Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 35
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
BOLTAR
FRÁ 1.990 kr.
HANDBOLTAR,
KÖRFUBOLTAR,
FÓTBOLTAR.
Hallur skorar illvígasta TABÚ veraldar á hólm
Váfugl gerist seint á núöld þegar Ísland leitar útgöngu úr stórríki Evróníu ...
Eyjatröllið Krummi tekst á við hinn svarta váfugl sem hefur hreiðrað um sig
djúpt, djúpt í myrkviðum mannlegrar vitundar.
„Besta bók frá Íslandi síðan SJÁLFSTÆTT FÓLK...“
- Dan Hannan, Evrópuþingmaður
„Allt í senn hrollvekja, spennusaga og ádeila ...“
- Hrafn Jökulsson
Lævíslega læðist kolsvartur váfugl aftan að mannkyni ...
Nýir tímar - Ný útgáfa
„Þú hefur fundið helvíti, minn kæri Krummi!“ hrópar Helgi undrandi.
„Dýflissu mannkyns,“ botnar tröllið.
Váfugl brýnir,
glyrnur gráðugar,
ágrind, öfund,
mannlíf siðspillist.
Klær kreppast.
Hugljúfar gjafir
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
YORIKO „Dependable”
My spirit is steady and true
Það er sérstakt að
sækja um aðild að
ESB þegar kreppa
herðir að Evrópu og
framtíðin er jafn óviss
og raun ber vitni. Því
er ekki að neita að
margir landa minna
líta Íslendinga öfund-
araugum því þið hafið
samning án þess að
sæta ofríki ESB.
Frelsið er of dýrmætt
að glata. Maður saknar ekki fyrr
en misst hefur.
Við sem viljum úrsögn Bretlands
úr ESB komum víða að. Úrsögn er
ekki hægri/vinstri pólitík. Nógu
margt sameinar okkar til þess að
fylkja liði í baráttunni fyrir úrsögn
úr ESB. Pólitísk samstaða þýðir
meiri styrk og vonandi tekst okkur
að knýja fram þjóðaratkvæða-
greiðslu á næstu misserum.
Þið Íslendingar ættuð að skoða
nokkra þætti áður en því takið svo
dramatíska ákvörðun sem aðild að
ESB er; lýðræði ekki síður en efna-
hags- og gjaldeyrismál. Kreppan á
evrusvæðinu hraðar samruna ríkja,
fæðingu evrópsks stórríkis. Evran
hefur brugðist of mörgum þjóðum.
Hún er víti til varnaðar. Evran
stjórnast af hagmunum Þýska-
lands. Þjóðir, sem ekki slá þýskan
takt, hafa orðið illa úti.
ESB er ekki lýðræðisstofnun
Brussel er klúbbur sem ég hef
miklar efasemdir um. Ég á erfitt
með að skilja að nokkur þjóð vilji
gerast aðili að bandalagi sem ekki
hlítir lýðræðislegu skipulagi. ESB
skaðar þjóð mína og kjósendur.
Kreppan í Evrópu væri ekki svo
skelfileg ef hlustað væri á rödd al-
mennings og brugðist við í sam-
ræmi við vilja fólksins. Evrópusam-
bandið hlítir ekki reglum lýðræðis.
Evrópuþingmenn eru kosnir af
flokkslistum og fáir Bretar þekkja
sína þingmenn. Kjörsókn er skelfi-
leg, kostnaður yfirþyrmandi. Kjör
elítunnar í Brussel eru algjörlega á
skjön við laun í Bretlandi. Það er
sagt að þjóðir verði að vera „inni“
til þess að hafa áhrif. Það er alið á
ótta. En ég get sagt ykkur hrein-
skilnislega að í Brussel er ekki
hlustað á rödd Bretlands. Hið sama
yrði upp á teningnum varðandi Ís-
land. Um það er ég alveg viss.
Mantra evrópuelítunnar er „stöð-
ugt nánara bandalag“. Þeir láta
„smámuni“ eins og lýðræði ekki
stöðva sig. Flestar ákvarðanir eru
teknar bak við luktar dyr og marg-
ar ganga gegn lögum einstakra
ríkja. Ef þjóðir dirfast að hafna
sáttmálum – líkt og Danir, Frakkar
og Írar gerðu – þá er þeim sagt að
kjósa aftur. Engin þjóð sem hefur
sagt „já“ á nokkurn kost að breyta
skoðun sinni. Tannhjólið vindur
stöðugt upp á sig í átt að stórríki.
