Morgunblaðið - 01.12.2012, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er verið að skoða tæknileg atriði
eins og hvernig best væri að fram-
kvæma björgun ef Herjólfur strand-
aði þarna við hafnargarðana í Land-
eyjahöfn og eins hvernig best væri að
ná fólki frá borði ef það yrði óhapp
milli lands og Eyja,“ sagði Víðir
Reynisson, deildarstjóri almanna-
varnadeildar Ríkislögreglustjóra um
aðgerðaáætlun sem nú er í smíðum
vegna Landeyjahafnar. „Þetta voru
atriði sem við ætluðum að æfa nú í
vikunni en frestuðust vegna óhapps-
ins.“
Víðir sagði að áfram yrði unnið að
því nú í fyrstu viku desember að afla
upplýsinga um þann björgunarbúnað
sem er til á svæðinu og hvernig væri
hægt að koma honum á staðinn. Þá
ætla björgunarsveitir að gera tilraun
til að koma búnaði sínum, t.d. flug-
línutækjum o.fl., út á hafnargarða við
Landeyjahöfn.
„Við frestuðum því sem átti að æfa
beint með skipinu, eins og móttöku
þyrlu og að tæma skipið af farþegum
á sjó,“ sagði Víðir, enda er skipið í
slipp til viðgerðar. Þá á að halda stóra
„skrifborðsæfingu“ 17. janúar 2013
varðandi viðbrögð við mögulegu
óhappi sem tengist Herjólfi.
Í fyrra var gefin út skýrsla,
Áhættuskoðun almannavarna, fyrir
umdæmi lögreglustjórans á Hvols-
velli. Þar kemur m.a. fram að meta
þurfi sérstaklega hættu í Landeyja-
höfn og gera viðbragðsáætlun ef þörf
er talin á því. Kjartan Þorkelsson,
lögreglustjóri, sagði að fyrirhuguð
björgunaræfing í Landeyjahöfn
mundi sýna hvort einhverjir veikir
þættir væru í viðbúnaðinum.
Eyþór Ólafsson, öryggisstjóri
Eimskips, sagði að komið hefðu fyrir
atvik þar sem lá við óhappi við sigl-
ingar Herjólfs í Landeyjahöfn en þau
væru ekki mörg og yfirleitt minni-
háttar. Atvikið á laugardagi hefði
verið það alvarlegasta hingað til.
„Það sem vantar þarna er straum-
mælir. Við höfum kallað lengi eftir
honum en það hefur hvorki gengið né
rekið með það,“ sagði Eyþór.
Straummælingar erfiðar
Siglingastofnun segir á heimasíðu
sinni að hún hafi frá upphafi stutt
frekari straummælingar við Land-
eyjahöfn. Settur var fastur straum-
mælir utan við höfnina í fyrrasumar.
Fljótt kom í ljós að sandurinn olli of
miklum truflunum til að upplýsing-
arnar væru áreiðanlegar.
„Vegna mikils ölduróts við strönd-
ina hefur verið útilokað að gera stöð-
ugar straummælingar því hefð-
bundnir straummælar standast ekki
það álag sem þarna er, einkum yfir
vetrartímann. Þegar útséð var um að
tilraunir til straummælinga myndu
skila tilætluðum árangri kom til at-
hugunar nýleg tækni sem hefur ekki
verið reynd áður hér á landi í þessu
skyni. Er það radar sem komið er
fyrir í landi og skilar jafnóðum yf-
irborðsmælingum á straumi, öldu-
hæð og öldustefnum á tilteknu svæði.
Fyrstu athuganir benda til þess að
slíkur radar gæti komið að gagni við
straummælingar í Landeyjahöfn.
Verði niðurstaðan sú, verður hann
settur upp á næstu mánuðum,“ segir
í frétt Siglingastofnunar..
Aðgerðaáætlun fyrir Landeyjahöfn
Almannavarnir vinna að gerð aðgerðaáætlunar Viðbrögð verða æfð á næstunni Eimskip, útgerð
Herjólfs, kallar eftir straummælingum Siglingastofnun athugar með ratsjá til að mæla strauminn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herjólfur í flotkví Fresta varð björgunaræfingu sem fram átti að fara í dag því Herjólfur var ekki tiltækur.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Staðan er hvorki betri né verri en
hún hefur verið,“ sagði Guðlaugur
Ólafsson, einn þriggja skipstjóra
Herjólfs, um siglingar í Landeyja-
höfn. Hann er einnig í þarfagrein-
ingahópi um nýsmíði Herjólfs. Guð-
laugur sagði að menn ætli sér að láta
smíða nýja ferju og vonandi breyti
hún einhverju. En hvort það reynist
fullnægjandi er óvíst, að hans mati.
Hann sagði ýmsa í þarfagreininga-
hópnum vera þeirrar skoðunar að
nýr Herjólfur muni leysa vandann.
Aðrir vilji meina að einnig þurfi að
gera lagfæringar á höfninni og eru
skipstjórar Herjólfs þeirrar skoð-
unar.
„Við höfum alltaf verið á því að
það þurfi að lengja hafnargarðana
en við segjum um leið að við séum
ekki sérfræðingar í hafnargerð. En
það þarf eitthvað að koma til,“ sagði
Guðlaugur. Hann sagði skipstjórana
vilja losna við að úthafsaldan geti
brotnað á skut skipsins en Sigl-
ingastofnun hugsi um að minnka
sandburðinn í höfninni svo ekki þurfi
að dýpka eins mikið.
Guðlaugur segir að mjög gott
samstarf hafi verið á milli skipstjór-
anna á Herjólfi og Siglingastofnunar
undanfarið ár. Erfitt sé að fá fjár-
magn til framkvæmda og allt varð-
andi höfnina kosti mikla peninga.
Hann sagði að aðstæður væru mjög
breytilegar og nefndi að hann sigldi í
fimm daga áður en óhappið varð á
laugardag, þegar skipið rakst utan í
annan hafnargarðinn og skemmdir
urðu á skrúfu og stýri. Þessa fimm
daga var blíða og ekkert sem á bját-
aði.
Guðlaugur var ásamt öðrum skip-
stjóra á Herjólfi og fulltrúa Sigl-
ingastofnunar í Danmörku á mánu-
daginn var í tengslum við nýsmíði
Herjólfs. Þar voru þeir í hermilíkani
og líktu eftir siglingu Herjólfs inn í
höfnina við slæmar aðstæður. Þeir
munu fara fljótlega aftur og prófa þá
hvernig skrokklag skips hentar best
í Landeyjahöfn.
Guðlaugur sagði reynsluna hafa
sýnt að ferjan Baldur henti betur en
Herjólfur og sé stöðugri við siglingu
inn í Landeyjahöfn. Þar hjálpi
skrokklag Baldurs og lögun hans að
aftan en hún virðist henta betur við
þessar aðstæður en lögunin á skut
Herjólfs.
Siglingastofnun hefur sagt að
verulegir annmarkar séu á Herjólfi
til siglinga í Landeyjahöfn vegna
djúpristu og skrokklags skipsins.
Auk hönnunar og smíði nýrrar ferju
verður leitað leiða til að tryggja að
aðstæður við höfnina geri hentugri
ferju kleift að sigla þangað allt árið.
Skipstjórar Herjólfs vilja
fá lagfæringar á höfninni
Tilraunir gerðar í siglingahermi í Danmörku
Ljósmynd/Eyjafréttir
Skipstjóri Guðlaugur Ólafsson er í
þarfagreiningahópi Herjólfs.
Ljósin á jóla-
trénu í versl-
unarmiðstöðinni
Smáralind verða
kveikt klukkan
14 í dag og þá
hefjast Pakkajól
Smáralindar
formlega.
Smáralind hef-
ur um árabil
haldið Pakkajól þar sem fólk er
hvatt til að láta gott af sér leiða og
kaupa auka jólagjöf til að setja und-
ir jólatréð í Smáralind. Fjöl-
skylduhjálp Íslands, Mæðrastyrks-
nefnd og Hjálparstarf kirkjunnar
sjá um að koma pökkunum til
þeirra sem á að gleðja.
Pakkajól Smáralind-
ar hefjast í dag
Tvöfalt kjördæmisþing Framsókn-
arflokksins í Norðausturkjördæmi
verður haldið í íþróttahúsinu í
Reykjahlíð í dag og hefst klukkan
11. Þar verður valið á framboðslista
flokksins í kjördæminu.
Þingmennirnir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og Höskuldur Þór-
hallsson bjóða sig fram í 1. sæti,
Aðrir frambjóðendur eru Anna Kol-
brún Árnadóttir, sérkennari, Líneik
Anna Sævarsdóttir, skólastjóri,
Huld Aðalbjarnardóttir, fræðslu- og
menningarfulltrúi, Sigfús Karlsson,
framkvæmdastjóri, Margrét Jóns-
dóttir, leikskólakennari, Kristín
Thorberg, Þórunn Egilsdóttir, verk-
efnastjóri, Hjálmar Bogi Hafliðason,
grunnskólakennari, og Guðmundur
Gíslason, stjórnmálafræðinemi.
Framsóknarmenn kjósa á lista
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTBAKPOKAR
FRÁ 4.990 kr.
MARGIR LITIR.
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
- ABS hemlar
- Aksturstölva
- Armpúði
- Álfelgur
- Bakkmyndavél
- Orginal dráttarbeisli
- Fjarlægðarskynjarar
- Fjarstýrðar samlæsingar
- Geisladiskamagasín
- Geislaspilari
- Glertopplúga
- Hiti í sætum
- Hraðastillir
- Kastarar
- Leðuráklæði
- Leiðsögukerfi
- Litað gler
- Líknarbelgir
- Loftkæling
- Minni í sætum
- Rafdrifin sæti
- Rafdrifnar rúður
- Rafdrifnir speglar
- Reyklaust ökutæki
- Spólvörn
- Stöðugleikakerfi
- Útvarp
- Veltistýri
- Vökvastýri
- Þjónustubók
- Panorama sóllúga
- Lyklalaust aðgengi
- Audi Bluetooth
símakerfi
- Samlæsingar
- Smurbók
- Xenon aðalljós
- Þakbogar
Nýskráður 10/2007, ek. 72 þ.km,
bensín, 6 manna, sjálfskiptur.
Listaverð 5.690.000
Tilboð óskast.
Ekkert áhvílandi.
Skipti á ódýrari koma til greina.
Uppl. í síma 698 9898.
Til sölu
AUDI Q7 QUATTRO PREMIUM 4.2 V8