Morgunblaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gjafir sem gleðja
Verð kr.
4.900
Verð kr.
5.300
Verð kr.
6.400
Verð kr.
10.500
Verð kr.
7.950
Verð kr.
12.000Verð kr.
6.600
Verð kr.
19.000
Verð kr.
20.500
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, segist hafa „alvarlegar
áhyggjur og efasemdir“ um að setja
ný lög um fjölmiðla. Rannsóknar-
nefnd um starfshætti og siðferði
breskra fjölmiðla lagði til að ný lög
yrðu sett og sérstakri eftirlitsnefnd
yrði komið á fót. Nefndin skilaði
skýrslu á fimmtudag en hún var
stofnuð í kjölfar símahlerunar-
hneykslisins í landinu.
Ekki er eining innan ríkisstjórn-
arinnar um framhaldið en Nick
Clegg, varaforsætisráðherra og leið-
togi Frjálslyndra demókrata, vill
fara að ráðleggingum rannsóknar-
nefndarinnar. Cameron er hins veg-
ar ekki á sama máli. „Við ættum að
gjalda varhug við hvers kyns laga-
setningu sem gæti hugsanlega dreg-
ið úr tjáningar- og fjölmiðlafrelsi,“
segir hann.
Stjórmálaflokkarnir funduðu á
fimmtudagskvöld eftir að skýrslan
kom út og er búist við því að í kjölfar-
ið hefjist vinna við nýtt fjölmiðla-
frumvarp.
Féll á eigin prófi
Efasemdir Camerons hafa vakið
reiði þeirra sem urðu fyrir barðinu á
ófyrirleitnum aðferðum breskra fjöl-
miðla. Þannig sakaði Mark Lewis,
lögmaður foreldra Milly Dowler,
stúlku sem var myrt en News of the
World hleraði símann hjá eftir andlát
hennar, forsætisráðherrann um svik
og minnti hann á að hann hefði lofað
því að viðbrögð stjórnvalda myndu
þóknast fórnarlömbum símahlerana.
„Hann kallaði þetta fórnarlambs-
prófið, hann kallaði þetta Dowler-
prófið. Svo virðist sem hann hafi fall-
ið á eigin prófi,“ segir Lewis.
kjartan@mbl.is
Cameron sak-
aður um svik
Lýsir efasemdum um ný fjölmiðlalög
Frjálslyndir demókratar fylgjandi
Símahlerunarmálin
» Cameron hefur við fjölda
tækifæra lofað fórnarlömbum
símhlerana að valda þeim ekki
vonbrigðum svo lengi sem
rannsóknarnefndin skilaði ekki
„rugluðum tillögum“.
» Hann hefur hins vegar verið
undir þrýstingi frá dagblöð-
unum um að styðja ekki ný lög.
AFP
Viðbrögð Cameron í ræðustól.