Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
40%
afsláttur
af öllum gleraugum
FACEEBOOK.COM/GLERAUGNAMIÐSTÖÐIN
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Í síðustu viku var
ég staddur að kvöld-
lagi í garðinum við
húsið okkar við Ham-
arstíg. Ég var að setja
upp ljósaseríu til að
lýsa upp í skammdeg-
inu. Meðan ég er að
þessu heyri ég sungið
hástöfum og færist
söngurinn nær eftir
Munkaþverárstrætinu.
Ég held að þar hafi hljómað Silung-
urinn eftir Schubert og eftir
nokkra stund birtist karlmaður
syngjandi hástöfum og hélt því
áfram niður Hamarstíginn og Odd-
eyrargötuna. Söngurinn var ágæt-
ur, og maðurinn alls ekki valtur á
fótunum.
Þetta var ekki í fyrsta sinn sem
ég verð var við merkileg fyrirbrigði
í Hamarstígnum. Til dæmis hef ég
séð þar mann klæddan búningi og
hárkollu sem sómt hefði sér vel við
hirð Loðvíks XIV. en hann var að
tala í farsíma þannig að ekki var
um draug að ræða.
Síðan gerist það næst að ég set
seríuna í samband og hún lýsir
strax fallega. Nú má spyrja er það
ekki sjálfsagt hér í bæ að rafmagn
sé óþrjótandi en svo er því miður
ekki.
Flutningsleiðirnar
Í Akureyri vikublaði, var þann
25. október sl. flennistór fyrirsögn
á síðu 4 svohljóðandi: „Landeig-
endur nyrðra hafna stóriðjulínu“ Ef
fólk heldur að öflugri flutningslína
raforku til Akureyrar sé vegna
stóriðju hefur það fengið villandi
upplýsingar. Núverandi flutnings-
línur til Eyja-
fjarðasvæðisins eru nú
þegar fulllestaðar þeg-
ar raforkunotkun er
mest á svæðinu. Þann-
ig kann svo að fara,
innan ekki allt of
langs tíma, að ekki sé
sjálfgefið að ljós komi
á perurnar þegar
kveikt er.
Þessi skortur á
flutningsgetu raforku
til Eyjafjarðarsvæð-
isins mun einnig valda
því að öll uppbygging á frekari iðn-
aði, eða annarri atvinnustarfsemi, á
svæðinu er ógerleg. Til dæmis mun
ekki verða af stækkun Becromal í
Krossanesi og ekki er útilokað að
fyrirtækið kynni að huga að brott-
flutningi verksmiðjunnar þar sem
stækkunartækifæri verði ekki fyrir
hendi á Akureyri. Ef til vill minn-
ast menn þess að hátt raforkuverð í
Noregi er ein af ástæðum þess að
fyrirtækið lagði niður verksmiðju
þar í landi og flutti til Akureyrar.
Verðið og sæstrengirnir
Úr því að ég nefni verðmun á
raforku í Noregi og hér á landi, má
spyrja í ljósi uppvakningsins „raf-
strengur til Evrópu“ sem einhverjir
sjá sem tækifæri fyrir raf-
orkuframleiðendur hérlendis: Vilj-
um við heldur flytja raforku til
Evrópu um streng en að leyfa eðli-
lega uppbyggingu raforkuflutnings-
kerfisins hérlendis? Þetta myndi
þýða að raforkuverð hér hækkar
upp í það verð sem fengist fyrir
raforkuna við strengendann erlend-
is. Á endanum er líklegt að þetta
verði til þess að Ísland væri ekki
valkostur fyrir iðjuver, gagnaver
eða aðra þá starfsemi þar sem
orkuverð skiptir máli. Landsmenn
sætu þá uppi með hærra raf-
orkuverð og minnkandi atvinnu. Ís-
land hefur lengi verið frumvinnslu-
land þó svo að nokkuð hafi áunnist
í því að breyta þessu t.d. með auk-
inni vinnslu á fiskafurðum innan-
lands og úrvinnslu áls sem þó er
enn allt of lítil auk þess sem aðrar
greinar hafa sótt í sig veðrið en
einnig þær eru háðar raforku.
Flutningur raforku um sæstreng er
frumvinnsla og ábatasamara er að
nýta orkuna innanlands þó svo að
raforkuframleiðendur fengju lægra
verð sem hinsvegar kemur fram í
aukinni atvinnu og hagsæld. Ekki
verður séð að raforkuframleiðendur
séu að tapa fé með sölu raforku á
núverandi verði.
