Morgunblaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012 Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Fjölvítamín náttúrunnar Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína er meira og nýtist betur en úr nokkru öðru fæði. Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er gott gegn streitu. Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni. Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og fullorðnum. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Fríhöfninni og Hagkaup Hraust og hress Árangur strax! V o ttað 100% lífræ nt www.celsus.is Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin. Vottað lífrænt Hanna Birna Kristjánsdóttir sló margar flug-ur í einu höggi, þegar hún tilkynnti að húnmundi ekki bjóða sig fram til formennskuá landsfundi Sjálfstæðisflokksins í vetur. Í fyrsta lagi sameinaði hún Sjálfstæðisflokkinn að baki Bjarna Benediktssyni í aðdraganda kosninga. Ólíklegt er að nokkur annar frambjóðandi komi fram á sjón- arsviðið sem hefði möguleika á að ná kosningu. Í öðru lagi tryggði hún sér stöðu varaformanns í stað Ólafar Nordal hafi hún á annað borð áhuga á þeirri stöðu. Það yrði mikil samstaða um hana í þeirri kosningu. Í þriðja lagi styrkti hún mjög stöðu sína sem hugs- anlegs formanns Sjálfstæðisflokksins í framtíðinni. Stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar munu ekki gleyma þessari yfirlýsingu hennar og verða líklegri en ella til að styðja hana í framtíðinni. En jafnframt hefur hún með þessari ákvörðun sýnt að hún er bú- in kostum, sem skipta miklu máli í oddvitastöðu af því tagi, sem for- mennska í Sjálfstæðisflokknum er. Hún hefur með þessari ákvörðun sýnt að hún er tilbúin að taka af skarið gagnvart eigin stuðningsmönnum og hefur burði til að standast þrýsting frá þeim. Enginn vafi er á því að margir þeirra hafa gert sér vonir um að hún mundi bjóða sig fram til formanns á ný og hafa því orðið fyrir vonbrigðum. Forystumaður í stjórnmálum þarf hins vegar að vera nógu harður af sér til þess að ganga gegn óskum fylgismanna sinna ef svo ber und- ir. Ég verð að viðurkenna að mér finnst ólíklegt að karlmaður í sömu pólitísku stöðu og Hanna Birna var komin í eftir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík um síðustu helgi hefði tekið sambærilega ákvörðun. Það er ekki umhugsunarefni fyrir Hönnu Birnu eða aðrar konur í stjórnmálum. Það er umhugsunarefni fyrir karla. Það er himinn og haf á milli óeigingjarnrar ákvörð- unar Hönnu Birnu nú og þeirra átaka í Sjálfstæðis- flokknum fyrir nokkrum áratugum, sem ég fjalla um á öðrum vettvangi í bókinni: Sjálfstæðisflokkurinn – Átök og uppjör, sem kom út fyrir skömmu. Sjálfstæðisflokkurinn gengur nú sameinaður til þingkosninga og í því er mikill styrkur fólginn. En fleira þarf að gerast en þessi hyggilega ákvörðun Hönnu Birnu ein. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki gert upp hrunið og sinn þátt í því með viðunandi hætti. Þetta er sagt, ekki bara vegna samvizku flokksins sjálfs heldur vegna hins að aðrir flokkar verða að óbreyttu tregir til að ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn í nýrri ríkisstjórn. Þeir telja sig bera skaða af því. Hin sameinaða forystusveit Sjálfstæðisflokksins þarf að breyta þessari stöðu. Hún hefur ráðrúm til þess. Janúarmánuður er góður mánuður til að ljúka því verki sem hafið var á landsfundinum 2009 að þessu leyti. Með því að ræða í botn og fyrir opnum tjöldum það sem tókst og tókst ekki á löngum valda- ferli Sjálfstæðisflokksins fyrir hrun gjörbreytir flokk- urinn stöðu sinni í kosningabaráttunni og við stjórn- armyndun eftir kosningar. Í framhaldi af slíku lokauppgjöri við pólitíska hlið hrunsins þarf Sjálfstæðisflokkurinn að mynda sér skýra