Morgunblaðið - 01.12.2012, Side 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
✝ Jónbjörg Sess-elja Eyjólfs-
dóttir fæddist á
Bjargi, Borgarfirði
eystra, 14. ágúst
1931. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Hlíð 16. nóvember
sl.
Hún var fimmta
í röð sex barna
Eyjólfs Hann-
essonar og Önnu
G. Helgadóttur. Elst var Sigríð-
ur Ingibjörg nú látin, Helgi
Sigurbjörn lést ungur, Helgi nú
látinn. Árni Hannes og Kristín
Sigurlaug búa nú orðið á Egils-
stöðum. Á Bjargi bjuggu í æsku
hennar amma hennar og afi
Sigríður Eyjólfsdóttir og Hann-
es Sigurðsson og þar ólst upp
systursonur hennar Rúnar Eyj-
ólfur. Jónbjörg giftist 12. febr-
úar 1956 Sigurði Óskari Páls-
syni kennara og síðar
safnverði. Hann lést í apríl sl.
Hann var sonur Páls Sveins-
sonar og Þuríðar Gunn-
arsdóttur í Geitavík. Jónbjörg
og Sigurður dvöldust fyrstu ár-
in sín þar í sambýli við Daníel
bróður hans og konu hans Mar-
gréti en reistu sér nýbýlið
Skriðuból og fluttu þangað árið
1959. Börn Sigurðar og Jón-
Hallgrímsson. Þau eiga tvö
börn og eitt barnabarn. Jón-
björg dvaldist um tíma á Ak-
ureyri og í Húnavatnssýslu og
fór síðan í húsmæðraskólann á
Laugum. Fjölskyldan bjó á
Skriðubóli til 1971 en flutti þá í
Eiða þar sem Sigurður tók við
skólastjórastarfi Barnaskólans.
Jónbjörg vann við skólann,
bæði í mötuneytinu og við
ræstingar og sinnti gæslu og
umsjón á heimavist. Hún vann
eitt ár á Álafossi meðan Sig-
urður var í námsleyfi í Reykja-
vík. Árið 1984 fluttu þau hjón í
Egilsstaði. Þar vann hún fyrst
á Prjónastofunni Dyngju og
síðan fram til ársins 1996 í
mötuneyti ME. Árið 2000 fluttu
þau til Akureyrar og keyptu í
félagi við dóttur sína og
tengdason húsið Gilsbakkaveg
13. Þar bjuggu þau fram í jan-
úar 2011 er þau fluttu í raðhús
við Dvalarheimilið Hlíð. Á vor-
mánuðum í ár fluttu þau inn á
Dvalarheimilið og varð það
þeirra síðasta heimili. Jónbjörg
var tónelsk og músíkin var
henni í blóð borin. Hún söng í
ýmsum kórum, s.s. kirkjukór
Borgarfjarðar, Kirkjukór Eiða-
kirkju, Tónkór Fljótsdalshér-
aðs og Kirkjukór Egilsstaða,
og loks í kór eldri borgara á
Héraði og síðast á Akureyri.
Hún samdi falleg ljóð og texta.
Málefni barna og velferð þeirra
var henni mikið hjartans mál.
Útför Jónbjargar fer fram
frá Egilsstaðakirkju í dag, 1.
desember 2012, og hefst kl. 11.
bjargar eru: Þur-
íður, f. 1953, leik-
skólakennari, maki
Víkingur Daní-
elsson. Þau eiga
þrjú börn og sex
barnabörn. Anna,
f. 1954, starfar við
Kværndrupkirkju
á Fjóni, maki Guð-
mundur Eiríksson.
Þau eiga þrjú börn
og fjögur barna-
börn. Sigríður, f. 1957, þjón-
ustufulltrúi, maki Friðjón Ingi
Jóhannsson. Eiga þau þrjú
börn og tvö barnabörn. Páll, f.
1958, málmiðnaðarmaður,
maki Sigrún Bjarnadóttir.
