Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Nemendur og starfsfólk Árskóla á Sauðárkróki fóru í
friðargöngu í gærmorgun og segir á feykir.is að nem-
endur hafi látið ljósker ganga sín á milli þar sem kveðj-
an „friður sé með þér“ fylgir með. Þetta er í 13. skipti
sem þessi keðja er mynduð frá kirkju og upp að ljósa-
krossi, en kveikt var á honum í 50. skipti í gær.
Mynduðu keðju frá kirkju að krossi
Ljósmynd/feykir.is
„Ég tek undir gagnrýni Bjarg-
ar Thorarensen, prófessors í
stjórnskipunarrétti, á hinn
skamma frest sem stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd Alþing-
is hefur gefið til að veita um-
sagnir um frumvarp til
stjórnskipunarlaga, og lýsi
þungum áhyggjum af þessari
málsmeðferð,“ segir Jónas Þór
Guðmundsson, hæstaréttar-
lögmaður og formaður Lög-
mannafélags Íslands, í tilefni af
bréfi sem Björg sendi þing-
nefndum vegna málsins.
Hafa þær frest til 10. desem-
ber til að skila umsögn um mál-
ið.
„Svo stuttur frestur sem raun
ber vitni, um tvær vikur, er alls
kostar óviðunandi og bendir til
þess að meirihluti nefndarinnar
skilji ekki alvöru málsins. Um er
að ræða sjálf grundvallarlög
þjóðarinnar en ekki eitthvert
smámál. Fresturinn verður að
vera svo langur að hann veiti
raunverulegan möguleika á að
vinna vel ígrundaða og vandaða
athugun á efni einstakra ákvæða
og heildaráhrifum frumvarpsins
á stjórnskipun landsins, ef að
lögum yrði … Það er óþekkt að
staðið sé með þessum hætti að
breytingum á stjórnarskrá í lýð-
ræðisríki.“
„Skilji ekki alvöru málsins“
Formaður Lögmannafélags Íslands tekur undir gagnrýni
Jónas Þór
Guðmundsson
Tíðarfar í nýliðnum nóvember var
lengst af óhagstætt, segir í bráða-
birgðayfirliti Trausta Jónssonar
veðurfræðings.
Engu að síður var hiti nærri með-
allagi, aðeins ofan við það á Suður-
landi en lítillega undir um landið
norðvestan- og norðanvert. Mán-
aðarmeðalhitinn í Reykjavík var 1,5
stig og er það 0,3 stigum ofan með-
allags áranna 1961 til 1990. Á Ak-
ureyri var meðalhitinn -1,0 stig og er
það um 0,7 stigum undir meðallagi.
Illviðri settu svip sinn á mán-
uðinn, sérstaklega framan af.
Fyrstu dagana gerði óvenjuöflugt
norðanillviðri með foktjóni víða um
land.
Mjög úrkomusamt var um landið
norðan- og austanvert, en tiltölulega
þurrt á Suðurlandi. Mikill snjór var
víða um landið norðanvert en snjó-
létt syðra.
Sólskinsstundir í Reykjavík voru
færri en í meðalári. sisi@mbl.is
Meðalhitinn
nærri
meðallagi
Nóvember var
óvenju illviðrasamur
Morgunblaðið/Golli
Nóvemberveðrið Færri sólskins-
stundir voru í borginni en í meðalári.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það hefur legið ljóst fyrir í samskipt-
um mínum við starfsmenn Fjármála-
eftirlitsins síðan þessi athugun hófst
að þetta hafi verið unnið með hang-
andi hendi hjá þeim og nánast ólund.
Ég átti því ekki von á öðru eftir að ég
sá þeirra fyrstu viðbrögð en að þetta
yrði málamyndagjörningur og ekki
neitt sem dygði til alvöru rannsókn-
ar,“ segir Vilhjálmur Þorsteinsson,
fyrrverandi stjórnarformaður BM
Vallár.
Tilefnið er sú niðurstaða FME í
gær að ekki beri að gera athugasemd-
ir við starfshætti Arion banka í
tengslum við endurskipulagningu og
síðar gjaldþrot BM Vallár hf.
Ætlar að vinna gögnin betur
Víglundur unir niðurstöðunni ekki.
„Ég mun leggja fram ný gögn eftir
helgi. Þau eru stór og mikil þannig að
ég ætla að vinna þau aðeins betur til
þess að menn geti náð utan um þau og
skilið og tekið til
meðhöndlunar,“
segir Víglundur.
„Þetta er í takt
við hvernig FME
hefur haldið á
málum frá hruni,
þar sem hags-
munir fjármála-
fyrirtækjanna eru
teknir fram yfir
viðskiptavinina.
