Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það er um-hugsunar-efni hvers
vegna svo fáir taka
Össur Skarphéð-
insson alvarlega
sem utanrík-
isráðherra. En því er ekki að
neita að Össur hefur beinlínis
lagt sig fram um að tryggja að
svo færi.
Mönnum er í fersku minni
þegar ráðherrann sagði á blaða-
mannafundi í Brussel að hefðu
Íslendingar verið búnir að taka
upp evru þá hefði ekkert banka-
áfall orðið í því landi! Þessi
óvænta kenning sett fram á
sjálfu meginlandinu var eins og
út úr kú. Að minnsta kosti ekki
eins og hún kæmi frá ráðamanni
sem ætlaðist til að vera tekinn
alvarlega. Enda var það ekki
gert. Blaðamennirnir réðu ekki
við sig og úr varð ófyrirséð og
langt óstöðvandi hláturskast í
salnum.
Þessi viðbrögð hefðu glatt
sérhvern stjórnmálamann í
ræðupúlti á kútmagakvöldi, en
ekki fór á milli mála að við-
brögðin slógu ráðherrann út af
laginu. Og þarf ekki að undra.
Endurtekin ummæli Össurar
hér heima fyrir um að vandræð-
in á evrusvæðinu (eftir að hann
hætti að afneita þeim með öllu)
væru aðeins vaxtarverkir og
táknmynd þess hve ESB væri
„dynamiskt“ hefðu vísast hvorki
kallað á hlátursgusur erlendis
né á herrakvöldunum. Líkleg
viðbrögð hefðu verið vandræða-
leg spurul andlit úti í sal.
Alvarleg mál, eins og átökin
fyrir botni Miðjarðarhafsins,
eru afgreidd eins íslenski utan-
ríkisráðherrann sé
enn í stúdenta-
pólitíkinni og raun-
ar rétt að byrja í
henni. Hann er eini
utanríkisráðherr-
ann í vestrænu lýð-
ræðisríki sem gengur gagnrýn-
islaust undir merkjum
Hamas-hreyfingarinnar í hinni
alvarlegu stöðu. Bandaríkja-
forseti og utanríkisráðherra
Þýskalands, forysturíkis ESB,
fyrirheitna lands Össurar, telja
hafið yfir allan vafa að Ísrael sé
að bregðast við árásum á borg-
ara sína, sem það hefur fullan
rétt á og ríkar ástæður til. Utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar talar um
málið af yfirvegun og stillingu,
eins og sést m.a. á heimasíðu
hans, þótt hann hafi ekki sömu
afdráttarlausu skoðunina og hin-
ir tveir sem fyrr voru nefndir.
En svo undarlegt sem það er
þá virðist hin strákslega og óá-
byrga afstaða utanríkis-
ráðherrans íslenska ekki einu
sinni duga til heimabrúks, sem
hún hlýtur þó eingöngu að vera
ætluð. Hann rétt hélt sæti sínu í
prófkjöri með tæpum 70 atkvæð-
um, þótt ekki væri sótt gegn
honum af neinum alvöru
þungarvigtarmanni í flokknum.
Hefðu þessi fáeinu atkvæði ekki
dugað til að verjast falli úr
fyrsta sæti hefði ráðherrann
hrunið niður eftir öllum listan-
um, svo lítill var almennur
stuðningur við hann í prófkjör-
inu. Kannski segir það þá sögu
að jafnvel innanbúðarmenn í
Samfylkingu gera lágmarks-
kröfur til flokkssystkina sem
gegna þýðingarmiklum trún-
aðarstörfum.
Íslensk stjórnvöld
á skrítnu róli í alvar-
legustu álitaefnum
utanríkismála}
Fleiri en ein falleinkunn
Fyrsti dagur um-ræðna um
frumvarp til stjórn-
skipunarlaga um
nýja stjórnarskrá
var varla hafinn
þegar forsætisráð-
herra hóf að skora á þingmenn
að veita málinu brautargengi „en
reyna ekki að tefja það tafanna
vegna“.
Umræðurnar voru með öðrum
orðum varla hafnar þegar for-
sætisráðherra var farinn að
syngja þann söng sem rík-
isstjórninni hefur jafnan verið
efstur í huga þegar hún hefur
þurft að þvinga vanhugsuð og
illa unnin mál í gegnum þingið.
Segja má að með þessu inn-
leggi forsætisráðherra hafi
tónninn verið gefinn fyrir fram-
haldið sem víst má telja að muni
einkennast af hefðbundnum
ásökunum stjórnarliða um mál-
þóf.
Staðreyndin er hins vegar sú
að engin leið er á þeim skamma
tíma sem er til stefnu fram að
kosningum og miðað við þann
fjölda stórra mála
sem þarf að af-
greiða að halda uppi
málþófi. Þingið hef-
ur ekki einu sinni
tíma til að skyggn-
ast undir yfirborðið
á málunum, hvað þá að ræða þau
of mikið.