Fyrri maki Guðrún M. Þor-
bergsdóttir, lést 1991. Þau
eignuðust tvö börn og eiga eitt
barnabarn. Sigþrúður, f. 1959,
kennari á Fljótsdalshéraði.
Samhliða kennarastarfinu rek-
ur hún ásamt sambýlismanni
sínum Magna Þórarni Ragn-
arssyni fjárbú á Brennistöðum.
Þau eiga þrjú börn og eitt
barnabarn. Hannes, f. 1960,
sölumaður á Akureyri. Maki
Hildur Stefánsdóttir. Með fyrri
konu Guðrúnu Heimisdóttur á
hann 4 börn og sjö barnabörn.
Sesselja, f. 1962, leik-
skólaráðgjafi, maki Davíð Jens
Ég hef, á fullorðinsárum, oft
saknað þess hve lítt móttækileg
ég var, sem unglingur, fyrir þeim
fróðleik sem foreldrar mínir
gjarnan jusu af sínum nægta-
brunnum. Þegar ég hafði þroska
til að taka á móti skildu fjöll og
firðir, síðar höf og lönd.
Ófá símtölin höfum við átt, sér-
staklega við mamma. Þar var
spjallað um gamalt og nýtt. Hún
fékk fréttir af fjölskyldu minni, en
hún bar hag okkar allra mjög fyr-
ir brjósti. Ég fékk fréttir að heim-
an og það var eitthvað sérstakt ef
við skiptumst ekki á gamansög-
um, gjarnan einhverju sem hent
hafði okkur sjálfar, sem við svo
skellihlógum að.
Mamma og pabbi náðu að koma
tvisvar til okkar eftir að við flutt-
um til Danmerkur og ég veit að
mamma hefði viljað koma oftar,
en pabbi var ekki mikið fyrir
ferðalög síðustu árin og hún vildi
fyrir engan mun fara frá honum.
Ég átti betur heimangengt og
þegar þau ekki komu til okkar fór
ég til þeirra og átti margar góðar
samverustundir með þeim á
þeirra ævikvöldi.
Mig dreymdi alltaf um að
mamma kæmi til okkar að hausti,
þegar ávextirnir væru þroskaðir,
svo hún gæti upplifað að tína þá
beint af trjánum. Ég minnist þess
þegar hún, í fyrstu heimsókninni
til okkar, stóð við borðstofuglugg-
ann, horfði á gamla perutréð og
spurði: „Vaxa virkilega perur á
þessu tré?“
Ein heimsókn mín til Íslands
stendur upp úr í minningunni. Ég
var á ferðinni, í fyrrasumar, með
danskan þjóðdansahóp, sem ég
dansa í. Danshópurinn Vefarinn á
Akureyri tók á móti okkur og kom
því til leiðar að við dönsuðum á
dvalarheimilinu Hlíð, en þá
bjuggu foreldrar mínir í einu af
litlu húsunum þar. Ég var svo
innilega glöð og jafnframt svo
hrærð að þó að mig langaði allra
mest til að labba með mömmu og
kynna hana fyrir öllum hópnum
og segja – helst að hrópa: „Þetta
er elskuleg móðir mín sem ég er
svo stolt af“ þá gat ég það ekki, ég
stóð bara með tárin í augunum.
Ég er svo þakklát fyrir að við
skyldum fá að dansa á Hlíð og
þegar ég kynnti hápunkt dag-
skrárinnar okkar var ég við það
að skæla. Leiðbeinandinn okkar
hafði gert það fyrir mig að semja
dans við undurfallegan vals eftir
ömmu mína, Önnu G. Helgadótt-
ur, og dönsuðum við hann í þess-
ari ferð og fyrst af öllu þarna á
dvalarheimilinu, til heiðurs
mömmu og ömmu og ég í upphlut-
num hennar mömmu.
Mér þótti svo vænt um að geta,
með þessum hætti, sýnt henni
virðingu mína og þakklæti fyrir
allt sem hún hefur gert fyrir mig.
Hún elskaði tónlist og dans. Hún
átti bágt með að sitja kyrr ef góð
danstónlist hljómaði í útvarpinu
og man ég hana þar sem hún tók
dansspor á eldhúsgólfinu heima á
Skriðubóli, jafnvel með kústinn ef
hún var að sópa.
