Morgunblaðið - 21.11.2012, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Staðgreiðum gull,
demanta og úr.
Hringar, hálsmen, armbönd,
rolex,cartier, patek philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér
að kostnaðarlausu.
www.kaupumgull.is
upplýsingar í síma 661 7000
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Lítil og stór skrifstofuherbergi
til leigu í Ármúla og við Suðurlands-
braut. Hagstæð kjör.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Garðar
Faglærðir garðyrkjumenn
geta bætt við sig verkefnum.
Trjáklippingar, trjáfellingar, hellu-
lagnir og viðhald garða.
Ingvar s. 8608851
Jónas s. 6978588.
Atvinnuhúsnæði
Vélar & tæki
PERKINS-LISTER/PETTER/LEORY-
SOMER/STAMFORD
RAFSTÖÐVAR-VARAAFL Útvegum
á afar góðu verði rafstöðvar / va-
raflstöðvar af ýmsum tegundum, með
eða án ATS tengibúnaði og einnig í
hljóðeinangruðum kassa.
Leitið uppl.
www.holt1.is S. 435 6662 895
6662
Bílar
Mazda MPV 4/2006
ekinn aðeins 74 þús. km. 7 manna
fjölskyldubíll sem er eins og nýr.
Eyðsla aðeins um 14 L /100 km.
Álfelgur. Dráttarkúla. Tvær renni-
hurðir. O.fl. Verð: 2.390 þús.
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið 12-18 virka daga.
BílaþjónustaÖkukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Bílaleiga
HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU
með eða án bílstjóra.
--------16 manna--------
--------9 manna---------
Fast verð eða tilboð.
CC.BÍLALEIGA S. 861 2319.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmis smærri verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Múr- og lekaviðgerðir
Sveppa- og örverueyðing
Vistvæn efni notuð
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Vönduð vinna
Áratuga reynsla
Sími 555-1947 Gsm 894-0217
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hljóðfæri
Ukulele í úrvali,
verð frá kr. 6.900.
Gítarinn ehf, Stórhöfði 27
S:552 2125
www.gitarinn.is,
gitarinn@gitarinn.is
✝ Hilmar Foss,löggiltur
skjalaþýðandi og
dómtúlkur, and-
aðist á Droplaugar-
stöðum 30. október
síðastliðinn, 92 ára
að aldri. Hilmar
fæddist í Brighton
á Englandi hinn 28.
febrúar 1920, son-
ur Magnúsar
Scheving Thor-
steinsson, framkvæmdastjóra í
Reykjavík, og Elísabetar Láru
Kristjánsdóttur Foss, kaupkonu
í Reykjavík. Systir Hilmars sam-
mæðra er Áslaug, en hún er lát-
in. Systkini Hilmars samfeðra
eru Davíð, Gyða, Erla og Gunn-
ar Magnús og eru þau öll á lífi.
Hinn 1. desember 1945
kvæntist Hilmar Guðrúnu G.
Foss, f. 29. jan. 1916. Foreldrar
hennar voru hjónin Guðmundur
Jónsson framkvæmdastjóri og
Guðlaug Ingibjörg Einarsdóttir,
en þau fluttu frá Eskifirði til
Reykjavíkur 1928. Guðrún lést
9. nóv. 2007. Börn Hilmars og
Guðrúnar eru: Hilmar Friðrik
kvæntur Margréti
Rósu Pétursdóttur
og eiga þau börnin
Hilmar Pétur og
Sólveigu Heiðu; El-
ísabet Guðlaug og
hún á soninn Ólaf
Hilmar. Ólafur
Hilmar á dótturina
Irenu Dögg.
