Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 35
Hörður er margfaldur Íslands-
meistari í knattspyrnu með yngri
flokkum Vals, bikarmeistari með
meistaraflokki Vals 1974 og 1977
og Íslandsmeistari 1978. Hörður
var fyrirliði meistaraflokks Vals
1975 og KA 1976 og lék fjórtán
leiki með A-landsliði Íslands.
Hann var atvinnumaður hjá
sænska félaginu AIK 1980 og 1981
en eftir heimkomuna þjálfaði hann
og lék með UMF Grindavíkur.
Hann var aðstoðarþjálfari hjá FH
1986, aðstoðarþjálfari Vals 1987,
þjálfari UMF Selfoss 1989,
Breiðabliks 1990, 1991 og seinni
hluta sumars 1992, þjálfaði FH
1993 og 1994 og þjálfaði Val 1995.
Hörður lék með meistaraflokki
Vals í handknattleik 1971-72 og
síðan með KA um fimm ára skeið.
Hann var þjálfari og leikmaður
Stjörnunnar 1977-78 og leikmaður
ári síðar og loks leikmaður með
Val 1979-80.
Hörður sat í stjórn
knattspyrnudeildar Vals 1985,
1988 og 1999-2001. Hann var rit-
stjóri Valsblaðsins 1984, ritstjóri
Fréttablaðs iðnaðarins 1986 og
hefur auk þess ritstýrt og haft
umsjón með fjölmörgum blöðum,
leikskrám og fleiru fyrir fé-
lagasamtök og skrifað greinar í
blöð og tímarit.
Fjölskylda
Eiginkona Harðar er Rita Lúk-
asdóttir, f. 2.3. 1958, lyfjatæknir á
Landspítalanum. Foreldrar henn-
ar eru Lúkas Kárason og Mildred
Kárason, búsett í Reykjavík.
Dætur Harðar eru Bryndís, f.
28.7. 1980, hagfræðingur, búsett í
Madrid en eiginmaður hennar er
Francisco Munoz og er dóttir
þeirra Fríða Munoz; Sara Mild-
red, f. 29.11. 1990, nemi, og Birna
Ósk, f. 17.7. 1994, nemi.
Systkini Harðar eru Hjördís, f.
19.4. 1951, löggiltur fasteignasali
og fararstjóri á Egilsstöðum;
Bergrós, f. 13.2.1954, bókasafns-
fræðingur í Reykjavík; Heiða, f.
31.1. 1956, afgreiðslustjóri; Hanna,
f. 4.7. 1957, skrifstofumaður; Sól-
björt, f. 9.6. 1959, fisksali í Kefla-
vík; Jón Hilmar, f. 2.8.1961, sendi-
bílstjóri í Reykjavík; Anna, f. 27.6.
1969, húsmóðir í Mosfellsbæ.
Foreldrar Harðar eru Hilmar
Bjarnason, f. 23.8. 1930, d. 9.6.
2009, bifreiðastjóri og fyrrum
kunnur glímumaður í Reykjavík,
og Aðalheiður Bergsteinsdóttir, f.
31.8. 1929, húsfreyja.
Systkini Hörður með fimm hressum systkinum sínum af sjö en myndin er
tekin í 60 ára afmæli Hjördísar systur hans, árið 2011.
Úr frændgarði Harðar Hilmarssonar
Hörður
Hilmarsson
Guðný Sigurðardóttir
húsfr. í Seljalandskoti
Guðrún Ísleifsdóttir
húsfr. í Rvík
Bergsteinn Hjörleifsson
múrari í Rvík
Aðalheiður Bergsteinsdóttir
húsfr. í Rvík
Margrét Eyjólfsdóttir
húsfr. á Eyrarbakka
Hjörleifur Hjörleifsson
söðlasm. á Eyrarbakka
Sigurjóna Óladóttir
húsfr.
Valdimar Jónsson
á Akureyri og víðar
Alda Valdimarsdóttir
húsfr. í Rvík
Bjarni Svavars Svavarsson
starfsm. hjá Rafmagnsv. Rvíkur.