Ég kveð kæra móður mína með
dýpstu virðingu og hjartans þökk.
Læt hér fylgja litla vísu sem ég
samdi sem unglingur:
Barst til mín bláklukkna angan frá heið-
inni,
brosandi kinkuðu þær kolli mót sól-
inni,
kiknuðu, er næturhúm nákaldri dögg-
inni dreifði
og drúpa nú fölar að jörðinni.
Anna Sigurðardóttir.
Nú ertu fallið fagra tré
og fölnað græna laufið þitt.
Ég finn hve sárt ég sakna þín
þú sífellt gladdir hjarta mitt.
Þú stóð svo hnarreist hátt og traust
og hrærðist lítt við stormsins þyt.
Á haustin barstu blómin hvít
og berin rauð og fagurlit.
Þetta ljóð Margrétar Jónsdótt-
ur, Reynitréð, hefur ómað í höfði
mér undanfarið eftir að féll til
foldar fagurt tré, er mamma mín
Jónbjörg lést eftir stutt veikindi.
Þessi texti lýsir henni og lífs-
göngu hennar vel. Hún stóð hnar-
reist og tók með reisn hvaða veðri
sem var og stóð af sér, hvort sem
andaði blítt af suðri eða beljaði
stormur af norðri. Æðrulaus tók
hún því sem lífið lagði henni upp í
hendur. Hún svignaði kannski
undan sterkustu byljunum en
stóð samt einatt keik, því stofn
hennar og rætur voru sterkar.
Hún kvaddi lífið eins hún gekk um
vegi þess af hljóðlátri virðingu.
Þegar pabbi lést í apríl sl. var
sem slokknaði ljós í augum henn-
ar og það ljós kviknaði ekki aftur
til fulls. Það kom í raun fáum í
opna skjöldu að hún fylgdi honum
fast á hæla, jafn samstiga og þau
voru á lífsgöngunni, þó að ólík
væru. Ég og fjölskylda mín eigum
henni margt að þakka því leiðir
okkar lágu svo lengi samsíða. Ég
bjó hjá þeim meðan ég var í skóla
á Eiðum og eins þegar eldri sonur
okkar hjóna fæddist. Á Egilsstöð-
um var stutt milli húsa fyrir litla
fætur að trítla. Þegar fyrir lá að
við flyttum til Akureyrar sam-
þykktu þau að koma með okkur.
Pabbi var orðinn það lasinn að
hann þurfti að búa nær sértækri
læknisþjónustu. Þau orðuðu það
svo að fyrst þau gætu ekki átt
heima á Borgarfirði, væri þeim al-
veg sama hvar þau byggju.
Að leiðarlokum færi ég henni
þakkir. Ég þakka henni fyrir að
vera alltaf til staðar, fyrir klapp á
kinn og þerruð tár, fyrir allar vís-
urnar og ljóðin sem hún söng, fyr-
ir dansana sem hún kenndi og
sögurnar sem hún sagði. Þakka
allar fallegu flíkurnar sem hún
saumaði langar dimmar nætur er
aðrir sváfu rótt, fyrst á börnin sín
öll og síðar börnin mín. Ég þakka
henni þrautseigju og þolinmæði
við uppeldi barnanna sjö sem hún
ól af sér á 9 árum. Ég þakka fyrir
lífsgleðina og jákvæðnina sem
hún miðlaði, fyrir það að hlæja svo
dátt að hún stóð ekki í fæturna og
sjá bjarta hlið á öllum málum. Ég
þakka henni fyrir að kenna mér
að njóta fegurðar náttúrunnar,
þekkja nöfn blómanna og
fuglanna. Þakka henni fyrir að
vera amma, sem ætíð var til stað-
ar fyrir börnin mín, þolinmóð,
skilningsrík og alltaf reiðubúin að
gera eitthvað skemmtilegt. Af al-
úð þakka ég henni fyrir að vera sá
óbilandi klettur, sem stóð að baki
pabba gegnum tíðina, frá því
heilsu hans tók að hraka, til hinstu
stundar. Í blíðu jafnt sem stríðu
studdi hún hann og þau hvort ann-
að. Einnig vil ég þakka henni fyrir
að vera tengdamamman sem tók
17 ára pilti opnum örmum fyrir
nær 40 árum er hann flutti inn á
heimilið.
Að síðustu vil ég þakka henni
fyrir að ala mig upp með sam-
viskusemi og heiðarleika að leið-
arljósi og umfram allt þakka ég
henni fyrir að vera mamma mín
og það vera nákvæmlega sú sem
hún var.
Sigríður Sigurðardóttir.
Margs er að minnst og af
mörgu er að taka er ég minnist
móður minnar Jónbjargar Sess-
elju sem andaðist að kvöldi 16.
nóvember síðastliðinn. Hún
kvaddi hérvist á þann friðsæla
hátt sem þeir einir gera sem sáttir
eru að ævikvöldi.
Mér hefur alltaf fundist sér-
stakur ljómi yfir þeim æskumynd-
um sem hún dró svo sterkum lit-
um fyrir okkur börnin sín.
Þegar hún sat við stofuglugg-
ann heima á Bjargi á aðventunni
og horfði út á hafið og beið eftir
jólasveinunum. Amma hennar
hafði sagt henni að þeir kæmu ró-
andi á skinnbáti frá Noregi.
Þegar Steini Run sagði henni
að hann hefði séð jólasveinastelpu
uppi í fjárhúsi. Hún hefði setið
klofvega á bita og rekið út úr sér
tunguna.
Þegar hún og Stína systir
hennar hlupu saman í haust-
myrkri og báðar fengu ákomu á
andlit, Stína á ennið og mamma á
munninn. Þegar svo strákurinn
hann Sigurður í Geitavík sá hana
svona útlítandi stillti hann sér upp
fyrir framan hana og sagði: „Hef-
ur þú barist við hrúta?“ Ekki hef-
ur Sigurði litist verr á dömuna en
svo að síðar meir bundust þau
tryggðaböndum sem entust út
ævi þeirra.
Þegar tundurduflið sprakk í
fjörunni við Bakkagerði og öllu
fólkinu var safnað saman í skól-
anum.
Þegar hún var send með mat og
kaffi handa afa Eyjólfi sem var að
heyja á engjum.
Þegar hún lék sér í fjörunni,
uppi á Bakkamel og niðri við Álfa-
borg og þegar hún fékk hláturs-
kastið í söngtíma hjá ömmu á
Bjargi.
Mamma deildi sínum minning-
um með okkur börnunum sínum
og kenndi okkur að deila okkar
minningum með okkar börnum og
barnabörnum.
Eitt sem ég tileinkaði mér af
hennar áhugamálum var blóma-
áhuginn. Hún kenndi mér að leita
í blómabókum, finna sérkenni
blóma og læra nöfnin á þeim.
Margir sem þekktu móður mína,
og hafa einhvern tíma verið stadd-
ir með henni úti í náttúrunni, hafa
heyrt hana segja: „Nei hvað sé ég
nú hér?“ þá hefur hún rekist á
eitthvert blómið sem þar hefur
stungið upp kolli sínum. Tvö blóm
tengi ég sérstaklega við mömmu,
það eru bláklukkan og lyngbúinn.
Bláklukkan var alls staðar í kring-
um Skriðuból en lyngbúinn aftur
á móti sjaldgæfur og hún varð
alltaf svo glöð þegar hún rakst á
hann.
Eftir að foreldrar mínir fluttu
burt frá Borgarfirði og komu
heim á Bólið sitt átti mamma sér
stað ofan við tún þar sem hún
lagðist gjarnan út af og dró að sér
ilminn úr jörðinni og blænum og
kom endurnærð til baka.
Með virðingu og þökk kveð ég
móður mína eftir 60 ára samfylgd.
Orð.
Orð eru til alls fyrst.
Stór orð, lítil orð,
allskonar orð.
