Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 43

Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 43
MINNINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012 Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Einholt, 160082, Hornafirði, þingl. eig. Lífsval ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., föstudaginn 7. desember 2012 kl. 10:30. Sýslumaðurinn á Höfn, 30. nóvember 2012. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Iðufell 8, 205-2548, Reykjavík, þingl. eig. Magnús Hjörtur Karlsson, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 14:00. Krummahólar 6, 204-9489, Reykjavík, þingl. eig. Ingi Geir Hreinsson, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 11:30. Laufrimi 3, 222-4594, Reykjavík, þingl. eig. Helga Ólafsdóttir og Þórir Ingi Sveinsson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Reykjavíkurborg, fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 14:30. Logafold 77, 204-2704, Reykjavík, þingl. eig. Lovísa Guðbjörg Sigurjóns, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, SP Fjármögnun hf og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 10:30. Veghús 13, 204-0989, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Brynhildur Þöll Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., fimmtudaginn 6. desember 2012 kl. 15:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 30. nóvember 2012. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Borgartún 30a, 226-0280, Reykjavík, þingl. eig. Benedikt Ólafsson og Björg Ólöf Berndsen, gerðarbeiðandi Stafir lífeyrissjóður, miðviku- daginn 5. desember 2012 kl. 10:30. Hátún 8, 201-0310, Reykjavík, þingl. eig. Db. Þuríðar Hermannsdóttur, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 10:00. Hraunbær 20, 204-4514, Reykjavík, þingl. eig. Hulda Ingvarsdóttir, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður, Reykjavíkurborg og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 13:30. Krókháls 5, 222-4903, Reykjavík, þingl. eig. Njála ehf, gerðar- beiðendur Reykjavíkurborg og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 15:00. Naustin 1, 200-2582, Reykjavík, þingl. eig. BS10 ehf., gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 11:30. Skúlagata 40a, 200-3521, Reykjavík, þingl. eig. R.S. vörur og þjónusta ehf, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 5. desember 2012 kl. 11:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 30. nóvember 2012. ✝ Björn Breið-fjörð Finn- bogason fæddist á Eyri við Mjóafjörð N-Ísafjarðarsýslu 24. maí 1937. Hann lést á sjúkrahúsinu á Ísafirði 23. nóv- ember 2012. Foreldrar Björns eru Salvör Krist- jánsdóttir og Finn- bogi Björnsson frá Kirkjubæ og eru þau bæði látin. Systkini Björns eru: 1) Ólöf, maki Guðmundur Ólason. Þau eru bæði látin. Börn þeirra eru: a) Kristján Bjarni, b) Guðrún Ólöf, c) Salvar Finnbogi, d) Vignir. 2) Guðmundur Kristján, hann er látinn, eftirlifandi sambýliskona Valdís Jónsdóttir. 3) Kristján Ragnar, maki María Sonja Hjálmarsdóttir, hún er látin. Börn hans eru: a) Kristinn Finn- bogi, hann er látinn. b) Jón Brynjar. 4) Arndís, barn hennar er: a) Árni Þór Einarsson. Björn vann alla sína starfsævi sem bifreiðastjóri. Árið 1963 byrjaði hann í vörubílaakstri og gekk síðan til sam- starfs við Gunnar og Ebeneser hf., það samstarf varði allt til ársins 1980. Eftir það starfaði hann við eigin rekstur með vörubíla og leigu- bílaakstur. Árið 2000 gerðist hann verktaki hjá Íslandspósti og stofnaði fyrirtækið Vestanpóst- urinn ehf. Á árinu 2012 hóf hann síðan rekstur á eigin vöruflutn- ingabifreið og starfaði sem verk- taki hjá Eimskip-Flytjanda allt til dauðadags. Útför Björns fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 1. desember 2012, og hefst athöfnin kl. 14. Nú hefir „maðurinn með ljá- inn“ lagt að velli Björn Finn- bogason eða Bjössa á Kirkjubæ eins og hann var kallaður. For- eldrar hans fluttu að Kirkjubæ vorið 1946. Þau voru félagslynt fólk og gengu þau fljótlega til liðs við Íþrótta- og málfunda- félagið Ármann og voru mjög virk í starfi þess um árabil. Þannig tókst mikil vinátta milli okkar fjölskyldu á Grænagarði og þeirra. Þegar ég eignaðist minn fyrsta vörubíl ók ég mikið fyrir þau, þar til að Guðmundur sonur þeirra eignaðist vörubíl strax og hann hafði aldur til. Þetta voru heyflutningar, kol og fleira. Það var því ekki óeðlilegt að kynni mín við Kirkjubæjarfólkið yrðu mikil. Bræðurnir á Kirkjubæ urðu strax liðtækir skíðamenn og tóku þátt í Vestfjarðamótum og innanfélagsmótum með góðum árangri. Vorið 1953 þegar tengdafaðir minn tók við vegaverkstjórn í Djúpinu útvegaði ég Bjössa vinnu þar hjá honum. Þar var búið í tjöldum og vorum við tjaldfélagar í þrjú sumur. Hann keypti síðan af mér sinn fyrsta vörubíl vorið 1956 og er með hann í vegavinnu þar í nokkur ár. Haustið 1959 þegar Dynjand- isheiðin opnast hófum við Ebeneser Þórarinsson fyrstir manna reglubundna vöruflutn- inga milli Ísafjarðar og Reykja- víkursvæðisins. Þetta var fjór- hjóladrifinn bíll, þá forfallaðist Ebbi og ég fékk Bjössa til að keyra með mér um haustið. Þetta var gott haust þó að snjór væri á heiðum. Þá kom strax í ljós hvað Bjössi var góður og gætinn bílstjóri sem hægt var að treysta. Ferðirnar þetta haust voru erfiðar, þá þekktist ekki snjómokstur. Ég minnist þess sérstaklega þegar millikassinn bilaði á miðri Þingmannaheiði, við urðum að taka hann undan bílnum og fara með hann til Þingeyrar til viðgerðar. Við vor- um svo heppnir að fá góðan Rús- sajeppa frá Fossá, og Matthías í smiðjunni á Þingeyri átti réttar legur. Þegar við komum til baka var komið leiðindaveður með slyddu og snjókomu þannig að ekki var sældarverk að koma kassanum í (það voru engir kuldagallar í þá daga). Bjössi keypti sér síðan flutn- ingabíl og byrjaði vöruflutninga frá Reykjavík, en okkur öllum til happs gekk hann til liðs við okk- ur Ebba. Fyrsta mars 1963 stofnum við fyrirtækið Gunnar og Ebeneser h/f sem við rákum saman til 1980. Við seldum flutn- ingabílana 1980 en héldum áfram mjólkur- og póstflutning- um í Djúpinu til 1987. Þegar við keyptum fyrsta kojubílinn ókum við Bjössi saman í mörg ár, við slíkar aðstæður kemur vel í ljós hvort menn eiga skap saman. Björn annaðist síðan póst- flutninga að sunnan frá árinu 2000 þar til í haust og fór það vel úr hendi. Að leiðarlokum vil ég þakka Bjössa af heilum hug öll okkar samskipti og veit að hann fær góða heimkomu og ekur áfram á ókunnum slóðum. Að lokum sendum við Valgerður og fjöl- skylda aðstandendum Bjössa hugheilar samúðarkveðjur og veit að sá sem öllu ræður verður með þeim nú um stundir. Gunnar Pétursson. Björn Breiðfjörð Finnbogason Í dag kveðjum við Valborgu Sigurðardóttur, fyrrverandi skólastjóra Fósturskóla Íslands. Árið 1946 kom Valborg heim til Íslands að loknu háskólanámi í uppeldis- og sálarfræði í Banda- ríkjunum. Það ár varð hún fyrsti skólastjóri Uppeldisskóla Sum- argjafar sem síðar varð Fóstru- skóli Sumargjafar og Fóstur- skóli Íslands. Þar mótaði hún skóla sem átti sér enga hefð í ís- lensku skólakerfi og gegndi skólastjórastarfinu í hartnær 40 ár. Hún var því sannkallaður brautryðjandi í menntun leik- skólakennara. Valborg var margbrotinn persónuleiki. Hún var skólamaður með skýra sýn á þarfir ungra barna og hvernig samfélagið gæti sem best upp- Valborg Sigurðardóttir ✝ Valborg Sig-urðardóttir fæddist 1. febrúar 1922 í Ráðagerði á Seltjarnarnesi en ólst upp á Ásvalla- götu 28 í Reykja- vík. Hún lést á dval- ar- og hjúkrunar- heimilinu Grund 25. nóvember 2012. Útför Valborgar fór fram frá Nes- kirkju 30. nóvember 2012. fyllt þær og unnið að velferð þeirra. Hún var dugleg baráttukona og ein- læg í baráttunni fyrir menntun kvenna og gegn al- gengum fordómum sem sneru að hlut- verki leikskóla og menntun leikskóla- kennara, átakamál- in voru svo sannar- lega mörg. Valborg var að auki glæsileg heimskona, vel ritfær, skemmtileg og hnyttin í tilsvör- um. Það gustaði af henni hvar sem hún kom. Ég kynntist Valborgu 1981 þegar ég leysti hana af sem skólastjóra í nokkur ár með hléum, m.a. þegar hún vann að Uppeldisáætlun fyrir dagvistar- heimili á vegum menntamála- ráðuneytisins. Útgáfa Uppeldis- áætlunar 1985 markaði tímamót í leikskólamálum. Ég tók síðan við skólastjórastarfinu þegar hún ákvað að segja því lausu. Hún sat þó ekki auðum höndum heldur lét áfram til sín taka í fé- lagsmálum sem tengdust velferð barna og sinnti ritstörfum. Valborg var ákaflega farsæl í sínu einkalífi. Eiginmaður henn- ar var Ármann Snævarr, fyrr- verandi rektor Háskóla Íslands, og eignuðust þau fimm börn. Ár- mann lést fyrir tveim árum. Heimili þeirra hjóna var mikið menningarheimili og þar var mjög gestkvæmt m.a. vegna starfa þeirra beggja en einnig voru þau vinmörg. Valborg sinnti hlutverki gestgjafans með sama glæsibrag og dugnaði og skólastjórastarfinu. Ég undrað- ist oft hvernig hún kæmist yfir þetta allt saman. Að mínu áliti kom tvennt til. Annars vegar hugmyndaauðgi, dugnaður og þrautseigja Valborgar og hins vegar sú staðreynd að hún stóð ekki ein. Við Haukur eiginmaður minn kynntumst Valborgu og Ármanni og áttum með þeim margar góðar stundir. Það fór ekki á milli mála hve stoltur Ár- mann var af Valborgu og starfi hennar og studdi hana með ráð- um og dáð. Þetta var svo sann- arlega gagnkvæmt, þarna fóru mjög samhent hjón. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Valborgu og hugsjónum hennar. Minning hennar mun lifa áfram í huga margra og verða þeim hvatning til góðra verka, ekki síst þeim sem vinna að menntun barna. Við Haukur sendum börnum og fjölskyldu Valborgar okkar innilegustu samúðaróskir. Gyða Jóhannsdóttir. Af lífi og starfi heiðurs- hjónanna Valborgar Sigurðar- dóttur og Ármanns Snævarr má lesa hluta af nútímasögu ís- lensku þjóðarinnar er það voru forréttindi bestu námsmannanna að fara utan til framhaldsnáms. Sem að loknu námi stjórnuðu stofnunum, sátu í nefndum, fluttu erindi, rituðu greinar, námsefni og bækur auk þess að stunda kennslu og standa sjálfir í einstökum aðgerðum. Með þessu móti gátu þeir í rauninni afkastað mörgum ævi- störfum og það átti vel við þau hjónin. Er Valborg Sigurðardóttir varð dúx Menntaskólans í Reykjavík tíðkaðist að dúxar og semidúxar menntaskólanna fengju sjálfkrafa námsstyrk er nægði til að hefja framhaldsnám í framandi löndum. En þarna við útskrift Valborg- ar, árið 1941, var styrkjunum fjölgað úr fjórum í tíu en hún lát- in vita að styrkirnir væru ein- göngu ætlaðir piltum. Þá 19 ára þurfti hún að berja niður þennan fordæðuskap úr fortíðinni og styrkinn fékk hún árið eftir. Á stríðsárunum stundaði Val- borg nám í Bandaríkjunum, bæði í sálarfræði og uppeldis- fræði, þegar konurnar fóru þar út af heimilunum að vinna við hergagnaframleiðsluna til jafns við karlanna. Valborgu varð ljóst að þannig yrði þróunin framvegis að konur færu, með aukinni menntun, að njóta sín í atvinnu utan heimil- anna. Börn þeirra þyrftu því að hefja skólagöngu fyrr og það á stofnunum þar sem fléttað væri saman lærdómi og leik. Heimkomin frá námi hóf Val- borg strax að gera grein fyrir þessum óumflýjanlegu þjóð- félagsbreytingum, en flestir hér heima hugðu slíkar hugmyndir bæði aðför að húsmæðrastarfinu og heimilinu, þar sem konur ættu að halda sig. Árið 1946 tók Valborg að sér stofnun og rekstur á Uppeldis- skóla Sumargjafar er fagmennt- aði starfsfólk fyrir barnaheimili. Barnagæslu töldu heimamenn þá ekki til sérstakra uppfræðslu- starfa og þyrfti hvorki til mennt- un né námsefni. Í brautryðjandastarfi sínu hélt félagsvísindakonan Valborg ótrauð áfram að mennta þá starfsstétt þeirra er leiðbeindi ungum börnum til aukins þroska. Innan almenna mennta- kerfisins var Fósturskóli Íslands stofnaður árið 1973 og varð Val- borg skólastjóri. Ekki vildu ráðamenn þá samþykkja tillögu Valborgar að hún útskrifaði leik- skólakennara, frá fornu fari teld- ust þær fóstrur er gættu að börnum annarra og væri ekkert í ætt við kennslu. Valborg fylgdist með ávöxtum ævistarfsins þar sem leikskólar risu í hverju sveitarfélagi og menntun leikskólakennara end- aði í Háskóla Íslands sem hluti af kennaramenntun í landinu. Auk þess að sjá svo konur flykkjast til náms og starfa í atvinnulífinu. Við hégiljur og fáfræði fortíð- arinnar vann Valborg Sigurðar- dóttir öll sín stríð. Þessi fluggáfaða og skemmti- lega kona fagnaði afkomendum sínum á 90 ára afmæli sínu í febrúar síðastliðnum við bæri- lega líðan og mikla hamingju. Afkomendum vottum við sam- úð og þökkum viðkynninguna við eina af merkustu menntakonum þjóðarinnar. Lena Kristín Lenharðs- dóttir og Viggó Jörgensson. Ég sá þig í fyrsta sinn með mömmu á matsölustað. Þú varst í bleikri skyrtu og með tvenn gleraugu, nokkuð sem þú varst oftast með þegar þú varst að lesa, mér fannst það alltaf svo rosalega fyndið og við hlóg- um öll þrjú að því. Við gerðum svo margt saman, það eru svo Jón Ásbjörnsson ✝ Jón Ásbjörns-son fæddist í Reykjavík 30. nóv- ember 1938. Hann lést 2. október 2012. Útför Jóns fór fram frá Hallgríms- kirkju 11. október 2012. margar sögur til þess að segja, all- ar fyndnar, eins og þegar við fór- um að skíða og þú hélst mér niður erfiðustu brekk- urnar til þess að komast niður, en þegar við komum að bílnum fundum við ekki lyklana og við komumst að þeirri niðurstöðu að þeir hefðu dottið úr vasanum. En það var ekki svo leiðinlegt, við gistum á hóteli og fórum að borða í skíðaskónum og lopapeysum. Það var gaman að vera í sum- arbústaðnum, veiða, fara í golf- ferðir, út að borða, og á litla bátinn þinn sem þú áttir í Salo- brena, þar sem við veiddum skrítna fiskinn sem var eitr- aður. Ég mun aldrei gleyma þér. Fyrir mér hefur þú alltaf verið pabbi minn. Þú kenndir mér svo margt og við gerðum svo marga hluti saman. Ég man að ég spurði þig hvort ég mætti kalla þig „pabba“ og hvort að þegar þið mamma mynduð gift- ast væri Birgir bróðir minn. Við vorum litla fjölskyldan, ég hef alltaf sagt það, þú kallaðir okkur „the incredibles“. Ég vildi óska þess að þú værir hér. Þetta var erfitt, eins og margt í lífinu, en ég ætla að reyna að gleyma þessu vonda og geyma þetta góða. Þín dóttir, Aðalheiður Björg. HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Minningargreinar Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviá- gripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minn- ing@mbl.is. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.