Morgunblaðið - 21.11.2012, Qupperneq 26
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
KORTIÐ GILDIRTIL
31. janúar 2013
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
MOGGAKLÚBBURINN
MOGGAKLÚBBSFÉLÖGUM
BJÓÐAST FJÖLMÖRG FLOTT
TILBOÐ Í NÓVEMBER
Ertu ekki örugglega áskrifandi!
MOGGAKLÚBBURINN
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1100
Moggaklúbburinn er fríðindaklúbbur Morgunblaðsins. Allir
áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Mogga-
klúbbnum, hvort sem um er að ræða blaða- eða net- og
iPad-áskrifendur.
Áskrifendur njóta ýmissa fríðinda og tilboða á m.a. veitinga-
stöðum, bíóhúsum, utanlandsferðum, listviðburðum og
bókum.
Tilboð og fríðindi Moggaklúbbsins eru birt í Morgunblaðinu
og er að finna á mbl.is/moggaklubburinn. Skráning á
póstlista Moggaklúbbsins fer fram á mbl.is/postlisti
Hafðu samband í síma 569 1100
eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
Þessa dagana
fara fram próf-
kjör og forvöl
stjórnmálaflokk-
anna vegna kom-
andi alþing-
iskosninga
næsta vor.
Margir eru kall-
aðir en fáir út-
valdir.
Næstkomandi
laugardag ganga sjálfstæðismenn í
Reykjavík til atkvæða um það
hverjir skuli skipa lista þeirra í
næstu alþingiskosningum.
Meðal þeirra sem þar gefa kost á
sér er Hanna Birna Kristjánsdóttir,
borgarfulltrúi og fyrrverandi borg-
arstjóri. Hanna Birna hefur fyrir
löngu sannað sig sem hæfur stjórn-
málamaður og á vissulega erindi á
alþingi okkar Íslendinga.
Hún hefur öðrum fremur kunnað
að vinna með öllum hlutaðeigandi að
framgangi góðra mála, án þess að
fara í pólitískan skotgrafahernað,
þegar svo ber undir. En hún hefur
ekki síður staðið föst fyrir þegar tek-
ist er á um grundvallaratriði.
Þá hefur Hanna Birna tileinkað
sér þann ágæta vana, sem ýmsir
kollegar hennar mættu taka sér til
fyrirmyndar, að segja satt í stað
þess að slá málum á dreif og forðast
að segja það sem sumum þætti
óþægilegt.
Hanna Birna á því vissulega er-
indi í forystusveit á Alþingi og í rík-
isstjórn.
Ég hvet reykvíska sjálfstæð-
ismenn til þess að fjölmenna á kjör-
stað laugardaginn 24. nóvember og
tryggja Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur örugga kosningu í fyrsta sæti
framboðslista Sjálfstæðisflokksins.
EMIL ÖRN KRISTJÁNSSON,
leiðsögumaður.
Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur til forystu
Frá Emil Erni Kristjánssyni
Emil Örn
Kristjánsson
Hátt hefur verið kallað eftir end-
urnýjun fulltrúa á alþingi. Tækifæri
kjósenda til að hafa áhrif á hvernig
skipað er á lista
er hvergi meira
en í prófkjörum
Sjálfstæð-
isflokksins. Um
næstu helgi fá
kjósendur Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjavík tæki-
færi til að raða
fólki á framboðs-
lista fyrir þing-
kosningarnar í vor.
Í hópi þeirra frambjóðenda sem
gefa kost á sér í prófkjörinu er
Brynjar Níelsson hæstarétt-
arlögmaður.
Brynjar, sem hefur fram til þessa
ekki starfað á vettvangi stjórnmál-
anna, varð við ákalli margra um að
stíga nú inn á það svið. Hann hefur
bæði í ræðu og riti vakið athygli fyr-
ir einarðar skoðanir og málafylgju.
Hann hefur þorað að standa á skoð-
unum sínum og hefur ekki fallið í þá
gryfju að sveiflast með þær til þess
eins að reyna að fylgja háværum
þrýstihópum, sem því miður er allt
of algengt hjá þeim sem eru að stíga
inn í vetvang stjórnmálanna í dag.
Brynjar hefur ákveðnar skoðanir
á málum og grunnstef stefnu Sjálf-
stæðisflokksins hljómar í gegnum
hans málflutning, þar sem frelsi ein-
staklingsins til orða og athafna er í
hávegum haft. Hann er ekki eins og
vindhani sem snýst eftir því hvernig
vindurinn blæs og allt lýðskrum fell-
ur honum afar illa í geð.
Það er fagnaðarefni þegar hæft
fólk, eins og Brynjar Níelsson, gefur
kost á sér til þátttöku í stjórn-
málum. Fólk sem hefur allt til að
bera sem þarf til setu á alþingi. Þor-
ir að fylgja skoðunum sínum, jafnvel
þó að þær falli ekki þeim háværustu
í geð, og stendur traustum fótum í
straumvatni umræðu og átaka. Það
er þannig fólk sem Íslendingar
þurfa á alþingi í dag.
Brynjar Níelsson kemur til dyr-
anna eins og hann er klæddur hvort
sem það er á opinberum vetvangi
eða í góðra vina hópi. Hann talar
tæpitungulaust um hlutina og hefur
þann mikilvæga eiginleika að líta
aldrei á sig sem merkilegri en aðra
sem í krigum hann eru. Það er góð-
ur eiginleiki fyrir þá sem gefa kost á
sér til þátttöku í stjórnmálum.
Þátttakendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík hafa
gott tækifæri til að velja sér nýjan
og verðugan fulltrúa í Brynjari
Níelssyni og sýna í verki að þeir vilji
nýtt og öflugt fólk til starfa á al-
þingi.