Hlý orð, kærleiksrík orð,
bænarorð.
Orð.
Að hugga
með nokkrum orðum.
Að sýna kærleik
í nokkrum orðum.
Að óska alls hins besta
með nokkrum orðum.
Orð.
Huggunarorð, þakkarorð,
kveðjuorð.
Þuríður Sigurðardóttir.
Móðir mín, brosið, hlýjan, hlát-
urinn, faðmurinn, ljóðin, sögurn-
ar, blómin, steinarnir, þolinmæð-
in, útjónarsemin, æðruleysið.
Röddin hennar, þessi einstaka
rödd sem hljómaði í sögum og
söngvum, ljóðum og vísum allt til
síðasta dags. Mamma sem kenndi
mér svo margt. Amma sem pass-
aði litlu skottuna mína þegar við
bjuggum á Egilsstöðum og
kenndi henni sæg af ljóðum og
söngvum. Amma sem las fyrir
strákinn minn kvöld eftir kvöld
þegar við áttum saman ljúfa tíma
á sumrin á Skriðubóli. Langamma
sem tók á móti litla stubbnum
mínum með súkkulaðimola og
rauli.
Þegar ég var níu ára gömul
Jónbjörg Sesselja
Eyjólfsdóttir
Munið minningarkort
Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Pantanir á www.skb.is eða
í símum 588 7555 eða 897 8974.Til minningar um
hefur Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna
verið færð minningargjöf
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Hlíðasmári 14 - 201 Kópavogur
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi og langalangafi,
JÖRGEN BERNDSEN
trésmiður,
frá Skagaströnd,
lengst af búsettur í Hlaðbrekku,
Kópavogi,
síðast til heimilis
á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu,
Kópavogi,
andaðist aðfaranótt sunnudags 25. nóvember.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn
3. desember kl. 13.00.
Sigurbjörg Lárusdóttir,
Stella,
Bára Berndsen,
Fritz Berndsen, Indíana Friðriksdóttir,
Lára Berndsen, Jón Karl Scheving,
Bjarki Berndsen,
Regína Berndsen, Bragi Þór Jósefsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SELMA JÓHANNA SAMÚELSDÓTTIR
frá Steinstúni,
lést fimmtudaginn 29. nóvember á Höfða,
hjúkrunar- og dvalarheimili, Akranesi.
Minningarathöfn verður í Akraneskirkju
fimmtudaginn 6. desember klukkan 14.00.
Útförin fer fram frá Árneskirkju í Trékyllisvík
laugardaginn 8. desember kl. 14.00.
Ágúst Gíslason,
Gísli Ágústsson, Jóhanna Kristín Teitsdóttir,
Samúel Ágústsson, Anna Berglind Einarsdóttir,
Guðlaugur A. Ágústsson, R. Edda Hafsteinsdóttir,
Ingibjörg Ágústsdóttir, Már Einarsson,
Arnar H. Ágústsson, Steinunn Ó. Benediktsdóttir
og ömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
SIGURÐUR ÞORKELL ÁGÚSTSSON
símsmiður,
Langholtsvegi 89,
andaðist á Landspítalanum, Fossvogi,
fimmtudaginn 29. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grensáskirkju
fimmtudaginn 6. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
Aðalheiður Þórormsdóttir,
Stefán Þór Sigurðsson, Lilja Guðmundsdóttir,
Ágúst Már Sigurðsson, Svava Ásdís Steingrímsdóttir,
Jóna Björg Sigurðardóttir, Kristján S. Kristjánsson,
Þröstur Sigurðsson, Sigfríð Sigurðardóttir,
Sigurður Sigurðsson, Lára Bæhrenz Þórðardóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar,
BALDUR SIGTRYGGSSON,
Auðbrekku 10,
Húsavík,
sem lést 19. nóvember verður jarðsunginn
frá Húsavíkurkirkju mánudaginn 3. desember
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
Kristján Hólmgeir Sigtryggsson,
Fanney Sigtryggsdóttir,
Guðrún Björg Sigtryggsdóttir,
Berglind Sigtryggsdóttir.