Morgunblaðið - 01.12.2012, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Stuttar fréttir ...
● Slitastjórn Kaupþings hefur ásamt
ráðgjöfum sínum og í nánu samráði við
kröfuhafaráð unnið að undirbúningi að
frumvarpi að nauðasamningi. Þetta
kemur fram á tilkynningu frá slit-
astjórnar Kaupþings.
Þar kemur einnig fram að Seðlabanki
Íslands þarf að samþykkja útgreiðslur
til kröfuhafa utan Íslands áður en unnt
er að leggja fram frumvarp að nauða-
samningi og Kaupþing hafi óskað eftir
slíku samþykki en svar hafi ekki borist
og því ljóst að ekki verði unnt að hefja
hið formlega nauðasamningsferli fyrir
áramót.
Slitastjórn muni veita kröfuhöfum
frekari upplýsingar þegar unnt verði.
Slitastjórn Kaupþings
bíður samþykkis SÍ
asta ári, miðað við það gæti fjárfest-
ing á ári numið einum milljarði til 1,5.
Ómar lagði á áherslu á að fjárfesting í
slíku kerfi verði að skila viðunandi
arðsemi. Og nefndi að 4G þjónustan
væri dýr eins og sakir stæðu, sú ódýr-
asta í Bretlandi kosti 37 pund eða
7.500 krónur. Að sögn Ómars er
skynsamlegt að fara í samstarf við
aðra um uppbyggingu á 4G og dreifa
þannig kostnaðinum, og benti á fá-
mennið sem hér er. Auk þess styttist
væntanlega í 5G farsímakerfi.
IFS greining mælir ekki með
kaupum í Vodafone. Það metur félag-
ið á 8,5 milljarða. Greiningardeild Ar-
ion mælir með kaupum í Vodafone
nærri neðri mörkum útboðsbils.
Ásmundur Tryggvason, forstöðu-
maður Fyrirtækjaráðgjafar Íslands-
banka, sagði aðspurður um greining-
arnar að honum þætti vanta innra
samræmi í greiningar, án þess að
vilja nefna nein nöfn. Gert væri ráð
fyrir vaxtahækkunum, sem væri
væntanlega vegna þess að efnahags-
lífið væri að vaxa, og töluverðum fjár-
festingum en á sama tíma væri spáð
litlum sem engum vexti. Varla væri
fjárfest mikið í fjarskiptarekstri, ef
ekki væri búist við tekjuaukningu.
„Þetta rímar ekki í mínum bókum,“
segir hann.
4G farsímakerfi kostar
Vodafone þrjá milljarða
Forstjóri Vodafone hefur áhuga á samstarfi við aðra um uppbygginguna
Morgunblaðið/Styrmir
Þögull Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, upplýsir ekki hvað 4G kostar.
Helgi Vífill Júlíuson
helgivifill@mbl.is
Það kostar Vodafone um þrjá millj-
arða króna að ráðast í uppbyggingu á
4G farsímakerfi. Fjárhæðin myndi
dreifast yfir þann tíma sem uppbygg-
ingin tekur, en það gætu verið fáein
ár. Fyrst væri mögulega byggt á höf-
uðborgarsvæðinu og svo úti á landi,
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins. Forstjóri fyrirtækisins segir
skynsamlegt að fara í samstarf við
aðra á markaðnum í uppbyggingu á
slíku kerfi.
Fyrirtækið fer í útboð í byrjun
mánaðar og ef allt gengur að óskum
verður það skráð í Kauphöllina.
Framtakssjóður Íslands á 80% hlut í
fyrirtækinu og býður til sölu 50-60%
hlut. Samkvæmt útboðsgengi er
Vodafone metið á 9,7 til 11,2 millj-
arða.
