Morgunblaðið - 01.12.2012, Side 12
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn, dagur
Rauða borðans, er í dag, 1. desem-
ber. Viðburðir í tilefni hans verða
víða um heim til að vekja athygli á
baráttunni gegn HIV og alnæmi. Ís-
land er þar enginn eftirbátur en hjá
samtökunum HIV-Ísland verður op-
ið hús að Hverfisgötu 69 milli kl. 15
og 18.
Einar Þór Jónsson fram-
kvæmdastjóri HIV-Ísland segir að
það verði líka heilmikið um að vera í
Kringlunni eftir hádegi þar sem m.a.
samtökunum verður afhentur pen-
ingastyrkur frá snyrtivörufyrirtæk-
inu MAC upp á 2,5 milljónir til
fræðslustarfs. „Þetta bjargar
fræðslustarfinu hjá okkur. En við
förum og tölum við krakka í grunn-
skólum og fræðum þau um HIV, al-
næmi og kynsjúkdóma,“ segir Ein-
ar. „MAC hefur haldið úti mjög
miklu hjálparstarfi varðandi HIV og
alnæmi út um allan heim. Á níunda
áratugnum voru það tveir hommar
sem stofnuðu MAC, annar þeirra dó
úr alnæmi og í framhaldinu var
stofnaður þessi sjóður sem við fáum
nú afhent úr.“
Einar fór á alþjóðlega alnæm-
isráðstefnu í Bandaríkjunum á árinu
og segir hann það hafa verið tíma-
mót. „HIV-jákvæðu fólki var lengi
vel bannað að koma inn til Banda-
ríkjanna en í tíð Obama var því af-
létt. Þegar ég mæti út er mér boðið
ásamt litlum hópi af fólki í hádeg-
ismat til Obama í Hvíta húsið. Þetta
sýnir hvað hlutirnir og viðhorfin
geta breyst hratt,“ segir Einar.
Á alheimsvísu segir hann að það
sé orðinn miklu meiri sam-
takamáttur og samvinnuvilji að ná
utan um HIV og alnæmi. „Það eru
ekki mörg ár þangað til það verður
búið að ná böndum utan um þennan
faraldur,“ segir Einar sem er þó
áhyggjufullur yfir því að fjöldi HIV
greindra hér á landi virðist ætla að
fara hægt minnkandi.
Vefsíða:www.hiv-island.is.
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn í dag
Opið hús hjá HIV-
Ísland Fá 2,5 m.kr.
styrk til fræðslu
AFP
Táknrænt Rauði borðinn er tákn um
baráttuna gegn HIV og alnæmi.
Morgunblaðinu var í gær veitt mannúðarviðurkenn-
ing frá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir árið 2012.
Á myndinni má sjá Pétur Blöndal, blaðamann
Morgunblaðsins, taka við verðlaununum úr höndum
Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands.
Fékk blaðið, ásamt fréttastofu Stöðvar 2, viðurkenn-
ingu sem fjölmiðill mannúðar. Einnig fengu 16 fyrir-
tæki viðurkenningu sem fyrirtæki mannúðar.
Fjölskylduhjálp veitti 16 fyrirtækjum og tveimur fjölmiðlum viðurkenningar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Morgunblaðið fjölmiðill mannúðar
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Kröfurnar um að honum yrði refs-
að voru áberandi og háværar. Þær
byggðu hins vegar hvorki á þekk-
ingu á sakarefninu né greiningu á
því. Meira að segja var opinberlega
settur persónulegur þrýstingur á
dómarana í málinu meðan málið var
til meðferðar og jafnvel eftir að það
var tekið til dóms. Vilji dómstólar
standa undir nafni verða þeir að
standa slíkan þrýsting af sér og
dæma einungis eftir lögunum,“
skrifar Jón Steinar Gunnlaugsson,
fyrrverandi hæstaréttardómari, um
dóm gegn Baldri Guðlaugssyni,
fyrrverandi ráðuneytisstjóra.
Jón Steinar skrifar grein um mál-
ið í Tímarit lögfræðinga og færir
þar rök fyrir því að Baldur hafi
ranglega verið dæmdur fyrir inn-
herjasvik vegna sölu á hlutabréfum í
Landsbankanum í september 2008.
Jón Steinar rifjar upp setu Bald-
urs í svonefndum
samráðshópi,
stjórnskipaðri
nefnd sem fjallaði
um fjármálastöð-
ugleika og við-
búnað við hugs-
anlegum áföllum
í fjármálakerfinu.
Var það m.a. á
vettvangi hópsins
sem Baldur átti
að hafa fengið innherjaupplýsingar
sem hafi leitt til sölu hans á hluta-
bréfunum, svo og á fundum með
fyrirsvarsmönnum Landsbanka Ís-
lands 13. ágúst og fjármálaráðherra
Bretlands 16. september 2008.
Ekki refsivert að selja
Jón Steinar spyr hvort refsivert
sé að selja hlutabréf ef sá sem selur
viti eitthvað neikvætt um hlutafélag-
ið sem „markaðurinn“ viti ekki og
svarar því svo neitandi.
Hann rifjar einnig upp 120. gr.
laga um verðbréfaviðskipti þar sem
segi að innherjaupplýsingar séu þær
„nægilega tilgreindar upplýsingar
sem ekki hafa verið gerðar opinber-
ar“ og séu líklegar til að hafa mark-
tæk áhrif á markaðsverð hlutabréfa
ef opinberar væru.
Hann spyr svo hvort það hafi ver-
ið innherjaupplýsingar í Lands-
bankanum að breskir og hollenskir
eftirlitsaðilar með fjármálafyrir-
tækjum hefðu látið í ljós áhyggjur af
því að innistæðutryggingakerfi
bankans væri ófullnægjandi fyrir
hagsmuni innlánseigenda á Icesave-
reikningum í þessum löndum. Svar-
ið sé nei.
Þá vísar hann til lagaákvæðis þar
sem kveðið er á um að fjármála-
fyrirtæki skuli þegar í stað miðla
innherjaupplýsingum til markaðar-
ins. Jón Steinar spyr af hverju um-
ræddar upplýsingar í máli Baldurs
hafi aldrei verið birtar og svarar því
til að það hafi verið vegna þess að
þær voru ekki innherjaupplýsingar.
Telur Hæstarétt hafa
látið undan þrýstingi
Jón Steinar gagnrýnir dóminn yfir Baldri Guðlaugssyni
Jón Steinar
Gunnlaugsson
SJÁLFSTÆÐI
EÐA INNLIMUN?
Baráttan um uppkastið 1908
Hér fjallar Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur
af alúð og innlifun um þennan mikilvæga
þátt í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
„Gunnar hefur skrifað vandaða bók um áhugaverðan kafla
í sögu þjóðarinnar. Að baki henni liggur greinilega mikil
vinna. Hann lýsir skoðunum sínum á mönnum og málefnum,
en passar um leið að færa skýr rök fyrir afstöðu sinni . ..
Þetta er mjög fróðleg bók.“
EGILL ÓLAFSSON / MORGUNBLAÐIÐ
KAFFIVÉLAR - MATVINNSLUVÉLAR - POTTAR & PÖNNUR
SAFAPRESSUR - ELDHÚSÁHÖLD- BLANDARAR
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Jólatilboð á www.eirvik.is