Morgunblaðið - 01.12.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Guðfríður Lilja Grétarsdóttirkvaddi sér hljóðs á þingi í gær
og lýsti áhyggjum sínum vegna þess
skamma tíma sem þingmönnum og
öðrum er ætlaður til að fara yfir
frumvarp til stjórn-
skipunarlaga.
Hún taldi að allirþingmenn
vildu geta sagt með
góðri samvisku að
þeir hefðu „sýnt
stjórnarskrá lýð-
veldisins þá virðingu
sem að hún á skilið.“
Ragnheiður ElínÁrnadóttir tók
í sama streng um
þessa málsmeðferð
og benti á að með
henni væri verið að sýna stjórn-
arskrá lýðveldisins óvirðingu og
vinnubrögðin væru skammarleg.
Illugi Gunnarsson lýsti sömu skoð-un og vildi að málið yrði unnið
eins og það ætti skilið. „Þetta sleif-
arlag og þessi handarbaka-
vinnubrögð sem lagt er upp með eru
þinginu ekki til sóma,“ sagði hann
og hvatti til að frestir til umsagna
yrðu lengdir.
Fleiri þingmenn kvörtuðu undanmálsmeðferðinni og bentu á
hve óvönduð hún væri.
Valgerður Bjarnadóttir lét sighins vegar hafa það að verja
málsmeðferðina enn og aftur. Verk-
inu skyldi lokið fyrir kosningar hvað
sem tautaði og raulaði og frestir til
umsagna um frumvarpið mættu því
ekki lengjast svo neinu næmi.
Það er með öðrum orðum ekkifyllilega rétt hjá Guðfríði Lilju
að allir þingmenn vilji sýna stjórn-
arskránni virðingu.
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
Óvirðingin er ekki
öllum á móti skapi
STAKSTEINAR
Valgerður
Bjarnadóttir
Veður víða um heim 30.11., kl. 18.00
Reykjavík -1 léttskýjað
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri -4 alskýjað
Kirkjubæjarkl. -3 skýjað
Vestmannaeyjar 2 súld
Nuuk -7 skafrenningur
Þórshöfn 0 léttskýjað
Ósló -5 skýjað
Kaupmannahöfn 1 slydda
Stokkhólmur -3 snjókoma
Helsinki -7 snjókoma
Lúxemborg 2 léttskýjað
Brussel 1 þoka
Dublin 5 léttskýjað
Glasgow 1 heiðskírt
London 3 léttskýjað
París 3 skýjað
Amsterdam 5 skúrir
Hamborg 1 léttskýjað
Berlín 1 skúrir
Vín 5 alskýjað
Moskva 1 þoka
Algarve 12 skýjað
Madríd 7 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 18 léttskýjað
Winnipeg -8 alskýjað
Montreal -10 skýjað
New York 7 alskýjað
Chicago 7 skýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:48 15:47
ÍSAFJÖRÐUR 11:23 15:22
SIGLUFJÖRÐUR 11:07 15:03
DJÚPIVOGUR 10:24 15:10
„Þetta lítur ágætlega út en enn er
ekkert fast í hendi,“ segir Gunnar
Ármannsson lögfræðingur sem und-
irbúið hefur
byggingu sjúkra-
húss og sjúkra-
hótels PrimaCare
í Mosfellsbæ til
að gera liðskipta-
aðgerðir á erlend-
um sjúklingum.
Unnið hefur
verið að undir-
búningi verkefn-
isins í nokkur ár.
Tekin hefur verið
frá lóð á Leirvogstungumelum.
Sjúkrahúsið verður sérhæft í
mjaðma- og hnjáliðaaðgerðum.
Áætlað er að uppbyggingin kosti
um 20 milljarða. Unnið hefur verið
að fjármögnun og gengið á ýmsu.
Gunnar segir að erlendur fjárfestir
sem forgöngumenn verkefnisins hafi
unnið með í eitt og hálft ár telji sig
geta fjármagnað 75-85% af stofn-
kostnaði. Hins vegar hafi reynst erf-
iðara að útvega þau 15-25% sem upp
á vantar en þau þurfa að koma fyrst
inn og þeim fylgir mesta áhættan.
Gunnar segir að erlendu fjárfestarn-
ir hafi áhyggjur af ástandinu á Ís-
landi almennt og spyrji mikið um
það. Þeir vilji að fleiri innlendir fjár-
festar taki þátt í fjármögnun verk-
efnisins. Hann getur þess að stór er-
lendur fjárfestir hafi sýnt verkefninu
mikinn áhuga og hugsanlega geti
hann lagt fram helming af því fé sem
eftir er að fjármagna, á móti innlend-
um fjárfestum. Gunnar tekur fram
að rætt hafi verið við fjárfesta á Ís-
landi og ýmis mál í skoðun í því sam-
bandi. Þjónusta einkasjúkrahússins
verður boðin erlendum sjúklingum,
sérstaklega í Bandaríkjunum. Miðað
er við að gerðar verði 5.000 aðgerðir
á ári. helgi@mbl.is
Áhugasamir er-
lendir fjárfestar
Fjármögnun einkasjúkrahúss ólokið
Gunnar
Ármannsson
Laugavegi 174
Sími 590 5040
Opið mán.- fös. kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
MM Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, diesel Ekinn: 27.500 km, sjálfsk.
Ásett verð: 9.390.000 kr.