Morgunblaðið - 21.11.2012, Qupperneq 44
MIÐVIKUDAGUR 21. NÓVEMBER 326. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Ingibjörg Pálma stöðvaði Gillz
2. Þetta sjá karlmenn við konur
3. Annþór og Börkur fylgjast með
4. Fann 114 milljónir í aftursætinu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Úlfhildur Dagsdóttir bókmennta-
fræðingur fjallar um vampírur og
ólíkar birtingarmyndir þeirra í bók-
menntum og kvikmyndum á Amts-
bókasafninu á Akureyri í dag kl. 17.
Morgunblaðið/Kristinn
Vampírur í blíðu og
stríðu á Akureyri
Daníel Þor-
steinsson píanó-
leikari, Lára Sóley
Jóhannsdóttir
fiðluleikari og Vil-
hjálmur Ingi Sig-
urðsson trompet-
leikari koma fram
á kammertón-
leikum í Hofi á
Akureyri í kvöld kl. 20. Á efnisskránni
eru verk eftir Maurice Ravel, Eric
Ewazen og Oskar Böhme.
Kammertónleikar
haldnir í Hofi í kvöld
Ákveðið hefur verið að fresta út-
gáfunni á nýjustu plötu Bubba
Morthens, Æsku minnar jól, um
óákveðinn tíma. Ástæðan er, sam-
kvæmt upplýsingum frá Senu, sú að
fyrir misskilning hafði láðst að fá
leyfi fyrir því að flytja Bítlalagið
„Across the Universe“ með íslensk-
um texta. Útgáfunni er
frestað meðan leyfis er
aflað og þar sem ekki
liggur ljóst fyrir hve
langan tíma það geti
tekið, eru allar
líkur á að jóla-
platan frest-
ist um heilt
ár.
Væntanleg jólaplata
Bubba frestast um ár
VEÐUR
Ólafur Gústafsson leikur
með þýska liðinu Flensburg
það sem eftir er leiktíðar.
Hann og FH hafa náð sam-
komulagi við þýska liðið
sem vantar stórskyttu í ein-
um hvelli en margir leik-
menn liðsins eru meiddir
og verða lengi frá keppni.
Flensburg mun kaupa Ólaf
frá Hafnarfjarðarliðinu en
hann gerir samning fram á
vor eftir því sem næst verð-
ur komist. »1
Ólafur á leið til
Þýskalands
„Þetta er mesta áfallið sem ég hef
lent í á ferlinum en það má segja að
ég hafi gengið í gegnum hæðir og
lægðir í íþróttunum á þessu ári,“
segir Arnór Atlason, landsliðs-
maður í handknattleik, sem verð-
ur frá keppni næsta hálfa árið
eða svo eftir að hafa slitið hásin.
Hann gengst undir aðgerð í
Flensburg í dag. »4
Hæðir og lægðir hjá
mér á þessu ári
„Ekki get ég betur séð en að
íþróttamálaráðherrann okkar hafi
boðið upp á villandi málflutning í
Kastljósinu hinn 15. nóvember síð-
astliðinn þegar rætt var um fram-
lög ríkisins til íþróttahreyfingar-
innar,“ skrifar Kristján Jónsson í
viðhorfsgrein í íþróttablaðinu í dag
en þar er fjallað um niðurskurð á
ríkisstyrkjum undanfarin ár. »2
Hafa allir þurft
að vera í vörn?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Margir hafa eflaust rifið í hár sitt
eða klórað sér í hausnum þegar þeir
hafa lent í vandræðum við lausn á
jólamyndagátu Morgunblaðsins.
Enginn hefur samt velt sér eins mik-
ið upp úr henni og Þorbjörn Guð-
mundsson, höfundur gátunnar til
margra áratuga, en hann er einmitt
að leggja lokahönd á næstu gátu.
Þorbjörn hóf að vinna á Morgun-
blaðinu haustið 1942 og hætti þar
formlegum störfum liðlega hálfri öld
síðar eða í árslok 1992. Handhafi
blaðamannaskírteinis númer 1 er þó
enn að – jólamyndagátan heldur
honum við efnið.
