Morgunblaðið - 01.12.2012, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta er 12-14 milljóna króna verk –
miðað við útseldan taxta tveggja sér-
fræðinga sem unnu hjá sérstökum
saksóknara, samkvæmt fréttum í
fyrrahaust,“ sagði Árni B. Stefánsson,
augnlæknir og hellakönnuður, glettn-
islega um líkan sitt af Þríhnúkagíg.
Vandvirknislega gert líkanið er nú á
sýningu Félags trérennismiða á Ís-
landi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Síðasti
sýningardagur er á morgun, 2. desem-
ber.
Líkanið er gert í hlutföllunum
1:100. Byggt er á mælingum VSÓ
Ráðgjafar árið 2007 og á eigin mæl-
ingum og athugunum Árna árið 1991
og síðar. Hann seig fyrstur manna,
svo vitað sé, niður í þessa tröllauknu
hraunhvelfingu á Jónsmessu 1974.
Gígurinn er sá dýpsti sinnar gerðar í
heiminum og falinn undir yfirborðinu
skammt vestur af Bláfjöllum.
„Upphaflega smíðaði ég líkanið til
að auðvelda hönnun mannvirkja inni í
gígnum. Núverandi útfærsla höfðar
hins vegar til ímyndunarafls og barns-
ins í okkur öllum,“ sagði Árni. „Inn-
viðir líkansins eru mjög nákvæm eft-
irmynd af gígnum.“
Líkanið er smíðað úr 15 og 18 mm
þykkum krossviðarplötum sem Árni
sagaði út og límdi saman. Hann þurfti
að nota um 100 plötubúta til að ná
réttri hæð líkansins. Árni notaði svo
loftfræsara til að fullvinna yfirborðið.
Um 300-400 vinnustundir fóru í smíð-
ina. Hann sagði þetta verkefni falla
vel að yfirskrift sýningar Félags tré-
rennismiða í Ráðhúsinu sem er
„Skáldað í tré“.
Von er á niðurstöðu mats á um-
hverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra
framkvæmda við Þríhnúkagíg fyrir
eða um næstu áramót. Framkvæmd-
irnar eru hugsaðar til verndar gígnum
og að því gefnu og í framhaldi að opna
aðgengi fyrir ferðamenn. Hver sem
niðurstaðan verður gerir Árni ráð fyr-
ir að sýna líkanið aftur við það tæki-
færi, en þá með hugsanlegum mann-
virkjum inni í gígnum.
Hver er Sigurður?
Við hlið líkansins á sýningunni í
Ráðhúsinu er ljósrit af síðu Velvak-
anda í Morgunblaðinu 27. nóvember
1991. Fyrirsögn aðalgreinarinnar á
síðunni er „Skipun ofan frá“ og þykir
Árna hún táknræn. Þar undir er bréf
frá manni sem heitir Sigurður undir
fyrirsögninni „Opnum bláfjallageim“.
Árni segir að í stuttu bréfi Sigurðar
sé í fyrsta sinn bent á þann möguleika
að greiða ferðamönnum leið inn í Þrí-
hnúkagíg. Sigurður stingur upp á því
að „ríkissjóður leggi fram nokkurt fé
til rannsókna á hvelfingunni sjálfri
með það fyrir augum, að opnuð verði
leið inn í hana með jarðgöngum. Þá
fyrst höfum við eignast nýja nátt-
úruperlu Það hlýtur að verða stór-
kostleg tilfinning að koma inn í þenn-
an sannkallaða fjallasal, sem yrði þá
auðvitað upplýstur eins og þeir hellar
erlendis, sem hafa mikið aðdráttarafl
fyrir ferðafólk. Hefjumst þegar handa
með rannsóknir og framkvæmdir“.
Árni sagðist hafa mikinn áhuga á að
hafa uppi á Sigurði, ef hann er á lífi,
og helst að ræða við hann eða ein-
hvern sem þekkir til hans.