Hilmar fór til
náms á Englandi að
loknu námi í Verzl-
unarskóla Íslands. Hann nam
við Acton Technical, Elmhurst
College í London 1938-39 og svo
í City Literary Institute í Lond-
on 1959. Hilmar bjó í London á
stríðsárunum og var ritari
Anglo-Icelandic Joint Standing
Committee (Ministry of Econo-
mic Warfare) 1940-41 og sendi-
ráðsritari við sendiráð Íslands í
London 1941-42. Hilmar varð
löggiltur skjalaþýðandi og dóm-
túlkur í Reykjavík 1947 og starf-
aði við það þar til í fyrra. Hann
gegndi fjölda trúnaðar- og fé-
lagsstarfa um ævina.
Útför Hilmars Foss fór fram í
kyrrþey 9. nóvember 2012.
Hann er dáinn hann Hilmar
Foss, elskulegur tengdafaðir
minn. Hún Guðrún, elskuleg
tengdamóðir mín, féll frá fyrir
fimm árum. Ég kom inn í fjöl-
skylduna fyrir tæpum þrjátíu
árum og kynni mín af tengda-
foreldrum mínum voru mjög
góð. Hilmar var starfandi
skjalaþýðandi og dómtúlkur í
rúmlega sextíu ár og til hans
leituðu margir, einstaklingar,
fyrirtæki og stofnanir, og því
var starfið fjölbreytt og áhuga-
vert. Ég kynntist því af eigin
raun því í gegnum árin aðstoð-
aði ég Hilmar á skrifstofunni
þegar á þurfti að halda. Það
voru hæg heimatökin þar sem
fjölskyldan mín bjó í sama húsi
og skrifstofa Hilmars var, fyrst í
Hafnarstræti og síðan í Garða-
stræti.
Hilmar vildi ekki að það væri
haft mikið fyrir sér, en ég gat þó
oftast freistað hans með heima-
bakaðri kökusneið og tesopa.
Mér þótti vænt um það. Það var
líka alltaf gott að koma í heim-
sókn til Hilmars og Guðrúnar í
Pósthússtrætið og þar var vel
tekið á móti manni og gott að
vera í návist þeirra.
Hilmar var hafsjór af fróðleik
um gamla tímann og frásagnir
hans voru ómetanlegar. Hann
starfaði t.d. hjá utanríkisþjón-
ustunni í seinni heimsstyrjöld-
inni og var þá staðsettur í Eng-
landi. Hilmar var mjög
minnugur og það var mjög gam-
an að hlusta á hann segja frá.
Hilmar þekkti líka fjöldann all-
an af áhugaverðu fólki, sem
hann hafði kynnst á sinni löngu
og viðburðaríku ævi, og við
skemmtum okkur oft konung-
lega við að heyra frásagnir af
ýmsu sem á daga þessara vina
og kunningja hafði drifið.
Börnin mín, Hilmar Pétur og
Sólveig Heiða, dvöldu oft hjá afa
og ömmu þegar þau voru lítil og
ég veit að Hilmari þótti mjög
vænt um það. Barnabörnin voru
honum mjög kær. Hilmar hefur
í gegnum árin fylgst vel með
Hilmari Pétri og Sólveigu Heiðu
og maður fann vel hversu mjög
honum þótti vænt um þau. Þeim
þótti ekki síður vænt um afa
sinn.
Síðustu rúmu tvö árin bjó
Hilmar á Droplaugarstöðum þar
sem annast var um hann af virð-
ingu. Ég vil þakka starfsfólkinu
á Droplaugarstöðum sérstak-
lega fyrir alla þeirra umhyggju
og góðvild í garð Hilmars og
okkar í fjölskyldunni, en tengda-
föður mínum leið mjög vel þann
tíma sem hann dvaldi þar. Ég á
eftir að minnast með gleði allra
góðu stundanna sem við hjónin
og Hilmar áttum í garðhúsinu á
Droplaugarstöðum. Þar var
gantast mikið og hlegið.