framtíðarsýn til lengri tíma og leggja fram út- færðar tillögur um lausn á skuldavanda heimilanna og aðgerðir til atvinnuaukningar á næstu mánuðum og misserum. Hvort tveggja er í uppnámi. Framtíðarsýn Sjálfstæðisflokks- ins til næstu áratuga hlýtur að byggjast á þremur meginatriðum. Í fyrsta lagi að Ísland standi utan Evrópusambandsins. Í öðru lagi að Ísland verði virkur aðili í uppbyggingu norðurslóða og í þjónustu við þá uppbyggingu. Í þriðja lagi að end- urnýja pólitískt samband okkar við Bandaríkin og styrkja tengsl okkar við Kanada sem og við aðra íbúa norðurslóða svo sem Grænlendinga, Færeyinga, Sama og aðra þá, sem deila með okkur því hlutskipti að búa og starfa á þessum norðlæga hluta hnattarins. Í þeim aðgerðum, sem eru nær okkur í tíma á Sjálf- stæðisflokkurinn ekki að halda sig í fjarlægð frá þeim hluta þjóðarinnar, sem safnaðist saman á Austurvelli veturinn 2009 heldur gerast málsvari hans. Fundurinn í Háskólabíói á dögunum sýndi að sú hreyfing er ekki dauð úr öllum æðum heldur þvert á móti. Þröngir hópar háskólamenntaðs fólks hafa yfirtekið flesta stjórnmálaflokka, sem eru af þeim sökum búnir að missa tengslin við grasrótina. Í því felst tækifæri fyrir Sjálfstæðisflokkinn til þess að verða aftur sú þjóðarhreyfing vinnandi fólks til sjávar og sveita, sem hann var stofnaður til að vera. Sjálfstæðisflokkurinn á að sækja nýjan kraft og þrótt til þessa fólks og taka forystu um þær grund- vallarumbætur á íslenzku samfélagi, sem fólkið á Austurvelli gerði kröfu til. Þær snerust um aukið lýð- ræði og gagnsæi. Í því skyni þarf að verða eins konar lýðræðisbylting innan Sjálfstæðisflokksins sjálfs. Völdin til fólksins – bæði innan flokks og utan! Stjórnmálaflokkar þurfa eins og aðrar stofnanir samfélagsins að endurnýja sig og hrista af sér viðjar og venjur fyrri tíma. Hanna Birna Kristjánsdóttir hef- ur með yfirlýsingu sinni skapað frið innan Sjálfstæð- isflokksins og opnað leiðina til slíkrar endurnýjunar og að flokkurinn geti einbeitt sér að henni í stað þess að loga í innbyrðis átökum stafna á milli. Það verður spennandi að fylgjast með því hvort Sjálfstæðisflokkurinn þekkir sinn vitjunartíma. Hyggileg ákvörðun Hönnu Birnu umhugsunarefni fyrir karla Sjálfstæðisflokkurinn á að gerast málsvari fólksins á Austurvelli. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Það er óheppilegt að vera orðlaus þegar skrifa á um tungu-málið. En nú er svo komið fyrir mér. Ástæðan er sú aðundanfarna daga hef ég sveiflast á milli þess að verabjartsýn á að viðhorf í samfélaginu séu að breytast yfir í að langa mest til að stimpla mig úr samfélagi við menn og málefni. Fyrir tveimur árum ákvað ég að skrifa í blaðið. Þá ákvað ég jafnframt að einbeita mér fyrst og fremst að félagslegu hlutverki tungumálsins; áhrifum þess og hvernig það varpar ljósi á viðhorf málnotenda. Í einfeldni minni vonaði ég að skrifin myndu hafa áhrif og fá fólk til að endurskoða hugmyndir sínar og tungutak. Núna óttast ég að þeir sem helst hefðu þurft á því að halda lesi ekki Morgunblaðið eða, það sem verra er, finnist hugmyndir sínar frábærar. Ég gæti tekið mörg dæmi en ætla ekki að gera því fólki það til geðs að birta við- bjóðslegt tungutak þess að þessu sinni. Lesendur hafa fengið nóg af þeim sora. Þann 7. nóvember fyllt- ist ég bjartsýni þegar ég las pistil í Fréttablaðinu eftir Bjart Steingrímsson. Þar beinir hann orðum sínum fyrst og fremst til ungs fólks og hvetur það til að „spyrja sig af hverju lítillækkun og kvenfyrirlitn- ing þyki sjálfsagður húmor, af hverju gerðar séu hærri útlitslegar kröfur til ungrar konu en karlmanns og af hverju sú hin sama sæt- ir meiri þrýstingi um að gefa eftir í kynlífi burtséð frá hennar eigin vilja“. Þegar fólk gerir athugasemdir