Tugþúsundir Íslendinga eru til vitnis
um það.“
Forsaga málsins er sú að Víglund-
ur telur að við endurskipulagningu á
BM Vallá í kjölfar efnahagshrunsins,
þegar lánasöfn Kaupþings voru
endurmetin og þau færð yfir í nýja
bankann, Arion banka, hafi verið
gengið gegn úrskurðum FME í okt.
2008 sem byggðust á neyðarlögunum.
„Eins og ég best veit hafa þeir úr-
skurðir aldrei verið afturkallaðir af
Fjármálaeftirlitinu og eru því sam-
kvæmt stjórnsýslulögum enn hinn
lögmæti grundvöllur um stofnun
krafna nýja bankans. Ef sá skilningur
minn er réttur sýnist mér að sú vinna
sem fram hefur farið í Arion banka og
skilanefnd Kaupþings sem skipuð var
af Fjármálaeftirlitinu kunni að hafa
farið gegn þessum úrskurði FME
með afdrifaríkum hætti fyrir marga
viðskiptavini bankans, þ.m.t. mig og
félag mitt BM VALLÁ hf.,“ sagði
Víglundur m.a. í tilkynningu þegar
hann greindi frá beiðni sinni til FME í
ágúst sl.
Svör Arion banka ítarleg
Fram kom í tilkynningu FME í
gær að það hefði leitað eftir sjónar-
miðum Arion banka vegna málsins.
„Meðal þess sem óskað var eftir
voru upplýsingar um verklag bank-
ans og viðmið sem lögð voru til grund-
vallar við mat á því hvort samþykkja
ætti endurskipulagningu fjárhags
skuldara eða hvort fara ætti fram á
gjaldþrotaskipti … Svör Arion banka
hf. við fyrirspurnum FME voru ítar-
leg og studd viðeigandi gögnum,“
sagði þar m.a.
Segir FME hafa farið yfir
málið með hangandi hendi
Víglundur Þorsteinsson boðar gögn um mál BM Vallár
Víglundur
Þorsteinsson
Bílvelta varð við Þingvelli í gær-
dag. Ökumaður og farþegi sem
voru í bílnum voru flutt á sjúkra-
húsið á Selfossi til skoðunar. Bíllinn
er óökufær en töluverð ísing var á
veginum. Í tilkynningu frá Vega-
gerðinni í gær kom fram að sunn-
anlands sé veður víða með þeim
hætti að varasöm ísing geti mynd-
ast á vegunum sem eru blautir.
Valt í ísingu á veg-
inum við Þingvelli
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
DEUTER FUTURA
Bakpokar
MARGVERÐLAUNAÐIR
BAKPOKAR,
ÝMSAR STÆRÐIR.
FRÁ 18.990 kr.
„Við erum komin upp eina brekk-
una, eina þá veigamestu. Það er
náttúrlega grundvallaratriði að láns-
samningurinn sé í höfn. Óháð þessu
liggur fyrir að það verður hins vegar
ekki byrjað að
sprengja fyrr en
það glittir í vorið
af tæknilegum
ástæðum,“ segir
Pétur Þór Jón-
asson, form.
stjórnar Vaðla-
heiðarganga hf.,
um þýðingu þess
að fjármálaráð-
herra hafi í gær
undirritað fyrir
hönd ríkisins lánssamning upp á 8,7
ma.kr. vegna jarðganganna.
„Þetta er veigamesti samning-
urinn. Síðan er það samningur við
innanríkisráðuneytið um gerð og
rekstur ganganna sem bíður undir-
ritunar eftir helgi. Sá samningur
kveður á um heimild til að reka
göngin og til að innheimta veggjald.
Loks er eftir að ljúka samningi við
verktakann,“ segir Pétur Þór.
Gætu byrjað í vor
Karl Þráinsson, forstjóri Ís-
lenskra aðalverktaka, segir fram-
kvæmdir geta hafist með vorinu.
„Ég á ekki von á öðru en að þetta
geti fari að rúlla. Maður er búinn að
bíða svo lengi að maður vill ekki
segja neitt fyrr en hlutirnir eru af-
staðnir. Um leið og samningur er
undirritaður tekur þrjá til fjóra
mánuði að hefja jarðgangagerð. Þarf
þar m.a. að horfa til veðurs. Þetta
gæti klárlega hafist næsta vor.“
Geti byrjað
að sprengja
með vorinu
Vaðlaheiðar-
göng hf. fá lán
Pétur Þór
Jónasson