Við Hilmar vorum vinir og
mér fannst gott að geta aðstoð-
að hann með ýmislegt þegar
heilsunni fór að hraka. Einnig
voru kirkjuferðir okkar í Hall-
grímskirkjuna í enska messu
hjá sr. Bjarna Þór Bjarnasyni
og messukaffið þar á eftir mér
eins dýrmætar og ég vissi að
þær voru Hilmari.
Ég votta Hilmari tengdaföður
mínum virðingu mína og kveð
hann með þökkum.
Margrét Rósa Pétursdóttir.
Elsku afi minn. Ég á svo
ótrúlega mikið af góðum minn-
ingum um þig. Ég sakna þín
ótrúlega mikið en ég veit að þú
ert með ömmu núna á einhverj-
um ótrúlega fallegum stað. Ég
elska þig afi minn.
Fyrir 10 árum skrifaði ég rit-
gerð í Hagaskólanum og var tit-
ill hennar Afi minn Hilmar. Ég
endaði ritgerðina með þessum
orðum, sem lýstu afa mínum vel:
„Það eru engin læti eða æv-
intýri í kringum hann afa gamla
og störf hans eru trúnaðarmál.
En hann er góður afi og er alltaf
tilbúinn að hjálpa. Mér finnst afi
merkilegur maður því hann hef-
ur upplifað stríð og kreppu, frið
og góðæri, tæknibyltingu o.fl.
Svo eru menn eins og afi minn
Hilmar nauðsynlegir til að
kenna okkur að meta það sem
við höfum. Ég er heppin að eiga
afa minn Hilmar.“
Ofangreind orð lýsa afa vel
enn þann dag í dag og ég er
mjög heppin að hafa átt afa
minn Hilmar. Hann var í raun
stórmerkilegur maður, sem ég
gat lært margt af. Ég sendi ást-
arkveðjur til afa og bið hann að
skila ástarkveðju frá mér til
ömmu Gauju. Við hittumst síð-
ar.
Sólveig Heiða.
Hilmar Foss, bróðir minn, er
látinn 92 ára að aldri.
Guðrún, eiginkona Hilmars,
hans besti vinur og stoð og
stytta í lífinu, lést fyrir fimm ár-
um. Heimili þeirra Guðrúnar
var ætíð öllum opið og þar réð
ríkjum væntumþykja, elskuleg-
heit og gestrisni.
Nú eru þau tvö, sem þótti svo
vænt hvoru um annað og börnin
sín, sameinuð á ný.
Hilmar var óvenju vandaður
maður og hjálpsamur, ljúfmenni
og nærgætinn, háttvís í alla
staði og afar fróður með stór-
skemmtilega frásagnargáfu.
Hann var sannkallaður
gentleman í þess orðs bestu
merkingu.
Fyrir nokkrum árum fór ég
með erlendum manni að heim-
sækja Hilmar. Eftir þá stuttu
heimsókn sagði þessi maður:
„What a remarkable man. They
do not make them like this any-
more. That is so sad.“
Miðbærinn verður aldrei
samur þegar hann sést ekki
lengur ganga þar um. Það vant-
ar tenginguna við gömlu og
góðu gildin; virðuleikann, hátt-
vísina, réttsýnina, sanngirnina
og heiðarleikann.
Síðustu tvö ár bjó Hilmar á
Droplaugarstöðum þar sem
hann naut umönnunar eins og
hún gerist best.
Hilmar var sannkallað mið-
bæjarbarn, í raun svo mikið að
sagt var um hann í gamni að
færi hann austur fyrir Snorra-
braut tæki hann með sér nesti
og ef hann færi upp fyrir Ár-
túnsbrekkuna tæki hann með
sér útilegubúnað.
Droplaugarstaðir eru við
Snorrabrautina en vel að
merkja vestan við hana.
Hilmars verður sárt saknað.
Við Áslaug minnumst hans með
söknuði, virðingu og þakklæti.
Gunnar Sch. Thorsteinsson.
