Morgunblaðið - 01.12.2012, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.12.2012, Qupperneq 28
SVIÐSLJÓS Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Mikil fagnaðarlæti brutust út á Vest- urbakkanum í Palestínu á fimmtudag þegar yfirgnæfandi meirihluti alls- herjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti að Palestína fengi stöðu áheyrnarríkis. „Þetta var stórkost- legt og mikilvægt augnablik fyrir Palestínumenn. Að okkur hefði loks- ins hlotnast velþóknun Sameinuðu þjóðanna. Þetta er ekki endastöð vegferðar okkar en mjög mikilvægt skref í áttina að frelsi,“ sagði dr. Mu- stafa Barghouti, hjartalæknir og einn helsti talsmaður mannréttinda til handa palestínsku þjóðinni, um at- kvæðagreiðsluna í gær. Barghouti var heiðursgestur á 25 ára afmælissamkomu Félagsins Ís- land-Palestína á fimmtudag, þar sem því var einnig fagnað að ár væri liðið frá því að Ísland viðurkenndi sjálf- stæði og fullveldi Palestínu, fyrst vestrænna ríkja. Hann hefur ítrekað talað fyrir því að Palestínumenn beiti friðsamlegum aðgerðum í stað of- beldis í baráttu sinni gegn yfirgangi Ísraelsmanna og gegndi m.a. stöðu upplýsingaráðherra árið 2007, í þjóð- stjórn Fatah, Hamas og annarra hreyfinga. Barghouti segir úrslit atkvæða- greiðslunnar m.a. staðfesta stöðu Vesturbakkans, Gaza og Jerúsalem sem hernumdra svæða, að þau hafi ekki umdeilda stöðu, eins og Ísr- aelsmenn hafi haldið fram. Þá geri hin nýja staða Palestínu við SÞ Pal- estínumönnum kleift að fara fram á að fjórða Genfarsáttmálanum, um meðferð óbreyttra borgara í stríði, verði framfylgt og opni á þann mögu- leika að nefnd SÞ um afnám kyn- þáttamisréttis taki til umræðu að- skilnaðarstefnu Ísraela. „Að auki getum við nú orðið aðilar að öllum stofnunum SÞ, þar með töldum Alþjóðastríðsglæpadóm- stólnum og Alþjóðadómstólnum, sem að mínu mati myndi gera okkur kleift að fara fram á þeir sem hafa framið stríðsglæpi gegn palestínsku þjóðinni verði dregnir til ábyrgðar,“ segir Barghouti. Ísraelar og Bandaríkjamenn settu sig mjög upp á móti því að Palestínu yrði veitt áheyrnaraðild en Barghouti segir úrslit atkvæðagreiðslunnar sýna hvernig ná megi árangri með pólitískum aðferðum. Hann segist af- ar þakklátur íslenskum stjórnvöldum og íslensku þjóðinni fyrir þeirra þátt, sem sé síður en svo lítils virði. „Sú staðreynd að þið eruð fyrsta vestræna evrópska ríkið sem við- urkennir Palestínu þýðir að þið getið tekið að ykkur forystuhlutverk og rutt veginn fyrir aðra. Og ég er viss um að afgerandi afstaða Íslands frá upphafi hafi virkað hvetjandi á mörg lönd sem sögðu já. Þannig að þið eruð kannski ekki stærsta ríkið í Evrópu en þið hafið örugglega stærsta hjart- að og getið virkilega haft áhrif á al- þjóðlegum vettvangi. Allt sem til þarf er hugrekki, ábyrgð og skuldbinding gagnvart góðum mannlegum gild- um,“ segir Barghouti. Árásir frá öllum áttum Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra Ísraels, sagði eftir atkvæða- greiðsluna á fimmtudag að eng- in ákvörðun Sameinuðu þjóð- anna gæti rofið 4.000 ára tengsl ísraelsku þjóð- arinnar við ísraelska jörð en Barghouti segir ummæl- in til marks um afstöðu Ísr- aelsstjórnar gagnvart miðlun mála. Sjálfstæðisyfirlýsing Palestínu nær til 22% af því land- svæði sem deilt var um í upphafi en það er helmingi minna svæði en Pal- estínumönnum var ætlað samkvæmt samþykkt Allsherjarþings SÞ árið 1947. Barghouti segir stjórnvöld í Ísrael engan áhuga hafa á friði. „Það þarf að beita Ísrael þrýstingi og eina leiðin sem getur virkað við ríkjandi aðstæður er samblanda af al- mennum friðsamlegum mótmælum Palestínumanna og refsiaðgerðum al- þjóðasamfélagsins,“ segir hann. Barghouti segir Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, hafa sýnt hugrekki og vilja til breytinga með því að leita til Sameinuðu þjóðanna en næsta skref sé að fá Hamas, Fatah og aðrar hreyfingar til að vinna saman og mynda sameinaða forystu. Í Ísrael þurfi ný stjórnvöld að taka við stjórn- artaumunum til að koma megi á friði. Barghouti ferðaðist til Gaza eftir að Ísraelar hófu árásir á svæðið á dögunum og segir hann ástandið hafa verið afar ógnvekjandi. „Ísraelar gerðu árásir frá sjó, úr lofti og af landi og stærsta vandamálið, á með- an á árásunum stendur, er að þú veist ekki hvort það er nokkur staður öruggur á Gaza. Þannig að þú hefur áhyggjur af börnunum þínum, fjöl- skyldunni þinni og þér sjálfum. Þessi öryggisskortur vinnur mjög djúp- stæðan sálrænan skaða og þess vegna eru einkenni áfallastreiturösk- unnar mjög tíð á Gaza.