Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Veitingahúsið Hreðavatnsskáli í
Borgarfirði er til sölu hjá Fasteigna-
miðstöðinni. Veitingaskálinn var í
áratugi fjölsóttur
áningarstaður
ferðafólks á leið-
inni á milli Vest-
urlands og Norð-
urlands. Hann
var einnig þekkt-
ur dansstaður og
samkomustaður
sveitarinnar.
Óskað er til-
boða í eignirnar.
Magnús Leó-
poldsson fasteignasali segir að aðilar
hafi sýnt skálanum áhuga en ekki
hafi verið gengið frá sölu.
Veitinga- og gistihús hefur verið
rekið í Hreðavatnsskála í nærri átta
áratugi. Vigfús Guðmundsson vert,
síðar í Borgarnesi, reisti fyrsta
Hreðavatnsskála í landi Hreðavatns
í Norðurárdal, við Bifröst, og opnaði
veitingastaðinn 1933. Þrettán árum
síðar flutti hann sig um set, upp að
Grábrók, og reisti nýjan veit-
ingaskála. Skálinn var áfram tengd-
ur við Hreðavatn þótt hann væri nú
kominn inn fyrir landamerki
Brekku.
Leópold Jóhannesson og Olga
Sigurðardóttir tóku við rekstri
Hreðavatnsskála 1960 og höfðu með
höndum til 1977. Eftir það rak Pétur
Geirsson, hótelhaldari í Borgarnesi,
oft kenndur við Botnsskála, Hreða-
vatnsskála með fjölskyldu sinni og
síðustu árin hefur félag í eigu Péturs
Kjartanssonar lögfræðings átt eign-
irnar. Skálinn er lokaður í vetur.
Hreðavatnsskáli ásamt tilheyr-
andi byggingum er alls um 941 fer-
metri að stærð. Í skálanum sjálfum
eru veitingasalir, eldhús, íbúðarrými
og fleira. Einnig fylgja með sér hús
með gistiaðstöðu, með tveimur íbúð-
um og sjö herbergjum. Á útsýn-
isstað fyrir ofan skálann eru tveir
sumarbústaðir og eitt íbúðarhús.
Fram kemur í kynningu fast-
eignasölunnar að komið sé að við-
haldi eignanna en þótt húsakostur sé
ekki nýr nýtist hann vel til þeirra
hluta sem honum er ætlaður.
Bensíntittur í nokkur sumur
Magnús er sonur Leópolds, hins
kunna gestgjafa í Hreðavatnsskála,
sem lést á síðasta ári. Þótt Magnús
hafi ekki alist upp í skálanum á hann
margar minningar þaðan. Hann kom
þangað oft og starfaði nokkur sumur
sem bensíntittur hjá föður sínum.
Magnús telur að þarna geti verið
tækifæri fyrir fólk sem vilji leggja
það á sig að sinna þjónustu við ferða-
fólk.
Óskað eftir tilboðum í Hreðavatnsskála í Borgarfirði Var í áratugi fjölsóttur áningarstaður
ferðafólks Aðstaða til rekstrar veitingaskála og gistihúss auk sumarbústaða
Sögufræg vegasjoppa er til sölu
Gamall áningarstaður Hreðavatnsskáli stendur sunnan undir Grábrók sem
er þekkt kennileiti við hringveginn í Norðurárdal í Borgarfirði.
Magnús
Leópoldsson
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Flugið liggur miklu betur fyrir mér. Ég nýt mín vel í
því,“ segir Sigurður Aðalsteinsson, yfirflugstjóri Flug-
félags Íslands, sem í gær flaug sína síðustu ferð fyrir
félagið. Hann ber saman stjórnunar- og flugmanns-
störfin. Sigurður er kominn á aldur. Félagið kom mál-
um þannig fyrir að hann flaug frá Reykjavík til Akur-
eyrar og lauk þar með atvinnuflugmannsferlinum í
heimabæ sínum.
„Það var tilviljun. Ég fékk allt í einu þá flugu í höf-
uðið strax eftir stúdentspróf að læra flug og ekki varð
aftur snúið,“ segir Sigurður. Hann lærði hjá Tryggva
Helgasyni sem rak lítið flugfélag á Akureyri, Norður-
flug.
„Ekki strax, en það kom fljótlega,“ segir Sigurður
þegar hann er spurður hvort stefnan hafi strax verið
tekin á atvinnumennsku. „Þetta er baktería sem maður
losnar ekki svo glatt við. Það er eitthvað við flugið.“
Þegar Sigurður hafði lokið flugnámi og öðlast
nauðsynleg réttindi keypti hann flugvél með Gunnari
Þorvaldssyni félaga sínum og hóf rekstur vorið 1970.
„Það var enga vinnu að hafa svo við keyptum Cessnu
180 af Birni Pálssyni.“ Þeir stofnuðu Austurflug á Eg-
ilsstöðum og tóku að sér ýmis verkefni, meðal annars
póstflug um Austfirði sem var nýjung hér á landi.
