
völd í Rúanda um að hafa stutt upp-
reisnarhreyfinguna hernaðarlega en
þau neita því.
Uppreisnarherinn segist ætla að
halda hernaði sínum áfram þar til
stjórn A-Kongó falli. bogi@mbl.is
Auðlindir kynda undir
átökum í A-Kongó
Uppreisnar-
menn sækja í sig
veðrið að nýju
Um hálf milljón á flótta
» Um 500.000 manns hafa
flúið heimkynni sín vegna átak-
anna í Austur-Kongó.
» Tugir þúsunda flóttamann-
anna dvelja í borginni Goma
sem er með um það bil hálfa
milljón íbúa.
400 km
SUD-
KIVU
NORD-
KIVU
KINSHASA
SAMBÍA
MIÐ-AFRÍKULÝÐVELDIÐ SÚDAN
V-
KO
N
G
Ó
A
N
G
Ó
LA
B.
ÚG.
TA
N
S
A
N
ÍA
R. NORD-
KIVU
SUD-KIVU
Bukavu
Beni
KIGALI
RÚANDA
U
G
A
N
DA
Edwards-
vatn
Rutshuru
Kibati
Kivu-
vatn
100 km
Átök í Austur-Kongó
Uppreisnarmenn náðu flugvelli í Goma á sitt vald og réðust inn í borgina
Goma
AFP
Stríðshrjáð land Uppreisnarmenn á varðbergi í fjallshlíð í grennd við
austurkongósku borgina Goma sem þeir segjast hafa náð á sitt vald.
Hindúar fara með bæn til sólarinnar á Chhat-hátíð á
bakka fljótsins Brahmaputra í borginni Guwahati á
norðaustanverðu Indlandi. Hátíðin er einkum haldin í
austurhluta landsins. Þátttakendurnir biðja þá til sól-
ar- og vatnsguðanna átta dögum eftir ljósahátíðina
Diwali.
AFP
Hindúar biðja til sólarguðsins
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Tilboðsverð kr. 99.900
Vita Mix kanna fylgir með meðan birgðir endast
Fullt verð kr. 117.530
Jólagjöfin í ár!