“ Ömurlegar aðstæður Barghouti segir Palestínumenn fanga í eigin landi. Bændur komist ekki á ræktarlönd sín án þess að eiga það á hættu að vera skotnir og fiski- mönnum hafi verið bannað að sigla lengra en þrjár mílur frá landi. 90% af öllu vatni á Gaza sé of mengað til að vera hæft til drykkjar né annarrar notkunar, atvinnuleysi meðal há- skólagenginna ungmenna sé 80% og innviðir samfélagsins hafi ítrekað verið eyðilagðir í árásum. Það sé í raun ótrúlegt að Palestínumenn hafi komist af við þær aðstæður sem þeim hafa verið skapaðar. En þrátt fyrir allt er hann vongóð- ur um framtíðina. „Við þurfum enn að erfiða en við munum ná á áfanga- stað á endanum og það mun ríkja friður. Og það verður friður sem byggist á réttlæti, annað hvort í formi tveggja ríkja lausnar eða eins ríkis lausnar,“ segir Barghouti. Hann segir að einn daginn muni Ísraelar átta sig á því að aðferðafræði þeirra sé öfugverkandi. „Ég veit að við erum á réttri leið og að umheimurinn er farinn að átta sig á því hver staðan raunverulega er og að öfga-síonísk stefna Ísraela er ekki að virka. Fyrir mér er þetta upphafið að endalokum nýlendustefnu Ísraela. Og fyrir okkur er þetta upphafið að því að verða frjáls. Það mun ríkja friður í framtíðinni, ég er ekki í vafa um það.“ Eina lausnin fólgin í friðsamlegum mótmælum og refsiaðgerðum  Kann Íslendingum miklar þakkir  Enginn staður öruggur í árásunum  „Það mun ríkja friður“ Morgunblaðið/Kristinn Friður Barghouti hefur líkt stefnu ísraelskra stjórnvalda við kynþáttaaðskilnaðarstefnuna í Suður-Afríku. 28 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 40% afsláttur af öllum gleraugum FACEBOOK.COM/GLERAUGNAMIDSTODIN LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 Sá óvenjulegi atburður átti sér stað í New York á mánudag að lögreglu barst ekki ein einasta tilkynning um skotárás, hnífstungu né ofbeld- isglæpi í heilan sólarhring. Slíkt hef- ur ekki gerst svo lengi sem elstu menn muna að sögn lögreglunnar. Það eru þó ekki einu góðu frétt- irnar fyrir borgarbúa því að allt stefnir í að morðtíðnin á þessu ári verði sú lægsta í rúm fimmtíu ár. Það sem af er ári hafa 366 manns verið myrtir í borginni en á sama tíma í fyrra voru þeir 472. Ef fram fer sem horfir fækkar morðum um 23% á milli ára. Um átta milljónir manna búa í New York en að sögn sérfræðinga er svo lág morðtíðni í svo stórri banda- Dagur án of- beldisglæpa í New York  Morðtíðnin sú lægsta frá árinu 1960 Alls voru 138 ríki fylgjandi því að Palestína fengi stöðu áheyrnar- ríkis við Sameinuðu þjóðirnar í atkvæðagreiðslu allsherjarþings- ins á fimmtudag. Fjörutíu og eitt ríki sat hjá en níu greiddu atkvæði á móti; Ísrael, Bandaríkin, Kanada, Tékkland, Marshall-eyjar, Míkró- nesía, Nauru, Palau og Panama. „Fyrir nákvæmlega 65 ár- um í dag samþykkti alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna ályktun 181, sem klauf hið sögulega land Palestínu í tvennt og varð að fæðingarvott- orði ríkisins Ísrael,“ sagði Mahmoud Abbas, forseti Palest- ínu, í ræðu sinni í New York í fyrra- kvöld. „Í dag köllum við eftir því að allsherjarþingið gefi út fæðing- arvottorð sem staðfesti að ríkið Palestína sé til í raun.“ Ísraelskir embættismenn mót- mæltu harðlega og sagði Ron Pro- sor, sendiherra Ísraela við Samein- uðu þjóðirnar, að samþykkt þingsins væri ekki skref í átt til friðar heldur væri hún skref aftur á bak. Ban Ki-moon, fram- kvæmdastjóri SÞ, sagði atkvæða- greiðsluna undirstrika nauðsyn þess að koma aftur á raunveruleg- um sáttaumleitunum. 138 fylgjandi en 9 á móti ATKVÆÐAGREIÐSLA Á ALLSHERJARÞINGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.