Árið eftir fór Sigurður að fljúga fyrir Tryggva
Helgason og Gunnar fór til Loftleiða. Sigurður keypti
rekstur Norðurflugs ásamt nokkrum samstarfsmönnum
sínum þegar Tryggvi hætti og nefndu þeir félagið fljót-
lega Flugfélag Norðurlands. Sigurður var fram-
kvæmdastjóri félagsins jafnframt því sem hann starfaði
sem flugstjóri. Auk innanlandsflugsins sinnti Flugfélag
Norðurlands sérstaklega verkefnum á Grænlandi og
náði þar ágætri fótfestu. Flogið var á staði þar sem
ekki voru fullbúnir flugvellir og var meðal annars lent á
skíðum í óbyggðum. Tengslin við Grænland hafa aldrei
rofnað. Meðal annars hefur Sigurður flogið reglulega á
áfangastaði Flugfélags Íslands í Grænlandi síðustu árin.
Þegar Flugfélag Norðurlands sameinaðist innan-
landsdeild Flugleiða gerðist hann flugrekstrarstjóri
hins nýja Flugfélags Íslands og síðar flugstjóri. Því
starfi hefur hann gegnt síðan þótt félaginu hafi verið
skipt með því að Twin Otter-hluti þess var seldur til fé-
lags sem nú heitir Norlandair og starfar á Akureyri.
Sigurður verður 65 ára í dag en við þann aldur
liggur hámarksaldur flugmanna hjá Flugfélagi Íslands.
Sigurður segist þó verða tengdur félaginu um sinn.
Hann muni hjálpa til við flughandbókarvinnu í flug-
deildinni og skipulagningu ferða fyrir eldri borgara í
markaðsdeildinni. Þá útilokar hann ekki að hjálpa til á
ferðaskrifstofunni Nonna sem kona hans, Helena De-
jak, rekur á Akureyri.
Baktería sem maður
losnar ekki svo glatt við
Sigurður Aðalsteinsson lýkur atvinnuflugmannsferli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hættur Margir tóku á móti Sigurði á Akureyrarflugvelli eftir lokaferðina, þar á meðal eiginkonan, Helena Dejak.
félögum. Maður er alinn upp við að
ef það var ball á annað borð þá
mættu allir, óháð aldri,“ segir
Ragnar en aukaleikarar eru allt frá
því að vera táningar upp í að vera
áttræðir karlmenn.
Líkar vel undir Eyjafjöllum
Að sögn Ragnars hafa tökur far-
ið fram fyrir austan fjall, undir
Eyjafjöllum. „Þar er yndislegt að
vera, fólk er svo áhugasamt og
hjálplegt. Þetta er mjög stórt verk-
efni, eitt af þeim stærri sem ég hef
tekið að mér,“ segir Ragnar.
Tökur á myndinni hófust í síð-
ustu viku en hún fjallar um stúlku
sem elst upp í sveitasamfélagi, hef-
ur mikinn áhuga á metal-tónlist og
dreymir um landvinninga á því
sviði. Með aðalhlutverk fara Þor-
björg Helga Dýrfjörð, Ingvar E.
Sigurðsson og Halldóra Geirharðs-
dóttir. „Þetta er svona lítil fjöl-
skyldusaga um fólk á kúabúi og
gerist snemma á tíunda áratugn-
um,“ segir Ragnar sem m.a. á heið-
urinn af vaktaseríunum sívinsælu
og hefur áður gert myndirnar
Börn, Foreldrar og Bjarnfreðarson.
Frumsýning á myndinni er áætluð
næsta haust.
Heimir Snær Guðmundsson
heimirs@mbl.is
Um 100 aukaleikarar taka þátt í að
setja á svið sveitaball í Þjórsárveri
um helgina. Um er að ræða upp-
tökur á myndinni
Málmhaus eftir
Ragnar Braga-
son. Auglýst var
eftir aukaleik-
urum, m.a. í
Bændablaðinu,
og viðtökurnar
voru afar góðar
en. „Við fengum
gríðarlega góð
viðbrögð og ég
held að við séum
búin að fylla í allar stöður. Við
munum taka upp í Þjórsárverum,
þetta er einn kafli myndarinnar
sem fer fram á íslensku sveitaballi,“
segir Ragnar Bragason, leikstjóri
myndarinnar em hann skrifaði
einnig handrit. Auglýst var eftir
fólki á aldrinum 18-100 ára og segir
Ragnar tilganginn að reyna að búa
til alvöru íslenskt sveitaball þar
sem ungir sem aldnir skemmti sér
saman.
„Oft er það þannig í minni sam-
Búa til alvöru ís-
lenskt sveitaball
Ragnar
Bragason
100 aukaleikarar á öllum aldri
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
GLÆSILEG JÓLALJÓS
Frá Svíþjóð
Opið kl. 11 - 16 laugardag
Opið kl. 13 - 15 sunnudag
Frá í j
Mikið úrval samtengjanlegra útisería
Allt að 1.040 ljós við einn straumbreyti