Eitt skipti enn í gangi
„Ég er búinn að gera þetta lengi,“
segir Þorbjörn um gáturnar, en þær
eru orðnar nokkrar kynslóðirnar
sem hafa spreytt sig á gátum eftir
hann. Valtýr Stefánsson ritstjóri sá
um krossgáturnar, en skömmu eftir
að Þorbjörn byrjaði sem blaðamaður
bað Valtýr hann um að finna ein-
hvern til þess að sjá um þær. Það
gekk ekki eftir og því tók Þorbjörn
verkið að sér og sinnti því í áratugi.
Eins var það með myndagáturnar.
„Valtýr samdi fyrstu myndagát-
urnar, svo var Árni Óla með þær um
tíma og síðan vantaði mann. Til að
bjarga málum bjó ég hana til í eitt
skipti og svo hefur þetta eina skipti
haldist síðan. Og síðan hangi ég líka
enn í dagbókarkrossgátunni.“
Jólamyndagátan hefur fallið vel í
kramið hjá lesendum en Þorbjörn
segir að sumir hafi skammast yfir
henni, sérstaklega ef þeir hafi ekki
getað ráðið hana. Samt hafi enginn
truflað jólahaldið vegna þessa.
Myndagátan hefur gjarnan á ein-
hvern hátt endurspeglað líðandi ár
hverju sinni. Þorbjörn segist hafa
haft fréttatengt efni ársins til hlið-
sjónar og síðan hafi ýmsir teiknað
myndirnar. Vandinn felist í því að
búa til myndrænar setningar. „Það
getur tekið langan tíma að hugsa um
þetta og efnið kemur ekki allt í einu
heldur smátt og smátt,“ segir Þor-
björn. „Ég sest aldrei beint niður
heldur er með þetta í huganum og
svo dettur mér eitthvað í hug, þess
vegna á göngu úti á götu. Þá flýti ég
mér að koma því niður á blað.“
Og miklu máli skiptir að ná til sem
flestra. „Ég hugsa þetta sem fjöl-
skylduleik,“ segir hann og bætir við
að hann hafi alltaf fjölskylduna í
huga við gerð myndagátunnar. „Ég
hef reynt að hafa gátuna það létta að
það þurfi ekki sérstaka sérfræðinga
til þess að komast fram úr henni.
Ekki of létta en heldur ekki of
þunga.“
Alltaf fyrstur með lausnina
Hefur samið
jólamyndagátuna
í marga áratugi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðamaður númer 1 Þorbjörn Guðmundsson er að ljúka við gerð næstu jólamyndagátu Morgunblaðsins.
Þorbjörn Guðmunds-
son og Sigurrós Sig-
urðardóttir, eiginkona
hans, eru virk í lík-
amsræktinni og halda
sér meðal annars við
með því að vera í
golfi – fóru síðast í
golfferð til Flórída í
haust – og með því
að fara daglega í
sund í Vesturbæjar-
laugina auk þess sem
þau taka þar þátt í
sundleikfimi. Þorbjörn
hefur átt sinn fasta
snaga í útiskýlinu síðan
laugin var formlega opn-
uð fyrir rúmlega hálfri
öld. „Ég tek mig reyndar
á hús á veturna og klæði
mig úr og í inni því ég er
orðinn kulsæknari en ég
var,“ segir hann.
Á fastan snaga í útiskýlinu
ÞORBJÖRN GUÐMUNDSSON BLAÐAMAÐUR
Myndagátan 1962
Á fimmtudag Hvöss norðaustanátt. Snjókoma fyrir norðan og
rigning eða slydda á SA- og A-landi, en þurrt að mestu SV-til.
Á föstudag Ákveðin norðanátt og snjókoma vestast, annars
hægari breytileg átt og sums staðar él. Hiti kringum frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og norðaustan 15-25, hvassast
syðst, en hægari NA-lands. Hlýnandi, hiti 1 til 5 stig.
VEÐUR » 8 www.mbl.is