Morgunblaðið - 21.11.2012, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
www.avon.is
Jólin koma hjá Avon
Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það getur verið varasamt að hlaupa
upp til handa og fóta af minnsta tilefni.
Mundu að framsetningin skiptir öllu. Haltu
áfram að liðka líkamann.
20. apríl - 20. maí
Naut Þig langar til þess að bregða út af van-
anum í dag en vilt ekki gera of mikið úr því.
Sinntu þínum nánustu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Forðast skaltu að troða illsakir við
vinnufélaga þína. Vertu viðbúin/n og mundu
að hver er sinnar gæfu smiður.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú leggur mikinn metnað í allt sem
þú tekur þér fyrir hendur og nýtur þess að
undirbúa jólin í smáu sem stóru. Treystu eðl-
isávísun þinni betur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú komst þér sjálfur í þessar aðstæður
og ræður hvort þú kallar það heppni eða
óheppni. Reyndu að hugsa áður en þú talar
og vera viss um að það sem þú berst fyrir sé
þess virði.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu varlega í að ákveða mörk eða
gera áætlanir í vinnunni í dag. Taktu engu
sem sjálfsögðum hlut heldur gaumgæfðu
málin frá öllum hliðum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Farðu þér hægt í að segja öðrum allan
hug þinn því slíka hreinskilni þola engir nema
sannir vinir. Ekki gera ekki neitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Óvænt tækifæri eða breytingar
sem tengjast ferðalögum, menntun eða út-
gáfustarfsemi gætu jafnvel komið upp í dag.
Haltu ekki áfram fyrr en allt er komið á
hreint.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Tímamót eru yfirvofandi. Góður
félagsskapur með vinum á vel við núna. Taktu
af skarið í ótilgreindu sambandi og mundu að
nöldur er ekki það sama og aðgerðir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur sætt þig við hluti sem þú
myndir að öllu jöfnu ekki gera. Gættu þess
samt að gefa fólki tækifæri til að hugsa. Þú
færð mikið út úr því að vera með öðrum í
dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það kann eitt og annað að koma
þér á óvart í dag. Jafnvel þótt sú/sá sem er í
sigtinu virðist hafa lítinn áhuga veistu að við-
komandi líkar við þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Satt er að flestu fólki líkar við aðra
sem hugsa líkt og það sjálft. Yndisleg mann-
eskja gæti komið í heimsókn í eftirmiðdag-
inn.
Bjarki Karlsson leikur sér að rím-
þraut og byrjar á stöfunum „ch“:
Li Yong Che Ping frá Peking
pantaði í símann veking
svo flugið til Chau-Wi
Che myndi ná í
því Che Ping er efni í speking.
Og næst stafirnir „w“ og „dj“:
Hesthúsi Wendy frá Wales
whisky og sjénna og ales
er hætt við að Wendy
hremmingum lendi í
og berist frá djammi til djeils.
Þá „z“ og „q“:
Zimsen í Zambíu bjó
með zebrahest, kalkún og fló
en ísbirni fleiri
og feitari og meiri
á Qanik í Qaqortoq þó.
Skúli Pálsson brá á leik með „x“:
Hugumstór með hörkuþrek
hræddist ekki bana,
hvergi undan hviðum vék
Xavier Solana.
Pétur Stefánsson er í djúpum mat-
arþönkum:
Nú skal brydda á nýjum sið.
Nærast vel og fylla kvið.
Er fögrum degi fer að halla
og sólar geislar síðstu falla,
sýð ég matinn fyrir alla.
– Á eftir borða ætlum við
ofnsteikt svið.
Hann lætur uppskrift fylgja að
ofnsteiktum sviðum með sæt-
kartöflumús, sem hann segir allt
annað og betra en gömlu soðn-
inguna. Umsjónarmaður stenst ekki
mátið að birta hana hér:
„Takið lítið, eldfast mót, hellið
ögn af ólífuolíu í það, setjið smávegis
rósmarín og timjan á botninn ásamt
tveimur krömdum hvítlauksgeirum,
pipar og salti, leggið frosinn kjamm-
ann ofan á, berið svolitla ólífuolíu á
hann, kreistið sítrónusafa yfir,
kryddið með pipar og salti og leggið
tvær rósmaríngreinar ofan á ef þið
eigið til. Má sleppa því. Breiðið ál-
pappírsörk vel yfir mótið svo skinnið
skorpni ekki á kjammanum, og setj-
ið það í 175 gráða heitan ofn í 2 klst.