Hilmar Foss
Ég var ekki há í loftinu þegar
ég kynntist þeim hjónum, Eygló
og Snorra. Þær voru skemmtileg-
ar heimsóknirnar með foreldrum
mínum og systkinum til þeirra og
Margrétar í Borgarnes, ýmist á
leið suður eða á heimleið norður.
Segja má að ég hafi kynnst Eygló
fyrir alvöru þegar ég kom í sveit á
Hvassafell í Borgarfirði sumarið
1983, þá 12 ára gömul til þess að
passa hjá Margréti dóttur hennar.
Móttökurnar þá og alla tíð síðan
voru ákaflega hlýlegar. Hún var
svo ömmuleg, hlý og góð. Það var
ekki slæmt að geta laumast inn í
kaffi til hennar í litla eldhúsið hjá
henni á Hvassafelli og fá nýbak-
aða sjónvarpsköku og mjólk. Sjón-
varpskakan hennar Eyglóar er oft
Eygló
Guðmundsdóttir
✝ Eygló Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykjavík
14. desember 1935.
Hún lést á Land-
spítalanum í Foss-
vogi 1. nóvember
2012.
Útför Eyglóar
fór fram frá Borg-
arneskirkju 10.
nóvember 2012.
bökuð á mínu heimili
og er í miklu uppá-
haldi fjölskyldunnar.
Stundum kom það
fyrir að þegar ég fór
í háttinn á kvöldin í
sveitinni var búið að
lauma harðfiskpoka
undir sæng mína,
þar var Eygló að
verki. Það féll í góð-
an jarðveg hjá barn-
fóstrunni, það vissi
hún. Ég var tvö sumur á Hvassa-
felli og á þeim tíma myndaðist góð
vinátta okkar Eyglóar sem haldist
hefur allar götur síðan. Fjölskylda
mín stoppaði við hjá Eygló og
Snorra á Hvassafelli á ferðalögum
og síðar í Hrafnakletti í Borgar-
nesi og alltaf var mér og mínum
tekið opnum örmum.
Minning hennar mun lifa í
hjarta mínu um ókomin ár. Inni-
legar samúðarkveðjur sendi ég
Snorra, Margréti, Davíð, Andreu,
Snorra Þorsteini, Eygló Dóru og
Margréti litlu, hugur minn er hjá
ykkur.
Blessuð sé minning Eyglóar
Guðmundsdóttur.
Sigrún Björnsdóttir,
Grenivík.
Elsku afi. Þín
verður sárt saknað. Það eru for-
réttindi að hafa þekkt þig og dýr-
mætt að hafa fengið að vera svona
mikið samvistum við þig. Tilveran
verður óneitanlega tómlegri eftir
að þú ert farinn. Það skipti miklu
fyrir lítinn strák sem vildi helst
bara vera hjá afa og dvaldi þar
mikið á sumrin að fá að skottast
með þér í trésmiðjunni á Bolung-
Kristján Gunnar
Eggertsson
✝ Kristján Gunn-ar Eggertsson
fæddist í Reykjavík
24. júlí 1928. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans 5.
nóvember 2012.
Útför Kristjáns
fór fram frá Foss-
vogskirkju 13. nóv-
ember 2012.
arvík og síðar vinna
með þér hvort sem
var við smíðar eða á
sjónum þegar suður
var komið. Þú varst
ótrúlega þolinmóður
og umburðarlyndur
við mig en oft reyndi
ég á þolrifin hjá þér.
Ég minnist þess ekki
að þú hafir nokkurn
tímann byrst þig við
mig, sama hverju ég
tók upp á. Þegar þú sagðir svo
„jæja, strákur“ vissi ég að það var
þín leið til að segja mér að þér
þætti vænt um mig. Seinna varð
ég svo heppinn að fá að vinna með
þér ýmis verk. Það var mjög góð-
ur tími sem skilur eftir margar
góðar minningar.
Hvíl í friði, afi minn.
Jóhann Kristján.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Minningargreinar