Morgunblaðið - 21.11.2012, Page 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég fæ alltaf mjög mikla heimþrá á
vorin og reyni yfirleitt að komast
heim til Íslands. Ég er eins og beljur-
nar sem vilja fá að komast út og
hlaupa á túnunum. Síðasta sumar
hafði ég hins vegar alltof mikið að
gera hér í London
og sá því ekki
fram á að komast
heim í bráð. Þá
vaknaði hjá mér
þessi hugmynd að
semja tónlist til að
komast yfir heim-
þrána,“ segir Elíza Newman um nýj-
ustu breiðskífu sínu sem ber heitið
Heimþrá. Elíza hefur verið búsett er-
lendis sl. áratug með nokkrum hléum
og var einmitt á hlaupum milli staða í
London þegar blaðamaður náði tali af
henni fyrr í vikunni. Elíza lauk meist-
aranámi í kennslufræði tónlistar fyrir
hálfu öðru ári og hefur síðan verið að
sinna tónlistarkennslu í einkaskóla
fyrir börn á aldrinum 11-17 ára með
félagslega erfiðan bakgrunn.
„Krakkanir koma til okkar í einka-
tíma í tónlist og hálfgerða endurhæf-
ingu,“ segir Elíza og tekur fram að
eftir hádegi vinni hún síðan sem laga-
höfundur.
Allt verður sannara á íslensku
Heimþrá er fyrsta sólóplata Elízu
þar sem hún syngur á íslensku.
Spurð hvað valdi því svarar hún: „Til
þess að lækna mig af heimþránni leit-
aði ég mikið í gömul íslensk ljóð og
byrjaði að semja við þau af fullum
krafti,“ segir Elíza, en á plötunni eru
tíu frumsamin lög. Elíza samdi text-
ana við sex laganna ýmist ein eða í
samvinnu við Gísla Kristjánsson,
upptökustjóra plötunnar, en fjögur
laganna eru samin við ljóð eftir Jó-
hann Sigurjónsson, Ólöfu Sigurðar-
dóttur, Jón úr Vör og Sigurjón Frið-
jónsson.
„Ég á mjög auðvelt með að semja á
ensku, en að vissu leyti finnst mér
skemmtilegra að syngja á íslensku.
Það verður allt einhvern veginn sann-
ara, auk þess sem mér finnst röddin
opnast meira við það að syngja á ís-
lensku,“ segir Elíza.
Aðspurð segist hún meðvitað hafa
reynt að framkalla mjög hlýjan hljóm
á nýjustu plötunni sinni. „Það má
segja að ég sé á vissan hátt að reyna
að endurskapa þá tónlistarstemningu
sem ég ólst upp við heima í Keflavík,“
segir Elíza og vísar þar til þess að
hún hafi hlustað mikið á vínilplötur
með Vilhjálmi Vilhjálmssyni, Berg-
þóru Árnadóttur, Megasi, Gunnari
Þórðarsyni og Spilverki þjóðanna.
„Ég hugsaði til þessara tónlistar-
manna þegar ég var að skapa hljóð-
heim plötunnar. Hún er þannig ekki
nútímalegasta platan sem til er,“ seg-
ir Elíza kímin og bætir við: „Ég var
meira að einbeita mér að lagasmíð-
unum, ná fram hlýjum hljómi og leyfa
röddinni að vera í aðalhlutverki.“
Spurð hvort Heimþrá sé fyrst og
fremst hugsuð fyrir íslenskan mark-
að svarar Elíza játandi. „Þessi útgáfa
af plötunni er bara fyrir Ísland. Hins
vegar hafa einstaklingar hér úti sýnt
henni mikinn áhuga þótt hún sé öll á
íslensku. Planið er því að þýða mína
texta yfir á ensku, en halda gömlu
ljóðunum á íslensku og gefa hana
þannig út hér úti,“ segir Elíza og tek-
ur fram að það verði þó ekki fyrr en á
nýju ári.
Þess má að lokum geta að Elíza er
væntanleg til landsins í byrjun des-
ember til að fylgja plötu sinni eftir.
Hún leikur á útgáfutónleikum á
Ránni í Keflavík fimmtudaginn 6.
desember og á Faktorý í Reykjavík
föstudaginn 7. desember.
„Fæ alltaf mjög mikla
heimþrá á vorin“
Gagntekin „Ég er eins og beljurnar sem vilja fá að komast út og hlaupa á
túnunum,“ segir Elíza um heimþrána sem ávallt gagntekur hana á vorin.