Kjamminn verður bragðsterkari og
betri með þessari eldunaraðferð.
– Sjóðið sæta kartöflu og stappið
með ögn af ólífuolíu (eða smjöri).
Kryddið með dálitlu cummin, pipar,
salti og muldum þurrkuðum basil-
íkublöðum og berið fram með sviða-
kjammanum, ásamt grænu salati og
sítrónubát.
– Hvítlauks-sætkartöflumús er
líka góð, stappið þá smjörklípu, salti
og pipar og kreistu hvítlauksrifi
saman við kartöflumúsina.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af rímþrautum, Solana
og sælkerasviðum
Í klípu
„ÞETTA ER TÍMAVÉL. ÉG KEM HINGAÐ,
SKOÐA AÐRAR UPPFINNINGAR OG FER
SVO AFTUR Í TÍMANN OG SÆKI UM
EINKALEYFI FYRIR ÞÆR GÓÐU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞAÐ ER BÚIÐ AÐ LOKA FYRIR VATNIÐ.
ÉG ÞARF AÐ FÁ SMÁ AF ÞÍNU TIL AÐ
SJÓÐA KARTÖFLUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hjálpa henni að
finna rétta litinn.
AF HVERJU ÆTLARÐU AÐ FARA
MEÐ ÖLL ÞESSI VOPN?
ÉG ER EKKI
MEÐLIMUR.
Á FUND MILLJÓNA-
MÆRINGAFÉLAGSINS.
HVERT ERTU
AÐ FARA?
VEISTU, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ
BORÐA BARA EINN KANARÍFUGL.
ÞEGAR ÉG BYRJA AÐ BORÐA
KANARÍFUGLA GET ÉG BARA
EKKI HÆTT!
EN ÞÚ? HVAÐ ER UPPÁHALDS-
SNAKKIÐ ÞITT?Víkverji sá nýverið leikritið Gull-regn í Borgarleikhúsinu. Ragn-
ar Bragason, höfundur verksins,
dansar þar á línu, sem gengur þvert
á pólitíska rétthugsun og úr verður
sterk sýning. Sigrún Edda Björns-
dóttur leikur hina útspekúleruðu
Indíönu Jónsdóttur sem hefur sér-
hæft sig í að blóðmjólka kerfið með
því að gera sér upp hina ýmsu
krankleika og sjúkdómsvæða son
sinn frá blautu barnsbeini og er sér-
lega fráhrindandi í þessu hlutverki.
x x x
Ekki er Halldóra Geirharðsdóttirsíðri í hlutverki hinnar fötluðu
konu, sem ótrauð reynir að halda
sínu striki og sjá ávallt hið jákvæða,
þótt allir reyni að spila með hana.
Halldóra gengur skökk og skæld um
sviðið allt leikritið og vonar Víkverji
að hún hljóti ekki af varanleg ör-
kuml. Hallgrímur Ólafsson er sterk-
ur í hlutverki sonar Indíönu, sem
reynir að brjótast undan oki móður
sinnar, en á erfitt með það þótt hann
njóti fulltingis pólskrar kærustu
sinnar, sem reynist heilsteyptasta
persóna verksins og Brynhildur
Guðjónsdóttir leikur feiknarvel. Þá
er aðeins einn leikari í sýningunni
ótalinn. Halldór Gylfason leikur ekki
stórt hlutverk, en stendur sig vel
þegar hann birtist í tvígang sem
holdtekja kerfisins inni á heimili
Indíönu í blokk í Fellahverfinu.
x x x
Víkverji sá um daginn stykkiðBastarða þar sem frekar veiku
leikriti var bjargað með flugeldasýn-
ingu á sviðinu, fimleikum og dýf-
ingum að ógleymdum stjörnuleik. Í
Gullregni er farin mun lágstemmd-
ari leið, flugeldunum sleppt, en leik-
ararnir hafa mun sterkari efnivið í
höndunum.
x x x
Einhverjum kann að þykja ádeilaRagnars óþægileg og jafnvel á
skjön við íslenskan veruleika, Ísland
sé ekki land vinnufælinna bótaþega,
heldur atorkusamra dugnaðarforka.
Ísland er hins vegar eins og laukur-
inn í líkingu Günters Grass, undir
hverju lagi hans leynist eitthvað nýtt
og óvænt og hvort tveggja getur
hæglega átt við. víkverji@mbl.is
Víkverji
Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi
Jesú til góðra verka sem hann hefur
áður fyrirbúið til þess að við skyldum
leggja stund á þau. (Efesusbréfið 2:10)