Hilmar Bjarnason
bifreiðastj. í Rvík
Jóna Svavars Bjarnadóttir
húsfr. á Búðum
Svavar Svavars
Sigurbjörnsson
kaupmaður á Búðum á
Fáskrúðsfirði
Stefán Geir Svavar Svavarsson
aðalbókari MS í Rvík
Svavar Stefánsson
sóknarpr. í Fella- og
Hólaprestakalli
Sveinn
múrarameistari á
Drumboddsstöðum
Hilmar Leifur
Sveinsson
húsasmíðam.
Elías Sveinsson
landbúnaðar-
hagfræðingur
Ísleifur Bergsteinsson
b. í Seljalandskoti undir Eyjafjöllum
Kristólína Bergsteinsdóttir
húsfr. í Görðum í Mýrdal
Sveinn Scheving
hreppstj. í Eyjum
Guðjón Scheving
málari og kaupm. í Eyjum
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Orkuskot sem virkar strax!
Lífrænt grænmetisduft fyrir alla
Heilbrigð orka úr lífrænni næringu
og fullt af andoxunarefnum
Eykur vellíðan, skerpir hugsun, heilbrigði og frísklegt útlit.
Börn, unglingar og fullorðnir finna mun á orku og úthaldi -
Fyrir íþróttaæfingar, skólann og vinnuna
Gefur góða líðan og dregur úr sælgætislöngun
Blóðsykursjöfnun úr grænmeti er æskilegust fyrir alla.
Kjörið fyrir sykursjúka.
Meðmæli næringafræðinga - 100% náttúrleg uppspretta
Brokkál Spínat Rauðrófur
Salatkál – Gulrætur – Steinselja
lífræn bætiefni fyrir allaFæst í: Lifandi markaður, Lyfjaveri, Krónunni og Hagkaup
Ekkert erfðabreytt – Ekkert skordýraeitur – Engar geymslugeislanir
Engin aukaefni, litar- eða bragðefni.
Arnljótur Ólafsson, prestur ogalþingismaður, fæddist21.11. 1823 á Auðólfsstöðum
í Langadal, sonur Ólafs Björns-
sonar, bónda þar, og k.h. Margrétar
Snæbjörnsdóttur.
Eiginkona Arnljóts var Þuríður
Hólmfríður Þorsteinsdóttir og eign-
uðust þau átta börn auk þess sem
hann átti eina dóttur fyrir hjóna-
band. Þuríður Hólmfríður var dóttir
Þorsteins alþm. Pálssonar og k.h.
Valgerðar Jónsdóttur húsfreyju.
Arnljótur og Tryggvi Gunnarsson,
alþm. og bankastjóri, voru svilar.
Arnljótur var einn þeirra sem
stóðu að pereatinu gegn Sveinbirni
Egilssyni í Lærða skólanum 1850.
Hann lauk stúdentsprófi þjóðfund-
arárið 1851, lauk málfræðiprófi og
forspjallsprófi við Kaupmannahafn-
arháskóla og las þjóðmegunarfræði
sem í dag nefnist hagfræði. Hann
var því fyrsti íslenski hagfræðistúd-
entinn. Hann tók ekki lokapróf í
hagfræði en dvaldi áfram í Kaup-
mannahöfn, var ritstjóri Skírnis og
einkakennari sonar Blixen-Finecke
baróns um skeið.
Eftir að Arnljótur kom heim lauk
hann guðfræðiprófi við Prestaskól-
ann í Reykjavík 1863 og var síðan
prestur á Bægisá á árunum 1963-89
og á Sauðanesi frá 1889 og til ævi-
loka.
Arnljótur sat á Alþingi nær óslitið
frá 1858-1900, fyrst sem þingmaður
Borgfirðinga, þá Norðmýlinga, fyrir
Eyfirðinga 1881-85 og var síðan kon-
ungskjörinn. Þá var hann lengi odd-
viti Glæsibæjarhrepps.
Arnljótur var atkvæðamikill þing-
maður, andstæðingur Jóns Sigurðs-
sonar forseta og Benedikts Sveins-
sonar en lagði áherslu á kröfur um
fjárforræði. Þá barðist hann gegn
valtýskunni. Á tímum rómantískrar
þjóðfrelsisbaráttu markaði Arn-
ljótur sér sérstöðu með áhuga á
landshögum, búskaparhögum og
fólksfjölda. Um þau mál tók hann
saman skýrslur og greinargerðir.
Þá samdi hann fyrsta íslenska
hagfræðiritið, Auðfræði, sem kom út
1880.