Það yrði góður og öflugur liðsauki
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykja-
vík ef Brynjari Níelssyni yrði tryggt
3. sætið í prófkjörinu á laugardag-
inn.
GRÍMUR GÍSLASON,
formaður kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Brynjar Níelsson í 3. sætið
Frá Grími Gíslasyni
Grímur Gíslason
Við höfum mátt reyna það á síð-
ustu árum að þetta er ekki allt sama
tóbakið, þessir stjórnmálamenn.
Mest er þetta ágætisfólk en skoð-
anirnar eru misheilladrjúgar. Ekki
síður skiptir þó máli að fólkið er mis-
munandi og nýtist misvel; það eru
flestir ágætir í meðbyr, en það er í
mótlætinu sem það sést úr hverju
menn eru gerðir. Þessa dagana eru
allir stjórnmálamenn í andbyr og
honum nokkuð stormasömum.
Það verður hins vegar að teljast
líklegt að nokkur umskipti verði í
næstu alþingiskosningum, núver-
andi ríkisstjórn getur hvorki talist
vinsæl né farsæl, en skoðanakann-
anir benda til þess að Sjálfstæð-
isflokkurinn nái fyrri styrk. Sem er
ekkert skrýtið: aðrir flokkar höfða
ekki til fólks með borgaraleg lífs-
viðhorf.
Það breytir ekki því að Sjálfstæð-
isflokkurinn þarf að endurnýja er-
indi sitt. Ekki aðeins gagnvart kjós-
endum sínum, heldur einnig
gagnvart hinum sem ekki kusu hann.
Við megum ekki gera sömu mistök
og ríkisstjórnin, sem hefur keppst
við að skilgreina óvini sína, en van-
rækt að sameina þjóðina. Sjálfstæð-
ismenn þurfa að stíga fram með hug-
myndir, sem aðrir flokkar geta fellt
sig við og tekið upp samstarf um.
Þeir þurfa að ávinna sér traust og
trúnað til þess að vera heilir í slíku
samstarfi og klára málin. Umfram
allt þurfa þeir þó að sigra í komandi
kosningum. Því skiptir enn meira
máli en ella að rétta fólkið veljist til
forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Illugi Gunnarsson í 1. sæti
Þess vegna vil ég eindregið hvetja
sjálfstæðismenn í Reykjavík til þess
að velja Illuga Gunnarsson þing-
flokksformann í 1. sæti listans. Hann
er snjall og reyndur stjórn-
málamaður, gáfaður og vel menntað-
ur, hugmyndaríkur og talar manna-
mál. Illugi á þó ekki aðeins auðvelt
með að ná til fólks, sem er sama
sinnis, heldur er hann einnig virtur
meðal andstæðinga flokksins á þingi
fyrir að vera málefnalegur og orð-
heldinn, mannkostir sem eru mörg-
um þeirra framandi.
Hann hefur þó ekki aðeins til að
bera dýpt, sem vissulega er eft-
irsóknarverð á þingi, heldur einnig
vídd. Hann er hagfræðingur með
snaran listrænan streng, fæddur á
landsbyggðinni en bjó sér heimili í
Reykjavík, þrátt fyrir stjórn-
málavafstrið þekkir hann atvinnu-
rekstur af eigin raun, hann var
vinstrimaður á yngri árum en þrosk-
aðist svona líka vel!
Það þarf ekki að hafa mörg orð um
þann margháttaða vanda, sem blasir
við Íslendingum. Brýnasti vandinn
liggur sjálfsagt á efnahagssviðinu,
en það auðveldar ekki lausn hans
hversu heiftug pólitísk umræða hef-
ur verið undanfarin misseri. Und-
irliggjandi er svo hinn stóri vandi,
þjóð í sárum eftir kollsteypur síðustu
árin.
Það verður ekki vandalaust að
ráða bót á því öllu, en það mun þó
takast að lokum, það verður að tak-
ast. Það verður þó ekki gert nema
menn friðmælist og sættist, líti á
vandann fordómalaust og taki hönd-
um saman um lausn hans. Það verð-
ur eins og vant er, við þurfum að
vinna okkur út úr honum. Hörðum
höndum.
Þess vegna þurfum við Illuga til
forystu hér í höfuðborginni. Honum
má treysta til þess að nálgast verk-
efnin á öfgalausan hátt, láta hendur
standa fram úr ermum og klára þau.
Hann á ekki aðeins auðvelt með að
fylkja samherjum að baki sér, því
hann kann líka þá list að semja við
pólitíska andstæðinga svo hald sé í.
Það gerist með hreinskilni og um-
burðarlyndi, brosi og handabandi,
ekki undanbrögðum og yfirgangi,
gnísti og handalögmálum, eins og
tíðkast hefur hjá meirihlutanum,
sem nú er raunar minnihluti. Enda
þótt úrlausnarefnin heyri flest til
„hörðu málanna“, þá lifum við í
mannheimum og verkefni stjórnmál-
anna kalla á mannlega nálgun. Ekki
aðeins á hinum pólitíska vettvangi,
heldur gagnvart þjóðinni sjálfri. Þar
er Illugi fremstur meðal jafningja.
Setjum hann í 1. sæti.
HALLDÓR KARL HÖGNASON
forstöðumaður,
HEIÐRÚN LIND
MARTEINSDÓTTIR
lögmaður.
Mannleg nálgun Illuga
Frá Halldóri Karli Högnasyni og
Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur
Heiðrún Lind
Marteinsdóttir
Halldór Karl
Högnason