Breiðskífan Heimþrá er þriðja sólóplata Elízu Newman
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég mun bjóða upp á nýtt og ný-
legt efni eftir mig sem hefur lítið
eða ekkert verið spilað áður. Lögin
eiga það öll sameiginleg að vera
óhljóðrituð, en tónleikarnir eru
kannski aðdragandi að einhvers
konar hljóðritun einhvern tímann,“
segir saxófónleikarinn Sigurður
Flosason en hann leiðir kvartett
sinn á tónleikum Múlans í Norræna
húsinu annað kvöld kl. 20.30. Með
honum leika Kjartan Valdemars-
son á píanó, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson á bassa og Einar
Scheving á trommur.
„Sumt af efninu lék ég með öðru
fólki á nýafstaðinni Jazzhátíð í
Reykjavík, þannig að maður er
bara að prófa efnið í ólíku sam-
hengi og fá reynslu á þetta nýja
efni og meðleikunum,“ segir Sig-
urður og tekur fram að allir séu
meðleikarar hans mjög hæfi-
leikaríkir. „En eðlilega breytir tón-
listin alltaf um lit eftir því hver
leikur hana. Það er líka gott að fá
æfingu í því að leika efnið því það
er eitt að semja það og annað að
flytja. Stundum býr maður til eitt-
hvað sem manni þykir voðalega
skemmtilegt, en svo getur verið
mjög erfitt að spila það.“
Aðspurður segist Sigurður yf-
irleitt semja við píanóið og stund-
um líka við tölvuna, en aldrei not-
ast við saxófóninn. „Það helgast af
því að maður er ekki bara að
semja grípandi laglínur heldur
hugsar tónlistina fremur út frá
hljómaganginum,“ segir Sigurður.
Beðinn að lýsa nýja efni tón-
leikanna nánar segir Sigurður um
að ræða nútíma instrúmental
djasstónlist. „Maður reynir alltaf
að hafa hana lagræna og aðgengi-
lega. Ólíkir stílar ráða ríkjum í
lögunum. Þannig eru sum lögin ró-
leg og ljóðræn meðan önnur eru
meira grúví. Þetta er svona bland í
poka sem vonandi gerir þetta að
skemmtilegri og fjölbreyttari heild
til að hlusta á og spila,“ segir Sig-
urður.
Tónskáld Sigurður Flosason mund-
ar saxófóninn annað kvöld.
Býður bland í poka
Sigurður Flosason leikur nýtt efni á
Múlanum í Norræna húsinu á morgun
Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23
Indverskt buff í grófu
naanbrauði, grilluð
paprika, rauðlaukur,
jöklasalat, raita og
mangó chutney
Indverji Borgari, franskar,
gos og kokteilsósa
1.550 kr.
-B.O. MAGAZINE
MBL
FRÉTTATÍMINN
- NEW YORK DAILY NEWS
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
14
1412
LOKAMYNDIN Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA
Í 2D OG 3D MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Í 2D MEÐ ENSKU
TALI/ÍSL TEXTA
-VARIETY
-HOLLYWOOD REPORTER
BOXOFFICE MAGAZINE
12
16
L
L
L
AKUREYRI
EGILSHÖLL
L
16
14
12TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 5:30 - 8 - 9 - 10:30
ARGO KL. 8 - 10:30
CLOUD ATLAS KL. 5:50 - 8
WRECK-IT RALPH ÍSL TAL3D KL. 5:30
16
12
KEFLAVÍK
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:10
ÁLFABAKKA
L
L
L
VIP
16
16
14
14
12
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 5:30 - 8 - 10:30
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2 VIP
KL. 5:30 - 8 - 10:30
WRECK IT RALPH M/ÍSL.TALI Í3D KL. 5:50
WRECK IT RALPH M/ÍSL.TALI KL. 5:50
WRECK IT RALPH ENSKU.TALI KL. 8 - 10:10
ARGO KL. 5:40 - 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 5:50 - 8
HOUSE AT END OF STREET KL. 8:10 - 10:30
END OF WATCH KL. 10:10
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
12
12
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 5:30 - 8 - 11 NÚMERUÐ SÆTI
SKYFALL KL. 6 - 8 - 9 - 10:30
WRECK IT RALPHÍSL.TALI KL.5:50
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
12
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2 KL. 8
ARGO KL. 10:20
WRECK-IT RALPH ÍSL TAL3D KL. 6
BRAVE HIN HUGRAKKA ÍSLTAL KL. 6
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:20
80/100
VARIETY
80/100
SKILAR ÞVÍ SEM ÓÞREYJUFULLIR
AÐDÁENDUR VORU AÐ BÍÐA EFTIR.
THE HOLLYWOOD REPORTER
BOXOFFICE MAGAZINE