Skoðanirnar
En aftur að raforkuflutningskerf-
inu sem landsmenn virðast núorðið
telja , a.m.k. loftlínur, af hinu
vonda sbr. yfirlýsingu landeigenda
sem nefnd var hér að framan og
vilja fremur jarðstrengi sem eru
dýrari og tæpast valkostur nema að
auka flutningskostnaðinn verulega
og þann kostnað verður einhver að
greiða.
Sem ég er að skrifa þennan pistil
berst mér til eyrna að í Akureyr-
arblaði dagsins sé viðtal við þunga-
vigtarmann hér í bæ þar sem hann
segist ekki vilja sjá loftlínu ofan
Akureyrar. Þetta eru stór orð og
óheppileg ekki síst í ljósi þess að
verið er að reyna að semja við ná-
grannasveitarfélög um raflínur.
Hér á Akureyri hafa menn einnig
haft áhyggjur af loftlínu sunnan
flugvallarins. Það hvarflar ekki að
mér eitt augnablik að nokkrum hafi
dottið í hug að leggja háspennulínu
við flugvöllinn öðruvísi en að farið
yrði eftir alþjóðlegum flugörygg-
isreglum. Slíkar reglur nægja Ak-
ureyrarflugvelli eins og öðrum flug-
völlum. Það er hinsvegar plagsiður
að við hérlendis þurfum að breyta
reglum sem að utan koma og herða
á þeim. Þetta er alger óþarfi en er
líklega sprottið af þeirri vafasömu
skoðun okkar að við séum sýnu
merkilegri, betri og klárari en aðr-
ar þjóðir.
Hvað skal gera?
Hvað er þá til ráða varðandi raf-
orkuflutning? Ég get ekki svarað
því en veit að núverandi afstaða
margra mun valda töfum og auka
hættu á vandræðum með raforku-
öryggi og afhendingu umbeðinnar
raforku á mörgum stöðum á Ís-
landi. Ef til vill væri rétt að byrja á
að láta óháðan sérfræðingahóp
skipaðan innlendum og erlendum
sérfræðingum skera úr um kostn-
aðarmun og t.d. landsspjöll, seg-
ulsvið og annað sem skilur að loft-
línur og jarðstrengi á kostnað allra
hagsmunaaðila. Þetta þarf að vinn-
ast hratt og fumlaust og ekki má
láta fipast af öfgaöflum né pólitík.
Akureyri 1. nóvember 2012.
Er ekki allt í lagi með rafmagnið?
Eftir Franz
Árnason »Núverandi afstaða
margra mun valda
töfum og auka hættu á
vandræðum með raf-
orkuöryggi og afhend-
ingu umbeðinnar raf-
orku á mörgum stöðum
á Íslandi.
Franz Árnason
Höfundur er ráðgjafi.
Yfirburðasigur PwC
í parasveitakeppninni
Íslandsmót í parasveitakeppni fór
fram um sl. helgi með þátttöku 14
sveita. Íslandsmeistari þessa árs er
sveit PwC sem endaði með yfirburða-
skor eða 254 stig. Spilaðar voru 13
umferðir með átta spilum milli sveita.
Í sigursveitini spiluðu Ljósbrá
Baldursdóttir, Sigurbjörn Haralds-
son, Anna Ívarsdóttir, Þorlákur
Jónsson og Jón Baldursson. Í 2. sæti
varð Sveit Svölu Pálsdóttur með 230
stig og í 3. sæti var sveit Addýjar með
227 stig.
Guðný Guðjónsdóttir, varaforseti
Bridssambandsins, afhenti verðlaun í
mótslok
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 16. nóvember var
spilað á 17 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 394
Ragnar Björnss. – Pétur Antonss.n 368
Þorleifur Þórarinss. – Jónína Pálsd. 355
A/V
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 369
Oddur Jónsson – Oddur Halldórss. 362
Jón Svan Sigurðss. – Birgir Sigurðss. 347
Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd. 347
FEB Reykjavík
Fimmtudaginn 15. nóv. var spiluð
tvímenningskeppni hjá Bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík,
Stangarhyl 4. Spilað var á 14 borðum.
Meðalskor var 312 stig. Efstir urðu:
N-S
Björn Árnas. – Auðunn Guðmundss. 398
Magnús Halldórss. – Júlíus Guðmss. 349
Ágúst Helgason – Haukur Harðars. 334
A-V
Guðm. Steinbach – Bjarni Guðnason 374
Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrss. 368
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 357
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is