Morgunblaðið - 21.11.2012, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Vandaðir og vottaðir ofnar
Ofnlokasett í
úrvali
NJÓTTU ÞESS AÐ GERA
BAÐHERBERGIÐ AÐ VERULEIKA
FINGERS 70x120 cm
• Ryðfrítt stál
KROM 53x80 cm
• Aluminum / Ál
COMB 50x120 cm
• Ryðfrítt stál
Handklæðaofnar í miklu úrvali þar sem
gæði ráða ríkjum á góðu verði.
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - 577 5177 - www.ofnasmidja.is
Sigríður Á. Andersen lögmaður er 41 árs í dag. Hún hefur þólítinn tíma til þess að gera sér dagamun þar sem hún er á kafií prófkjörsbaráttu. „Ætli ég einbeiti mér ekki að henni eins
og undanfarna daga. Ég hef óskaplega gaman af því að tala við kjós-
endur og ég vona að þeir taki mér sérstaklega vel þegar ég hringi á
morgun (í dag),“ segir Sigríður og hlær við. Hún segir afmælið ekki
vera tilbúna auglýsingu til að vekja athygli á sér fyrir prófkjörið.
„Ég get vísað til heimilda og hef alltaf átt afmæli 21. nóvember,“
segir Sigríður. Hún er gift Glúmi Björnssyni og á tvær dætur, Bryn-
hildi sem er sjö ára og Áslaugu sem er að verða fjögurra ára. „Af-
mælið vekur kannski mesta spennu hjá stelpunum. Eftir það vita
þær að jólin eru á næsta leiti,“ segir Sigríður.
Fyrir utan pólitíkina tekur lögmennskan mestan tíma hennar.
„Ég reyni að vísu að komast í einhvers konar líkamsrækt flesta
daga. Ég hef verið að lyfta lóðum að undanförnu,“ segir Sigríður
sem stefnir að því að leggja lóð sín á vogarskálarnar á Alþingi næsta
vetur. Hún býður fram í 3.-4. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykja-
vík í prófkjöri næsta laugardag. „Ég mun kannski reyna að fá mér
súkkulaðiköku á morgun,“ segir Sigríður. „Ég mun alveg örugglega
gera mér einhvern dagamun á prófkjörsdaginn og halda upp á af-
mælið þá,“ segir Sigríður.
Sigríður Á. Andersen er 41 árs í dag
Sigríður Á. Andersen Sigríður á afmæli í miðri prófkjörsbaráttu.
Lyftir lóðum
í prófkjörsbaráttu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Mosfellsbær Halldór Orri
fæddist 17. desember.
Hann vó 3.840 g og var
52,5 cm langur. Foreldrar
hans eru Jórunn Edda
Hafsteinsdóttir og Óskar
Sigvaldason.
Nýr borgari
H
örður fæddist í
Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk
kennaraprófi frá KÍ
1972, stundaði nám
í markaðs- og útflutningsfræði
við HÍ 1999 og hefur sótt fjöl-
mörg námskeið á sviði stjórn-
unar, þjálfunar, kennslu og ferða-
mála.
Hörður kenndi við Barnaskóla
Akureyrar og Lundarskóla á Ak-
ureyri 1972-76, starfaði hjá
SKÝRR 1976-79, starfaði við
tölvudeild Sambandsins 1982-83,
var framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar Vals árið 1984,
kenndi við Öldutúnsskóla 1986-90,
var annar stofnenda og deild-
arstjóri íþróttadeildar Samvinnu-
ferða-Landsýnar 1986-90 og síðan
íþróttadeildar Úrvals-Útsýnar
1990-96.
Hörður stofnaði árið 1996
ferðaskrifstofuna ÍT ferðir sem
sérhæfir sig í ferðum fyrir margs
konar hópa, en hann hefur átt og
starfrækt ferðaskrifstofuna óslitið
síðan.
Glæsilegur íþróttaferill
Hörður stundaði glímu með
UMF Reykjavíkur og æfði og
keppti í knattspyrnu með Val frá
sex ára aldri, lék með meist-
araflokki Vals 1971-79 og 1983 og
eins með KA á Akureyri.
Hörður Hilmarsson, framkvæmdastjóri ÍT ferða – 60 ára
Dæturnar Hörður með dætrum sínum á góðri stund, þeim Bryndísi, Söru Mildred og Birnu Ósk.
Í ferðaþjónstu í 26 ár
Tveir góðir Hörður ásamt brasilíska leikmanninum Pelé, sem margir
spyrnusérfræðingar telja fremsta knattspyrnumann allra tíma.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður
sem hefur hafið göngu sína
í Morgunblaðinu. Þar er
meðal annars sagt frá merkum
viðburðum í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum, barnsfæðingum
eða öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón