Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 42
42 MESSUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
✝ Egill SigurjónBenediktsson
fæddist á Kópa-
reykjum í Borg-
arfirði, 14. júlí
1953. Hann lést 16.
nóvember 2012.
Foreldrar hans
voru Sigríður Sig-
urjónsdóttir frá
Kópareykjum, f.
29. september
1925, d. 26. febrúar
1960, og Benedikt Egilsson, f.
12. febrúar 1922, d. 17. janúar
2010. Systkini Egils eru: Helga,
f. 1948, Margrét, f. 1950, Indriði,
f. 1951, Jakobína Eygló, f. 1952,
Guðrún, f. 1957, og Sigrún, f.
1959. Sambýliskona Egils er
Guðrún Björg Guðmundsdóttir,
f. 17. mars 1958. Synir þeirra
eru: a) Benedikt Rúnar, f. 8. júní
1983, sambýliskona hans er Ás-
björg Ýr Einarsdóttir. Sonur
þeirra er Egill Rúnar. b) Unnar
Bjarki, f. 7. júlí 1988, unnusta
hans er Elín Árdís
Björnsdóttir. Egill
var giftur Rósu
Hugrúnu Svandís-
ardóttur, þau slitu
samvistum. Börn
þeirra eru: a) Svan-
ur Þór, f. 16. sept-
ember 1972, kona
hans er Rut Garð-
arsdóttir, sonur
þeirra er Þórhallur
Ragnar. b) Hugrún
Ösp, f. 19. september 1973. Hún
á Ísak Örn og Lovísu Ósk Inga-
börn. Sambýlismaður Aspar er
Lars J. Handegaard.
Egill ólst upp á Kópareykjum
til 16 ára aldurs er hann fluttu
til Sauðárkróks og bjó þar til
æviloka. Hann lærði bifvéla-
virkjun í Iðnskólanum á Sauð-
árkróki og vann lengst af á
vinnuvélum.
Útför Egils verður gerð frá
Sauðárkrókskirkju í dag, 1. des-
ember 2012, kl. 11.
Elsku Egill.
Mig langar til að þakka þér
fyrir árin okkar rúmlega 30. Og
allar góðu stundirnar okkar sam-
an.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
Þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hvíl þú í friði.
Guðrún B. Guðmundsdóttir.
Elsku pabbi.
Núna ertu farinn og söknuður-
inn er svo óbærilegur.
Undanfarna daga hafa svo
margar endurminningar skotið
upp kollinum.
Þú kenndir okkur að klára öll
verkefni sem byrjað var á og
lagðir alltaf svo mikla áherslu á
að gera það eins vel og maður
gæti.
Þegar ég hugsa til baka sé ég
hversu duglegur þú varst í öllu
því sem þú tókst þér fyrir hend-
ur.
Í vinnunni, garðinum, sum-
arbústaðnum, bjarga mömmu
með eitthvað nú eða að brasa eitt-
hvað með okkur bræðrum.
Ég veit ekki hversu oft við
strákarnir stóðum niður á verk-
stæði og klóruðum okkur í hausn-
um yfir einhverjum vandamálum
þegar lausnin labbaði inn um
dyrnar. Og alltaf sama viðmótið
„ekkert mál“.
Við þökkum fyrir allar þær
góðu stundir sem við áttum hvort
heldur sem er heima við eða nið-
ur á verkstæðinu okkar þar sem
þú hjálpaðir okkur við jeppa-
breytingar og alltaf varstu til
staðar að standa við bakið á okk-
ur sama hvaða vitleysu okkur
datt í hug.
Ég sá síðasta sumar hvað þér
þótti vænt um að fá nafnann þinn
þegar við Obba skírðum ljósgeisl-
ann okkar. Og ég veit hversu
vænt þér þótti um hann. Ég
hlakka til þegar Egill Rúnar
verður nógu gamall til að skilja
hvaða nafn hann ber og af hverju.
Ég hlakka líka til þegar ég get
sagt honum sögur af afa sínum.
Með stolti.
Við erum ákaflega stoltir synir
sem eigum ykkur mömmu allt að
þakka. Þið gerðuð okkur að þeim
mönnum sem við erum í dag.
Elsku pabbi, við kveðjum þig
með sorg í hjarta. Þín verður sárt
saknað um ókomna tíð.
Hvíl þú í friði, kæri faðir.
Frá himnum svífa herskarar í nótt
og hugga þá sem gráta ofurhljótt.
Þau sýna okkur veröld þá sem var
og vísa áfram veg til framtíðar.
Við eigum þarna engla þú og ég
sem áttu sporin ljúf um æviveg.
Sem traustast ófu öll sín
tryggðabönd
og trúföst alltaf réttu hjálparhönd.
Í draumum okkar staldra þau
um stund
og styrkja þannig von um endurfund.
Frá brjóstum sindrar gullmolanna glit
og glæðir allan regnbogann með lit.
Er dagur rennur dögg er aftur ný
og dögun eilífðar er mjúk og hlý.
Í fangi sínu hefur frelsarinn
nú fólkið okkar, – líka himininn.
Svo demöntum er dreift um æviskeið
og dásamleg er farin litrík leið.
Frá himnum svífa herskarar í nótt
og hugga þá sem gráta ofurhljótt.
(Jóhanna H. Halldórsdóttir.)
Benedikt Rúnar Egilsson og
Unnar Bjarki Egilsson.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri vinur og tengdapabbi.
Ég þakka þér allar góðu sam-
verustundirnar síðan við kynnt-
umst.
Þú varst alltaf boðinn og búinn
ef ég þarfnaðist aðstoðar og varst
alltaf að brasa eitthvað fyrir mig
á snyrtistofunni minni eða í hús-
inu hjá okkur Benna bæði úti og
inni.
Þín verður sárt saknað, Egill
minn.
Blessuð sé minning þín.
Svo viðkvæmt er lífið sem
vordagsins blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Ásbjörg Ýr Einarsdóttir.
Elsku afi minn.
Takk fyrir allar yndislegu
stundirnar okkar saman, ég er
svo lítill að mamma og pabbi
munu segja mér hvað þú varst
frábær og góður maður.
Alltaf tilbúinn að koma og líta
eftir mér þegar á þurfti að halda.
Ég veit að englarnir munu
passa þig vel.
Í bænum okkar besti afi
biðjum fyrir þér
að guð sem yfir öllu ræður
allt sem veit og sér
leiði þig að ljóssins vegi
lát’ þig finna að,
engin sorg og engin kvilli
á þar sama stað
Við biðjum þess í bænum okkar
á bakvið lítil tár,
að Guð sem lífið gaf og slökkti
græði sorgar sár.
Við þökkum guði gjafir allar
gleði og vinarfund
og hve mörg var ávallt með þér
ánægjunnar stund.
(Sigurður Hansen.)
Egill Rúnar Benediktsson.
Elsku Egill minn.
Mig langar að þakka fyrir ynd-
islegar móttökur á heimili ykkar
Gunnu, þar sem óhætt er að segja
að alltaf hafi verið kátt í höllinni.
Nú kveiki ég á kerti og rifja upp
fallegar minningar með skemmti-
lega brosið þitt í huga og vona að
þér líði vel þar sem þú ert núna.
Þín verður sárt saknað.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar
því tíminn mér virðist nú standa
í stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum
ei ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut
allar þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers
manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Sá einn þekkir gleðinnar gáska
og fjör
sem gist hefur þjáning og pínu.
Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl
sem eygir í hugskoti sínu,
að sorgina við getum virkjað til góðs,
í vanmætti sem er oss yfir,
ef ljósið á kertinu lifir.
(Kristján Stefánsson frá Gilhaga.)
Elín Árdís.
Egill Sigurjón
Benediktsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum
við fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu og
fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
HELGU PÁLSDÓTTUR
frá Hnífsdal,
Hlíð 2,
Ísafirði.
Guðrún Skúladóttir,
Páll Skúlason, Jóhanna Einarsdóttir,
Guðfinna Skúladóttir, Kristján Guðmundsson,
Helga Skúladóttir, Hilmar Sigursteinsson,
Sólveig Gísladóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
HJÖRDÍS NÍELSEN,
fædd Guðmundsdóttir,
Sydtoften 112,
7200 Grindsted,
Danmörku,
lést föstudaginn 9. nóvember.
Minningarathöfn verður haldin í Langholts-
kirkju mánudaginn 10. desember kl. 15.00.
Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og vinarhug.
Jarðsett verður í Hólavallakirkjugarði.
Bálför fór fram 16. nóvember frá Grindsted-kirkju.
Aðstandendur.
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
KRISTINS GUNNARSSONAR
hæstaréttarlögmanns.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða
umönnun.
Bryndís Jóhannsdóttir,
Þórunn Kristinsdóttir, Garðar Jóhann Guðmundsson,
Þórdís Kristinsdóttir, Ásgeir Magnússon,
Gunnar Kristinsson, Claudia Picenoni,
Jóhann Kristinsson, Sólveig Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar,
KRISTFRÍÐAR KRISTJÁNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í
Hafnarfirði fyrir umönnun.
Guðmundur Kristjónsson, börn og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinahug vegna
andláts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ODDNÝJAR LAXDAL JÓNSDÓTTUR,
Skálagerði 6,
Akureyri.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki Heimahlynningar Akureyrar.
Jón Laxdal Halldórsson, Aðalheiður S. Eysteinsdóttir,
Ólafur Halldórsson, Gígja Gunnarsdóttir,
Halldór Halldórsson, Halldóra B. Skúladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG ÓLADÓTTIR,
lést á Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
sunnudaginn 18. nóvember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Álfdís Gunnarsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson,
Gunnar Hjörtur Gunnarsson, Jónína I. Melsteð,
Óli Gunnarsson, Ingibjörg S. Gísladóttir,
Ingi Þórir Gunnarsson, Ragnheiður Jósúadóttir,
Bjarni Einar Gunnarsson, Valgerður Olga Lárusdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og
ömmu,
SIGRÚNAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Vesturströnd 15,
Seltjarnarnesi,
sem andaðist sunnudaginn 18. nóvember og
jarðsett var frá Grensáskirkju mánudaginn 26. nóvember.
Gísli Gíslason,
Ásta Gísladóttir,
Halldór Hrafn Gíslason, Jóhanna Ýr Jónsdóttir,
Heba Sigríður, Gísli Hrafn og Sigrún Ýr Halldórsbörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
fráfalls og jarðarfarar okkar ástkæru
KRISTNÝJAR PÁLMADÓTTUR,
Völusteinsstræti 22,
Bolungarvík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Fjórðungs-
sjúkrahússins á Ísafirði.
Valdimar Lúðvík Gíslason,
Runólfur Kristinn Pétursson, Eygló Harðardóttir,
Jón Pálmi Pétursson, Annika Olsen,
Margrét Lilja Pétursdóttir, Agnar Ebenezersson,
Sigurlín Guðbjörg Pétursdóttir, Pétur Oddsson,
barnabörn og langömmubörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Minningargreinar