Fjárlagafrumvarpið, sem er
það frumvarp sem þinginu ber
að afgreiða, er til að mynda
skemmra á veg komið en alla
jafna og mun þurfa mikla um-
ræðu í þinginu. Ætli rík-
isstjórnin sér að halda áfram að
leggja fram frumvörp um eyði-
leggingu sjávarútvegsins er ljóst
að það mun einnig kalla á miklar
umræður. Rammaáætlunin er
enn eitt dæmið um illa unnið mál
sem þingið getur ekki leyft sér
að hleypa vanræddu í gegn.
Augljóst er því að enginn tími
er til að ræða nýja stjórnarskrá í
heild sinni og öldungis fráleitt að
forsætisráðherra skuli á fyrsta
þingfundi á fyrsta degi umræð-
unnar fara að þrýsta á þingmenn
að stytta mál sitt.
Enginn tími er til
að afgreiða öll þau
stóru þingmál sem
á dagskrá eru}
Tal um tafir enn á ný
Á
auglýsingunni er fáklædd ung
kona sem hallar sér aftur með
fæturna gleiða, hálfopinn munn
og rétt rifar í augun. Karlinn er
aftur á móti á miðjum aldri,
klæddur jakkafötum, einskonar einkenn-
isbúningi, og stendur keikur, valdsmanns-
legur, hann er með stjórn á hlutunum. Hvað
er verið að auglýsa? spyrðu kannski, kæri les-
andi. Hvað sem er, auglýsingin getur verið
fyrir nánast hvaða vöru sem er; kannski ilm-
vatn eða rakspíra eða bifreið eða húsgögn eða
jakkaföt eða hvaðeina.
Ef þú færð Google vin þinn til að aðstoða
þig getur þú fundið þúsundir, milljónir slíkra
auglýsinga; auglýsinga þar sem konan er
sýnd sem leikfang, undirgefið leikfang, en
karlinn sem valdsmannslegur, yfirvegaður,
sigurvegari. Ef Google reynir aftur á móti að finna fyrir
þig auglýsingar þar sem karlmaður er í hlutverki hins
undirgefna og valdalausa er eins gott að hafa nógan
tíma.
Það birtist frétt á mbl.is fyrir stuttu þar sem greint
var frá rannsókn á viðhorfi 10. bekkinga til kynja-
hlutverka, en í henni kom fram að börnin hefðu rang-
hugmyndir um hlutverk kynjanna og getu þeirra til að
gegna ábyrgðarstöðum. Í fréttinni sagði að Andrea
Hjálmsdóttir, lektor við félagsvísindadeild Háskólans á
Akureyri, hefði spurt ungmenni í 10. bekk grunnskóla
um það meðal annars hvort þau teldu karla eða konur
hæfari til að vera hæstaréttardómarar, ráð-
herrar eða forstjórar stórfyrirtækja, sinna
umönnun, matseld og uppeldi og svo má telja.
Piltarnir sem spurðir voru svöruðu flestir svo
að þeir treystu frekar körlum en konum til að
gegna ábyrgðarstöðum, en stúlkurnar voru
betur með á nótunum, þó einnig hafi örlað á
kynjafordómum í svörum þeirra.
Í ljósi þeirrar auglýsingahefðar sem lýst er
í upphafi pistilsins kemur kannski ekki á
óvart að piltar hafi verið með meiri rang-
hugmyndir en stúlkur og ekki heldur að
stúlkurnar séu líka haldnar einhverjum
kynjafordómum, enda læra börnin það sem
fyrir þeim er haft. Verra þótti mér að í frétt-
inni kom fram að kynjafordómar hefðu aukist
á síðustu tuttugu árum, en viðhorf unglinga í
10. bekkjum grunnskóla til verkaskiptingar
kynjanna var fyrst mælt árið 1992.
Það er furðualgengt að miðaldra karlar amist við fem-
ínisma, sem snýst þó ekki um annað en að konur og karl-
ar eigi að njóta sömu réttinda og sömu tækifæra. Það
kemur og fyrir að konur kvarti yfir því að aðrar konur
séu að berjast fyrir jafnrétti og tali þá jafnvel um „dólga-
femínisma“, hvað sem það svo þýðir. Það væri fróðlegt
að heyra svör slíkra andfemínista, kvenhatara, við því
hvernig standi á því að unglingar hafa svo litla trú á kon-
um sem raun ber vitni og hvers vegna það gengur svo
seint að breyta því viðhorfi. Er það ekki einmitt fyrir til-
stilli karla, og kvenna, sem óvirða konur? arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Karlar, og konur, sem óvirða konur
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
F
yrir tæpum fjórum árum
réðust Ísraelar með
landher inn á Gaza eftir
að hafa beitt harkaleg-
um loftárásum. Flug-
skeytapallar hryðjuverkahópa voru
skotnir í tætlur, einnig vopnabúr og
bækistöðvar stjórnar Hamas-
samtakanna. Yfir þúsund manns
féllu, þ. á m. konur og börn, saklaus
fórnarlömb, eins og ávallt í styrj-
öldum. Nú stendur yfir ný hrina í
átökunum endalausu.
Hvers vegna núna? Aðal-
ástæðan er augljós. „Ekkert ríki get-
ur sætt sig við að stöðugt rigni yfir
borgarana flugskeytum frá grann-
landi,“ segir í leiðara sænska vinstri-
blaðsins Dagens Nyheter á föstudag
en blaðið bendir líka á kosningar í
Ísrael í janúar. Ef stjórn Benjamins
Netanyahus gerir ekkert til að
sporna við flugskeytaárásunum fær
hún í huga kjósenda ímynd ráðleysis
og linku.
Ný könnun bendir til þess að
84% Ísraela styðji árásirnar á Gaza.
Síðustu árin hefur að mestu ver-
ið í gildi eins konar ótryggt vopnahlé.
En líklega vilja Hamas-menn nú láta
reyna á það hvort stuðningsyfirlýs-
ingar Bræðralags múslíma, nýja
valdhafans í Egyptalandi, eru annað
en orðin tóm. Frá áramótum hefur
verið skotið alls um 850 flugskeytum
á Ísrael frá Gaza og árásum fjölgaði
mjög í október. Eftir að átökin hófust
á miðvikudag hefur verið skotið lið-
lega 1.100 flugskeytum á Ísrael, þar
af hafa 37 lent á þéttbýli, að sögn
blaðsins Haaretz.
Fyrir nokkrum árum réðu al-
Qassam, vígasveitir Hamas, aðeins
yfir heimasmíðuðum flugskeytum
sem ollu oftast litlum skaða en voru
liður í taugastríði gegn Sderot og
öðrum borgum í suðurhluta landsins.
Og stundum lentu skeytin á skólum
og heimilum og fólk féll.
Fullkomin flugskeyti frá Íran
Nú eiga Gazamenn að sögn BBC
mun öflugri og langdrægari Fajr-5
og M75 meðaldræg skeyti frá Íran.
Þótt miðunin sé ónákvæm og Ísrael
hafi hannað afar fullkomnar flug-
skeytavarnir eru nýju skeytin mikil
ógn. Líklegt er þó að tekist hafi að
granda að mestu birgðum Hamas-
manna af þessum öflugu vopnum í
árásunum sem hófust sl. miðviku-
dag. En áfram munu berast vopn
yfir egypsku landamærin.
Rösklega hundrað Palestínu-
menn eru nú fallnir, aðeins þrír
Ísraelar. Formúlan í áróðursstríð-
inu er óbreytt: Ísraelar eru sem
fyrr sagðir drepa af ásettu ráði
óbreytta borgara. Þá er vandlega
horft fram hjá því að liðsmenn Ha-
mas og annarra ofstækisafla koma
vopnum sínum og skotpöllum oft
fyrir í grennd við skóla, sjúkrahús
og moskur, nota óbreytta borgara
eins og brynvörn. Og bændurnir á
ökrunum taka sumir við öðru hlut-
verki á kvöldin, þá manna þeir
flugskeytastöðvarnar. Skilin milli
vígamanna og annarra eru óljós.
Stjórn Hamas hefur stundum heft
flugskeytaflóðið en skrúfar frá
þegar henni hentar.
Vestrænir leiðtogar eru flestir
hlynntir Ísraelum. Barack Obama
Bandaríkjaforseti og Guido Wes-
terwelle, utanríkisráðherra
Þýskalands, hvetja til vopnahlés
en taka eindregna afstöðu
með Ísraelum, segja þá
hafa fullan rétt á að verj-
ast. „Hundruðum flug-
skeyta hefur verið skotið á
Suður-Ísrael undanfarna mán-
uði svo að Ísrael hefur rétt á að
verja sína eigin borgara,“
sagði Westerwelle í viðtali
við ARD-stöðina.
Átök sem aldrei virð-
ast ætla að taka enda
AFP
Bjargið Gaza! Víða er sýndur samhugur með Gaza-búum, hundruð manna
tóku þátt í göngu í Sarajevo, höfuðstað Bosníu-Hersegóvínu, í gær.
Hamas hefur lengi notið stuðn-
ings Írana, fengið frá þeim
vopn og peninga. Aðal-
bækistöð Hamas var lengi í
Sýrlandi en nú hefur leiðtog-
inn, Khaled Meshal, sest að í
Katar. Vistin í Damaskus var
ekki lengur hagstæð vegna
uppreisnarinnar gegn Assad
forseta, helsta vini Írana. Stað-
an er orðin flókin fyrir Hamas.
Ísrael, Bandaríkin og Evr-
ópusambandið skilgreina Ha-
mas sem hryðjuverka-
menn, á stefnuskránni
segir að gereyða beri
Ísrael.
Lýðræðisást Hamas
virtist gufa upp eftir
kosningasigurinn
2006 þegar samtökin
fengu 44% at-
kvæða Palestínu-
manna. Pólitísk
andstaða á
Gaza er bar-
in niður með
harðri hendi.
Vopn og
flókin tengsl
ÍRANAR BAKHJARL HAMAS
Ísraelskur
hermaður.