Arnljótur lést 29.10. 1904, árið
sem Íslendingar fengu heimastjórn.
Merkir Íslendingar
Arnljótur
Ólafsson
101 árs
Áslaug Thorlacius
90 ára
Ásta Ólafsdóttir
85 ára
Brita Marie Guðnason
Guðjón Reynisson
80 ára
Jakobína Valdís
Jakobsdóttir
Jens Christian Sörensen
Stefán Baldvinsson
75 ára
Ásgeir Sigurðsson
Eyjólfur Guðmundsson
70 ára
Sveinn Haukur Björnsson
60 ára
Einar Valdimar
Ingvarsson
Erna Olsen
Guðmunda Kristjánsdóttir
Kristinn Guðjónsson
Kristjana E. Kristjánsdóttir
Magnús Guðmundsson
Margrét Þ. Rögnvaldsdóttir
Ryszard Franciszek
Staniszewski
Þorbjörn Hrafn
Gunnarsson
Þorfinnur Snorrason
Þórir Garðarsson
50 ára
Eydís Katla
Guðmundsdóttir
Hulda Sigurðardóttir
Inger Nielsen
Krzysztof Grenda
Magnús Sigurjónsson
Margrét Helga
Bragadóttir
Pétur Þorkelsson
Salvör Nordal
Tomasz Antoni Skurski
Þráinn Jóhannsson
40 ára
Atli Mar Gunnarsson
Elísabet Ólöf Helgadóttir
Eric Matthew Myer
Finnur Sigurðsson
Guðleif Arnardóttir
Gunnar Már
Gunnarsson
Gylfi Þór Gylfason
Harpa Rós Jónsdóttir
Ingibjörg Árnadóttir
Ingibjörg Thors
Iulian Lucaci
Lýður Valgeir Lárusson
Steinþóra Þórisdóttir
Víðir Sigurðsson
Þorleifur Viggó
Skúlason
30 ára
Agnes Björk
Guðmundsdóttir
Alma Kovac
Anna Kristín
Óskarsdóttir
Barbara Brzozowska
Christine Weinert
Elwira Anna
Wienckowska
Grzegorz Roszkowski
Heimir Eir Lárusson
Helgi Friðriksson
Hólmar Freyr
Oddgeirsson
Janusz Stanislaw
Bogalecki
Mjölnir Narfi Ágústsson
Sara Dögg Guðnadóttir
Sigríður Thorlacius
Sigurður Jóhannsson
Silja Ósk Birgisdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurjóna starfar
hjá Össuri í Reykjavík.
Maki: Óskar Pétursson, f.
1983, starfsmaður hjá
Reykjabúi í Mosfellsbæ.
Börn: Guðný Fjóla Jak-
obsdóttir, f. 2007. Börn
Óskars: Pétur Jóhannes,
f. 2005, og Rebekka
Klara, f. 2007.
Foreldrar: Jóna Björg
Kristjánsdóttir, f. 1956,
húsfreyja, og Haraldur
Örn Arnason, f. 1961,
leigubílstjóri.
Sigurjóna
Haraldsdóttir
40 ára Árni ólst upp á
Akranesi og hefur starfað
hjá Ice Transport – flutn-
ingamiðlun frá 2001.
Maki: Björg J. Rúnars-
dóttir, f. 1976, hárskeri.
Dætur: Aníta Kristín, f.
2003, og Emelía Rún, f.
2005.
Foreldrar: Þórólfur Ævar
Sigurðsson, f. 1946,
íþróttakennari á Akranesi,
og Kristín Guðbjörg Eyj-
ólfsdóttir, f. 1948, leik-
skólakennari.
Árni Knútur
Þórólfsson
40 ára Unnur ólst upp á
Húsavík, lauk stúdents-
prófi frá Framhaldsskól-
anum á Húsavík og vinnur
hjá Kjötvinnslunni Viðbót.
Maki: Viðar Njáll Há-
konarson, f. 1967, bifvéla-
virki.
Sonur: Hlynur Snær, f.
1997.
Foreldrar: Hafliði Jó-
steinsson, f. 1941, fyrrv.
verslunarmaður, og Lauf-
ey Jónsdóttir, f. 1949, sér-
hæfður fiskvinnslumaður.
Unnur Mjöll
Hafliðadóttir