Bréf Sigurðar kom nokkru eftir að
Morgunblaðið birti hinn 7. júlí 1991
stóra myndskreytta grein um ferð
Árna og félaga hans í Þríhnúkagíg þá
um vorið. Var hún eina svörunin við
kynningu þeirra félaga sem fram kom
á opinberum vettvangi og var Árna
lengi hugleikin.
„Við félagarnir höfum verið með
gíginn í fóstri nánast síðan 1991,“
sagði Árni. „Ef ekkert hefði verið gert
þá hefði þetta haldið áfram að drabb-
ast niður. Sé tekið mið af ástandinu
2004 væri meira eða minna búið að
troða hlíðarnar niður, gróður og sé
tekið mið af þeim sex skiptum sem
mér er kunnugt um að lá nærri slysi
er nánast öruggt að þarna hefðu orðið
slys.“
Dýrasta perla hellanna
Síðastliðin níu ár hefur Árni varið
þriðjungi af starfskröftum sínum, um
700 stundum á ári, í þágu íslenskra
hella. Hann segir að Þríhnúkagígur
hafi tekið helming þess tíma og vernd
og varðveisla annarra hraunhella
hinn helminginn. Vinnustundirnar
vegna hellanna á þessu tímabili eru
að nálgast 7.000. Umhverfis- og auð-
lindaráðherra skipaði Árna nýlega í
samráðsnefnd um málefni er varða
verndun íslenskra hella.
Árni sér mikil verðmæti fólgin í
hellunum og þar er Þríhnúkagígur
dýrasta perlan.
„Að mati Williams Hallidays, stofn-
anda hraunhelladeildar Alþjóða-
hellasamtakanna (UIS), er gígurinn
merkasta hraunhellafræðilega fyr-
irbrigði jarðar,“ sagði hann. „Þessi
gígur er geysilega mikils virði og afar
mikilvægt að tryggja verndun hans
og varðveislu.“ Máli sínu til stuðnings
nefndi hann tvo hella, Silfru og Leið-
arenda, sem eru eftirsóttir viðkomu-
staðir ferðamanna. Árni kannaði
Leiðarenda fyrstur manna 1991 og
stóð síðan fyrir kortlagningu hans.
Hann sagði að ferðaþjónustan halaði
inn um 120 milljónir á hvorum helli á
hverju ári.
„Það rennur ekki króna af því til
varðveislu eða viðhalds þessara stór-
kostlegu náttúruminja sem einmitt
eru tilurð teknanna,“ sagði Árni.
„Þeir sem nýta þessar viðkvæmu
minjar lyfta ekki fingri. Þær eru að
drabbast niður.“ Hann vill breyta
þessu og sjá hluta tekna af nátt-
úruperlum renna til varðveislu
þeirra, viðhalds og rannsókna.
Fjársjóðir faldir í hellunum
Árni B. Stefánsson, augnlæknir og hellakönnuður, hefur gert nákvæmt líkan af dýrustu perlu íslenskra
hella – Þríhnúkagíg Líkanið er nú til sýnis á sýningu Félags trérennismiða í Ráðhúsi Reykjavíkur
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þríhnúkagígur Árni B. Stefánsson, augnlæknir og hellakönnuður, við líkan sitt af Þríhnúkagíg. Líkanið er gert í
hlutföllunum 1:100 og er mjög nákvæm eftirmynd af gígnum innanverðum. Árni útbjó lok sem falla nákvæmlega í
opið framan á líkaninu. Að aftanverðu eru lok í opum þar sem kemur til greina að opna leið inn í gíginn í gegnum
jarðgöng. Árni hefur einnig smíðað líkan að hugsanlegum mannvirkjum inni í gígnum, en þau verða sýnd síðar.
Tröllvaxið Í líkaninu eru tvö furðu
lostin tröll að skoða mannkríli.
Stærð tröllanna samsvarar 5 og 7
hæða húsum.
Gímaldið Mennirnir eru smáir sam-
anborið við Þríhnúkagíg sem er um
150 þúsund rúmmetrar að innanmáli.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
SKÍÐAPAKKAR
20% AFSLÁTTUR
ÞEGAR KEYPT ERU
SKÍÐI, BINDINGAR
OG SKÍÐASKÓR.