við kvenfyrirlitningu er því oft brigslað um húmorsleysi. Setningar eins og „slakaðu á, þetta er bara grín“ eða „ertu húmorslaus“ eða „djók“ heyrast þá gjarnan hjá kvenhöturunum og eiga að réttlæta hatrið. Hvernig heldur þú að tölvunarfræðingum þætti ef einhverju eins og „tölvunar- fræðingar eru klámhundar“ væri stöðugt haldið fram? Eða hvað myndu lögfræðingar segja ef þetta væri línan „lögfræðingar vilja að konum sé nauðgað, annars myndu þeir ekki verja nauðgara“? Djók, slakaðu á maður, kanntu ekki að taka gríni! Við Bjartur deilum þeirri skoðun að of margt ungt fólk þori ekki eða vilji ekki gagnrýna þær kvenfjandsamlegu hugmyndir sem flæða yfir samfélagið. Þess vegna fylltist ég líka bjartsýni í síðustu viku þegar ungt fólk hóf upp raust sína og gagnrýndi upphafningu manns sem er þekktur fyrir kvenfjandsamlegan „húmor“. Það unga fólk fékk sannarlega að heyra hversu húmorslaust það væri og raunar margt annað miklu, miklu verra og fjandsamlegra. Mig langar að búa í samfélagi sem er laust við kvenfyrirlitningu og kvenhatur. Og til að svo geti orðið ætla ég ekki að verða orðlaus eina mínútu. Hvað með þig? Málið El ín Es th er Er ... er þetta Alfonso frændi? ERTU AÐ BORÐA FRÆNDA MINN?!?! Hvað, kanntu ekki að taka gríni? Kanntu ekki að taka gríni? Tungutak Halldóra Björt Ewen hew@mh.is Fyrir skömmu sat ég kvöldverðmeð nokkrum gömlum vinum, óljúgfróðum og langminnugum. Einn þeirra hafði haft nokkur kynni af Tómasi skáldi Guðmundssyni, sagði margar sögur af honum og hafði eftir honum viturleg ummæli. Ein hljóðuðu svo: „Bókum liggur ekki á.“ Með þessu brýndi Tómas fyrir viðmælanda sínum, hversu mikilvægt er að vanda til bóka, leyfa þeim að þroskast og vaxa í huga sér, velta fyrir sér efnistökum og söguþræði, velja verkinu og ein- stökum köflum þess hæfileg heiti, hafa (eins og sagt var um höfund Njálu) síðustu setninguna í huga, þegar hin fyrsta er sett á blað, skrifa og endurskrifa, uns stíllinn er orðinn þróttmikill og blæ- brigðaríkur og þó tilgerðarlaus, en ekki hröngl af slitnum orðum og sljórrar merkingar. Sjálfur hef ég lært af hverri einustu bók, sem ég hef sett saman eða ritstýrt. Þessi kunningi Tómasar skálds var ungur maður, þegar þeir töluðu hvað mest saman, og eindreginn sjálfstæðismaður. Tómas hafði að vísu sömu stjórnmálaskoðun, en sagði: „Ungi maður, heimurinn er ekki í svörtu og hvítu, eins og þú heldur. Hann er í miklu fleiri litum. Og mennirnir eru ekki algóðir eða alvondir. Allir hafa eitthvað til síns máls.“ Síðan þagnaði hann smá- stund og læddi síðan út úr sér graf- alvarlegur: „Nema auðvitað fram- sóknarmenn.“ Talið barst að deilunum um ævi- sögu Hannesar Hafsteins eftir Kristján Albertsson, en hún kom út í þremur bindum 1961-1964. Óhætt var að segja, að Reykvíkingar stæðu á öndinni yfir verkinu, sem skrifað var af ástríðufullri aðdáun á Hannesi. Stúdentafélag Reykjavík- ur hélt fjölmennan fund 22. janúar 1964 um ritið, sérstaklega þó deil- urnar um uppkastið 1908, og var annar framsögumaðurinn Sigurður A. Magnússon, heitur aðdáandi Hannesar. Í almennum umræðum sló í brýnu milli Sigurðar og eins fundarmanna, Sveins Benedikts- sonar, en faðir hans, Benedikt Sveinsson, hafði verið einn helsti andstæðingur Hannesar í upp- kastsmálinu. Viðmælandi minn í kvöldverðinum hafði ekki verið á fundinum, enda þá aðeins sextán ára. En hann heyrði einn áheyrand- ann, Pál Líndal, lýsa orðasennu þeirra Sigurðar og Sveins eft- irminnilega: „Þar fór grautur í kringum heitan kött!“ Grauturinn var Sigurður, sem er með af- brigðum óskýr í máli, en heiti kött- urinn Sveinn, sem var á fundinum hinn reiðasti. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Bókum liggur ekki á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.