Ómar Svavarsson, forstjóri Voda-
fone, upplýsti ekki á fundi með fjár-
festum sem VÍB stóð fyrir í gær hvað
uppbygging á 4G farsímakerfi muni
kosta fyrirtækið. Hann lagði áherslu
á að fyrirtækið ætti að halda sig við
alþjóðleg viðmið um að fjárfesta í inn-
viðum fyrir um 8-12% af veltunni á
ári. Það væri skynsamlegt. Fyrirtæk-
ið velti 12,7 milljörðum króna á síð-
Fyrstu tíu mán-
uðina 2012 voru
fluttar út vörur fyr-
ir 526,8 milljarða
króna en inn fyrir
461,8 milljarða
króna fob. Afgang-
ur var því á vöru-
skiptunum við útlönd, reiknað á fob
verðmæti, sem nam 65,1 milljarði
en á sama tíma árið áður voru þau
hagstæð um 90,7 milljarða á sama
gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var
því 25,6 milljörðum króna lakari en
á sama tíma árið áður, samkvæmt
frétt á vef Hagstofu Íslands.
Í októbermánuði voru fluttar út
vörur fyrir 63,3 milljarða króna og
inn fyrir 48 milljarða króna fob.
Vöruskiptin í október voru því hag-
stæð um 15,2 milljarða króna. Í
október 2011 voru vöruskiptin hag-
stæð um 8,3 milljarða króna á sama
gengi. Mest aukning varð í útflutn-
ingi sjávarafurða, aðallega á fersk-
um fiski. Á móti kom samdráttur í
verðmæti útflutnings iðnaðarvara,
aðallega áls og álafurða. Fyrstu tíu
mánuði ársins 2012 var verðmæti
innflutnings 29,9 milljörðum meira
en á sama tíma í fyrra.
Óhagstæðari
vöruskipti
25,6 milljörðum
lakari en í fyrra
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./,
,00.1
+,2.+3
,+.43,
,,.04
+4.4,/
+/-.,1
+.-+2
+1,.,,
+2,.1-
+,-.2,
,0+./1
+,2.-+
,+.102
,,.+3-
+4.454
+/-.25
+.-,03
+1,.51
+2/.3+
,,3.2,32
+,-.1,
,0+.44
+,2.44
,+.15
,,.,+
+4.1//
+/2.0-
+.-,34
+1/./2
+2/.45
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Útflutningur á þjónustu á þriðja árs-
fjórðungi 2012 var, samkvæmt bráða-
birgðatölum, 124,1 milljarður en inn-
flutningur á þjónustu 89,3 milljarðar
króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á
þriðja ársfjórðungi var því jákvæður um
34,8 milljarða króna en var jákvæður
um 28,7 milljarða á þriðja ársfjórðungi
2011 á gengi hvors árs, segir í frétt á vef
Hagstofu Íslands. Samgöngur eru
stærsti þjónustuliður í útflutningi og af-
gangur vegna þeirrar þjónustu var 27,6
milljarðar. Önnur þjónusta er stærsti
liður í innflutningi og nam halli á þeirri
þjónustu 12,9 milljörðum. Afgangur
ferðaþjónustu var 20,1 milljarður króna.
Útflutt þjónusta fyrir
124,1 milljarð króna
Ferðamenn Afgangur ferðaþjónustu var
20,1 milljarður á 3. ársfjórðungi.
Hugljúfar gjafir
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
SONOKO „Caring Friend”
My spirit is generous and sincere.
● Norðurorka hefur undirritað samning
um kaup á gashreinsistöð frá fyrirtæk-
inu Greenlane – Flotech í Svíþjóð. Stöð-
in hreinsar metan úr svonefndu haug-
gasi sem vinna á úr gömlu
sorphaugunum á Glerárdal.
Á vef Norðurorku kemur fram að
stöðin er svonefnd vatnshreinsistöð.
Verð stöðvarinnar með uppsetningu
er um 115 milljónir króna en þá er ótal-
inn kostnaður við jarðvegsfram-
kvæmdir við undirstöður og lóð.
Afgreiðslustöð fyrir metanið mun
rísa á lóð sem verður á gatnamótum
Súluvegar og Miðhúsabrautar vestan
Mjólkursamsölunnar. Nánar á mbl.is
Norðurorka kaupir metangasstöð