Brussel gefur ekki eftir þumlung.
Hundrað þúsund störf í súginn
Ég veit að eitt helsta áhyggju-
efni ykkar Íslendinga eru áhrif
ESB-aðildar á sjávarútveg. Sam-
eiginleg fiskveiðistefna ESB tekur
fyrst og fremst tillit til
hagsmuna spánskra
fiskimanna, líkt og
landbúnaðarstefnan
tekur mið af hags-
munum franskra
bænda. Í júlí síðast-
liðnum kom út skýrsla
sem er stórfelldur
áfellisdómur yfir sjáv-
arútvegsstefnu ESB.
Skýrslan er eftir
Mörtu Andreasen sem
er Evrópuþingmaður
fyrir Suðaustur-
England. Fram kemur fram að um
eitt hundrað þúsund störf hafa tap-
ast í breskum sjávarútvegi vegna
ESB. Marta vann fyrir fram-
kvæmdastjórn ESB. Hún var rekin
eftir að hafa opinberað spillingu í
Brussel. Hún er ein fjölmargra
hugrakkra Evrópubúa sem hafa af-
hjúpað sóun og spillingu innan
ESB en mátti sæta ofríki og út-
skúfun. Í 18 ár samfleytt hafa end-
urskoðendur ESB neitað að skrifa
upp á reikninga sambandsins.
Sameiginlega sjávarútvegs-
stefnan tæki yfir íslenskan sjávar-
útveg. Þið fengjuð einhverjar tíma-
bundnar undanþágur en hratt
flýgur stund. Í stað skynsemi kæmi
dýrt kerfi sóunar stjórnað af búró-
krötum sem ekkert vita um fisk-
veiðar. Jafnvel sjávarútvegs-
framkvæmdastjóri ESB
viðurkenndi á síðastliðnu ári að
sameiginlega sjávarútvegsstefnan
gengi ekki upp.
Við viljum okkar lýðræði aftur
Ekkert breytist, né mun breyt-
ast nema þjóðir fái aftur stjórn
sinna mála. Evrópuþingið kveðst
vilja umbætur en framkvæmda-
stjórnin drepur þær jafnan í dróma
með stöðugt meiri útgjöldum fyrir
skattgreiðendur. ESB er rándýrt
apparat, 65% Breta vilja út. Það er
áskorun að sannfæra breskan al-
menning um bjarta framtíð utan
ESB. Við þurfum að móta stefnu
sem verður skýr valkostur fyrir
breskan almenning.
Andstæðingar ESB á Íslandi
verða að skapa þverpólitíska sam-
stöðu. Þið megið aldrei vanmeta
vilja ESB til að gleypa ykkur. Þeir
munu dæla inn peningum til þess
að hafa áhrif á fólk og stofnanir.
Við höfum séð það gerast, nú síðast
í ríkjum A-Evrópu. Að mínu mati
væri rétt að hætta viðræðum. Nú
eru 3½ ár frá því viðræður hófust
og þeir hafa ekki einu sinni opnað
sjávarútvegskaflann. Það er allt
sem segja þarf um farinn veg. Þeir
þreyta laxinn. Viðræður hafa verið
um ekki neitt sem máli skiptir.
Ég segi því enn og aftur. Lýð-
ræði er of dýrmætt að glata. Bret-
ar vilja endurheimta lýðræði. Við
viljum ráða málum okkar, slíta
tengsl við útþanið búrókratískt
bákn sem kallar sig Evrópusam-
bandið.
Ávarp til Íslendinga –
Lýðræði er of dýrmætt að glata
Eftir Kate Hoey » Bretar vilja end-
urheimta lýðræði.
Við viljum ráða málum
okkar, slíta tengsl við
útþanið búrókratískt
bákn sem kallar sig
Evrópusambandið.
Fyrri grein.
Kate Hoey
Höfundur er þingkona Vauxhall í
London fyrir Verkamannaflokkinn og
flutti nýlega erindi á málþingi Ís-
lensks þjóðráðs.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði