Morgunblaðið - 01.12.2012, Qupperneq 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Tónlistarbransinn stendur ráðþrota
gagnvart fyrrverandi tyggjókúlu-
popparanum, síðar dramapopps-
söngvaranum Scott Walker. Síðustu
plötur hans þykja það sýrðar og það
„erfiðar“ að meira að segja þeir, sem
hugnast slík list best, klóra sér í
höfðinu.
Skilningsleysið er slíkt að menn
nota gamalt „trix“, líta á Walker sem
hálfgerðan geðsjúkling og það skýri
þennan magnaða stað þar sem list
hans dvelur á um þessar mundir.
Sem betur fer eru þeir þó til sem
virða list hans við hann og persónu-
lega er engin ein plata sem hefur
vakið með mér jafn mikla eftirvænt-
ingu í ár og þessi nýja plata hans,
Bish Bosch. Hún kemur út á merk-
inu góða og gegna 4AD nú eftir helgi
en síðasta plata hans, The Drift
(2006), er eitt það ótrúlegasta tónlist-
arverk sem ég hef nokkru sinni
heyrt, segi og skrifa það.
Young (The Wire, Electric Eden
o.fl.) skrifar langan texta á bis-
hbosch.com þar sem ýmislegt fróð-
legt er að finna, þó textinn sé svo
gott sem jafn lyklaður og platan
sjálf.
Scott segir sjálfur að tónlist hans
sé „andleg“ fyrst og fremst og í
gegnum allan þann orðahrauk sem
er raðað í kringum þessa „erfiðu“
plötu er vel hægt að greina að Scott
er um leið frekar niðri á jörðinni með
það sem hann vill ná fram. Hann er
listamaður og „eitthvað nýtt“ virðist
vera megindrifkrafturinn hjá honum
þegar grannt er skoðað. Hann sagði
t.a.m. í viðtali við Mojo fyrir stuttu-
:„Þið þurfið ekki á mér að halda til að
koma með þetta „venjulega“.“ Af
„Epizootics!“ að dæma er það lauk-
rétt.
Bendi að lokum á stórmerkilega
heimildarmynd, Scott Walker: 30
Century Man (2006) fyrir þá sem
vilja kynna sér málin betur. Einnig
bókina No Regrets: Writings on
Scott Walker (2012) sem ritstýrt er
af nefndum Rob Young.
Við, hin
dauðlegu …
Nýtt Scott Walker fer eigin leiðir í tónlistarsköpun sinni.
Umbreyting
Ég ætla ekki að fara ítarlega í hina
merku umbreytingu sem Scott Wal-
ker hefur gengið í gegnum á ferl-
inum. Það var á Nite Flights (1978),
plötu sem eignuð var Walker Brot-
hers, sem Walker hóf að gera til-
raunir með tónlist sína og hafa þær
orðið sértækari og farið lengra frá
tónlistinni, ef svo mætti segja, með
hverri sólóplötu síðan. Sú fyrsta, Cli-
mate of Hunter, kom út 1984, síðan
Tilt (1995) og loks The Drift (2006).
The Drift er mögnuð plata svo ekki
sé nú meira sagt, hrollvekjandi og
martraðarkennd tónlistin er bundin í
kolniðamyrkur en svo brestur
skyndilega á með birtu, yl og fegurð.
Walker syngur í þessum „krúnustíl“
sínum (e. „crooner“) þannig að plat-
an hljómar eins og I am a Bird Now
með Antony and the Johnsons hafi
verið snúið á rönguna. Það er ekki oft
sem maður verður beinlínis hræddur
við að hlusta á tónlist en The Drift
kallar fram þannig stemningu – af
mun meiri ofsa en grimmasta og
kaldasta öfgarokk sem ég hef heyrt.
Á jörðinni
„‘See You Don’t Bump His Head’“,
„Corps De Blah“, „SDSS1416+13B
(Zercon, A Flagpole Sitter)“, „Epi-
zootics!“ og „The Day The “Con-
ducator Died“ eru á meðal lagatitla á
plötunni og eru vísbendingar um
innihaldið (þegar er hægt er að nálg-
ast „Epizootics!“ á netinu). Upptökur
hófust 2009 og platan var tekin upp í
lotum í þrjú ár. Flest er á huldu með
plötuna en poppfræðingurinn Rob
» Skilningsleysið erslíkt að menn nota
gamalt „trix“, líta á
Walker sem hálfgerðan
geðsjúkling og það skýri
þennan magnaða stað
þar sem list hans dvelur
á um þessar mundir.
Scott Walker gefur út Bish Bosch
Við sama heygarðshornið og enginn
veit hvernig bregðast skal við
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is
Sýning Halldórs Ásgeirssonar, Ferða-
lagið, verður opnuð í dag kl. 16 í
Slunkaríki í Edinborgarhúsinu á Ísa-
firði. Í tilkynningu segir að Halldór
hafi frá sinni fyrstu tíð sem myndlist-
armaður haft áhuga á ferðalögum.
„Frá unglingsaldri hefur líf mitt meira
og minna snúist um ferðalagið, út-
þrána, að kanna og sjá heiminn sem
hefur einnig síast inn í mína list frá
upphafi. Fyrsta alvöru listaverkið sem
ég gerði tvítugur að aldri finnst mér
vera dagbók með textum og teikn-
ingum ásamt ljósmyndum frá 9 mán-
aða ferðalagi um Austurlönd fjær
1977,“ er haft eftir Halldóri. Hann hafi
alla tíð unnið með náttúruöflin í ýmsa
listmiðla. Sýningin í Edinborgarhúsinu
fjallar um níu ferðir hans til Vest-
fjarða á árunum 1986-2007.
Sýningin Ferðalagið opnuð í Slunkaríki
Náttúruöfl Fire –
Lava eftir Halldór.
RISE OF THE GUARDIANS 2D Sýnd kl. 2
RISE OF THE GUARDIANS 3D Sýnd kl. 4
KILLING THEM SOFTLY Sýnd kl. 8 - 10 Sýnd kl. 8 - 10
NIKO 2: BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýnd kl. 2 - 4 - 6 Sýnd kl. 2 - 4 - 6
SKYFALL Sýnd kl. 6 - 9 Sýnd kl. 6 - 9
PITCH PERFECT Sýnd kl. 8 - 10:15 Sýnd kl. 8 - 10:15
WRECK-IT RALPH 2D Sýnd kl. 2 Sýnd kl. 2
WRECK-IT RALPH 3D Sýnd kl. 4 - 5:40 Sýnd kl. 4 - 5:40
TEDDI: TÝNDI LANDKÖNNUÐURINN Sýnd kl. 2 - 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
LAUGARDAGUR SUNNUDAGUR
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÐU
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
12
12
16
L
L
L
L
L
L
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSLENSKT TAL
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
“GEÐVEIK RÓMANTÍK”
-S.G.S., MBL
ARFUR NÓBELS KL. 3.40 (TILBOÐ) - 5.50 - 8 - 10.10 16
NIKO 2 KL. 3.20 (TILBOÐ) L
HOTEL TRANSYLVANIA ENSKT TAL ÍSL. TEXTI KL. 3.20 (TILB.)
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 16
SNABBA CASH 2 KL. 10.40 16
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 - 9 16
DJÚPIÐ KL. 3.40 - 5.50
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10 16
HERE COMES THE BOOM KL. 8 7 / SKYFALL KL. 5.20 12
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.40 - 10 12
NIKO 2 KL. 2 (TILBOÐ) - 3.50 L
HOTEL TRANSYLVANIA ENSKT TAL ÍSL. TEXTI KL. 3.50 L
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 2 (TILBOÐ) L
*AÐEINS LAUGARDAG ** AÐEINS SUNNUDAG
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16
GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D FORSÝNING KL. 1**
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
HERE COMES THE BOOM KL. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.20
NIKO 2 KL. 1 (TILBOÐ) - 3 - 6 L
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 1 - 3.10 7
SKYFALL KL. 1* (TILBOÐ) - 5 - 8 12
SKYFALL LÚXUS KL. 1 - 5 - 8 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 1 (TILBOÐ) L